Tíminn - 24.03.1964, Page 8

Tíminn - 24.03.1964, Page 8
r 5T ?WT *1T ?TÍ«T3T2T HííT3^^ I Ttifa íT^TItll Ég bý8 mennina velkomna, hvernig sem þeir koma til mín, ó Partha, því að sérhver vegur, sem þeir velja, er minn vegur, hvaðan sem hann liggur. BhG- IV, 11. SKIPUN OG SKYLDA Akurgerði 23 — einbýlishús og trjágarður. Á dyrabjöllunni stendur: Sören Sörensson. Við hringjum bjöllunni og húsráð- andi kemur til dyra, maður þykk leitur, hæruskotinn með vökul augu: reynsla og spurn, maður- inu sem þýddi Bhagavad-Gita og Rigveda úr sanskrít, Dhamtnap- anda úr palí. Hann vísar okkur í kvisther- bergið, þar sem han situr við skriftir, þar sem þýðingar úr sanskrít verða til. — Hvenær fórstu að leggja þig eftir sanskrít? — Það var Um 1920. Þá hafði ég kynni af Guðspekifélagshreyf- ingunni hér, og sú hreyfing hef- ur alltaf litið í austur. Um þær mundir las ég Bhagavad- Gita á dönsku, og þá vaknaði hjá mér löngun til að lesa bókina á frummálinu. Þá vissi ég ekkert hvemig málið var; að læra það var nánast barnaleg hugmynd. Eg fór til Péturs heitins Halldórs sonar bóksala og bað hann að útvega mér sanskrít málfræði. Hann sagði mér að nefna ein- hvem titil. Eg fann nafnið Sanskrít Grammar eftir Monier- Williams, og hann pantaði þessa bók. Þegar ég sá hana féll mér allur ketill í eld. í fyrsta lagi vora stafirnir ekki eins og í venjulegum málum, heldur voru þar samsettir stafir, allt að fimm venjulegir í einum og þessir staf ir vom tvö hundmð og fimmtíu Auk þess fjórtán sérhljóðar og þrjátíu og þrír einfaldir sam- hljóðar. Eg fór svo að brjótast í að læra þessa bók með ná litlu enskukunnáttu sem ég hafði. — Hvaða menntun hafðirðu þá? — Enga, nema barnaskóla- menntun, en á nokkrum árum tókst mér að komast svo niður í þessu, að ég gat lesið Bhaga- vad-Gita á frummálinu. — Hvað varstu lengi að læra stafrófið? — Eitt ár minnir mig. Svo fór ég til Bandaríkjanna 1926 og var þá ekkert farinn að þýða. Eg var í Chicago á áttunda ár, og þar við háskólann kynntist ég pró- fessor í sanskrít. Eg fékk þar nokkrar kennslustundir, og kom- inn til íslands, þrettán árum eft- ir að ég fékk málfræðina hjá Pétri Halldórsssyni, fór ég að þýða Bhagavad-Gita. Bhagavad-Gita er trúarljóð, hún er eiginiega Biblía Indverja. Gandi segir frá því, að þegar hann átti i erfiðleikum, leit hann í Bhágavad-Gita til að finna sið- ferðilega lausn vandans. Hvaða indverskur trúflokkur sem er get Ur tileinkað sér þessa bók. Hún er eins aíþýðleg þar og Biblían hér. — Hvað varstu lengi að þýða hana? — Um tvö ár í ígripum. Eg þýddi hana á óbundið mál og bókin kom út í 299 tölusettum eintökum árið 1939. Ekki veit ég, hvort margir hafa lesið hana, en ég tel, að allii hugsandi menn hljóti að fitina þar eitthvert berg- mál. — Næsta verkefni? — Svo þýddi ég bókina um veginn eftir Laó tse, að vísu ekki úr frummálinu. Eg þýddi hana úr ensku. — Er ekki erfitt að þýða Laó- tse? — Jú, þessar bækur eru erfið ar, og það er mjög ólíklegt að tveir menn fái sömu hugmynd við lestur sömu setningar. Þess vegna er Bhagavad-Gita þýdd á ensku aftur og aftur. Nýir þýð- endur, sem halda að þeir skilji betur, koma stöðugt fram á sjón arsviðið. Sjálfur hef ég nýlega lokið við endurskoðaða þýðingu á þeirri bók, og nú hef ég þýtt hana á bundið mál. — Hefurðu fleira á prjónum? — Já, raunar hef ég lokið við að þýða enn þá meira verk úr sanskrít. Sú bók heitir Pancha tantra, og þýðir Fimm bækur. Hver þeirra bóka er ein drama- tísk heild, en ævintýram er skotið inn til áréttingar þeim hugsunum, sem koma fram í hverri bók. Elztu hlutar þessar- ar bókar hafa orðið til í Kasmír um 200 árum fyrir Krist. Ævin- týri úr henni hafa gengið í þýð- ingum um Austur- og Vestur- lönd í áraraðir, en þó eru engin dæmi til, að þau hafi borizt hing að. Mér er ekki kunnugt um heildarþýðingar á bókinni á Norð urlandamál, en ég veit um tvær enskar þýðingar og einá þýzka. Þú þýzka er yfir hundrað ára gömul og vár endurprentuð ný- lega. Af þvi má marka, að sög- urnar eru