Tíminn - 24.03.1964, Síða 13

Tíminn - 24.03.1964, Síða 13
Til sölu 3ja herb. íbúð á I. hæð með , sér hita og sér inngangi. Út- borgun um 200 þús. Skúrbygging á eignarlóð m/ vatni, frárennsli og raf- magni. Mætti innrétta sem íbúð. 3ja herb. risíbúð í Kópavogi. Útb. 150—200 þús. Vcrzlunarpláss í Vesturborg- inni. Fokheld hæð í Austurborg- inni, 6 herb., tvöfalt gler og kynditæki. Sanngjarnt verð. Húseign á eignarlóð, I. hæð, 180 ferm., efri hæð 90 ferm. Stór bílskúr. Góð lán áhvíl- andi. Hús í Fossvogi á 2ja ha. erfða- festulandi. Einbýlishús í Silfurtúni á einni hæð, 3 svefnherb. tvær stof- ur, eldhús, bað, geymsla og bílskúr. Girt og ræktuð lóð. j 5 herb. hæð við Rauðalæk, sér inng. 5 lierb. efri hæð við Skafta- hlíð. Ný efri hæð með öllu sér í Kópavogi. Hæð og ris, alls 7 herb., ásamt verkstæðishúsi í Kópavogi. Efri hæð og ris, tvær íbúðir, getur verið ein 10 herb. íbúð. 5 herb. íbúð í sambýlishúsi í Vesturbænum, endaíbúð. 3ja herb. íbúð í tvíbýlishúsi við Hvassaleiti. Jarðir í nærsveitum Rvíkur. Rannvtig Þorsfeinsdóttir, hæstaréttarlögmaSur Laufásvegi 2. Sími 19960 og 13243. Vantar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í smíðum, eða nýjar. Einnig eldri íbúðír í borginni og Kópavogi. Til söiu: 2ja herb. íbúð við Langholts- veg, 1. veðr. laus.' 2ja lierb. ný íbúð við Asbraut. Glæsilegar innréttingar. 3ja herb. risíbúð við Mávahlíð. 3ja herb. ný standsett hæð við Hverfisgötu. Laus strax. 3ja herb. íbúð við Miðstræti. Sér hitaveita. 3ja herb. risíbúð við Laugav. Sér hitaveita. 3ja herb. góð kjallaraíbúð i Högunum. Sér inngangur. Sér hiti. 3ja hcrb. liæð við Efstasund. Sér inngangur. Sér hiti. 4ra herb. ný og glæsileg íbúð í háhýsi við Sólheima. Teppa lögð. Tvennar svalir. Hag- kvæm kjör. 4ra herb. nýleg efri hæð við Garðsenda. Sér inngangur. Stórar svalir. Sleinhús við Langholtsveg. 4ra herb. íbúð í rísi, 3ja herb. íbúð á hæð með herb. í kjall ara. 800 ferm. lóð. 1. veðr. laus í báðum íbúðunum. Timburhús, járnklætt. Hæð og ris á steyptum kjallara við Öldugötu. Húsið er 1 3ja herb. íbúð og 4 2ja herb. íbúðir. Eignarlóð. Allt laust 14. maí. Byggingarlóðir í Kópavogi. AIMENNA FASTEI6NASALAN LÍNDARGATA 9 "sTmTTÍTsO H3ALMTYR PETURSSON Thorvald Olafsson Weyvadt Talið er, að sætur sé sjódauði, en að rerða bráðkvaddur, mun fyllilega jafnazt á við það. Á þann veg endaði jarðvistarlíf Thor- valds. Hann var fæddur á Vopnafarði 15. janúar 1893. Foreldrar hans voru frú Conradine Weyvadt og Ólafur sonur Jóns í Borgargarði,. Nokkru fyrir aldamót fluttu for- eldrar hans frá Djúpavogi til Vopnafjarðar. Eignuðust þau nokkur börn, en aðeins fjögur þeirra komust til fullorðins ára, tvær dætur, Petra og Jóhanna, og tveir synir, Anton og Thorvald. Thorvald var yngstur þeirra systk- I ina. Anton bróðir hans fluttist til Akureyrar og varð fjölskyldumað- ur. Aðeins eitt barna hans er á lífi, Ólafur, sem á heima í Vopna- firði; Jóhanna systir hans giftist á Vopnafirði og bjó þar, en Petra systir hans giftist ekki. Meginhluta aldurs síns átti Thorvald heima á Vopnafirði. Eftir fráfall foreldra sinna hjó Thorvald í ættarhúsinu ásamt Petru systur sinni, unz hún hneig í valinn. Eftir það bjó hann einn í húsinu. Það hús þótti á sínum tíma eitt af glæsilegustu húsun- um í Vopnafjarðarkaupstað. Thorvald hlaut í vöggugjöf að-; aleinkenm beggja ættanna, tryggð og ástúð, einbeitni, hagsýni og óbilandi kjark. Snemma á árum tók Thorvald þátt í félagslífi Vopnfirðinga. j Hann mun hafa verið einn af stofn endum verðalýðsfélagsins þar; hann bar félagsskírteini nr. 1 frá 1922. HeiSursfélagi ‘þess. var!