Tíminn - 16.04.1964, Blaðsíða 15
LENTU A SURTSEY
Framhaid af 1. síðu.
þar getur lending úr lofti verið
stórhættuleg. Hins vegar er hún
alveg hættulaus í f jörunni og mun
betri en lending á bát. Þegar Sig
urður og félagar fóru í land á
gúmbátunum, var næstum blanka-
logn, en samt var sigið svo mikið,
að öðrum bátnum hvolfdi. Hinum
bátnum hefði sjálfsagt hvolft, ef
mennirnir hefðu efcki stokkið úr
honum og teymt hann til lands.
Fjaran, sem þeir þremenningar
lentu á, var svo löng, að þeir fé-
lagar þurftu ekki að nota nema
hluta hennar fyrir bæði lendingu
og uppflug á Cessna-180 flugvél-
inni, sem ber einkennisstafina HIS
Þeir lentu á Surtsey alveg gagn-
stætt við hraunrennslið, sem er
suðvestan á henni. Þama er mik-
ið sléttlendi og flatar eyrar.
Þeir verkfræðingar höfðu farið
með Cessna-vélinni til Eyja á veg-
um Landssímans fyrr um morgun-
inn og átti hún að bíða meðan
Kristján lyki verki sínu í Eyjum,
en Þorvarður átti að vera eftir.
Þehn datt í hug að taka sjálfir
vélina á leigu í matartímanum, og
það var upphafið að þessari sér
stæðu ferð. Öll flugferðin tók inn
an við þrjá stundarfjórðunga, og
síðan héldu þeir Stefán og Kristj
án til Reykjavíkur, þar sem blaða
menn og Ijósmyndari frá Tíman-
um tóku á móti þeim.
BANASLYS
•Framhald af 1. sf5u.
og beið það þegar bana. —
Nafn barnsins var efcki hægt
að birta að svo stöddu, þar
eð aðstandcndum hafði efcki
verið gert aðvart.
ÆFIR SARDAS
Framhald af 16. síðu.
áram brautskráðist hann í
hljómsveitarstjóm frá Liszt-
Ferenc-tónlistarháskólanum. —
Árið eftir var hann ráðinn
hljómsveitarstjóri Szeged-leik-
hússins og hefur gegnt því
starfi síðan.
í sýningu Szardasfurstinnunn
ar hér í Þjóðleikhúsinu, þar
sem Szalatsy verður bæði leik
stjóri og hljómsveitarstjóri,
verða öll hlutverk leikin af ís-
lendingum, nema furstinnan,
sem verður leikin af ungverskri
söngkonu, Tatjana Dubnovszky,
sem kemur hingað 25. apríl. En
önnur aðalhlutverk leika Svala
Nielsen, Ketill Jensson, Guð-
mundur Jónsson og Erlingur
Vigfússon, en hann hefur í vet-
ur verið við nám á ftalíu og
kom heim með sömu ferð og
ungverski hljómsveitarstjórinn
í nótt.
KVÖLDSALAN
Framhald af 16. síðu.
hættu, að rekast þar á skilti, seen
bendir á aðra opna búð í nokkurra
kílómetra fjarlægð.
Ef framangreindar tillögur kaup
mannasamtakanna koma til fram-
kvæmda, leiða þær af sér aukinn
reksturskostnað verzlana og
hækkað vöruverð til neytenda.
Þe-ssu til stuðnings bendum við
á orð Sigurðar Magnússon í blaða
viðtali við dagblaðið „Vísir“ 81.
f. m., þar sem hann segir m. o.
„að sú aukna þjónusta, ’er verzl
anir mundu veita samkvæmt hina
nýja fyrirkomulagi hefði að sjálf
sögfðu aukinn kostnað í för með
sér.“
Þetta ér svo augljóst, að ekki
þarf að rökstyðja það frekar.
