Tíminn - 23.01.1964, Page 16
MOSFELLSSVEITARVEGUR NÆRRI ÚFÆR
KLAKIÚR VECUM
í BYRJUN ÞORRA!
KJ—Reykjavík 22 janúar.
Bflstjórar, sem fara Mosfel'ls-
sveitarveginn, hafa undanfarið
kvartað sáran undan ófærð á veg-
inum, og mest í dag. Rlaðið hafði
tal aíf bílstjóra á stórum bfl frá
Kaupfélagi Borgfirðinga, og sagði
hann að vegurinn í Mosfellssveit-
inni væri versti kaflinn á leiðinni
á milli Reykjavíkur og Borgarness.
Bjlstjórinn sagði, að vegurinn
væri arð vísu allur þungur og
blautur yfirferðar, en holurnar
væru hvergi eins slæmar og hérna
rétt við höfuðborgina. Þarna væri
mikil umferð þungra bifreiða og
vegurinn fljótur að vaðast upp, ef
tíðarfarið væri eins og núna und-
anfarið. Um daginn, er frostið var
hefði vegurinn verið eins og hefl-
uð fjöl, en svo, þegar tók að hlána,
óðst þarna allt út.
Blaðið hafði samband við vega-
málastjóra út af þessum harma-
söng bílstjóranna. Hann sagði það
Framnalo á Ib. siðu.
Kosningar í Iðju
Kosningaskrifstofa C-listans —
lista lýðræðissinnaðra vinstri
manna, er í Tjarnargötu 26. Símair:
160 66, 155 64 og 129 42.
Þeir, sem vildu leggja fram
vinnu við kosningaundirbúninginn
og á kjördag (n.k. laugardag og
sunnudag) eru hvattir til að hafa
samband við skrifstofuna sem allra
fyrst.
Vinnum öll að glæsilegum sigri
C-listans í Iðju n.k. laugardag og
sunnudag.
Listi lýðræðissinnaðra vinstri
manna er þannig skipaður:
Formaður: Hannes Jónsson (Ála
fossi), varaform; Alda Þórðar-
dóttir (Gefjun), ritari: Þrúður
Helgadóttir (Dúk), Gjaldkeri:
Tómas Sigurjónsson (Framtíðin),
meðstjórnendur: Heiður Helga-
dóttir (Elsa) Einar Eiríksson
(Ofnasmiðjan), Sigurbjörn Alex-
andersson (Vefarinn).
Varastjórn: Jóhann P. Einarsson
(Ölgerðin), Níels Hauksson (Ála-
foss), og Guðni Eggertsson
(Víðir).
Endurskoðandi: Sveinn Vigfús-
son (Jón Loftsson). Varaendur-
skoðandi: Karl Eiðsson (Ölgerðin).
Trúnaðarráð: Stefán Steinþórs-
son (Ölgerðin), Vilhjálmur Hjálm
arsson( Vefarinn,, Vigdís Aðal-
steinsdóttir (Hólmur), Matthias
Guðmundsson (Ofnasmiðjan),
Brynjólfur Einarsson (Kassagerð-
in), Þuríður Karlsdóttir (Sauma-
stofa Guðrúnar Sigþórsdóttur),
Kristján Norðmann (Ál'afoss),
Fríður Helgadóttir (Dúk), Skúli
Steinsson (Korkiðjan), Reynir
Guðjónsson (Últíma), Matthías
Hansson (Ofnasmiðjan), Gunn-
laugur Björnsson (Últíma).
Flóð í Hagaskóla
Gleymzt hafði að loka fyrir vatnsleiðslurnar
KJ-Reykjavík, 22. jan.
f morgun var verið að prófa
hitaveituleiðslur í nýju hita-
veitulögninni í Fornhaga, og
flæddi þá vatn inn í tvö hús þar
Hagaskólann og Barnaheimil-
ið Hagaborg.
Að undanförnu hefur verið
unnið að því, að leggja hita-
veituleiðslur þarna um Hagana
og var komið að því að prófa
leiðslurnar í Fornhaga. Heita
vatnið hefur enn ekki verið
tengt við hitakerfi húsanna og
á að vera lokað fyrir rörin inn
í húsin, á meðan tenging hefur
ekki farið fram. Leiðslunum inn ,
í Hagaskólann og Hagaborg,
hafði hins vegar ekki verið lok-
að, og afleiðingarnar urðu því
þær að sjóðheitt vatnið flæddi
inn í húsin góða stund, áður
en rennslið yrði stöðvað.
Þegar þetta gerðist, var
klukkan um tíu og því fjöldi
unglinga í Hagaskólanum.
Brugðu þau fljótt við og komu
húsverðinum Hafsteini Hall-
dórssyni til hjálpar við að fjar-
lægja vatnið. Er blaðið hafði
samband við Hafstein í kvöld
sagði hann, að skemmdir af
völdum heita vatnsins hefðu
orðið vonum minni. Gólfdúk-
urinn hefði skemmzt á stöku
stað, en unglingamir hefðu
brugðið skjótt við og verið ötul-
ir við að ausa og vinda. Ljós-
myndari Tímans G.E. tók þessa
mynd, meðan á vatnsaustrinum
stóð, og má sjá, að unglingamir
draga ekkert af sér.
HEIDUR HELGADÓTTIR
EINAR EIRÍKSSON
SIGURBJÖRN ALEXANDERSSON
JOHANN P. c.NARSSON
xC
■ 1i l r\
NÍELS HAUKSSON
-xC