lesnar þótt gamlar séu. — Hvað er þetta stór bók? — Eg gæti trúað um 300 blað- síður í Skímisbroti. — Er mikill kveðskapur í henni? — Já, þar er mikið af alþýð- legum kviðlingum, sem hafa gengið mann fram af manni. Sögupersónurnar krydda tal sitt með stökum, eins og gamla fólk ið hér. Sum ljóð þar eru tekin úr fornum helgiritum, en í Panchatantra eru um þúsund ljóð. N — Megum við heyra eitthvað af þessum ljóðum? — Eg ætla að lesa úr Bhagavad Gita. Hún er hluti af Mahabhar- ata, sem er hvað mest skáldverk indverskrar menningar; hefur sögulegan þráð og krydduð mörg um ævintýrum. Skáldið iætur Bhagavad-Gita gerast á vígvelli, þar sem tvær andstæðar fylking- ár standa reiðubúnar að berjast. Þar kemur, að ein söguhetjan, Argjuna prins, guggnar við til- hugsunina um að vega ættingja sína meðal andstæðinganna. Meistarihn Krisná taiar um fyrir honum og segir, að ekkert sé að óttast. Hann verði að gegna þeim skyldum, sem iífið leggur á hann, án tillits til siðferðiíegra hugmynda sinna. — Gerir þessi höfundur eng- an mun ó skyldúrh? — Jú. —’ Litur hann svo á, að skyld an geti verið glæpsamleg? — Nei, hann trúir á endur- hoidgun og lítur svo á, að verk mannsins á undangengnum ævi skeiðum knýi hann til starfa. — Maðurinn þarf hvorki að óttast líkamlegan dauða sinn, eða hitt að valda líkamlegum dauða ann ars manns, því hvorir tveggja endurfæðast. — Er endurholdgunin ekki refsing fyrir ófullkomið líf? — Það má kalla hana refs- ingu, en þeir sem trúa á endur- holdgun gera það ekki. Þeir líta á hana sem nauðsynlegan skóla. Maðurinn verður að bera ábyrgð gerða sinna, hvort sem það eru gerðir hans í lifanda lífi eða fyrra lífi. Hann verður að vinna af sér, það sem hann hef- ur vanrækt; bæta fyrir brot, ef um brot er að ræða. — Líta þeir svo á, að maður bæti fyrir sér með því að upp- fylla skylduna, hver sem hún er? — Öll skylda er ekki afleið- ing af fyrra lífemi, skyldan get: ur alltaf orðið til. Til dæmis styrjöld. Við erum nauðbeygðir að taka þátt í henni, en búum hana ekki til. — Megum við ekki líta svo á, að það sé skylda okkar að neita að taka þátt í styrjöld og láta ekki siga okkur í stríð, sem aðr ir búa til? — Jú, en sá sem verður fyrir árás kemst ekki hjá því að verja hendur sínar. Við skulum taka Indverja og Kínverja til dæmis. Bhagavad-Gita hefur mikla þýð- ingu í Indlandi nú, vegna þess að Kínverjar hafa ráðizt inn í landið. Á Indverjinn gð nejta að berjast við óvininn af því hann hefur þá trú, að það sé synd að drepa menn? Sjálfstæði þjóðarinnar — ef það er ein- hvers virði — kann að vera í veði. Þess vegna ber landsmönn- um skylda til að vernda sjálfstæð ið, þjóðfélagslegt og persónu- legt. Undir slíkum kringumstæð- um, og samkvæmt endurholdgun arkenningunni, getur stríð verið ávinningur fyrir þann, sem fóm- ar sér í því. — Hvað segja þá Krisna og Argjuna? — Argjuna segir: Hvemlg fæ ég vegið mæta mena með beittri ör á strengdum bogastreng, þá Boshma og Drona er mér ber að virða og bera í brjósti velvild þeim til handa? • Betra væri að vera snauður stafkarl en standa yfir vinum sínum dauðum. Og ef ég ætti mæta vini að deyða, þá yrði öil mín fæða ötuð blóði. Vér vitum eigi hvað oss væri betra, að sigra eða sjálfir dauðir falia. Er vér hefðum vegið þá og 'sigrað, Cr vaskir berjasl i liði vorra fjeiidá, þá bærðist engin þrá í brjósti að lifa. Meðaumkuhir) lieltekur mitt hjartá. og hugur minn hann skynjar ei hið rétta. Ég kem til þín, þú meistari minn og herra, og mæli: Ség mér Skýrt hvað er hið eina rétta. Ég fæ ei skynjað, séð, né heldur skilið, hvað sefað gæti sáran harm míns hjarta þótt ég hreppti öll vor jarðargæði og hefði vald á himni sem á jörðu. Krisna segir: Þú grætur þá sem eigi þarf að gráta þótt gáfuleg í eyram orð þín hljómi. En þeir sem hafa þekking sanna og hreina, þeir harma hvorki lifendur né dauða. Aldrei var sú tíð er eg var eigi eða þú og þessar mætu hetjur. Vér höldum áfram æ að vera til og verðum áfram til í eilfíðinni.1 Líkaminn sem andinn