Hins vegar benti S.M. einnig á
það í umræddu samtali, að afleið
ingin af þessum aukna kosntaöi
verði óhjákvæmilega sú, að selja
þurfi vörurnar á kvöldin með
FLEYGT ÚT ÚR
RÁÐUNEYTINU!
EJ-Reyfcjavík, 15. apríl.
Defiurnar í sambandi við frum-
varp dönsfcu stjómarinnar nm að
Danir, sem vinna í þjónustu hins
opinbera á Grænlandi, skuli fá
hærri laun en Grænlendingar, sem
vinna sömu störf, hafa orðið há-
værari með hverjum deginum,
og s. 1. mánudag var Jonathan
Motzfeldt, formanni Grænendinga-
Angliustyrkur til
náms í ensku
Félagið Anglia hefir ákveðið að
veita íslenzfcum kennara styrk til
dvalar á sumamámsfceiði við brezfc
an háskóla tfi náms í ensfcri tungu
og bókmenntum. Styrfcurinn er að
upphæð 50 sterlingspund tfi
greiðslu á skólagjöldum og dval.
arfcostnaði. Umsóknir sfculu send
ar stjóm Angliu fyrir 20. maí n.k.
Þriggja manna nefnd, sem sfcipuð
er af stjóm félagsins, nrun velja
styrfcþega úr hópi umsæfcjenda.
auka álagi. Kvaðst hann vænta
þess, „að verðlagsyfirvöldin
myndu fallast á það sjónarmið
kaupmannasamtakanna."
f þessu sambandi er ástæða til
þess að vekja sérstaka athygli á
því, að þeir 40—50 kaupmenn, sem
fram að þessu hafa veitt neytend-
um meiri verzlunarþjónustu en
með nýju reglunum er stefnt að,
•seldu vörur sínar án aukaálags og
eru fúsir til þess að halda því á-
fram í sama formi og áður.
Telja má fullvíst, að ef Borgar-
ráð samþykkti framangreindar til
lögur kaupmannasamtakanna, þá
væri það einungis að samþykkja
vilja stjórnar kaupmannasamtaK-
anna sjáífra, en ekki vilja mat-
vörukaupmanna almennt.
Ennfremur skal á það bent, að
samkvæmt 3. gr. samþykktar um
afgreiðslutíma verzlana í Reykja
vík, skal gefa Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur, Neytendasamtökun-
um og Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur kost á að láta í ljós
álit sitt um tilhögun kvöldsölunn
ar áður en endanleg ákvörðun er
tekin um hana. Neytendasamtökin
munu þegar hafa látið í ljós það
álit, að auka beri þjónustuna við
neytendur. Húsmæðrafélagið taldi
ekki ástæðu til breytinga. Verzlun
armannafélag Reykjavíkur hefur
hins vegar ekki tekið endanlega
afstöðu til kvöldsölumálsins, sam
kvæoit viðtali Guðmundar H.
Garðarssonar, formanns V.R., við
dagblaðið „Vísir“, 2. þ. m.
Af þessu má sjá, að af þeim að-
ilum, sem málið snertir, er stjórn
kaupmannasamtakanna eini aðili,
sem óskar eftir hinu nýja fyrir-
komulagi.
f ljósi framangreindra ábend-
inga leyfa undirritaðir sér að
vænta þess að tillaga kaup-
cnannasamtakanna um fyrir-
komulag kvöldsölunnar verði
ekki sambykkt heldur verði mótuð
ný stefna í anda sjálfstæðis og at-
hafnafrelsis með það fyrir augum,
að allar matvöruverzlanir, sem
þes óska, fái leyfi til að reka kvöld
sölu í svipuðu formi og verið hef
ur, samanber áskorun 47 matvöru
kaupmanna um bað mál til Borgar
stjórnar, þegar málið var til um-
ræðu í Borgarstjórn liðið haust.“
Á ÞINGPALLI
að það yrði lagt fyrir þetta þing. f frumvarpi nefndarinnar væri
gert ráð fyrir að verzlunarfólk fengi aðild að atvinnuleysistrygg-
ingasjóði, en þó hefði einn nefndarmanna verið því andvígur.
