Tíminn - 23.01.1964, Síða 3
TVÆR miðaldra systur hafa
verlð ákœrðar fyrlr að reka hvíta
þrælabúðir é landamærum Mexi-
co og Bandaríkjanna. Sagt er, að
konur og börn hafi verið hýdd
til dauða eða svelt í hel, og á ein-
um stað hafi fundlzt 29 kvenlík
og lík nokkurra barna I fjölda-
gröf. MYNDIN sýnlr konur, sem
lokaðar voru Inni í þrælabúðum,
benda á aðra systurina, sem á-
kærð er.
SÆMILEGASTA
FISKIGENGD
KI-Eskifirði, 22. janúar.
FRÁ 13.—20. janúar að telja
hafa eftirtaldir bátar lagt upp í
heimahöfn: Vattarnes 20. lestir,
Jón Kjartansson 30 lestir, Stein-
grímur trölli 45 lestir, Seley 42
lestir og Guðrún Þorkelsdóttir 35
lestir. — Aflamagnið er
miðað við slægðan fisk með
haus. Mestur hluti aflans veiddist
fyrir Suð-Austurlandi einkum í
Mýrarbugt. Sjómenn telja fiski-
gengd með sæmilegasta móti, en
gæftir á suðausturmiðum hafa
hamlað veiðum þar um slóðir að
undanförnu.
Fréttabréf úr Lóni
TE-Lóni, 22. janúar.
SÍÐASTLIÐIÐ ár var heldur í
lakara lagi, hvað tíðarfar áhrær-
ir, og varð uppskeran auðvitað
eftir því. Hey hirtust þó vel, en há-
aruppskera var léleg hér, eins og
„HúsiSí skóginum'
frumsýnt á sunnud.
GB-Reykjavík, 22. jan.
LEIKFÉLAG Kópavogs varð
fyrst á þessu leikári til að flytja
barnaleikrit, og á sunnudag var
frumsýning á hinu langþráða leik
riti ,,Húsið í skóginum“, eftir Ann-
Cathy Vestly, undir leikstjórn Lár-
usar Pálssonar.
Sem áður hefur verið frá sagt
hér í blaðinu, er þetta eitt af vin-
sælustu barnaleikritum, sem kom-
ið hafa fram á Norðurlöndum hin
síðari ár, og hefur það að nokkru
leyti verið kynnt hér í útvarpinu
og eins og börnin vita, eru hlut-
verk býsna tnörg og verða þau og
leikendur ekki allir taldir að
sinni. Hin helztu eru: Mons álfur
Sveinn Haldórss.), Mogens álfur
Björn Magnúss.), Amma (Auður
Byggðir
og bú
ORÐSENDING frá Búnaðarsam-
bandi Suður-Þingeyinga til búnað-
arfélagsformanna og áskrifenda
bókarinnar .Byggðir og bú“ — ald-
arminningu Búnaðarsambands Suð
ur-Þingeyinga.
Sá dráttur, sem orðið hefur á
afgreiðslu bókarinnar „Byggðir og
bú“, aldarminningu Búnaðarsam-
bands Suður-Þingeyinga, til áskrif
enda stafar af verkföllum bókbind
ara í desecnber s. 1. Eru þeir, sem
hlut eiga að máli beðnir afsökunar
á því að afgreiðsla gat ekki farið
fram nema að nokkru leyti á áður
tilkynntum tíma. Þeim, sem ekki
hafa enn fengið bókina afgreidda
mun verða send hún seinni hluta
þessa mánaðar.
Búnaðarfélagsformenn, sem
kunna að hafa áskriftarbsta undir
höndum, með væntanlegum kaup-
endum, eru vinsamlega beðnir að
senda þá, eða hafa samband við
undirritaðan fyrir lok þessa mán-
aðar.
Hermóður Guðmundsson,
Árnesi.
