Tíminn - 14.01.1964, Síða 8

Tíminn - 14.01.1964, Síða 8
REYKVfKINGAR þyrptust [ Haga- skóla um helglna til þess aS skoSa likardS af vantantegu ráShúsl, sem byrjaS var aS sýna þar á sunnudag- Inn. Sýnlngln var opln frá 2—10, var stöSugur straumur fólks og mlklS skeggrætt um útlit hússlns og staS- setnlngu þess, og sýndlst sltt hverj- um I þeim efnum. Sýningln verSur opin daglega frá kl. 5—10 fram á fimmtudag. MYNDINA tók Ijósmynd- arl TÍMANS, GE, yfir sýnlngarsal- Inn á sunnudaglnn. 18 tillögur bárust KH-Reykjavík, 13. janúar. f GÆR var opnuS í Bændahöll- inni sýning á uppdráttum, sem fram komu í samkeppni um nýjar byggingar fyrir bændaskólann á Hvanneyri, sem efnt var til í sum- ar. Þátttaka í samkeppninni var mjög góð, því að 34 sóttu um keppnisgögn, og 18 tilögur bárust til dómsúrskurðar. Fyrstu verðlaun í samkeppninni, 100.000,00 kr., hlutu arkitektarnir Sigurjón Sveinsson og Þorvaldur Kristmundsson, og segir dómnefnd i úrskurði sínum, að þó að tillag- an sé ekki gallalaus, leysi hún þó í allri uppbyggingu bezt þarfir skól ans með vel skipulögðu og skýrt mörkuðu fyrirkomulagi hið innra. Önnur verðlaun, 50.000,00 kr. hlutu Örnólfur Hall, Haukur Vik- torsson og Hróbjartur Hróbjarts- son, sem allir eru enn við nám í Þýzkalandi.' Úrskurðaði dómnefnd tillögu þeirra mjög athyglisverða, en ekki að öllu leyti hagkvæma. Þriðju verðlaun hlutu Ingólfur Helgason og Vilhjálmur Hjálmarsson, báðir við nám í Edinborg. Og fjórðu verðlaun hlutu arkitektarnir Jör- undur Pálsson og Þorvaldur S. Þor valdsson. í dómnefnd áttu sæti Guðmund- ur Jónsson, skólastj., Bjarni Ósk- arsson, byggingafulltrúi, Aðalst. Richter, arkitekt A.Í., Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins, Kjartan Sigurðsson, arkitekt A.í. og Ólafur Jensson, trúnaðarmaður dómnefndar. Samkeppnin hófst í júlí í sumar. Uppdrættirnir verða til sýnis á þriðju hæð í Bænda- höllinni næstu daga. VERKSMIDJAIBJÖRTUSÁLI FB-Reykjavík, 13. janúar. HÉR KOMA myndir af bruna Tunnuverksmiðj u ríkisins á Siglu- firði í síðustu viku. Verksmiðjan gjöreyðilagðist og er nú ráðgert að reisa nýja verksmiðju á Siglu- firði næsta sumar og á hún að geta tekið til starfa næsta haust. Á myndinni hér að ofan sést verksmiðjan standa í björtu báli og stálgrindurnar eru að falla sam- an. Til hægri á myndinni er íbúð- arhúsið Vatnsendi, en það skemmd ist töluvert. Eldurinn náði ekki að Óvenju góð kirkjusókn OFTAR heyrist kvartaS yflr lélegri klrkjusókn heldur en því, aS fólk verðl frá að hverfa, þeg- ar það kemur tll kirkju. ÞaS gerðist þó s. I. sunnudag, aS í Neskirkju var hvert sæti sklpað, marglr stóðu, og mar.glr urSu frá aS hverfa. GizkaS er á, aS rúm- lega 800 manns hafi sótt Nes- klrkju I þetta slnn, og er þaS sannrleg óvenju góS klrkjusókn, þegar ekki eru stórhátlSir. Séí-. staka athygll vaktl, hve mlkiS af ungu fólki var meSal klrkju- gesta aS þessu slnni. Orsök til þessarar góðu kirkjusóknar má eflaust rekla til þess, aS vlS þessa guðsþjónustu setti séra Óskar J. Þorláksson hlnn nývfgSa prest safnaSarins, séra Frank M. Hall- dórsson, Inn ' embætti sitt. Fór athöfnln fram að vlðstöddum bisk upnum yfir islandi, herra Slgur- birni Einarssynl, og öSru stór- menni, MYNDINA tók Ijósmynd- arl TfMANS, GE, af séra Frank, þegar hann tónaSi i fyrsta slnn læsa sig í húsið, en rúður brotnuðu allar af hitanum og mikið vatn fór inn í húsið, þegar slökkviliðsmenn reyndu að koma í veg fyrir að í því kviknaði. Fólkið, sem bjó í Vatnsenda, flutti sig þaðan og mun ekki vera hægt að búa þar, nema að undangenginni viðgerð. Neðri myndin er tekin heldur fyrr en sú efri. Þar standa stálgrind urnar enn nokkurn veginn beinar, en risið er fallið. 40 heimilisfeður misstu atvinnu sína í brunanum, og er því lífsnauðsyn fyrir Siglfirð inga, að verksmiðjan rísi aftur sem fyrst. (Ljósm.: Ó.R.). 8 TÍMINN, þriðjudaginn 14. janúar 1964 —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.