Tíminn - 01.02.1964, Blaðsíða 5

Tíminn - 01.02.1964, Blaðsíða 5
11. UMFERÐ. Tal-Nona 1:0. Gligoric-Ingi 1:0. Wade-Ingvar 1:0. Arinbjörn-Freysteinn 1:0. Magnús-Trausti 1:0. Guðinundur-Friðrik Vi'.Vz- Jón-Johannessen biðskák. LÍNURNAR skýrðust nokkuð í bessari umferð. Tvö efstu sæt in munu örugglega falla í hend- ur þeim Tal og Gligoric, en um þriðja sætið mun standa mikil barátta milli þeirra Friðriks og Jobannessen. Þá er og ljóst, aö einhver þeirra Guðmundar, Wade og Inga hreppi fimmta sætið, en þeir standa nú allir svipað að vígi. Tal-Nona. — Spánski leikur- inn. Tal fékk fljótlega rýmri stöðu, en Nona varðist af mik- illi festu og gaf hvergi á sér færi- Þegar leiknir hafa verið 30 Ieikir hafði lítil breyting átt sér stað, en Nona var þá kom- 'in í talsverða tfcnaþröng og varð að fara að leika hratt. — Hóf hún illa undirbúna atlögu á miðborðinu, sem lyktaði með peðstapi. Átti Tal ekki í mikl- um erfiðleikum með að færa skákina til sigurs eftir það. Gligoric-Ingi. — Spánski leikurinn. Ingi valdi afbrigði, sem er akaflega traust, en jafn- framt vandteflt. Varð honum á ónákvæmni snemma í taflinu, sem varð þess valdandi, að Gli- goric náði að lama drottningar væng hans. Við þetta stóð lengi, en smám saman rétti Ingi sig úr kútnum og tókst að koma mönnum sínum í gagnið. 'Gli- goric hélt samt sem áður betra tafli og átti Ingi alltaf í vök að verjast. í 28. leik varð honum á yfirsjón, sem gaf Gligoric al- gjöra yfirburðastöðu og varð þá séð, hvert stefndi. Gafst Ingi upp í 39. leik. Wade-Ingvar----Franskt tafJ. Ingvar valdi aftur afbrigðið, sem hann tefldi á móti Gligor- ic í 9. umferðinni þ. e. 1. e4, e6. 2. d4, d5. 3. Rc3, Bb4. 4. e5, Dd7. 5. Bd2, b6. — Fékk hann heldur lakara tafl upp úr byrjuninni og hóf Wade stór- sókn á drottningarvængnum, eftir að Ingvar hafði hrókerað þeim megin. Reyndist Ingvari þessi sókn mjög erfið viðfangs og tókst Ingvari ekki að finna fullnægjandi úrræði til varnar. Reittust smám saman af honum fjaðrirnar og gafst hann upp er mikið liðstap var sjáanlegt. Arinbjörn-Freysteinn. Kóngs- indverskt tafl. Byrjunin tefld- ist rólega en bráðlega varð Ar- inbirni á ónákvæmni, sem gaf Freysteini mun frjálsari stöðu. Ekki virtist Freystéinn kunna að færa sér yfirburði sína í nyt og jafnaðist þá staðan von bráð ar aftur. í flækjum miðtaflsins reyndist Arinbjörn skeinuhætt ari og tókst að snúa á andstæð- ing sinn. Fylgdi hann vel á eft- ir og varð Freysteinn að gefast upp í 42. leik. Magnús-Trausti. — Kóngs-ind verskt tafl. Skákin hélzt í jafn- vægi framan af, en með góðum skilningi sínum á stöðunni tókst Magnúsi að snúa taflinu sér í vil. f miðtaflinu áttu sér stað drottningarkaup, en að lokum kom upp endatafl, þar sem Magnús stóð betur að vígi vegna biskupaparsins. Gerði hann harða hríð að peðum svarts drottningarmegin og tókst Trausta ekki að verja þau. Gafst hann þá