Jónsd.), Mamma (Gunnvör Braga)
og Pabbi (Valgeir Óli Gíslason).
Leikurinn er i tveim þáttum, en
mörgum atriðum, sem fara fram
til skiptis inni í húsinu, á hlaðinu
fyrir framan húsið, eða í skóginum
nálægt húsinu.
Þýðandi leikritsins er Gunnar
Sveinsson, leiktjöld eftir Hafstein
Austmann, tónlist eftir Finn Luft,
og undirleik annast Einar Logi
Einarsson.
víða annars staðar. Kartöfluræktin
gekk erfiðlega, svo og kornræktin,
en hún er töluverð og vaxandi. Þó
fengu þeir, sem höfðu byggafbrigð
ið ,,Mari“, yfirleitt góða uppskeru,
miðað við árferðið. Kaupfélagið
rekur kornþurrkunarstöð á Höfn
og sér bænd'um fyrir mölun korns-
ins.
Fremur var lítið um bygginga-
íramkvæmdir í hreppnum s. 1. ár.
Fullgert var og flutt í nýtt íbúðar
hús á Hlíð og hafin bygging ann-
ars í Volaseli, en þar er um bæj-
arflutning að ræða. Stór hlaða var
fullgerð á Þorgeirsstöðum, votheys
turn steyptur upp á Stafafelli og
fjárhús endurbyggð í Hvainmi. —
Víða skortir enn góðar og nægileg
ar byggingar.
Ræktun þokar áfram, og hafa
einkum þeir, sem eiga sandlendur
og aura, verið athafnasaimir á ár;.
inu. Skurðgrafa frá Landnáminu
var 'héí að storfum um máiiaðar-
skelð. Gróf hún 5 km. langa skurði
í landi Volasels.
Fallþungi dilka reyndist hér víð
ast hvar i meðallagi í haust, og
þokar heldur fram á við árlega,
Tómstundaiðja
NÚ ER tómstundaiðjan að hefj-
ast að nýju, eftir jólahlé. í Tóm-
stundaheimilinu að Lindargötu 50
gefst unglingum kostur á þátttöku
í þessum greinum:
Ljósmyndaiðja, á mánudögum,
þriðjudögum, miðvikudögum og
fimmtudögum kl. 7 e. h., fyrir 12
ára og eldri.
Leðurvinna á mánudögum kl. 7
e. h. fyrir 12 ára og eldri.
Afli bátanna
í Grindavík
BO-Grindavík, 22. janúar.
AFLI línubáta yfir 30 lestir er
444,990 kg. í 60 róðrum. Meðalafli
í róðri 7,416. Afli minni báta er
41.640 kg. í 15 róðrum, meðalafli
2,776 kg. í róðri. Mestan afla hef-
ur Þorbjörn, Grindavík með 38.580
kg. og þriðji Áskell frá Grenivík |
með 35.430 kg., sem hann fékk í1
þremur róðrum. Mesti afli í róðri,
16.290 kg. fekk Áskell. Þorskafl-
inn frá áramótum er alls 486.630
kg.
5670,80 tunnur síldar hafa komið
á land frá áramótum. Hrafn Svein-
bjarnarson III fékk 1400 tunnur
síldar, sem hann landaði hér þann
14., af því fóru 940 tunnur til fryst
ingar.
Frímerkjaklúbbur á miðvikudög-
um kl. 6 e. h. fyrir 9 ára og eldri.
Bein- og hornavinna á miðviku-
dögum kl. 8 e. h. fyrir 12 ára og
eldri.
Skák á fimmtudögum kl. 7 e. h.
Kvikmyndasýningar fyrir börn
(ýimsar fræðslu- og skemmtimynd-
ir) kl. 5,30 e. h. á laugardögum.
,,Opið hús“ á laugardögum kl. 8
e h. Þá eru til staðar ýmis leik-
tæki og spil, sýndar kvikmyndir
og leikin hljómlist af plötum fyr-
ir 12 ára og eldri.
