Tíminn - 14.01.1964, Qupperneq 4

Tíminn - 14.01.1964, Qupperneq 4
RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON Staðan Úrslit f 1. deild f íslandsmót inu í handknattleik um helg- ina: ÍR:FH 27.27 Fram'Ármann 34:19 Staðan er þá þcssi: Fram FH #R Vík. KR Ármann 3 3 0 0 3 111 3 111 2 10 1 2 10 1 3 0 0 3 102:69 6 83:79 3 77:87 3 35:35 2 50:56 2 54:74 0 83:82 Á laugardaginn lék úrvalslið Reykjavíkur í körfuknattleik gegn úrva!li af Keflavíkurflugvelli. Leik- urinn fór fram í stóra salnum suður í Keflavík, og var allan tím- ann mjög jafn og skemmtileguir. — Reykjavíkurúrvalið fór með sigur af hólmi, 83:82, og gefa þessar tölur nokkuð til kynna, hvað um jafna baráttu hefur verið að ræða. Sigur íslenzka liðsins var sanngjarn. — Það hafði mest allan tímann yfir og sýndi betri leik. Síðustu sekúriduir Ieiksins voru mjög spennandi, og munaði afar 'litlu, að Bandaríkjamönnum tækist að skora sigurkörfu — þ. e. 84:83, en þegar dómararnir flautuðu leikinn af, var knöttur- inn á leið ofan í íslenzku körfuna. Í.R. reyndist F.H.- ingum erfiður biti Litlu munaði að Í.R. sigraði Alf-Reykjavík, 13. janúar Kornungur markvörður ÍR-liðsins, Árni Sigurjónsson, sýndi framúrskarandi góðan leik með félagi sínu gegn FH á sunnudagskvöld. Með sinni góðu markvörzlu, lék hann ÍR- liðið upp, og óhætt er að segja, að ÍR hafi á sunnudagskvöld leikið sinn langbezta leik um langan tíma. Viðureigninni lauk með jafntefli, 27:27, og geta FH-ingar þakkað sínum sæ!a fyrir að krækja í annað stigið, en dómari leiksins, Valur Bene- diktsson, úthlutaði a. m. k. tveimur vítaköstum, sem FH undir lok leiksins — þýðingarmiklum vítakóstum, sem FH greip fegins hendi og notaði til hins ýtrasta Eftir síðustu leikjum að dæma, virðist sól FH-liðsins senn hníga til við- ar. Liðið hefur nú tapað þremur dýrmætum stigum og allt gerir það erkióvininum Fram léttari róðurinn. ÍR hefur upp á síðkastið teflt fram ungum, nýjum mönnum með liði sínu og hefur þetta breytt lið- inu til hins betra, • einkum er það þó hinn ungi markvörður, Árni Sigurjónsson, sem sett hefur strik í reikninginn. Eftir frammistöðuna gegn FH held ég að sé óhætt að taka ÍR af listanum um hugsanlegt falllið í 1. deild í ár, en |R var ofarlega á þeim lista eftir Reykja- víkurmótið. Leikur IR og FH á sunnudags- kvöld var allan tímann jafn og spennandi. FH hafði forustu út nær allan fyrri hálfleikinn — með einu, tveimur og upp í þremur rnörkum yfir — en einu sinni tókst ÍR að jafna. í hálfleik hafði FH yfir 16:14. Fljótlega í síðari hálfleik náði ÍR að jafna og þegar u. þ. b. 15 mínútur voru liðnar af hálfleikn- um, hafði ÍR náð forustu, 20:19. Geysileg spenna var á dagskrá 'og ekki hvað sízt, þegar ÍRj'ýkfor- skotið í þrjú mörk, 26:23, og sig- urinn virtist blasa við. En síðustu mínúturnar voru mjög svo afdrifa ríkar. ★ FH skorar sitt 24. mark og að flestra dómi stígur FII- ingurinn, Árni Þórðarson, á línu, er hann skorar markði. Dómari er ekki í aðstöðu til að sjá þetta atvik. Og horna- vörðurinn er upptekinn og sér ekki hvað uni er að vera. Einhver áhorfenda stóð við hlið hans og er að spyrja hann hvað klukkan sé! ★ Dómarinn, Valur Benedikts- son. dæmir með örskömmu millibili þrjú vítaköst á ÍR — þar af tvö út í bláinn. — Ragnar Jónsson skoraði úr þeim öllum. Staðan var orð- in 27:26 fyrir FH. ★ ÍR hafði ekki sagt sitt siðasta orð og skömmu fyrir leiks- lok jafnaði Hermann Samú- elsson stöðuna fyrir ÍR, — 27:27. ÍR sýndi góðan leik á sunnu- daginn. Með sína ungu leikmenn, Árna, Þórarin og Ólaf, virðist