Tíminn - 24.03.1964, Page 5
ríU I I LK
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
ÞORSTEINN HALLGRIMSSON
Langbezti maður íslenzka liSsins.
SKORUÐU SIGURKORFUNA GEGN
DÖNUM Á SÍÐUSTU SEKÚNDU!
ísland varð í þriðja sætiá Norðurlandamótinu í Helsinki
íslaud hreppti þriðja sæti á
Norðurlandamótinu í körfuknatt-
leik, sem fram fór í Helsinki um
Jielgina. Finnar urðu sigurvegarar,
en Svíar í öðru sæti. Lestina ráku
Danir eins og í mótinu síðast.
Baráttan um þriðja sætið stóð
á mil*li íslendinga og Dana eins og
fyrir fram hafði verið búizt við
og litlu munaði, að ísland yrði
undir í þeinri baráttu. Síðustu
sekúndurnar í leiknum iréðu úrslit
um og á þeim tryggði Þorsteinn
Hallgrímsson, einn bezti leikmað-
ur keppninnar, íslandi sigur, 56:
55. Þetta var eíni sigur fslands
í keppninni. Fyrsti leikurinn gegn
Svíum tapaðist 59:65 og fyrir
Finum tapaðist 48 : 81.
Þótt sigurinn gegn Dönum væri
lítill og naumur, var frammistaða
íslenzka liðsins með ágætum og
með fullu liði hefði ísland átt
möguleika á öðru sætinu.
Fyrsti leikur íslands í keppn-
inni var gegn Svíum á föstudags-
kvöld og var leikurinn allan tím-
ann jafn og tvísýnn. ísland byrjaði
mun betur og hélt forustu fram
yfir miðjan fyrri hálfleik, en
þá komust Svíar yfir í fyrsta skipti
í hálfleik var staðan 25 : 23 fyrir
Svía Staðan í síðari hálfleik var
margsinnis jöfn, en lokakafli Svía
var mjög góður og þeir unnu með
sex stiga mun, 65 :59. Undir lok-
in var Hólmsteini Sigurðssyni vís-
að út af og hafði það mikil áhrif.
Bezti maður íslenzka liðsins í þess
um leik var Þorsteinn Hallgríms-
son, sem skoraði yfir 30 stig.
Næsti leikur íslenzka liðsins var
gegn Dönum á laugardag og varð
það tvísýnasti leikur mótsins. Þeg-
ar u.þ.b. tvær mínútur voru til
leiksloka virtist ekkert annað en
danskur sigur blasa við, en þá
höfðu Danir tryggt sér fimm stiga
forskot, 52 : 47. En leiknum var
ekki lokið og þessar tvær mínútur
urðu mjög afdrifaríkar. Anton
skoraði eitt stig úr víti og litlu
síðar skoraði Þorsteinn körfu. Stað
an var 52:50. Og nú er dæmt
víti á Dani — og Þorsteinn skorar
örugglega úr báðum, sem verður
að teljast vel af sér vikið, því
taugaspennan var ofsaleg. Danir
bæta einu stigi við úr víti, 53 : 52,
en Þorsteinn nær forustu með fall
egu skoti, 54 : 53. Tíminn líður óð-
fluga og útlitið er heldur svart,
þegar Danir ná forustunni aftur,
55:54. Og nú var aðeins talið í
sekúndum, allar leiðir virtust von-
lausar. Þorsteinn Hallgrímsson
sýndi á þessum síðustu sekúndum
einstakt keppnisskap. Þrátt fyrir,
að hans væri gætt mjög vel af
dönsku leikmönnunum brauzt
hann örugglega og skemmti-
lega í gegnum dönsku vörnina og
skoraði sigurkörfu íslands, 56 : 55.
Danir höfðu ekki tíma til að byrja
með knöttinn. Leiknum var lokið.
Síðasti ieikurinn var gegn Finn-
um, sem áttu langsterkasta lið
mótsins. íslenzka liðið byrjaði all
sæmilega, en þegar lengra leið á,
komu yfirburðir Finna í ljós. í
hálfleik var staðan 40 :19, en loka-
tölurnar urðu 81: 48.
Meistararnir orðnir efstir
Everton, meistararnir frá því I fyrra, hafa nú forustu í 1. deild með
46 stig, eftir sigur gegn Blackburn á laugardag 2:1. Everton hefur
leikið tíu leiki í röð án taps, unnið átta leiki, en tveir hafa orðið
jafntefli. Og þeir verða nú sífellt fleiri, sem álíta, að þeir veðji á
réttan hest, þegar þeir segja, að Everton Iiljóti meistaratign aftur í
ár. En munurinn á efstu liðum eftir umferðina á laugardag er sára-
Iítill — og hvað þýðir eiginlega að spá nokkru fyrir fram í hinni marg-
slungnu og óútreiknanlegu ensku knattspyrnu?
I öðru sæti á eftir Everton er
Liverpool með 44 stig, en hefur
leikið tveimur likjum minna —
og Tottenham, sem lá fyrir Manch.
Utd. á heimavelli sínum í London
á laugardag hefur einnig 44 stig,
en hefur leikið jafnmarga leiki
og Everton, eða 35. Þar fyrir neð-
an koma svo Blackburn með 43
stig eftir 36 leiki og Manch. Utd.
með 42 stig eftir 33 leiki.
