Tíminn - 14.01.1964, Side 15
FLUGFÉLAGIÐ
Framhald af 16. sí3u.
löndunum við Miðjarðarhafið. Til
samanburðar sa"ði Sveinn, að á s.l.
snmri hefði FÍ. farið 12 ferðir
til útlanda á viku, en aðeins um
háannatímann, sem stóð mun
skemur en nú er áætlað. Sem
dæmi um aukningu ferðamanna-
straumsins frá London sagði
Sveinn, að sumarið 1962 flaug
F.f. einu sinni í viku þangað, sum
árið ’63 bættis'. ein ferð við, og
næsta sumar verða þær sem sagt
þrjár.
Nú verður suinarannatími Flug-
féiagsins lengri en nokkru sinni
áður, hefst þegir 1. apríl og stend-
ur fram eftir liausti. Stafar það
m. a. af lágu vor- og haustfargjöld
unum fyrir fslendinga, sem valda
því, að margir taka smarfríið ann
að nvort á vorin eða haustin og
bregða sér þá út á þessum lágu
gjöidum, sem gilda ekki aðeins
til beirra staði, sem F.f. flýgur
til, heldur einnig áfram. Svo hefst
hinn eiginlegi ferðamannastraum-
ur i júní og stendur fram á haust-
ið.
í fyrrasuma” fór Flugfélagið
átta ferðir til Grænlands, og nutu
þær mikilla vinsælda, jafnt af
útlendingum og íslendingum. I
sumar verða farnar 12 ferðir, 6
fjögurra daga ferðir til Narssars-
suaq og 6 eins dags ferðir til Kulu-
suk. Er þegar búið að bóka mik-
ið í þær ferðir
EYÐILAGÐIR
Framhald af 16. síðu.
fjörð, og vilöi Aðalsteinn færa
mönnum þakkir sínar fyrir veitta
aðstoð, því margir höfðu farið lang
an veg í vondu veðri í þeim til-
gangi að reyna að finna bátinn. —
Loks fannst hann brotinn við Þor-
kelsey, sem er ein af úteyjum Skál
eyja. Náðist hann út, og er nú
kominn aftur til Hvallátra, en ekki
sagðist Aðalsteinn vita hvort hægt
"rði að gera við Draupni, en í j
( iótu bragði virtist það verða
"Kostnaðarsamara eri smíða nýjan
bát, og jafnvel myndi þeim ef til
vill ekki takast að ná honum á
land, þar eð kjölurinn væri mikið
brotinn, en þó ætti eftir að at-
huga þetta betur.
í Hvallátrum hafa verið smiðað-
ir bátar frá því fyrir aldamót,
sagði Aðalsteinn að lokum, o,g var
Draupnir stærsti báturinn, sem
þar hefði verið smíðaður, 4 ára
gamall.
LOFTLEIÐSR
(FramhalO at 2 síðu)
ir boða vegna vaxandi samkeppni,
sagði Sigurður, að frétta væri að
vænta af því máli einhvern næstu
daga. Hann sagfíi, að enn þá væri
ekkert ákveðið, hvaða tegund yrði
fyrir valinu, né hvort ein eða fleiri
vél yrði keypt í einu. Og hvað
DC-6B flugvélarnar snerti, þá yrði
haldið áfram að nota þær, þótt
skrúfuþotur kæmu til sögunnar.
PANAMA
(Framhald af 2. síðu)
fánans á svæðinu, og fengu þeir
vilja sínum framfylgt. Óeirðir síð
ustu daga hófust, þegar stúdentar
frá Panama réðust inn á svæðið
til þess að dragn fána sinn að hún
við hlið bandaríska fánans, en af
eintverjum orsökum hafði Banda
ríkjamönnum láðst að gera það.