íklæðist á sér æsku, ungdóm, elliár, en andinn tekur á sig nýja mynd, og vitur maður harmar þetta ei. Skynvitin þau skynja heitt og kalt, þau skynja einnig sælu og hugarkvöl, en þetta kemur, hverfur, varir stutt, ver ei háður því, þú konungsson. Sá er lætur þetta ei snerta sig, sem hugarór lifir jafnt í sælu og sorg, þá máttu vita, hái höfðingsson, hann á í vitund vissu um eilíft líf. Það sem deyr það er ei vananlegt, og það sem varir eilífðinni vígt. Eðlismismun þennan skilja þeir, er þekkja sannleikann um líf og deyð. Vita skaltu að það sem í öllu býr, það eilíft er og ótortimanlegt, það verður ekki upprætt eða deytt. Líkamir andans deyja og hverfa sýn, en andinn lifir æ og týnist ei. Hann ævarandi er og endalaus, og af því skaltu berjast. Bharata. Þeir er hyggja að hann vegi eða veginn sé, þeir vita ei og skilja ei sannleik þann, að sjálfur andinn deyðir ei né deyr Andinn fæðist ei og ei hann deyr. hann er og verður nú og endalaust. Hann á sér ekkert upphaf, hættir ei að vera til, og ei hann deyr þótt holdið vegið sé. Sá er veit að andinn á sér lif. eilíft, ótakmarkað, endalaust, hann getur ekki sagt og segir ei að andinn vegi eða veginn sé. Eins og sá er leggur frá sér föt. sem farin eru að slitna og fær sér ný, þannig leggur andinn af sér líkamslín, sem hann fær eigi lengur notazt við og fær sér annan nýjan efnishjúp. Sverð eigi getur hann sært, og sviðið e* eldur hann getur. Vatn getur eigi hann vætt og vindar ei heldur hann þurrkað. Hann ósnortinn er af þeim öflum, sem eyða og brenna og þurrka. Hann er hið eilífa í öllu og aldrei hann breytist um aldir. Hann verður ei skilinn né skýrður, hann á sér ei upphaf né endi. Og þegar þú veizt þennan sannleik, þá láttu harm þinn sefast. Því þótt að þér virðist hann deyja, þá er þetta ei sem þér sýnist. . . — Hvað má nú ekki afsaka með þessari kenningu, Sören? Nú standa réttarhöld í Þýzka- landi yfir mönnum, sem frömdu fjöldamorð og pyndingar á stríðs- áranum. Ég geri ráð fyrir, að þeir hafi unnið sér til dómsá- fellis, en samkvæmt kenning- unni má sýkna þá út á skyld- una, sem hafi boðið þeim að gera þetta, enda hafi þeir ekki drepið andann. — Þetta er rökrétt athuga- semd. — Hvað á að gera við þessa menn, refsa þeim eða ekki, sam- kvæmt kenningunni? — Ég vil taka fram, að þetta er ekki mín kenning. Þetta era hugsanir, sem ég túlka. En slík fílósófísk spursmál er hægt að ræða endalaust án þess að kom- ast að óyggjandi niðurstöðu. Af- staða manna er svo mismunandi. Sumir miða við trú sína, kristi- lega eða heimspekilega, hverju nafni sem hún nefnist. Hver hef- ur rétt fyrir sér? — Ef við geram ráð fyrir, að Krisna hefði verið dómari við réttarhöldin í Nurnberg — hvem ig hefði hann dæmt? — Ég veit það ekki. En skipt- ir miklu, hvernig dæmt er, út frá þessu sjónarmiði. Skiptir nokkru, hvort maður er tekinn af lífi eða deyr sjálfur, ef honum verður ekki í hel komið andlega. Þeir sem drepa í stríði og þeir sem drepa í friði eru jafn sekir um dráp. Það sem um er að ræða, er að gegna skyldunni. Getum við ekki komið okkur saman um, að eitthvað sé til, sem heitir skylda? — Jú, en eigum við að taka hana hráa. Eigum við ekki að taka afstöðu til skyldunnar? — Við eigum að taka afstöðu til allra hluta, allra mála. Við eigum ekki að vera hópsálir. Skylda og boð er ekki það sama. Þótt ég vinni hjá einhverju fyrirtæki, þá er ekki þar með sagt, að ég sé skyldugur til að gera hvem fjandann, sem yfirboðurum mín- um hugkvæmist að segja mér. Þó ríkisstjórnin finni upp á ein- hverju, er ekki þar með víst, að við séum skyldugir til að fara eftir því. Það sem hér er átt við, er siðferðileg skylda. Við get- um ekki komizt fram hjá því, að siðgæði Sé til. — Er það ekki afstætt hugtak? — Jú, en þó held ég, að sið- gæðisvitundin sé alltaf fyrir hendi. Hún kemur meðal annars fram í því að gera vel við sína, til dæmis börn sín Það er sið- ferðileg skylda. TÍMINN, þrlðjudaginn 24. marz 1964

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.