Alþýðublaðið - 30.09.1951, Síða 4

Alþýðublaðið - 30.09.1951, Síða 4
4 ALÞVÐUBLAÐIÐ Sunnudagur 30. sept. 1951 Útgefandi: AlþÝöuflokturinn. Ritstjóri: Stefán Pjetursson. Auglýsingastjóri: Emilía Möller Ritstjórnarsími: 4901 og 4902. Auglýsingasími: 4906. AfgreiSslusími: 4900. ÞEGAR VERÐLAGSEFTIR- LITIÐ var afnumið í sumar, fór Bjöm Ólafsson viðskipta- málaráðherra, aða.lhvatamaður þess óhappaverks, digurbarka- legum orðum um það í útvarps ræðu, að ríkisstjórriin myndi vaka yfir því, að verzlunará- lagningin á vörur yrði „hóf- leg“, þrátt. fyrir afnám verð- lagseftirlitsins; en kæmi það í Ijós, að verzlunarfrclsið vrði misnotað til óhæfilegrar álagn ingar, þá mjmdi það kalla nýtt verðlagseftirlit yfir verzlunar- stéttina. Síðan viðskiptamálaráðherr- ann flutti þennan boðskap sara tímis því að verðlagseftirlitið var afnumið, eru liðnir um það bil tveir og hálfur mánuður, og óvefengjanleg reynsla hef- ur fengizt um það, hver áhrif afnám verðlagseftirlitsins hef- ur haft á verzlunarálagningu og verðlag. Og sú reynsla hef- ur nú verið gerð heyrinkunn í hinni stórathyglisverðu og um töluðu skýrslu verðgæzlu- stjóra um verzlunarálagning- una. Og hvað sýnir su skýrsla? Hún sýnir það, að heildsölu- álagníng hefur síðan verðlags- eftirlitið var afnumið verið tvöfölduð eða þrefölduð á mörg um vörum og að dæmi eru meira að segja til þess, að hún hafi verið tífölduð eða jafnvel þrettánfölduð! Smásöluálagn- ingin hefur vissulega ekki ver ið hækkuð nálægt því eins mikið, en þó í mörgum tilfell- um miklu meira en góðu hófi gegnir, og dæmi eru til, að hún hafi verið tvöfölduð eða þrefölduð. Þessi hækkun verzlunará- lagningarinnar í skjóli hinnar „frjálsu verzlunar11 er svo glæfrafleg, svo stjórnlaus. að jafnvel stjórnarblöðin hafa ekki treyst sér til þ#:ss að neita því, að hér væri um hreint og og beint okur ao’ræða. En hvað segir þá Björn Ólafsson við- skiptamálaráðherra, sem í sum ar lofaði að vaka yfir því, að verzlunarálagningin yrði , hóf leg“ og hótaði nýju verðlags- éftirliti, ef verzlunarfrelsið yrði misnotað? Það fengu menn að heyra í nýrri útvarpsræðu hans síðast Iiðið föstudagskvöld, þar sem hann gerði skýrslu verðgæzlu stjóra um verzlunarokrið að umtalsefni. Þar komst hann að þeirri vísdómslegu niður- stöðu, að verzlunarúlagningin væri „yfirleitt hófleg"; dæmin um óhóflega álagningu væru „tiltölulega fá“ og síður en svo nokkur sönnun þess, að ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar, þ. e. afnám K:rðlagseftirlitsins, séu rangar; þvert á móti boði þau bara það, „að verðlagið leitar fyrr jafnvægis en ella“! Og að svo mæltu boðaði við- skiptamálráðherrann, að frjálsa álagið yrði látið haldast um F u n d u r verður haldinn í FulllrúaráSi ÁlþýðuRokksins mánudaginn 1. októher kl. 8.30 síðdegis í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. undarefni: Verðlagsmál. Framsögumaður: Jón Sigurðsson formaður verðgæzlunefndar. Félagsmál. Félagar, mætið vel og stundvíslega. S T J Ó R N I N . sinn, sú reynsla, sem af því hafi fengizt, „bendi til þess, að rétt sé stefnt og að efnahags- ástandið sé að leita Með slíku.m og þvílíkum þvættingi boðaði Björn Ólafs- son viðskiptamálaráðherra það í útvarpsræðu sinni > föstu- dagskvöldið, að okrið yrði lát- i halda áfram. Og við hverju öðru var að búast af honum, heildsalanum í ráðherrastóln- um? Auðvitað er hann hæst ánægður með bá okurhækkun verzlunarálagningarinnar, sem orðið hefur síðan verðlagseft- irlitið var afnumið. Til þess var sú ráðstöfun gerð, að gefa okrinu lausan tauminn og vægis ! En almenningur, sem bann- :g er okrað á, lætur ekki bjóða jafnvæg- i sér upp á slíkan málflutning. Þolinmæði hans er á enda. Það vita stjórnarblöðin; og þess vegna eru þau hrædd. Þess vegna reyndi