Bandarísk blr.ð hafa rætt málið
nokkuð, og segi'. New York Times
t. d. að landsvæðið við skurðinn \
sé eini staðurini, á jörðinni, þar \
sem finnist banúaríkjamenn með
nýlenduhugafari. New York Her-!
ald Tribune segir, að Bandaríkin
verði að koma rausnarlega fram
við Panama í þessu deilumáli, ekki
einungis í sambandi við fánamál
ið, heldur einnig fjárhagslega
Tekjur af skurðinum munu nema
um 10 miHjónum dollara, en Pan-
ama fær í leigu árlega einungisl,9 i
míiljónir dollara.
Brotist inn í
mjólkurbúð
KJ-Reykjavík, 13. janúar.
Eitt innbrot var framið í
nótt. Var.farið inn um glugga
í mjólkurbúðinni að Gnoðarvogi
44 og stolið þaðan 300 krónum
í skiptimynt og einhverju af
lakkrís.
SKÁKKONAN
Framhald af 16. síðu.
— Jón Kristinsson. Önnur og
þriðja umferð verða tefldar á
miðvikudag og fimmtudag, ekki
teflt á föstudag, en biðskákir á
laugardag, og síðan haldið á-
fram á sunnudag og mánudag.
Friðrik teflir á svart við ungfrú
Gabrindasvili í 2. umferð, við
Gligoric í 8. og við Tal í 12. og
hefur hvítt á móti þeim.
Þrír hinna útlendu gesta hafa
komið hingað til lands áður,
Tal. Johannesen, og Wade. Aust
urEvrópufólkið lét í ljós mikla
hrifningu yfir kynnum sínum af
íslandi, er það kom fljúgandi
hingað með Sólfaxa frá Glas-
gow í gær, sem flaug með far-
þegana hringinn yfir gosstöðv-
arnar við Vestmannaeyjar.
Þau Tal, Gabrindasvili og Gli
goric, koma beint hingað frá
Englandi, þar sem þau tóku
þátt í Hastingsmótinu, sem er
nýlokið.
Blaðamaður stórmeistari.
Það kom upp úr kafinu í við-
tali við meistarann Gligoric frá
Júgóslavíu, að hann er ekki at-
vinnuskákmaður, heldur er at-
vinna hans fréttamennska.
Hann hóf blaðamennsku fyrir
átján árum, var einn af skæru-
liðum Titos í stríðinu, vann síð-
an við blöð, en hefur síðustu
árin unnið við erlendar fréttir
hjá júgóslavneska útvarpinu og
sjónvarpinu. Hann sagðist einu
sinni áður hafa fengið boð um
að lioma til íslands, nrið Í955,'
að loknu skákmóti erlendis, en
fréttastjóri hans hafi þá kvatt
hann heim vagna anna og ekki
viljað gefa honum frí til að fara
til íslands það ár. Hann taldi
sig heppinn að hafa fengið leyfi
til að taka þátt í þessu móti
hér, því að aldrei hafi hann
verið eins lengi frá frétastarfi
sínu heima fyrir og síðastliðið
ár, meira en hálft ár alls, því
að hann hefur tekið þátt í,
hvorki meira né minna en tíu
meiri háttar mótum á árinu,
bæði austan hafs og vestan.
Hann var ánægður með árang-
urinn, og ekki kvaðst hann
finna til þreytu.
Gabrindasvili er rúmlega
tvítug stúlka og nýorðin heims-
meistari kvenna í skák. Hún
hefur einnig oft teflt við fær-
ustu skákkarla í heimalandi
sínu og t.d. unnið bæði Bron-
stein og Petrosjan í hraðskák.
En nú brá svo við á skákmót-
inu í Hastings, að hún vann
allar skákir nema eina. Ég
spurði hana, fyrir hverjum hún
hefði tapað, og hún sagði, að
sá héti Taylor. En ég hTeraði
úr annarri átt, að hann væri nú
enginn garpur. Svona getur það
farið í skák, að meistarar tapi
fyrir hálfgerðum skussum. Að-
spurð kvaðst ungfrúin hafa
fyrst tekið þátt í skákmóti tólf
ára gömul, en hingað til hefur
hún teflt á sex alþjóðamótum
erlendis, og er ísland sjöunda
landið Hún sagðist hafa byrj-
að að tefla fimm ára gömul.