Sjóvinna. Námskeiðið hófst í
nóv. s. I. og heldur áfram fram eft-
ir vetrinum.
Flugmódelsmíði fyrir 12 ára og
eldri. Starfsdagar tilkynntir síðar.
Upplýsingar og innritun verða í
Tómstundaheimilinu að Lindar-
götu 50 kl. 3—4,30 e. h. daglega
og eftir kl. 7 á kvöldin frá og
með 20. þ. m.
hvað það snertir. í'vetur, sem leið,
kom upp skæður faraldur af
lungnadrepi í fénu að Þórisdal, og
urðu bændurnir þar, Egill Bene-
diktsson og Benedikt sonur hans,
fyrir miklu tjóni af völdum þess.
Nú í haust bar svo eitthvað á þessu
— t. d. missti Skafti Benedikts-
son í Hraunkoti 15 ær af völdum
þessa vágests. Bólusett er gegn
veiki þessari.
í samgöngumálum þokar í átt-
ina. Eru nú brýr komnar á allar
aðalárnar, en nokkrir lækir leika
enn lausir. í sumar var lokið við
nýjan vegarkafla milli brúnna á
Laxá og Gjádalsá og að mestu
leyti milli Gjádalsár og að brúar-
stæði á Brunná í Volaselslandi. —
Búið er að mæla fyrir nýjum vegi
vestan Þorgeirsstaðaár að Fjarðar
áraurum, en sú leið er oft slæm
að ^etrinum.
Skólinn hér hefur verið farskólij.
þar til í fvrra. að hann fékk jnni
í fundarhúsi hreppsins. Það hús
var byggt árið 1912 úr steinsteypu
og þótti þá vegleg bygging. Það
var orðið illa farið, en hreppsnefnd
ir, gerði nú myndarlegt átak því til
lagfæringar og bjó skólanum góð-
an samastað. Sett var nýtt hitun-
arkerfi í húsið og hreinlætistæki
og það rnálað. TJngmennafélagið
lagði til stóra ljósavél. Eftir er að
betrumbæta húsið utan. Börnun-
um er nú ekið til og frá skóla dag-
lega. Kennari er Þorsteinn Geirs-
son, Reyðará.
Svipað má segja um sóknarkirkj
una að Stafafelli. Hún er nú að
verða aldargömul. Sóknarnefndin
hefur látið lagfæra hana og mála
og setja þar upp kosangasofna. —
Framhald á 13. síðu.
NY FRÍMERKI
FB-Reykjavík, 22. jan.
PÓST- og símamálastjórnin gaf
út frímerki 17. jan. s.l. í tilefni 50
ára afmælis Eimskipafélags fs-
iands. Á frámerkinu, sem er að
verðgildi 10 krónur, er mynd af
Gullfossi, stærsta skipi félagsins.
Frímerkið er prentað hjá Courvoi-
sier S/A, La Chaux de Fonds í
Sviss.
Olóðir piltar réðust á fðlk
ÞRÍR ölvaðir menn réðust á
heimilisfólkið að Lyngfelli í Vest-
mannaeyjum aðfaranótt fimmtu-
dagsins síðasta.
Brutust þeir inn í hænsnahús í
eggjaleit og fóru um með berserks
gangi, en snéru sér síðan að íbúð-
arhúsinu, þar sem fyrir voru öldr-
uð hjón ásamt uppeldissyni sínum.
Reyndi hann, Oddur Guðlaugs-
son, að sporna við berserksgangin-
um, en hlaut við það áverka á and-
liti. Lögreglan kom á staðinn og
handtók piltana og færði þá í
gæzluvarðhald. Piltar þessir hafa
áður komizt í kast við lögregluna í
Vestmannaeyjum.
Gamla konan var veil fyrir, og
lézt hún á fimmtudagskvöldið. —
Hún mun þó ekki hafa orðið fyrir
neinu slysi af vöidum piltanna.