lið- ið á uppleið, en um það verður betur hægt að dæma í næstu leikj- um. Gunnlaugur og Hermann voru helztu stoðirnar í þessum leik hvað útispilara snerti. Gylfi og Þórður voru einnig nokkuð góðir. — Ann ars var Árni markvörður aðal- maðurinn á’ bak við frammistöðu ÍR. Hann varði m. a. tvö vítaköst og var mjög glöggur að reikna út skot FH-inga. — Mörkin fyrir ÍR skoruðu Gunnlaugur 8, Hermann 7, Gylfi 5, Þórður 4, Björgvin 2 og Þórarinn 1. FH tapaði dýrmætu stigi og þótt mótic sé ekki komið langt á leið, eykur þetta mjög á sigurlíkur Fram. FH-liðið barðist eins og ljón í þessum leik, en hafði ekki árang- ur sem erfiði. Liðið virðist nú Hinn ungi ÍR-markvörður, Árnl, ver f leiknum gegn FH. mun lakara en undanfarin ár. FH hefur aldrei getað leikið taktiskt, en hraði og góð markvarzla Hjalta Einarssonar hefur vegið hátt á móti þessu. — Hjalti var lítið í markinu á sunnudaginn og þá var aðeins hraðanum til að dreifa — en einn dugði hann ekki. Ragnar, Páll og Birgir voru beztu menn FH- — MörkiÁskoruðu Ragnar 11, Birgir 7, Páll 5, Einar 2, Guðlaug- ur og Árni 1 hvor. Dómari var, eins og áður segir, Valur Benediktsson og var hann mjög mistækur í dómum sínum, einkum í síðari hálfleik. Armannsstúl kur rnma Fram k >ff Alf-Reykjavík, 13. janúar. ÁRMANN og FRAM léku í mfl. kvenna s. 1. Iaugardagskvöld. Eins og vænta mátti, bar Ármann sigur úr býtum, en þó með miklu meiri mun, en reiknað hafði verið með. Lokatölur urðu 13:4. Ármanns- stúlkurnar byrjuðu mjög vel og hvað eftir annað sendu þær knött- inn í Fram-markið. Þegar sex mín. Tveir leikit fara fram í 1. deild í fslandsmótinu í Hand- Knattleik í kvöld. Víkinnur—KR ÍR-—Árrrann Fvrri leikin !nn hefst klukk- sn 20,15. voru liðnar, var staðan orðin 5:1 og í hálfleik var staðan 9:1. Það var eins og Fram-stúlkurnar vöknuðu af værum blundi fyrst í síðari hálfleiknum og Guðrún og Geirrún skoruðu þrjú mörk með stuttu millibili. Díana og Steinunn svöruðu fyrir Ánmann, en Ármann náði aldrei sömu tökunum og í fyrri hálfleiknum. Síðari hálfleik- ur endaði með jafntefli, 4:4. Ármannsliðið var mjög gott í þesrrm leik og verður að líkind- um í baráttusæti hvað toppinn snertir. Díana og Steinunn voru beztar í þessum leik. Fram-liðið átti slakan leik, en nýliðar í liðinu lofa góðu. — Dóm ari var Daníel Benjamínsson og dæmdi hann vel St Mirren lék varnarleik og nadi jafntefii i bikarkeppninni gegn Dundee Utd. á útiveiii Rignar Jónsson, FH, er hér kominn Inn á línu, en er hindraður af Hermannl. Fy”sta umferð skozku bikarkepprirnar fór fram á laugardapinn, en eins og menn muna hefur lið Þór ólfs Beck St. Mirren, náð ágætum árangri í þeirri keppni undanfarin ár. Þó virðist liðið nú miög óhepn ið . drættinum. mætti Dun iee Utd á útivelli — en bað lið sigraði St. Mirr- en fyrir nr.kkru með 6:2 St. Mirren lagði upp ein dregna varnartaktik á laun ardaginn og leikmennirnir hugsuðu eingöngu um að ná iafntefh. Þetta tókst — leiknum lauk án bess að mark vær' skorað Dundpe sótti mikli' meira. en góð ur varnar'eikur. einkum markvarðarins, Beattv. kom í veg fyrir að skorað væri. Tvö lið úr fyrstu deild voru slegin út í þessari um- ferð Aberdeen lék gegn Hibernian og vann með með 5-3 og 2. deildarliðíð Stranraer sigraði Th. Lan- ark með 2 1. Celtic og Rang ers sigruðu mótheria sína með vfirfcurðum. en efsta liðið í 1 de.ld Kilmarnock átti í erfiðieikum með Gala Fairv lið utan deildanna en sigraði pó að lokum með 2:1. T í M I N N , þriðjudaginn 14. janúar 1964 —

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.