Hún er Georgíustúlka og á nú
heima í Tiflis og kvað marga
kunna sovétskákmenn vera það-
an komna, t.d væri Petrosjan
fæddur þar, þótt hann væri
Armeníumaður að ætterni. Og
algengt væri, að stúlkur í Ge-
orgíu fengjust við að tefla skák.
SJÓSLYSIN
Framhald af 1. síSu.
það hvernig e.gi að snúa þeim
við, og kunni hann vel á þetta
allt saman. Hrmn var fljótur að
snúa bátnum, og lét ég strákana
síðan hoppa hvern af öðrum í bát-
inn og gekk það allt vel. Við blotn
iðum að vísu allir meira og minna
en --arð ekkert meint af því. Árni
Þorkelsson tók okkur svo um borð,
en við vorum ekki nema svona
10 mínútur í gúmmíbátnum, þeir
voru þarna allt í kring um okkur
hinir bátarnir og sáu hvað var að
ske. Við vorum 10 í þessari ferð,
og vantaði einn upp á fulla áhöfn.
— Og hver heldurðu svo að or-
sökni sé til þess að báturinn hall-
aðist svona mikið og sökk?
— Það er nú ekki gott að segja
það að svo stöddu, en síldin getur
hafa farið svona mikið út í annað
borðið. Annars verða sjópróf á
morgun, og þá fæst væntanlega
úr því skorið hvað olli.
— Ertu búinn að vera lengi með
Hringver?
— Nei, ekki get ég nú sagt það,
byrjaði núna i september með
hann. Var annars í landi í sumar,
en í fyrravetur. þegar hann Erling
ur iV. fór niður. var ég nýhættur
á honum.
— Hvernig batur var Hringver?
- — Eg kunni nú bara sæmilega
vi'ö hann. Við íórum í siglingu í
vetux. en það er náttúrlega allt
annað því það var svo létt í hon-
um þá, allur ísinn og loftar mikið
á milli. Þetta vgr í fyrsta skipti
sem ég var með svona mikinn afla
um borð.
— Þú ert Vestmannaeyingur
eða hvað?
— Já, fæddur og uppalinn hérna
og hef alltaf vtrig á sjónum síðan
ég iauk meira fiskimannaprófinu
við Stýnmannaskólann.
— Kvæntur, og hvað gamall?
__ Já, ég er kvæntur, á þrjú
bö'-n og er 27 ára gamall.
Jómfrúferð skipsticrans á
r’ re Þorkelsryni
fsleifur Guðleifssori skiþstjóri á
Árna Þorkelssyni VE 46 var í
sinni jómfrúferð, þegar hann varð
svo lánsamur að bjarga 10 manna
áhöfn Hringvers.
— Við vorum ekki langt undan,
þegar ég heyröi þá kalla út. Við
vorum að enda við að háfa inn
kast, og ég gekk inn og heyrði
kallið. Ég fór strax út aftur og fór
að líta í kringum mig, og sá þá
ijósin á Hringver og sá hann hall-
ast gríðarlega mikið. Ég setti auð-
vitað allt í botn og eftir svona 5—
7 mínútur vorum við komnir að
honum, en þá var hann að
sökkva og við sáum hann fara nið
ur í geislanum frá ljóskastaranum.
Við höfðum einnig gúmmíbátinn í
geislanum, og náðum mönnum
fljótlegá inn.
— Það var ágætis veður og
sæmilegt í sjó, svo við gátum gert
allt, sem þurfti að gera.
íselifur var í sinni jómfrúrferð
á Árna Þorkelssyni, en var áður
stýrimaður á Manna frá Keflavík.
Hann er 32 ára gamall.