Einnig tók til máls Sverrir Hermannsson og talaði máli verzlunar-
manna.
félagsins í Danmörfcu, hent út
úr Grænlandsmálaráðuneytinu!
Jonathan Motzfeldt hafði lent í
hörðum deilum um fæðingarstað-
arákvæðið í frumvarpinu við Er-
ling Höegh, sem var einn þeirra
sem upprunalega komu fram með
þetta ákvæði, og rifust þeir á tröpp
um ráðuneytisins- Er líða tók á
umræðunnar þótti Höegh nóg um
árásir Mozfeld á ákvæðið og flúði
því inn í veitingastofu ráðuneytis
ins. En Motzfeldt var ekki á því
að láta hann sleppa og fylgdi því
á eftir. Héldu þeir áfram deilun
um inni í veitingastofunni þar til
einn þjónanna rak Motzfeldt út
með þeim orðum, að umræður
væru bannað í veitingastofunni!
Höegh fékk aftur á móti leyfi til
þess að vera þar áfram, enda seg
ir „EKSTRABLADET“ að hann sé
í fleiri en einum skilningi „heil-
ög kýr“ í málefnum Grænlands.
Danska „Stúdentersamfundet“
hélt fund um málið í Kaupmanna
höfn í gær, og hafði bæði boðið
Erling og öðrum „ákvæðismanni"
Peter Heilmann, að verja þar mál
sitt, en báðir afþökkuðu boðið.
Fjárhagsáæthin
Seltjarnarnes-
hrepps
Fjárhagsáætlun Seltjarnames-
hrepps hefur verið samþykkt og
eru niðurstöðutölur hennar
10.375.000,— krónur. Helztu tekju
liðir eru: útsvör 6,3 milljónir og
jöfnunarsjóðsgjald 950 þúsund. —
Helztu gjöld eru: skólabygging 3
milljónir, vegir 2,65 milljónir,
menntamál 750 þúsund og sveit-
arstjórn 630 þúsund krónur. Á
þessu ári verður unnð við að und-
irbyggja Nesveg og Skólabraut fyr
ir malbikun.
Æskulýðshljóm-
sveit Norðurlanda
Æskulýðshljómsveit Norður-
landa, sem æfir 4 vikur á hverju
sumri í Lundi, Svíþjóð, boðar til
æfinga dagana 15. júní til 13. júlí
í sumar, og ber að senda þátt-
tökutilkynningar til Lunds Stads
Musiknámnd, Mártenstorget 5,
Lundi, tyriir 1. maí. Til greina
koma allir hljóðfæraleikarar á
aldrinum 15—25 ára (undanþágur
er hægt að fá), er leika á þau
Wijóðfæri, sem notuð eru í sin-
fóníuhljómsveit, en alls verða í
hljómsveitiinni 90—100 leikairar.
Auk hljómsveitarleiks, vcrða einn-
ig æfð kammermúsíkverk.
Á undanförnum árum hafa m.a.
þessir fslendingar leikið í hljóm-
sveitinni. Ásdís Þorsteinsdóttir,
Helga Hauksdóttir, Jakob Hall-
grímsson, Katrín S. Árnadóttir,
Nanna Jakobsdóttir (Akureyri),
Steinunn Bjarnadóttir, Þórunn
Haraldsdóttir (öll á fiðlu) og Haf-
líði Ilailgrímsson (selló)), og
geta þau að sjálfsögðu veitt nán-
ari uplýsingar.
Þátttökugjald er 375 sænskar
kr., og er uppiliald innifalið í því.
PILTAP,
EFPÍBEISieUNHUSriiNS .
ÞÁ A ÉC HRÍNMNfl /.
Fleiri gullhvörf
EJ-Reykjavík, 15. apríl.
