Tíminn - 22.04.1964, Síða 2
Þriðjudagur, 21. apríl.
NTB-Bangkok. — Souvanna
Phouma reyndi í dag að endur
nýja hl'utleysisstjórn sína, en
hefur mætt erfiðleikum írá
hendi uppreisnarmanna hægri
sinna. Hafa þeir látið um-
kringja bústað hans.
NTB-New York. — Heimssýn-
ingin hefst í New York á morg-
un og mun Lyndon Johnson for
seti setja liana. Undirbúningur-
inn hefur staðið yfir í 6 mán-
■uði. Búizt er við, að um ein
milljón manns muni sjá sýn-
inguna á fyrsta degi.
NTB-Washington. — Johnson
forseti sagði í dag, að banda-
ríska stjórnin hefði gert Kúbu.
búum og bandamönnum þeirra
ljóst, að sérhver tilraun Kúbu-
manna til þess að stöðva könn
unarflug USA yfir eynni muni
skapa mjög alvarlegt ástand.
NTB-New York. — U Thant,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, sagði í dag, að hann
teldi, að grísku og tyrknesku
herdeildirnar á Kýpur ættu að
vera undir stjórn SÞ.
NTB-Alsír. — Ben Bella, for-
seti Alsír, var í nótt kjörinn
formaður FLN-flokksins mcð
samhljóða atkvæðum.
NTB-Seol. — Rúmlega 1.000
stúdentar fóru í mótmælagöngu
í Seol í Suður-Kóreu í dag, og
er það fimmti dagurinn í röð,
sem hópgöngur eru í borginni.
Lögreglan dreifði mannfjöldan
um með táragassprengjum.
NTB-Berlín. — Tveir A-Þjóð-
verjar flúðu tii V-Berlínar í
dag. Óku þeir í vörubíl gegnum •
sex gaddavírsgirðlngar og yfir
sburð. Síðan syntu þeir yfir
breitt síki við borgarmörkin.
NTB-Hongkong. — 125 hvít-
rússneskir flóttamenn frá Sink-
iang-héraðinu í Kína komu i
dag til Hongkong. Þeir vilja
koimast til Ástralíu. Flóttinn
tók 12 daga, en þeir gengu 5
500 km.
NTB-Sofíu. — Þjóðhöfðingi
Búlgaríu, Dimitar Ganev, lézt
i nótt, 66 ára að aldri.
NTB-Moskvu.,— Leninverðlaun
unum svonefndu var úthlutað
í dag. 22 listamenn og 130 vís-
indamenn og könnuðir fengu
þau að þessu sinni. *
NTB-Osló. — 11 tíbetskir dreng
ir koma til Noregs í næsta mán
uði og ganga þar í skóla. Þeir
eru á aldrinum 11—14 ára.
NTB-Istanbul. — Tveim kirkju
feðrum grísk-katólsku kirkjunn
ar var vísað úr landi í Tyrl'-
landi í dag.
NTB-Brussel- -j- í allt eru um
1.2 milljónir atvinnuleysingja i
Efnahagsbandalagi Evrópu
flestir þeirra í Ítalíu. Rúmlega
700.000 stöður eru lausar.
Bretar fara að fordæmi Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og
Draga úr framleiðslu plutoníum
NTB-London og New York,
21. apríl.
SFR ALEC Douglas Home, for-
sætisráðherra Breta, tilkynnti í
dag að framleiðslan á plutoníum
til hemaðar verði smátt og smátt
stöðvuð í Bretlandi. f gær til-
kynntu bæði Johnson, Bandaríkja-
forseti, og Nikita 'Krústjoff, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna, að
þeirra lönd myndu minnka stór-
lega framleiðslu kjamakleyfra
efna.
Plutonium er notað sem sprengi
r
Stefán fslandi
fer í Óðinsvé
HF, Reykjavík, 21. apríl.
Stefán íslandi, óperusöngv-
ari, hættir nú störfum hjá Kon
unglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn frá og með 1. júlí
næstkomandi. Hann hefur ým-
ist sem gestur eða fastráðinn
óperusöngvari verlð í tengslum
við Konunglega leikhúsið í ná-
lega 30 ár. f gær var svo gert
opinbert, að hann hefði sótt uin
starf sem yfirmaður söng-
kennslu við hljómlistarháskól.
ann í Óðinsvé á Fjóni. Það verð
ur því ekki af því, að hinn
heimsfrægi söngvari setjist að
á íslandi.