Hér koma úrslitin á laugardag:
1. deild
Aston Villa — Fulham
Blackburn — Everton
Chelsea — WBA 3:1 Portsm. — Plymouth 1:2
Notth. F. — Sheff. W. 3:2 Sunderland — Preston 4:0
Sheff. U. — Leicester 0:1 Swindon — Middelsb. 2:0
Stoke — Ipswich 9:1 Northampt. — Leyton 1:2
Tottenham — Manch. Utd. 2:3 Helztu úrslit á Skotlandi:
West Ham — Arsenal 1:1 Dundee — Hearts 2:4
Wolverh. — Burnley 1:1 Hibernian - - St. Mirren 1:0
2. deild r1 Kiímarnock — Celtic 4:0
Bury — Swansea 3:2 Rangers — Dunfermline 2:1
Leeds — Grimsby 3:1 Rangers er í efsta sæti með 49
Manch. C. — Southampt. 1:1 Stig, en Kilmarnock næst með
Norwich — Huddersf.
(Framhald á 11. síðu).
FJORDA SÆTI
Noirðurlandamót unglinga í;
handknattl. fór fram í Eskilstuna|
í Svíþjóð um helgina. fslenzka |
unglingalandsliðið varð í f jórða!
sæti í keppninni, sigraði í einum
Ieik, gegn Finnum með 11:10.
Keppnin um efsta sætið var mjög
hörð og urðu Svíþjóð, Danmörk og
Noregur jöfn að stigum, en Svíar
hljóta efsta sætið í skjóli hagstæð-1
ustu markatölunnar. Danir koma
svo í öðru sæti, þá Noirðmenn, I
ísland í fjórða sæti og Finnar í
fimmta sætL
Úrslit í leikjum íslands urðu
eins og hér segir:
ísland —- Finnland 11:10
ísland — Svíþjóð 10 : 18
ísland — Danmörk 19 : 25
ísland — Noregur 10 :13
Vegna slitins sæsímastrengs
tókst ekki að ná sambandi við
Eskilstuna og verður því nánari
frásögn af leikjunum að bíða.
Frá fyrstu umferð mótslns. VI8 fremsta borðið eigast við sveitir Þóris Sigurðssonar og Benedikts Jóhanns-
sonar. Frá vinstri Benedikt, Stefán Guðiohnsen (snýr baki í Ijósmyndarann). Gegnt honum er Þórir, og
lengst til hægri Jóhann Jónsson.
URSLIT
KR-ingar efndu til afmælis-
móta í innanhúss knattspyrnu
og handknattleik um helgina.
Innanhúss knattspyrnumótið
hófst á laugardag og var keppt
í tveimur riðlum. Úrslit uirðu
cins og hér segir:
A— riðill
Valur — KR
Fram — Haukar
Fram — KR
Valur — Haukar
B — iriðiJl
ÍBK — Víkingur
4:14
10:4
12:6
11:3
6:2
Þróttur — KR b 8:4 j
KR b — ÍBK 5:5 ’
Þróttur — Víkingur 10:4
Mótinu átti að ljúka í gær-
kvöldi.
Á sunnudagskvöld hófst hand
knattleiksmótið. Hver leikur :
var 2x10 mín. Úrslit uirðu ei.ns
og hér segir:
Valur — IR 8:7
írmann — Frarn 7:6
v'ík. — Þiróttur 5:4
FH — KR 16:7
Fram — ÍR 9:6
KR — Þrótlur 12:6
Mótinu Iýkur í kvöld.
brídge
íslandsinótið í bridge hófst á laugardaginn í Reykjavík og er spilað
i tveimur flokkum, meistara og 1. flokki. I meistaraflokki spila sj«
sveitir um fslandsineistaratitilinn. cn í 1. flokki keppa 10 sveitir.
í 1. umferðinni sigraði sveit
Benedikts Jóhannssonar sveit Þór-
is Sigurðssonar með 6-0, sveit Agn-
ars Jörgenssonar vann sveit Ólafs
Þorsteinssonar með 6-0 og sveit
Einars Þorfinnssonar vann sveit
Mikaels Jóiissonar Akureyri, með
4-2. Sveit Gísla Sigurðssonar,
Siglufirði, sat yfir.
í 2. umferð vann sveit Einars
sveit Gísia með 6-0, sveit Þóris
vann sveit Ólafs með 6-0 og sveit
Benedikts vann sveit Mikaels með
6-0 og er því efst eftir tvær um-
ferðir með 12 stig. Sveit Agnars
sat yfir í 2. umferð. Þriðja umferð
var spiluð í gærkvöldi, en úrslit
ekki kunn, þegar blaðið fór í prent
un. Fjórða umferð verður spiluð í
kvöld í Klúbbnum við Lækjar-
teig og pá spiluð 32 spil, en leik-
irnir í meistaraflokki eru 48 spila.
f kvöld spila m. a. saman sveitir
Einars og Benedikts
Eftir 4. umferðir í l.flokki er
sveit Jóns Magnússonar efst með
24 stig, en sveit Elínar Jónsdótt-
ur með 19 stig.
T í M I N N , þriðjudaginn 24. marz 1964
5