Eins og sagt var frá í NTB-frétt
í blaðinu í gær, hvarf gufisend-
ing, sem fara átti með SAS-þotu
frá London til Stokkhólms s.I.
laugardag, og er hulin ráðgáta,
hvað af henni hefur orðið.
VANTAR HÓTEL
Framhajd af 16, síðu.
sem annað hvort væri aðstaða
til skíðaiðkana á vetrum eða
nálægð við jarðhita, svo koma
mætti upp heilsulindum fyrir
ferðamenn allan ársins hring.
Mesta áherzlu lagði Lúðvík
þó á nýtingu skóla og félags-
heimila fyrir hótel á sumrin
og benti á hið velheppnaða for-
dæmi Bifrastar. Hann taldi skil
yrðislaust nauðsynlegt, að all
ir nýir skólar og félagsheimili
úti um land verði teiknuð þann
ig, að þeim mætti breyta í hótel
um sumartímann án mikils til-
bostnaðar. Hann taldi það mifc-
inn galla á þeim skólum, sem
þegar væru reistir ,að ekfci
væri rennandi vatn og
frárennsli í herbergjunum. Ef
■ slíkir skólar yrðu gerðir að
hótelum að sumarlagi, þyrfti
að kosta miklu í breytingar til
þess að þeir yrðu sómasamleg-
ir sem hótel, í þeim skilningi,
sem Lúðvík sagðist vilja leggja
í orðið hótel. En sá kostnað-
ur væri ekki alls staðar of mik
ill, t. d. þar sem skólarnir eru
vel í sveit settir og vel byggðir.
Lúðvík sagði, að hingað til
hefðu aðallega komið hingað
tvær tegundir ferðamanna. í
fyrsta lagi ævintýramenn, sér-
vitringar eða náttúruskoðend-
ur og í öðru lagi þeir, sem eru
að safna á sig löndum, en margt
vei stætt Jólk.,á Vesturlöndum
hefur heimsótt velflest lönd
Evrópu, önnur en ísland, og
vill bæta því við. En Lúðvfk
sagði, að við yrðum að fá hing-
að allar tegundir almennra
ferðamanna, ef við vildum gera
ísland að miklu ferðamanna-
landi. Og Lúðvík taldi það hafa
mikið þjóðhagslegt gildi. Árið
1962 voru tekjur landsins af
ferðamönnum 56,3 milljónir, og
Lúðvík sagði, að þá tölu yrði
að stórhækka með átaki í ferða
málunum.
Á fundinum urðu nokkrar
umræður um áfengislöggjöfina.
Lúðvík sagði, að hér hefði
aldrei skapazt neinn viðræðu-
grundvöllur um áfengismál.
Hins vegar hefðu hömlurnar
orðið til hins verra, því bezt
smakkaðist forboðni ávöxtur-
inn. Hann sagði þurru miðviku
dagana fáránlega og einnig
hina þurru tíma dagsins, og
spillti þetta mjög fyrir ferða-
mannaiðnaðinum. Hann sagði
einnig, að góð hótel úti á landi
ættu að fá vínveitingaleyfi og
einnig ætti að leyfa sterka bjór-
inn.
TÍU SÆTA FLUGVÉL
Framhald af 1. síð'u.
Flugmenn hafa ekki verið ráðn-
ir til þess að fljúga vélinni, en
hluthafar í Eyjaflugi eru m. a.
Þórir Óskarsson, Jóhann Sigfússon
flugmenn, báðir tveir og svo Flug
sýn, sem hefur á að skipa æfðum
flugmönnum.
Nú hefuir rannsóknarlögreglan í
Kapumannahöfn tfikyimt, að tvær
gullsendingar hafi horfið á leið-
inni London—Kaupmannahöfn,
síðustu 12 mánuðina, og hefur
löng og áköf rannsókn ekki varp-
að neinu Ijósi á þessi dularfullu
hvörf.