Morgunblaðið í gær að blekkja .lesendur sína um boðskapinn í útvarpsræðu Björns Ólafssonar á föstudags- kvöldið með því að feitletra á fyrstu síðu nokkur hreystivrði, sem hann lét falla um þáð. að „ríkisstjórnin muni ekki þola, að frjálsræði um verðleg verði misnotað“. En Björn Ólafsson meinar ekkert með slík.um mannalátum nú, frekar en í útvarpsræðu sinni í sumar, þegax hann lofaði að vaka yfir auka gróða heildsalanna. í augum Björns Ölafsssonar verð ur álagning þeirra aidrei nema „hófleg“, þótt hún sé tvöföld- uð, þrefölduð, tífölduð eða jafn vel þrettáníölduð! Allt er þetta. að dómi heildsalans í ráðherra stólnum aðeins sönnun þess, því, að verzlunarálagningin yrði ,,hófleg“ og hótaði nýju verðlagseftirliti, ef verzlunar- frelsið yrði misnotað. Og til- gangur Morgunblaðsins er heldur enginn annar en sá, að friða almenning og blekkja. Okrið á að halda áfram! Það Okkar á mllli sagt ■ ■ a SJÁLFSTÆÐISMENN eru alvarlega hræddir við áhrií þau, sem álagningarhneykslið muni hafa og má marka þennan ótta af því, hvernig Morgunblaðið segir frá málinu. * * * BJÖRN ÓLAFSSON viðskiptamálaráðherra varð svo vondur, þegar Al- þýðublaðið skýrði frá málinu, að hann fyrirskipaði að verð- gæzlunefnd (en formaður hennar lét blaðinu upplýsingarnar í té) skyldi framvegis ekki fá að sjá nein slík skjöl! SILLI OG VALDI eru að innrétta einn nýjan „har14 enn, þar sem Silkibúðin var á horni Bankastrætis og Ing- ólfsstrætis. * * * J. Þorláksson og Norðmann eru að inn- rétta stóra bygginga- og hreinlætisvöruverzlun þar sem Sportvöruhúsið var. Samkvæmt HAGTÍÐINDUM hefur verðhækkun í vísitölu- útreiknin'gi orðið sem hér segir í tíð núverandi ríkisstjórnar: Kjöt hefur hækkað um 19%, fiskur um 55%, mjólk og feitmeti um 44%, kornvörur um 81%, garðávextir og aldini um 180% og nýlenduvörur um 148%, eldsneyti 'og Ijósmeti um 63%, fatnaður um 75%, húsnæði um 8%(!) og liðurinn „ýms útgjöld“ Um 50%. * í: Meðaltalið af þessu er vísitöluhækkunin, sera var 48% í september. Menn velta því fýrir sér, hvort Almennar tryggingar ætli ekki að breyta auglýsingum sínum „TRYGGING er nauðsyn", þegar búið er að stofna nýtt tryggingafélag, sem heitir „TRYGG ING“! NÚVERANDI RÍKISSTJÓRN hefur fengið Marshall- hjálp samtals um 300 milljónir króna, en þar af eru komn- ar til landsins vörur fyrir 270 milljónir. * * * Við þetta bætast svo lón öll og mótvirðissjóðurinn, sem nam kr. 218 173 000 í lolt ágúst. TRÖLLASÖGUR ganga um það, að Bandaríkjamenn ætli að leggja mikinn þjóðveg frá Keflavík eftir Reykjanesi, Mos- fellsheiði, gegnum eða yfir fjöll og firnindi og niður í Hval- fjörð. Þessar sögur eru vafalaust uppspuni, m. a. úr því að ekkert svipað var gert í síðasta stríði. HAUKUR BJÖRNSSON hefur dvalizt heima undanfarið ■—- sjaldséður gestur á fósturjörðinni hin síðari ár. SPARIINNLÁN eru tiltölulega minni nú en þau hafa verið, og stafar það bæði af rýrari tekjum og minnkandi trausti fólks á geymdu fé. * * * í fyrra jukust spariinnlán um 20 milljónir frá marz til ágúst, en í ár hafa þau minnk- að um 2,5 milljónir á sama tíma. * * * Útlán bankanna hafa aukizt um tæplega 200 milljónir kr. á sama tíma. Fyrir tveim árum var steyptur fagurlega bogadreginn veggur fyrir framan hús við Miklatorg — þá samkvæmt teikn- ingum verkfræðinga-bæjarins. * :i: * Nú hefur þessi dýri veggur verið rifinn niður og verður bærinn vafalaust að kosta nýjan garð eftir nýjustu teikningum og breytingum verkfræðinganna. * * * Við torgið varð einnig að rífa upp leiðslur og munaði minnstu að gerbreyta yrði hitaveitustokk eins og við Laufás- veginn. * * Hvað skyldi þessi hringlandi með verklegar fram- kvæmdir frá ári til árs k'osta bæjarbúa? að verðlagið sé að „leita isfn- i var hin raunverulegi boðskap- ur, sem útvarpsræða Björns