Samkvæmt nýju fjárlögunum
í Danmörku er styrkur við
þennan háskóla mjög mikið auk
inn og nú stendur yfir endur
skipulagning á kennslufyrir-
komulaginu þar. Geir Aðils
fréttaritari Tímans í Kaun-
mannahöfn talaði við konu Stef
áns í dag, þar sern hann var
ekki við sjálfur. Sagði hún, að
það væri rétt, að Stefán hefði
sótt um þetta starf, og hefði
hann verið beðinn um það-
Stefán íslandi þykir hafa sýnt
einstaka kennsluhæfileika og
hefur undanfarið haft mikið að
gera við söngkennslu. Meðal
annars hefur hann kennt við
óperuskóla Konunglega leik-
hússins og haft einkatíma.
Stefán söng í fyrsta sinn í
leikhúsinu 1. október 1935, og
frá 1938 var hann fastráðinn
við óperuna. Fyrsta hlutverkið
söng hann 20. apríl 1938, og eru
því í dag liðin nákvæmlega 28
ár síðan. Fyrsta hlutverkið var
Pinkerton liðsforingi í óperunni
Madame Butterfly eftir Pucc-
ini. Síðan hefur Stefán sungið
tenórhlutverk í fjölmörgum
óperum á sviði Konunglega leik
hússins. En síðustu árin hefur
það þó orðið æ sjaldgæfara að
heyra hann og sjá í óperunni.
efni í kjarnorkuvopn. Bretar hafa
flutt hluta af framl. sinni til
Bandaríkjanna og fengið úraníum
235 í staðinn. Sagði forsætisráð-
herrann, að Bandaríkjamenn hefðu
tilkynnt, að þeir myndu ekki nota
brezkt plutoníum til hernaðar.
Bæði forsætisráðherrann og Har
old Wilson/ leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar, lýstu í dag yfir ánægju
sinni vegna tilkynninga þeirra
Johnsons og Krústjoffs i gær um,
að lönd þeirra myndu stórlega
minnka framleiðslu kjarnakleyfra
efna. U Thant, framkvæmdastjóri
SÞ, sagði á blaðamannafundi í dag,
að ákvörðun landanna þriggja
væri greinileg staðfesting aukins
trausts milli ríkisstjórnanna
þriggja og lofaði góðu um fram-
tíðina.
Brezk og bandarísk blöð ræða
málið í forystugreinum sínum í
dag og fagna þessari ákvörðun. —
New York Times ségir, að þessi á-
kvörðun dragi úr spennunni í
heiminum og að hún sé tákn um
gagnkvæman skilning, en hafi aft-
ur á móti enga hernaðarlega þýð-
ingu. New York Herald Tribune
segir, að þessi ákvörðun veki á
ný þá von, sem Moskvusamningur-
inn um tilraunabann vakti. Brezka
blaðið The Guardian skrifar, að
þessar yfirlýsingar muni hjálpa til
við að jafna ágreining austurs og
vesturs.
Blöð í Sovétríkjunum birtu í dag
500 orða frétt um ákvörðun
Bandaríkianna.
Slys á Laugarásvegi
KJ-Reykjavík 21. apríl.
Um hálf tíu i kvöld varð árekst
nr á Laugarásvegi, og slasaðist eio
iona. Tveir bílar voru á leið aust
ur götuna, gamall Fordson er ók
á undan og VW „rúgbrauð". Er
komið var efst á Laugarásveginn
ók VW bíllinn aftan á Fordsoninn,
kastaði honum á ljósastaur, en
sjálfur hentist hann út af hægri
vegarkanti sem er allhár þarna, og
síðan eina tuttugu metra áfram
og-stöðvaðist í grjótinu fyrir neð-
an veginn. Ökumaður var einn í
VW-bílnum, secn var frá Hansa h.i.
j
FORSETAKJÖRIÐ
BLAÐIÐ fékk í gær þær upplýs-
ingar hjá Birgi Thorlacius ráðu-
neytisstjóra, að sú venja hefur
viðgengizt frá stofnun lýðveldisins
að við endurkjör forseta íslands
liggi frammi hjá bæjarfógetum og
sýslumönnum áskriftarlistar fyrir
stuðningsmenn frambjóðenda. —
Það er því ekki nýmæli, að þ_að
skuli gert núna við framboð Ás-
geirs Ásgeirssonar forseta.
SÖN6SKEMMT-
ANIR í HREPPUM
SG-Miðfelli, 21. apríl.
SÖNGFÉLAG Hreppanna hefur
æft af kappi að undanförnu og
hyggst halda tvær söngskemmtan-
ir, aðra að kvöldi sumardagsins
fyrsta í félagsheimili Hruna-
manna en hina sunnudaginn 26.
apríl í Selfossbíói.. — Söngstjóri
Söngfélagsins er Sigurður Ágústs-
son, en einsöngvarar að þessu
sinni verða þau Ásthildur Sigurð-
ardóttir og Guðmundur Guðjóns-
son( en undirleikari er Skúli Hall-
dórsson píanóleikari.
