Alþýðublaðið - 03.06.1951, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 03.06.1951, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Sunnudagur 3. júní 1851 ilC 5 ,'tj ;iis SameinaSa gufuskipaféEagið befur haldið uppi siglingum milli ISIANDS OG ÚTLANDA lengur en nokkurt annað starfandi félag. Semfum sjómönnum kveðjur á sjémannadaginn. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen. Erlendur Pélursson. ■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Sjómenn! - ■ •!—;• ■sr,\ hssysasjg A sjómannadaginn fæmm við öllum sjómönnum vorar bezfu heillaóskir H.f. Skallagrímur ÞRJÚ myndarleg kaupskip sigla nú undir hinum græna fána íslenzku samvinnufélag- anna, Hvassafell, Arnarfell og Jökulfell, samtals á sjötta þús und brúttólestir. Eru þetta allt ný skip, smíðuö í stríðslok og eftir stríð, hið fyrsta fyrir tæp lega fimm árum og hið síð- asta kom fyrir skömmu síðan. Þrátt fyrir þennan skipaflota hafa samvinnufélögin orðið að taka mörg leiguskip, og hefur SÍS því von um leyfi til að láta byggja tvö ný skip til að geta sjálft annað flutningaþörf sinni. Það er gamall draumur sam vinnumanna hér á landi, að því er blaðinu var tjáð af skipadeild SÍS, er það leitaði upplýsinga hjá henni nýlega, að samtök þeirra eignist sín eigin kaup- skip. Var það frá öndverðu skoðun þeirra, að öflug sam- tök neytenda og framleiðenda, er reyndu að hafa veruleg á- hrif á verzlunar- og fram- leiðsluhætti í landinu, mundu hafa feikinóg verkefni fyrir eigin skip og verða það hag- ræði, að geta hagað siglingum þeirra eftir eigin þörfum. Skömmu eftir fyrri heims- styrjöldina var SÍS aðili að kaupum gamals skips, sem ekki naut lengi við. Fyrir síð- ari styrjöldina keypti KEA á Akureyri strandað skip, lét gera það upp og átti um skeið. En skipadeild SÍS, sem nú ann ast rekstur Fellanna þriggja og margra leiguskipa, var ekki stofnuð fyrr en eftir síðari styrjöldina. Það mun hafa verið 1942, sem aðalfundur SÍS samþykkti að stofna skipakaupasjóð og var þegar hafin söfnun hluta- fjár. í styrjaldarlok var stofn- aður framkvæmdasjóður Sam- bandsins og skipakaupasjóður- inn sameinaður honum. Var þá ákveðið að festa þegar kaup á skipi og kom Hvassafeil til landsins haustið 1946. Hvassafell var keypt frá Ítalíu. Var það upprunalega smíðað fyrir ítölsku stjórnina til hergagnaflutninga, en í stað þess að þjóna stríðsguð- inum á Miðjarðarhafi varð hlutverk þess friðsamlegir af- urðaflutningar og aðdrættir fyrir íslendinga. Skipið hefur heimahöfn á Akureyri, er 2300 lestir og var fyrsta nýja skipið, sem til landsins kom eftir stríð, og þá um skeið stærsta skip flotans. Skipið hefur reynzt hið hentugasta og hefur flutt afurðir til Mið- jarðarhafslanda, inn í Eystra- salt alla leið til Finnlands og loks til nálægari landa í Ev- rópu. Skipstjóri á Hvassafelli er nú Bergur Pálsson. Annað skip samvinnumanna var smíðað fyrir þá í Sölves- borg í Svíþjóð. Er það Arnar- fell, sem kom til landsins haustið 1949, og er í ö’lum aðalatriðum eins og Katla. Þetta skip, sem hefur heima- höfn á Húsavík, hefur einnig reynzt mjög hentugt og hefur siglt á sömu slóðir og Hvassa- fell, en auk þess farið eina ferð til Ameríku. Skipstjóri á Arn arfelli er Sverrir Þór. Þriðja skip SÍS er Jökulfell, sem kom til landsins í apríl- mánuði síðast liðnum. Er það rösklega 1000 lesta kæliskip, smíðað í Óskershöfn í Svíþjóð. Flutti það fullfermi heim og tók land á Reyðarfirði, þar sem heimahöfn þess er. Fór það síðan umhverfis land til að taka fisk og kjöt, er það flutti til Bandaríkjanna. Skip- ið er nú í leigusiglingum vest- an hafs fram á haust, en yfir sumarmánuðina er að jafnaði lítið futt út af frystum af- urðum. Skípstjóri á Jökulfelli er Guðni Jónsson. Skip þessi eru öll' undir stjórn ungra manna, og voru þeir Sverrir, Bergur og Guðni al’ir stýrimenn á Hvassafelli, er það kom til landsins haust- ið 1946. vegar verið flutt með skipum annarra íslenzkra félaga. Þá hefur verið leitazt við að láta skipjn flytja vörur beint á hafnir um land allt í stað þess að afskipa þeim í Reykjavík. Höfðu samvinnusk;p til dærnis 315 viðkomur í 53 höfnum í landinu á síðast liðnu ári, auk. þess sem þau komu 90 sinn- um í 32 hafnir í 13 öðrum löndum. ENN MÖRG LEIGUSKIP. Þrátt fyrir þessa skipaeign og það, að stykkjavara kaup- félaganna og Sambandsins hef ur verið flutt með öðrum ís- ’enzkum skipum, héfur Sam- bandið orðið að taka mörg er- lend skip á leigu til að annast flutningaþörfina. Námu flutn- ingar leiguskipanna í fyrra 40 000 smálestum og er það álíka mikið og Hvassafell og Arnar- fell fluttu saman. Til þess að minnka enn gjaldeyrisútlát vegna leigu- skipa hefur Sambandið sótt um leyfi fjárhagsráðs til • að skipin beinlínis komið í stað | smíða tvö ný kaupskip, en leiguskipa. Öll stykkjavara | ekki hefur enn frétzt, hvernig samvinnufélaganna hefur hins þeirri umsókn verður tekið. REKSTUE SKIPANNA. Hvassafell og Arnarfell hafa verið rekin þannig, að þau hafa fyrst og fremst flutt til landsins þungavöru, svo sem kol, salt, sement og timbur, sem leiguskip annars hafa ann azt að mestu leyti fyrir íslend inga undanfarin ár, og hafa því Arnarfell. Jökulfell,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.