Ólafssonar á föstudagskvöldið hafði inni að halja. Verk, sem hefur heðið allt of lengL stað Eysteins Jónssonar og Björns Ólafssonar vitund betri. Framkoma þeirra í þessu máli er slík, að engu tali tekur. Þeir liggja undir því ámæli, að hafa brugðizt skyldu sinni og sofið á verð- inum, þegar þeir áttu að vaka. NÚ FYRIR SKÖMMU er búið að taka niður Joftskeyta- stangirnar á Melunum, en það er verk, sem beðið hefur allt of lengi. Af loftskeyta- stöngunum hefur stafað stór kostleg hætta íyrir hinar miklu flugsamgöngur við höf uðstaðinn, en þær hafa auk- izt með ævintýralegum hraða undanfarin ár. Samtök flug manna hafa hvað eftir annað skorað á viðkomand.i aðila að fjarlægja loftskeytastangirn- ar og málið oftar en einu sinni komið til kasta alþing- is. Þar hefur lengi verið meiri hluti fyrir því að výana jxetta nauðsynjaverk, en þó hefur það dregizt allf í.il þessa. Á NÆSTSÍÐASTA ÞINGI var samþykkt ályktunartillaga um að fjarlægja loftskeyta- stangirnar. En tveir ráðherr- ar núverandi ríkisstjórnar, Eysteinn Jónsson og Björn Ólafsson, komu í veg fyrir að hafizt yrði handa af einhverj um óskiljanlegum ástæðum. Þeir sættu að vonum harðri gagnrýni fyrir seinlæti sitt og tregðu á síðasfa þingi. Þá hugkvæmdist þeim sú afsök- un, að ekki hefði verið hægt að framkvæma 'ærk þetta, þar eð engin fjáryeiíl'ng hefði verið veitt til þess á fjárlög- um. Á þessum forsendum staðhæfðu þeir síð'ir., að ekki væri hægt að kenna þeim um eitt eða neitt í þessu sam- bandi, seinlætið og tregðan hefði blátt áfram verið gmb- ætíisskylda þeirra! VAFALAUST MUN MÖRÓ- UM leika hugur á að vita, hvað framkvæmd þessi hefur reynzt kostnaðarsom, því áð það leiðir í ljós, hversu um- rædd afsökun hinna tveggja ráðherra var haldgóð eða hitt þó heldur. Alþýðublaðið hef- ur frétt samkvæmt óyggjandi heimildum, að það hafi kost- að 104 þúsundir króna að taka niður loftslreytastangirn ar. Slík var fjárupphæðin, sem sálufélögunum Eysteini og Birni óx svo mjög í aug- um. Einhvern tíma hefur þó hærri fjárupphæð verið greidd úr íslenzka ríkissjóðn um án beinna fyrirmæla al- þingis og af minna tilefni en hér var um að ræða. Eysteinn og Björn frestuðu með öðr- um orðum um heilt ár að láta vinna verk, sem alþingi hafði lýst yfir, að það vildi að vrði unnið, af því að 104 þúsunda fjárveiting var ekki fyrir hendi lögum samkvæmt. Fjöl mörgum mannslífum var stofnað í augljósan háska vegna þess að eyðslusamasta stjórn, sem setið hefur við völd á íslandi, taldi sig ekki hafa leyfi alþingis til þess að verja rúmum 100 þúsundum til að ryðja hættunni úr vegi! Þetta er ótrúlegt en satt. ÝMSUM MUN FINNAST, að hér sé um smámál að ræða. En það er öðru nær. Þetta er miklu stærra mál, en almenn ingur gerir sér í hugarlund. og skömm hinna áminnztu ráðherra miklu meiri en svo, að þeir fái undir henni risið. Nú hefur góðu heilli verið hafizt handa um að fjarlægja loftskeytanstangirnar af Mel unum. En það gerir ekki mál I Máíverkasýning Krisfins Pétursson- ar í Hveragerði í GÆR opnaði Kristinn Pétursson listmálari málvcrka sýningu í Hveragerði. Á sýn- ingunni eru 70 til 80 málverk, og er þeim vel fyrirkomið í hinum vistlega vinnusal Krist- ins í Hveragerði. Flestar myndirnar eru nýj- ar og hafa aldrei verið sýndar áður, en þar eru einnig nokkr- ar gamlar myndir, og er fróð- legt að gera samanburð á gömlu myndunum og hinurn, nýrri verkum hins kunna mál- ara. Nærri allar myndirnar eru landslagsmyndir, víðs veg- ar að, en þó ber mest á mynd- um frá Vestfjörðum og Suður- landi og Vestmannaeyjum. Sýningin verður o|'n til 7. október daglega frá kl. 1 e h. til 10 e. h. Hveragerðí er í bjór/xraut og má því telja víst', að margir sjái I málverkasýiiihgu Kristins.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.