\foru a8 háfa
Guðjón Ólafsson skinstjóri á Ág-
ústu er 58 ára gamalí, 2ja barna
faðir og hefur verið með Ágúsfru
í 5—6 ár. Honum sagðist svo frá:
— Við vorum búnir að fá einar
800 tunnur af síld, en vorum að
háfa inn um 400 tunna kast, þegar
kokkurinn og mótoristinn tóku allt
i einu eftir að leki var kominn að
bátnum. Við gáturn alls ekki gert
okkur grein fyrir því, hvar lekinn
var. Við höfðum ekki við að ausa
og þegar drapst á vélunum var
ekki annað að gera en hætta.
— Elliði var þarna skammt und-
an, en við höfðum siglt í áttina
að honum á meðan hægt var. Við
komumst í annan af tveimur
gúmmíbátunum, sem voru utn borð
í Ágústu, en hinn blés eig ekki
upp fyrr en eftir að honum hafði
verið náð um borð í Elliða. Það
kemur stundum fyrir að það frýs
á stútunum á gúmmíbátunum, og
þá blása þeir sig ekki upp. Um kl.
hálf átta fórum við allir um borð
i Kóp, secn flutti okkur til Vest-
mannaeyja.
Tíu skipverjar vorú á Ágústu,
og varð þeim ekki meint af volk-
inu, að sögn skipstjórans.
Siór í lúkarnum
Guðiaugur Einarsson kokkur á
Ágúst varð fyrstur var við, að leki
var kominn að bátnum. — Ég var
einn niðri í lúkar, þegar ég tók
allt í einu eftir, að sjór flaut yf-
ir gólfið. Við byrjuðum strax að
ausa, og héldum því áfram þar til
ijósin slökknuðu, en þá var ekki
um annað að gera en yfirgefa skip-
ið. Við komumst auðveldlega yfir
í Elliða, sem lá þarna rétt hjá.
Guðlaugur er 44 ára gamall, fjög-
urra barna faðir og hefur verið 2
vertíðir á Ágústu.
Hjálmar Kristinsson skipverji á
Ágústu sagðist halda að klukkan
hafi verið um hálf sex, þegar þeir
urðu fyrst varir við sjó í lúkar og
vél. Þeir fóru að ausa og hleypa
síldinni af dekkinu. Skccnmu síð-
ar fóru þeir að gera björgunarbát
ana klára, og komust síðan yfir í
Elliða, sem var þarna skammt frá.
Hjálmar heldur að allt hafi þetta
tekið um eina klukkustund.
„KAFSIGUNG'
Framhald af 16. sfSu.
hafi þeir því slitnað upp í rokinu.
Ölver er sagður gerónýtur, en
Sædís mikið skemmd. Eigandi Pól-
stjörnunnar mun með snarræði
sínu hafa getað bjargað bátnum.
Hann var vakinn upp um 7-leytið
á laugardagsmorgun og honum
skýrt frá því, að báturinn lægi
upp undir Hafnarstræti. Brá
hann þá skjótt við, og óð út í bát-
inn og gat komið honum út aftur.
Báturinn skemmdist nokkuð, en
ekki mikið
En bað gerðist fleira sögulegt
á ísafirði þessa nótt.
Brezkur togari lá inni, og hafði
hann beðið hafnsögumann urn að
koma og lóðsa sig út. Þegar hafn-
sögumaður kom niður eftir, lá
maður á bryggjunni meðvitundar-
laus. Höfðu nokkrir íslendingar
verið við drykkju úti í skipinu,
er lauk henni með því að einum
þeirra var kastað upp á bryggj-
una, eftir nokkur orðaskipti hans
og skipverja, en hinir voru farnir
í land áður. Hafnsögumaðurinn
gekk frá og bað skipstjóra að bíða
sín, á meðan hann sækti hjálp
handa manninum. Þegar hann kom
aftur var maðurinn horfinn, kom-
inn um borð í skipið aftur, og
landfestar höfðu verið leystar, og
nú rak togarann stjórnlaust um
pollinn. Að sögn fréttaritara blaðs
ins, var mönnum ekki svefnsamt
þessa nótt, því togarinn sigldi um
pollinn í lengri tíma, og meðan
glumdi flauta hans. Að lokum
tókst varðskipinu Alfreð að koma
í hann vír og dró hann aftur upp
að bryggjupni.
