Tíminn - 23.01.1964, Blaðsíða 4
RITSTJORI. HALLUR SIMONARSON
EILÍFUR HAFSTEINSSON. — Fyr-
IrliSi íslandsm. Akraness f 3. flokkl.
Islendin
kapphlaupi við tí
Segir H. Wendler nýráðinn þjálfari hjá Fram
Alf-Reykjavfk, 22. janúar
íslenzk knaftspyrnufélög
hafa kunnað að meta störf
erlendra knattspyrnuþjálf-
ara, sem starfað hafa hér
öðru hverju, enda er það
svo, að þeir flytja með sér
nýjungar, er knattspyrnu-
menn okkar hafa ekki áð-
ur kynnzt. — Knattspyrnu-
félagið Fram hefur nú ráð-
ið til sín sem þjálfara,
29 ára gamlan Þjóðverja,
Dieter H- Wendler að nafni
og mun hann þjálfa yrjgri
flokka félagsins. Dieter hef
ur mikla reynslu að baki
varðandi íþróttakennslu.
Hann er útskrifaður íþrótta
kennari frá háskólanum í
Heidelberg, stundaði lengi
knattspyrnu í heimalandi
sínu og hefur einnig verið
leikmaður í enskum liðum.
Dieter hefur verið búsettur
á íslandi í tæp tvö ár og er
kvæntur íslenzkri konu. Hann
starfar sem gjaldkeri hjá Volks
wagen-umboðinu, en er einn-
Fara utan að for-
göngu Ríkharðs!
. .. ao ,Ettod 'Vif. STSSÖOr ðs SflffUi
Alf-Reykjavfk, 22. janúar.
Það er ekki á hverjum degi, að úngir og éfhilegir kna'tt-
spyrnumenn fá tækifæri til að læra listir knattspyrnunnar á
erlendri grund. Ríkharður Jónsson, hinn kunni knattspyrnu-
maður Akurnesinga, hefur nú haft forgöngu um það, að tveir
ungir Akurnesingar eru sendir til þjálfunarbúða í Vestur-
Þýzkalandi, þar sem þeir munu dvelja næstu sex til átta
vikurnar. Piltarnir heita Eilífur Hafsteinsson og Benedikt
Rúnar Hjálmarsson. Staðurinn, sem um ræðir er Duesburg
í V-Þýzkalandi, en þar er ein mesta íþróttamiðstöð Evrópu
og þar æfir m- a. þýzka landsliðið.
Ríkharður hefur áður haft for-
göngu um það, að piltar héðan
færu til þessara sömu þjálfunar-
búða, en fyrir tveimur árum hafði
hann milligöngu um för Keflavík-
inga þangað.
Við hringdum í Ríkharð í dag,
og inntum hann nánar eftir för
piltanna. Hann sagði okkur, að
piltarnir fengju allt uppihald frítt
á meðan dvöl þeirra ytra stæði.
Það sem þeir borguðu sjálfir væri
flugfargjöldin.
—Telurðu ekki mjög gagnlegt,
að ungir knattspyrnumenn fái að-
stöðu til að æfa sig i þessum þjálf-
unarbúðum?
— Mjög svo- Og ég er mjög þakk
látur Gísla Sigurbjörnssyni, for-
stjóra, fyrir að þetta er mögulegt.
Hann er lykillinn að samskiptum
við Þjóðverja.
— Hvernig er æfingum háttað?
— Þama læra menn allt milli
himins og jarðar hvað knattspyrnu
viðvíkur. Þýzku félögin senda
drengjahópa til staðarins og þar
eru þeir rækilega þjálfaðir undir
handleiðslu beztu kennara. Strák-
arnir héðan munu sameinast ein-
um slíkum hóp.
— Eru piltarnir ekkert á vegum
fþróttabandalags Akraness?
— Nei. Þetta er eiginlega prí-
vatmál. Eilífur og Benedikt Rúnar
eru mjög efnilegir báðir tveir, og
það var mér sérstök ánægja að
geta greitt fyrir för þeirra.
— Þurfa menn ekki að hafa meira
en að vera bara efnilegir til að
eiga kost á svona för?