Íha'tin kjörinn 7. jan. 1952. Gjaldkeri félagsins var hann í 15 ár. Þá lét hann og kirkjumál tals- vert til sín taka. Var í safnaðar- stjórn um skeið og gjaldkeri kirkjufélagsins. Einnig var hann meðhjálpari alllangan tíma. Thorvald var harðduglegur maður og traustur til allra starfa. Hann mátti ekki vamm sitt vita í neinu, en vann að öllum verkefn- um með trúmensnku, einurð og dugnaði. Einn af vinum hans, Geir Stefánsson heildsali hefur tjáð mér, að aldrei þótti neinu máli fullráðið nema Thorvald væri hafður með í ráðum, enda holl- ráður, reglu- og hirðumaður. Thorvald var sérstaklega barngóð- 4 Hann tók snemma tryggð við l fyrrnefndan Geir Stefánsson, þótt aldursmunur væri mikill. Þá átti Thorvald liðlega „sjektu“, sem enginn fékk að snerta nema drengurinn Geir. Honum var alltaf^ velkomið að fá bátinn lánaðan. Þá þótti og Thorvald vænt um skepnur og átti að jafnaði nokkr- ar kindur og kú. Síðustu ár sín á Vopnafirði! starfaði nann við kaupfélagið og var þar aðallega gæruvigtar- maður. Árið 1952 mun hann hafa haldið suður til Reykjavíkur. Stuttu eftir komuna til Reykjavíkur, fór hann að vinna hjá Timburverzlun Árna Jónsonar og var í þjónustu henn- ar þegar hann andaðist. Thorvald var alla ævi bindind- ismaður á vín og tóbak, en gleði- maður var hann að jafnaði, og þótti mjög gaman að skemmta sér við framsóknarvist og dans í Góðtemplarahúsinu. Þar var hann staddur föstudagskvöldið 13. þ.m., og hafði nýlokið dansi þar, þegar hann færðist yfir landamæri lífs og dauða eða framhaldslífs. Thorvald kom oft á heimili mitt og konu minnar, enda var móðir konu minnar systir íöður hans. Ávallt var hann hressilegur og glaður í viðmóti. Við munum ávallt minnast hans með velvild og hlýju — og óska honum far- sællar heimkomu til heimkynna ódauðleikans. Jón Þórðarson. Lík hans var flutt austur til Vopnafjaiðar til greftrunar s.l. sunnudag. Agnes Þorláksdóttir „Fagra, dýra móðir mín, minnar vöggu griðastaður, nú er iifsins dagur dvín, dýra, kæra fóstra mín. Búðu um mig við brjóstin þín. Bý ég þar um eilífð glaður. Fagra, dýra móðir mín,. minnar vöggu griðastaður.“ Þetta fagra vers Sigurðar frá Arnarvatni kom í huga minn, er ég var viðstödd útför vinkonu minnar, Agnesar Þorláksdóttur. Hún var ein af hinum kyrrlátu konum, sem við kröpp kjör, þrot- laust erfiði, fórnfýsi og nægju- semi unnu lífsstarf sitt, og þjóðin stendur í óbættri þakkarskuld við. Agnes var komin af traustu, skaftfellsku fólki, fædd 21. marz 1875. Foreldrar hennar, Steinunn Þorsteinsdóttir og Þorlákur Sveinsson, bjuggu í Þykkvabæ í Landbroti, og þar ólst hún upp meðal margra systkina. Agnes var barn að aldri, þegar hún missti föður sinn Með fram- úrskarandi dugnaði og fyrir- hyggju tókst móður hennar að koma upp hinum mörgu og mann- vænlegu börnum enda fóru þau fljótt að hjálpa til. Sveinn sím- stöðvarstjóri í Vík, bróðir Agnes- ar, sagði einu sinni við mig um hana: „Hún var ekki gömul, þeg- ar hún stóð við rakstur austur á Þykkvabæjarfit, víst ekki meira en 7 ára.“ Strangt mundi það þykja nú á dögum. en þá kallaði þörfin að Einu sinni, þegar móðir hennar var fjarverandi, tók hún sig til á- samt systkinum sínum að þvo all- an bæinn og færa allt í lag, sem bezt mátti verða Þegar móðir þeirra kom heim, varð hún glöð og þakkaði börnum sínum vel unn ið verk. Kom þarna fram sem mælt er, „að snemma beygist krók urinn að því sem verða á.