DÝRIN TALA
Framhald af 9. síðu.
fær þá ósk sína uppfylta, að dýr-
in geti talað við hann.
Milli samtalsþáttanna eru sög-
ur og ævintýri um dýr, ásamt
spurningum, sem orðið gætu til-
efni til munnlegra frásagna og
skýringa.
Bókin mundi henta vel þeim
foreldrum, sem vildu lesa hana
með bömum sínum og ræða efni
hennar við þau.
Bókin er 80 blaðsíður í Skímis-
broti, skreytt 40 myndum, auk
kápumynda, og eru allar teikn-
ingar gerðar af Þresti Magnússyni,
teiknara.
Prentsmiðja Hafnarfjarðar hef-
ur annazt prentun.
ÚTSVAR KAUPFÉLAGSINS
Framhald af 1. sfðu.
árkróki, hefði lýst sig langþreytt-
an í starfi í Morgunblaðinu dag-
inn áður en dómur gefck í þessu
máli í Hæstarétti. En hann styðst
við bæjarstjómarmeirihluta Sjálf-
stæðisflokksins á staðnum.
Árið 1960 var Kaupfélagi Skag
firðinga gert að greiða 411,100,00
kr. í veltuútsvar og 24.300,00 kr. í
tekjuútsvar, eða samtals 435,100,00
krónur. Þann 1. sept. sama ár
kærði kaupfélagið útsvarið, í
fyrsta lagi vegna þess, að læfcka
beri á því um 38%, eins og á öðr-
um útsvarsaðilum staðarins, sem
lækkað hefði verið á. Þessu var
svarað í desember á þann hátt,
að formaður niðurjöfnunarnefndar
tilkynnti kaupfélaginu, að bókhald
þess yrði endurskoðað. Endurskoð
andi taldi bókhaldið efcki sem
skildi og ákvað þá niðurjöfnunar-
nefnd að leggja að nýju á kaup-
félagið, og var því gert að greiða
726,200,00 kr. í útsvar.
Kaupfélagið kærði þessa álagn-
ingu, og stóð við fyrri kröfu sína
um afsláttinn. Niðurjöfnunamefnd
úrskurðaði 23. jan. 1961, að út-
svarið skyldi .vera 726,200,00 kr.
Kaupfélagið kærði til yfirsfcatta
nefndar, sem úrskurðaði að út-
svarið skyldi vera 638.400,00. —
Kaupfélagið áfrýjaði til ríkisskatta
nefndar, en hún staðfesti þennan
úrskurð. Kaupfélagið greiddi þá
útsvarið en leitaði til dómstól-
anna. Héraðsdómur uppkveðinn af
Guðmundi ísberg gekk bæjarsjóði
í vil.
Kaupfélagið áfrýjaði síðan til
Hæstaréttar, sem felldi þann dóm
að hækkunin væri ógild. og kvað
jafnframt svo á um afsláttinn, að
kaupfélagið ætti kröfu á 38% af-
slættinum, sem öðrum hafði ver-
ið veittur 1960 og úrskurðaði að út
svar kaupfélagsins skyldi vera
327,330,00 krónur samanlagt að
frádregnum 10% afslætti, þar sem
kaupfélagið var skuldlaust við bæj
'jrsjóð 15. okt 1960. Bæjarsjóði var
gert að greiða kaupfélaginu mis-
muninn, 339,219,00 að viðbættum
vöxtum.
Eins og sést á þessu, er málið
gjör unnið, og krafan um afslátt-
inn, sem gerð var í upphafi, tekin
til greina.
Utför móSur okkar,
Sigurborgar Einarsdóttur
Vík f Mýrdal,
fer fram frá Víkurkirkju, laugardaginn 18. þ. m.
Athöfnin hefst meS húskveðju kl. 2 e. h. frá heimili hennar.
Dætur ofl aðrir aðstandendur.
T í M I N N, fimmtudagur 16. aprfl 1964.
15