— Jú, við getum sagt það. Efni-
legir og aftur efnilegir, og síðast
en ekki sízt þurfa þeir að vera
reglusamir. Reglusamir íþrótta-
menn með mikinn áhuga og vilja
til að læra þurfa ekki að óttast,
að uppskeran verði rýr. Þessir
piltar eiga - áreiðáhlega^-efitír " áð
verða meistaraflokksliðinu okk^f
mikill styrkur, þegar fram líða
stundir.
Stow-lofthitarar
Steinolíukyntir, færanlegir, — hentugir
fyrir vinnusali, fyrirliggjandi.
Þ. Þorgrímsson & Co.
Suöurlandsbraut 6 — Sími 22235
THRIGE
RAFALAR
Getum útvegaö með
stuttum fyrirvara
RAFSTÖÐVAR
fyrir jafnstraum
og riðstraum
frá 0,5 kw. til 75 kw.
Höfum fyrirliggjandi
jafnstraums-
og riíSstraums
RAFMÓTORA
^gBfck
lSTORR,
Sími 1-1620
T æ k n i d e i I d
ig kennari við Málaskólann
Mími.
Við spjölluðum stundarkorn
við Dieter og spurðum hann
hvernig honum litist á að ger-
ast knattspyrnuþjálfari á ís-
landi. Hann sagði að sér litist
prýðilega á það. Hann upplýsti
okkur einnig á því, að hann
hefði fengið ungan landa sinn,
Klaus Gondermann, sem starf-
ar hérlendis, til aðstoðar og
myndu þeir vinna saman að
þjálfuninni hjá Fram. Gonder-
mann hefur líka reynslu að
baki sem knattspyrnumaður og
hefur verið leikmaður í úrvals-
liði heimaborgar sinnar, Dort-
mund.
— Hvað finnst þér um ís-
lenzka knattspyrnu Dieter?
— Mér finnst íslenzk knatt-
spyrna vera góð, þegar tillit er
tekið til þess, að þið eruð ein-
ungis áhugamenn. Annars var
ég mjög óánægður með lands-
liðið ykkar á síðasta sumri.
Það var greinilega undirbún-
ingslaust landslið, sem þið
teflduð fram.
— Þú hefur kannski kynnt
þér æfingaaðstöðu reykvískra
knattspyrnumanna. Hvernig
finnst þér hún vera?
— Hjá sumum félögunum
virðist hún vera nokkuð góð,
en sums staðar afleit. Menn
virðast hafa mjög lítinn tíma
hér á íslandi, vinna er mikil —
og þess vegna mæta menn á
æfingar aðeins endrum og eins.
Miðað við aðstöðuna, sem ís-
lenzkir knattspyrnumenn búa
við í dag, held ég, að þið ætt-
uð að geta náð miklu lengra.
DIETER H. WENDLER
En það er alltaf þetta kapp við
tímann . . . !
— Hvernig líkar þér annars
að -búa á íslandi?
— Mjög vel. Þjóðverjar
þekkja yfirleitt vel til íslands
og hafa mikinn óhuga á landi
og þjóð. Það er langt frá því,
að ég hafi orðið fyrir nokkrum
vonbrigðum.
— Og þú hefur hugsað þér
að dvelja hér áfram — og
vinna við Volkswagen-umboð-
ið?
— Já, það hef ég hugsað
mér að gera, að öllu forfalla-
lausu, — því ekki það!
V örubílst jóraf élagið
Þróttur
Allsherjaratkvæðagreiðsla
um kosningu stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
varamanna fer fram í húsi félagsins, og hefst laug
ardaginn 25. þ.m. kl. 1 e.h., og stendur yfir þann.
dag til kl. 9 e h. og sunnudaginn 26. þ.m. frá 1
til kl. 9 e.h. og er þá kosningu lokið
Kjörskrá liggur frammi í skrifstofu félagsins.
Kjörstjórnin
Vörubílstjórafélagið Þróttur
Fundur verður haldinn í húsi félagsins í kvöld
kl 20.30
Fundarefni: Félagsmál
Stjórnin
4
TÍMINN, flmmtudaginn 23. janúar 1964. —