“ Það, sem einkenndi þessa dugnaðar- konu í starfi, var áhugi, fágæt | vandvirkni og hreinlæti meira en j venjulegt var j Þegar Agnes var innan við tví- ; tugt, réðst hún að Eystri-Dalbæ. i Þar átti hún eftir að vinna ævi- : starf sitt. Nokkru síðar, þegar j Auðun Þórarinsson, bóndi þar, missti konu sína, gerðist hún bú- stýra hans og yfirgaf hann ekki meðan hann lifði. Minnast börnin þess með virðingu og þökk. Mjög reyndi á þrek og dugnað Agnesar að annast þetta fjölmenna heim- ili„ en öll störf sín leysti hún svo vel af hendi, að orð fór af. Agnes var greind kona og ráð- snjöll, og kom það oft fram. Ekkij fékk hún mikla menntun í æsku frekar en þá var títt, en þó naut hún uppfræðslu gáfu- og góðmenn- isins Sigurðar Ingimundarsonar, og varð vel að sér eftir þeirrar tíðar hætti. Dáði Agnes mjög þennan fornvin sinn. Þau Agnes og Auðun áttu fjög- ur börn, og eru þau hér talin eftir aldri: 4uðun, bóndi í Ásgarði, Steinunn, búsett í Reykjavík,! Margrét, búsett í Reykjavík og Sigurður býr í Ilveragerði. Öll eru þau systkinin mikið dugnaðar- og manndómsfdlk Agnes fylgdist vel með öllu. Þegar fækkaði á heimilinu og störfin léttust. varð hún virkur þátttakandi í félagsmálum sveitar sinnar og sýndi með því áhuga fyrir fræðslu og menningarmál- um. Dætur hennar báðar fóru í hússtjórnarskóla. Smátt og smátt tíndust börnin að heiman, og þau Agnes og Auð- un urðu ein eftir. Frá þeim tíma eru mín kynni af Agnesi. Við urð- um nágrannakonur. Alltaf var hún boðin og búin til að hjálpa mér. Það var skemmtilegt að koma til Agnesar og Auðunar. Bæði voru þau mjög gestrisin og ræðin. Allt það bezta, sem til var á heimilinu, var látið 4 té. Stundum skrapp ég til þeirra, og langar mig sérstak- lega að nfja upp eina minningu frá þeim heimsóknum. Það var á sunnudegi Auðun var eitthvað lasinn og hafði lagt sig, en Agnes sat við borðið og var að lesa í Nýja-testamentinu sínu. Sólin skein glatt inn um gluggann. Það var svo mikill friður og birta og hlýja í kringum þau, að mér mun ætíð verða ógleymanlegt. Var það ekki einmitt þetta, sem gaf þjóðinni þrek til að lifa um aldirnar við erfið kjör, bæði vinn- an og trúin á góðan guð, sem öllu F. 13. okt 1892, dáinn 12. ágúst 1963. Nú svíða harma sárin rú sveipast rökkri grund nú titra tár á hvarmi á tregans þungu stund. Nú blikna vonir bjartar á blómin fólva slær i)ú verðum við að skilja vinur hjarta kær. Nú vinur vil ég þakka er vegir skiljast hér. Þá auðlegð alla er veittir af ástúð þinni niér. Minn þó dvelji muni minningunum hjá með orðum ei kann segja það allt er vildi tjá. Þú varst minn eiginmaður þú varst mitt líf og sól Þú varst það allt er ég unni niitt yndi hlíf og skjól. Þín hetjulundin hreina þín hugarró og tryggð. Þín vinátta og vilji voru á kletti byggð. Þú áttir allra hylli þú áttir barnsins lund. Þú áttir hreinleik hjartans og hlýja og styrka mund. Þú vildir verma og grséða og veita birtu í sál alla auma gleðja var æ þitt hjartans mál. Á guðs þíns gleðivegi nú genginn ert á braut. Frá jarðlífs svölum sölum og sjúkdóms harðri þraut. Um stund ég ein má una unz andiun frelsi nær. Þá veit ég að mín vitjar vinur hjartakær. Kveðja frá eiginkonu. stjórnar, og handleiðslu hans í verki? Nokru síðar féll Auðun frá, og dvaldist Agnes eftir það nokk- ur ár í Dalbæ, en svo flutti hún til Reykjavíkur til Margrétar dótt- ur sinnar. Hjá henni átti hún gott og friðsælt ævikvöld. Það var mesta ánægja hennar, þegar fólkið hennar að austan og kunningjarnir heimsóttu hana. Oft mun hugurinn hafa leitað á æskustöðvarnar. heim í sveitina hennar með víða og fagra fjalla- hringinn Fyrir rúmum þrem ár- um gekk Agnes undir mikinn upp- skurð. Heilsunni smáhnignaði, og síðasta arið, sem hún lifði, var hún oft tárveik. Þá naut hún fá- gætrar umhyggju og hjálpar dætra sinna, sem allt gerðu, er í þeirra valdi stóð, til áð létta henni sjúkdómsbyrðina. Hún andaðist á St. Jósefsspít- ala 25. jan. s.l. Agnes var jarðsett að Prests- bakkakirkju á Síðu 2. febr. K J TÍMINN, þriðjudaginn 24. marz 1964 j

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.