upp. Guðmtmdur-Friðrik. Kóngs- indverskt tafl. Byrjunin tefld- ist með all frumlegu sniði, og tókst Friðriki að ná fram hag- stæðara tafli, eftir að Guð- mundur hafði sóað tímanum með gagnlausum drottningar- leik. Staða hans var þó traust og tókst Friðriki ekki að finna neinn snöggan blett enda þótt færi hans væru óumdeilanlega betri. Jafnaðist taflið smám saman og sömdu teflendur um jafntefli í 35. leik. Jón-Johannessen- — Franskt tafl. Hvítur náði snemma rýmri stöðu eins og oft vill verða í frönsku tafli. Virtist hann um tíma hafa góð færi á kóngs- vængnum, en Johannessen hafði augun hjá sér og gaf and- stæðingnum ekki tækifæri til að leggja til atlögu. Tókst hon- um von bráðar að ná mótsókn á drottningarvængnum og neyddist Jón þá til að falla frá kóngssóknaráformi sínu. Mikil mannakaup urðu í miðtaflinu og er nú komið upp hróksenda tafl, þar sem Johannessen stend ur betur að vígí. FH átti / miklum erfíð- leikum meS botnliðið! — Unnu Ármann þó með aðeins eins marks mun, 18:17 Tsikynning um söluskatt í 5. gr. laga um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins o. fl., er sett voru á Alþingi 30- janúar s.l., eru eftirfarandi ákvæði um söluskatt: Hjalti Emarsson átti mjög góðan leik í markinu. FH ÁTTI f miklum vandraeðum með botnliSið f I. delld, Ármann, á fímmtudagskvöld, þegar þesslr aðll- ar masttusf’ T fyrrl umferð fslands- mótsins. FH rétt marði sigur, 18:17, og -getur einkum þakkað 'Hjalta Ein- arssyni, að þessi eins marks sigur vannst, en-J leiknum sýndi Hjalti oft frábæra markvörzlu og varði ótrúleg ustu skot. Frammistaða Ármanns kom mjög á óvart, og það var greini (iegt, að FH-ingar voru óviðbúnlr henni. Síðari hálfleikur var mjög spenn- andi og náði hámarki, þegar Árm. náði að jafna stöðuna i fyrsta skipli í leiknum, 14:14. Áfram hélt leikur- inn og FH náði forustunni aftur en Ármann fylgdi fast eftir. Einni og hálfri mitnútu fyrir leikslok skildu tvö mörk á milli, 18:16, og það var þá, sem dómarinn, Magnús Péturs- son, vísaði Ragnari Jónssyni, FH, réttilega út af fyrir skrípal'æti. Mað- ur bjóst við, að Ármenningar myndu ná að jafna bilið, sjö á móti sex Hafnfirðisnigum. Lúðvik skoraði 17. mark Ármanns, en þá var tíminn líka útrunninn og FH hlaut bæ'öi stigin. Það, sem réði úrslitum í þessum leik, var afar góð markvarzla Hjalta í FH-markinu og á það þá kannski mest við fyrstu 12—13 mfnútur leiks ins, en þá tókst Ármenningum ein- ungis að skora tvisvar sinnum með- an FH skoraði átta sinnum. — Ann- ars áttu Ármemningar mjög góðan leik og léku taktiskt. Hörður og Lúðvík, ásamt Þorsteini markverði, voru beztu menn liðsins, en Hans Guðmundsison átti lél'egan leik, missti boltann oft og hélt uppi meira tempói, en góðu hófi gegndi. Mörk Ármanns skoruðu Lúðvík og Hörður 6 hvor, Árni 4 og Hans 1. FH-liðið hreinlega vanmat Ármann —o’g kæruleysi var á dagskrá. FH hafði mikla