Nýtt gos við Eyjar?
HF—Reykjavík, 21. aprfl.
Klukkan 5,45 í morgun var
Herjólfur staddur 18 sjómílur
vest-norð-vestur af Heimaey á leið
til Vestmannaeyja. Garðar Þor-
stcinsson, annar stýrimaður, og
háseti, voru í brúnni og sáu háan
gufumökk koma upp úr sjónum
3 sjómflur suðvestur af Surti.
Mökkurinn var að minnsta kosti
2—300 metra hár og gaus sam-
fieytt í 20 mínútur, minnkaði svo
70-80TH. KASTI
FB—Reykjavík, 21. aprfl
f dag fékk Sigurpáll eitt allra
stærsta kastið, sem sögur fara af,
þar sem hann var að veiðum á
Selvogsgrunni. Fékk hann milli
70—80 lestir í þessu eina kasti síð
degis í dag. Allmargir bátar voru
Sumarfagnaður
Stúdentafélag Reykjavíkur ög
Stúdentaráð halda sumarfagnað
að Hótel Borg í kvöld. Dagskráin
verður fjölbreytt. Meðal annars
verður keppni í mælskulist milli
horðan- og sunnanmanna, og taka
ýmsir þjóðkunnir menn þátt í
henni. en Friðfinnur Ólafsson
stjórnar. Ómar Ragnarsson, stud.
jur, verður með skemmtiþátt. Á
miðnætti verður sumri fagnað,
en síðan dansað til kl. 2.
komnir inn til Þorlákshafnar um
kvöldmatarleytið í kvöld, og voru
þeir með um og yfir 40 lestir hver.
í Vestmannaeyjum fréttum við
að Ófeigur II. hefði verið með
55 lestir, Huginn með 40, Huginn
II. með 50, Halkion með 34 og
Ögri og Vigri með 30 lestir hvor.
Yfirleitt var veiði nótabátanna
mjög góð í dag, og netabátar höfðu
fengið milli 10 og 20 lestir hver.
f gær bárust 128 lestir til Bol-
ungarvíkur, og var mestur hluti
aflans þorskur. M- a. kom Hafrún
með 84 lestir, sem hún hafði feng-
ið á Selvogsgrunni. Geysimikil
vinna hefur verið í Bolungarvík
að undanförnu og hafa allir sem
vettlingi geta valdið farið í fisk-
vinnuna, bæði skrifstofumenn, og
iðnaðarfólk til þess að flýta fyrir
vinnslunni.
og gaus slitrótt í eina þrjá stundar
fjórðunga. Þá var Herjólfur kom-
inn svo langt í burtu, að þess} nýi
mökkur rann saman við mökkinn
úr gamla Surtseyjargosinu.
Sagði Garðar í viðtali við Tím-
ann í dag, að neðst í mekkinum
hefði greinilega sézt aska. Mökkur
inn hefði mjög líkzt upphafi Surts
eyjargossins og verið kraftmeiri
en sá, sem sást upp úr áramótun-
um suð-austur af Surtsey.
Klukkan 9 í kvöld hafði Tíminr.
fregnir af flugvél, sem var á flugi
yfir Surtsey og nágrenni, og sagði
flugmaðurinn, að allt væri þar ein;
og það ætti að sér. Það sæist eng
inn framandi gufumökkur.
Halldór
Einar
Jónas
Árni
EFNAHA6S- 06 ATVINNUVE6A-
RÁÐSTEFNA SUF í B0RGARNESI
Ráðstefnar. verðui haldin um
helgina 25.—26. apríl. Hún
hefst í Samkomuhúsinu í Borg-
arnesi kl. 3 á laugardaginn og
verða þá flutt erindi. Um kvöld
ið verður kvöldvaka í Hótel
Borgarnesi. Framsögumenn á
ráðstefnunni verða Halldór Sig
urðsson, alþingismaður og Ein-
ar Ágústsson, alþingismaður,
Jónas Jónsson búvísindamaður
og Árni Benediktsson fram-
kvæmdastjóri.
Þátttöku þarf að tilkynna í
Reykjavík til skrifstofu Fram-
sóknarflokksins í Tjarnargötu
26, í Stykkishólmi til Leifs Jó-
hannessonar, í Ólafsvík til Jaf-
ets Sigurðssonar, á Akranesi til
Þorsteins Ragnarssonar, í Borg
arnesi til Jóns Einarssonar, í
Borgarfjarðarsýslu til Bjarna
Guðráðssonar í Nesi, í Mýra
sýslu til Snorra Þorsteinsson
ar í Bifröst, og í Snæfellsncs
sýslu til Njáls Gunnarssonar á
Syðri-Bár í Eyrarsveit.
2
TÍMINN, mlðvlkudaginn 22. apríl 1964