Togarinn brotnaði eitthvað, og
stýri hans brotnaði einnig.
IþróítsP
Aston Villa 26
West Ham 26
Birmingham 25
Stoke City 25
Blackpool 26
9 5 12 39-39 23
7 9 10 40-50 23
8 4 13 31-52 20
6 6 13 44-58 18
6 5 15 27-51 17
Bolton 26 4 6 16 32-51 14
Ipswich 26 3 5 18 29-74 11
2. deild.
(Efstu og neðstu lið):
Leeds Utd. 26 15 9 2 43-19 39
Sunderland 27 16 6 5 49-29 38
Preston 26 15 8 3 54-34 38
Cardiff
Grimsby
Bury
Scunthorge
Prymouth
SUNDIÐ
FramoaJd af 1. siðu.
náði taki á kaðlinum, sem er í
kringum þessa báta, komst
þannig í stigann á honum, og
stóð í honum og snéri bátnum
þannig við. Ég lenti undir hon-
um þegar hann skall' yfir, en
það kom ekki að sök, því gott
var í sjóinn og ég synti bara
undan honum.
— Þú hefur kunnað vel með
gúmbáta að fara?
— Já, við lærum meðferð
þeirra á námskeiðum, sem hald-
in eru öðru hvoru, og svo er
alltaf farið yfir reglurnar um
méðferðina þegar bátarni?'
koma úr skoðun, og bátana
okkar fengum við báða einmitt
úr skoðun á laugardaginn, en
samt blés hann sig ekki upp
nema til hálfs þarna, þegar við
þurftum á honum að halda.
— Og hann hefur þá borið
ykkur alla?
— Það var nú ekki meira en
svo, hann maraði þetta í hálfu
kafi þegar aliir voru komnir í
hann.
— Og skipstjórinn komst í
talstöðina.
— Já, hann komst í stöðina,
og þeir voru þarna skammt und
an á honum Árna Þorkelssyni,
en þó sögðust þeir ekki hafa
séð ljósin hjá okkur.
— Var ekki vont að svamla
þarna í sjónum og allt í
myrkri?
— Vélin drap nú ekki á sér
alveg strax, en annars tók ég
ekkert eftir Ijósunum, maður
hafði um nóg að hugsa þarna.
Við vorum svo teknir um borð
í Árna, ætli við höfum verið
lengur en svona tíu mínútur í
marandi bátnum. En þegar ég
ætlaði um borð í Árna flæktist
ég í einhverju og varð að synda
að bátnum.
— Hvað heldurðu að það
hafi verið langt?
— Ég veit það ekki, það var
nógu langt.
Sigurbjörn er Vestmannaey-
ingur, og hefur stundað sjóinn
frá 15 ára aldri. Hann hafði
verið 1. vélstj. á Hringver frá
því í haust, er 26 ára gamall,
kvæntur og á tvö ung börn.
gggg^JbillíaBiata
GUÐMUNDAR
Bergþ6rusötu 3. Slmxxr 19032, 20070.
Heíui avalii ttl sölu ailai ceg
undii bifreiða
Tökum bifreiðii i umboðssölu
Öruggasta biónustan.
bílcisalQ
GUÐMUNDAR
Hergþórugötu 3 Simar 19032, 20010
24 7 6 11 32-51 20
26 5 9 12 29-49 19
24 6 4 14 34-49 16
23 5 6 12 29-39 16
27 3 9 15 26-50 15
Hjartans þakkir sendum vlS öllum fjær og nær sem sýndu okkur
samOS og vinarhug vegna fráfalls
Guðmundar Stefánssonar
frá Gllhaga, sem fórst me8 vélbátnum Hólmari, Sandgerði, 29.
nóvember s. I. Gu3 blessi ykkur öll.
Foreldrar, systklni og aSrlr
vandamenn.
TÍ.MINN, þriðjudaginn 14. janúar 1964 —
15