Vottorð um stefnu-
festu Mbl.
Landbúnaðarpostuli Morgun-
blaðsins, Gunnar Bjarnason,
sem boðar birtingu heillar
biblíu frá sinni hendi um al-
ger stakkaskipti alls Iandbún-
aðar á fslandi, upphefur kapí-
tula sinn í Morgunblaðinu í
gær, með þeim formála, að til-
efni hans sé „skrif þeirra
Pálma Einarssonar og Stefáns
Aðalsteinssonar ekki sízt af
þeim sökum, að Mbl. gerir mál-
flutning þeiirra og sjónarmið að
stefnu sinni, að minnsta kosti
í tvo daga.“ Og enn segir
Gunnar:
„Sem betur fer, var ekki
dvalið lengi i þeirri Paradís,
því að 8. janúar tekur blaðið
aftur upp stefnu framfaranna
og birtirr leiðarann HAGNÝT-
UM ÞEKKINGUNA sem var
mjög tímabær herhvöt“.
Gunnar gefur Mbl. sem sé
það vottorð, að Mbl. hafi „sem
betur fer“ ekki varið hinn rétta
málstað bænda gegn flumbru-
mönnum eins og honum, nema
tvo daga' Þá hafi það snúið aft-
ur við blaðinu.
Þetta er hárrétt lýsing á
bændaskrifum Mbl. Það reynir
ef til vill að sýna bændum rétt
læti í tvo daga, en snýr svo við
blaðinu og bætir fyrir brot sitt
með því að sýna þeim óréttlæti
í málflutningi í hundrað daga.
Tölur, sem tala
Seyðfirðingur skrifar bréf.sem
Hannes á horninu birtir í AI-
þýðublaðinu í gær, og verður
varla annað sagt, en þar séu
athyglisverðar tölur, sem tala
skýiru máli, og er rétt að birta
bréfið:
„Vegna skrifa þinna fyrir
nokkru, um þær vinnudeilur,
sem nú eru afstaðnar vil ég
ieyfa mér að segja þetta til
skýringar málstað okkar sem
gengum að kjörborði í verka-
mannafélögunum og gréiddum
atkvæði með vinnustöðvun:
Kjör verkamanna
Þau hafa sennilega ekki um
langan tíma verið Iélegri:
Fyrsta verk núverandi stjórnar-
flokka var að afnema vísitölu-
uppbót á kaup og síðan hefur
þessi margumdeilda vísitala
hækkað og margvís'legar hækk-
aniir aðrar orðið á vörum og
þjónustu, sem ekki eru með í
útreikningi vísitölu. Hins vegar
hafa orðið lækkanir á ýmsum
gull- og silfurmunum og luxus-
vöru, sem ekki er líklegt að
þeir lægst launuðu geti veitt
sér. Háttlaunaðir starfshópar
hafa fengið kjarabót, og að því
afstöðnu verið bundið við kaup
verkamanna, þannig að þeir fá
kauphækkun um leið og verka-
menn, sem þýðir í okkar augum
að mismunurinn sé lögfestur.
Kaupgeta atvinnu-
Yeganna:
Aðalrök andstæðinga verk-
fal'isins eru þau, að atvinnuveg-
irnir geti ekki borið meira
kaup, þó sérstaklega sjávarút-
vegurinn. íslenzkuir sjómaður
fiskar 5 sinnum meira en norsk-
ur og fær svipað kaup og hann
og íslenzkur verkamaður fær
svipað kaup fyrir 12 klst. vinnu
og norskur fyrir 8 klst. íslenzka
útgerðin fær álíka mikið í sinn
hlut og sú norska. (Þetta get
ég sannað ef þörf krefur með
bréfi frá fiskimannasamband-
Framhald á 15. siðu.
pif-
TÍMINN, fimmtudaginn 23. janúar 1964. —
3