möguleika til að gera út um leikinn fljótlega — gat hæg- lega aukið sex marka forskot, 8:2, í átta til tíu marka. Það kom sér sannarlega vel fyrir FH, að Hjalti var í stuði. Annars áttu Ragnar og Öm ágætan leik. Mörkin skoruðu Ragnar 9, Örn 5, Einar, Guðlaugur, Páll og feirgir 1 hver. Magnús Péturssón dæmdi vel. ÍRogKR í kvöld Meistaramót íslands í körfu- knattleik hefst að Hálogalandi í kvöld. Tíu félög senda 31 lið til keppni að þessu sinni, og er það með allra mesta móti, þótt ekki séu nema þrjú lið í meistaraflokki karla, þ.e. ÍR, KR og Ármann. Ekki er hægt að segja annað en mótið byrji skemmtilega, því í kvöld eigast við í meistaraflokki íslandsmeistarar ÍR og lið KR, sem hefur reynzt ÍR skeinuhætt í síðustu ieikjum. Annars fara þessir leikir fram um helgina: Laugardagur klukkan 8.15: Ármann — Skallagrímur í 1. fl. KR — ÍR í meistaraflokki. Sunnudagur klukkan 8.15: KR — Skallagrímur í 1. flokki. ÍR — KFR í 3. flokki Skarph. — Laugarvatn í 1. fl. Bogi Þorsteinsson, form. KKÍ, mun setja mótið í kvöld. Lögfræðiskrifstofan hfgslRsa, IV. hæd Tómasa» Arnasortar og Vilhjá.'ms Árnasonar 52. Skjaldar- glíma Ármanns Skjaidarglíma Ármanns 1964 verður háð að Hálogalandi n.k. sunnudag, 2. febrúar, og hefst hún kl. 4 síðdegis. Þetta er 52. Skjaldarglíman í röðinni frá upphafi, en hún fór fyrst fram árið 1908. Að þessu sinni eru 12 kepp- endur skráðir til keppninnar, 6 frá Glímufélaginu Ármanni og 6 frá KR. Skjaldarglíman verður að þessu sinni helguð 75 ára af- mæli Glímufélagsins Ármanns, og er einn þáttur í víðtækum hátíðanöldum félagsins í tilefni þessa merkisafmælis. Glímudeild Ármanns sér um undirbúning og framkvæmd mótsins eins og venjulega. „Söluskattur samkvæmt II. kafla laga nr. 10/1960 um söluskatt, skal frá 1. febrúar 1964 nema 5%% af andvirði seldrar vöru og hvers konar verð- mætis, eftir því sem nánar er ákveðið í téðum lögum. Við framtal til söluskatts fyrir fyrsta ársfjórðung 1964 skulu framteljendur skila tveimur framtals- skýrslum, annarri fyrir janúar og hinni fyrir febr- úar og marz. Skattyfirvöld geta krafizt þess, að söluskattsskyldir aðilar láti í té hvers konar upp- lýsingar varðandi skiptingu viðskipta milli þess- ara tveggja tímabila, þar á meðal má til saman- burðar, ef ástæða þykir til, krefjast hliðstæðra upplýsinga um skiptingu viðskipta á fyrsta árs- fjórðungi 1963“. Reykjavík, 31. janúar 1964 Skattstjórinn í Reykjavík Útsala — Útsala ÚTSALAN heldur áfram. Ullarfrakkar á kr- 1500.00 Rykfrakkar á kr. 500.00 Drengjaúlpur á kr. 385.00 Klæðaverzlun Braga Brynjólfs Laugavegi 46 Fóstrur — Fóstrur Forstöðukona óskast við leikskóla Selfoss frá 1. júní—1. sept. Umsóknir ásamt meðmælum sendist skrifstofu Selfosshrepps Eyrarvegi 5 fyrir 1. marz. Uppl. gefur Katla Magnúsdóttir í síma 149. TIMINN, laugardaginn 1 fcbrúar 1964 — 5

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.