Tíminn - 22.04.1964, Síða 15

Tíminn - 22.04.1964, Síða 15
SUMARDAGURINN Framhald af 16. síðu. skemmta sér“, en í Háskólabíói er fóstruskemmtun fyrir smáböm. Kvikmyndasýningar verða í öll- um kvikmyndahúsum og Mjallhvít verður sýnd í Þjóðleikhúsinu klukkan þrjú. Sólskin, barnabókin, sem gefin er út af Sumargjöf á sumardag- inn fyrsta verður seld á mörgum stöðum í bænum, fyrir utan merki dagsins, islenzka fána og blaðið, Sumardaginn fyrsta. Þess má geta, að Sólskin kemur nú út í 23. skipti. Sýning verður og í Málara- glugganum í tilefni dagsins. MÓTMÆLA Framhald af 1. s(3u. þeim vaxtakjörum, sem bundið inn stæðufé sætir“. Um einkarétt Seðlabankans til útgáfu á gengistryggðum verðbréf- um segir bankastjórn Verzlunar- bankans að muni hafa það í för með sér að sparifé flyttist úr hin- um almennu peningastofnunum beint í Seðlabankann. Orðrétt seg- ir: „Slík þróun er óæskileg. Rétt- ara væri, að komið yrði á al- mennri verðtryggingu sparifjár í formi lánavísitölu . . .“ REYKJAFOSS Framhald af 16. síðu. ins og það hefur verið athugað af skipaeftirlitinu, og uppfyllir allar kröfur, sem það gerir. Ekki var bóman, sem blaðið minnist á held- ur gerð fyrir 15 lestir, heldur 25 og liggur fyrir staðfesting skipa- eftirlitsins frá 30 nóv. 1963. Ásberg segir ennfremur að fram hafi far- ið rannsókn á slýsinu, en hún liggi ekki fyrir ennþá, en samt sé vitað, að engir af vírum skipsins hafi slitnað, en hitt sé vitað, að ekki hafi lyftuumbúnaður geymis- ins verið þungaprófaður og hafi verið of veigalítill, og talið sé lík legt, að slysið hafi viljað til með þeim hætti, að spennubönd geym- isins hafi brostið, og við það hafi rifnað frá ein blökk í bómunni. SÆNSK MILLJÓN Framhald af 16. síðu. lögð áherzla á að kynna síld ina í ýmsum fagblöðum sem til heyra matvælaiðnaðinum ug verzlunarfólkinu- Bréf og upp skriftir voru sendar til veitinga húsanna um alla Svíþjóð, og út búin sérstök „frímerki" til að líma á matseðla veitingahúsa. Á vorin, var sagt rækilega frá því að nú væru veiðarnar við ísland að hef jast og vonazt væri eftir góðri síld um sumarið. í óperukjallaranum í Stokkhólmi var boðað til blaðamannafund ar og 40 gómsætir síldarréttir voru á matseðlinum. Allra bragða var sem sagt neytt til að auka sölu saltsíldarinnar, og einkum lögð áherzla á að kynna hana ungu fólki. Þessi auglýs- inga- og áróðursherferð kostaSi um það bil eina milljón sænskra króna (ca. 8 millj. ísl.). Gösta von Matérn hefur feng izt við sölu á Íslandssíld s. 1. 30 ár og þekkir því orðið vel til markaðsins, salan til Sví- þjóðar hefur þrefaldazt á nokkr um árum, og eru þeir nú orðn ir stærstu kaupendur saltsíldar af okkur, keyptu á s. 1. ári 173 þús. tunnur. TUNNUVERKSMIÐJA Framhald af 6 síðu Nauðsyn ber því 111, að starfrækt sé einhver atvinnugrein á slíkum stöðum, sem hægt sé að vinna við þá mánuði ársins, er vinnu vantar í kauptúninu- Áhugi er fyrir því á Skagaströnd, að þar sé stofnuð og starfrækt tunnuverksmiðja. Bendir margt til þess, að það megi takast með tiltðlulega litlum stofn kostnaði. Síldarverksmiðjur ríkis- ins eiga þar stóra mjölskemmu og fleiri hús, setn lítið eru notuð, þannig að líkur eru til, ef sú að- síaða væri notuð, að ekki þyrfti miklu til að kosta til að reisa hús, svo að hægt væri að starf- rækjatunnusmíði. Vera má, að hag kvæmast sé, að síldarverksmiðjan reki tunnuverksmiðjuna. Eigi er ólíklegt, að það gæti tekizt, ef ríkisstjórnin beitir sér fyrir því og útvegar fjármagn vegna stofn kostnaðar. Vélar í tunnuverksmiðj una kosta sennilega um 2 millj. kr., byggingarkostnaður eða breyt- ingar við hús til að vinna í þyrfti ekki að vera mikil, ef sú aðstaða væri notuð, sem fyrir hendi er. Stofnkostnaðurinn mundi því verða hóflegur. Verkstjóm og bók- hald gæti verið ódýrt, ef síldar- verksmiðjan sæi um starfræksluna. Flutningur á tunnum frá Skaga- strönd, ef eigi þarf að nota þær þar, ætti ekki að vera óhagstæðari en-frá Akureyri. Skip rikisins, se*m annast strandferðir, gætu oft tekið tunnur sér að meinalausu Greiðsla fyrir slíkt væri færsla milli vasa sama eiganda. Tunnur smíðaðar hér á landi hafa verið eitthvað dýr cri en innfluttar tunnur. Þannig er með mikið af innlendum iðnaði. Þó að tunnur, sem smíðaðar eru hér, væru 10% dýrari, eru það smámunir miðað við 70—100% inn flutningsgjöld, sem ýmsar iðnaðar vörur njóta verndar af. Þess ber og að gæta, að lítið hefur verið gert til þess að gera tunnuverk- smiðjur samkeppnisfærar. Bæjar félög og fyrirtæki greiða tnikið fé til atvinnuleysistryggingasjóðs árlega. Óeðlilegt væri ekki eða ó- hyggilegt, að slíkur sjóður lánaði fé fyrir litla sem enga vexti til þess að stofnsetja fyrirtæki, sem kæmi í veg fyrir atvinnuleysi. Það væri hagkvæmara en að greiða at- vinnuleysisstyrki. MJÓLKURBÚSFUNDURINN Framhald af 1. síðu. fram í umræðunum, að þændum þykir illa farið að ekki fékkst það verð fyrir •mjólkina, sem verðlags grundvöllurinn gerir ráð fyrir. Á síðasta ári var fjöldi fram- leiðenda í Árnessýslu 528 (á móti 534 árið 1962), f Rangárvallar- sýslu 419 (422), í Vestur-Skafta- fellssýslu, Dyrhóla- og Hvamms- breppi 61 bæði árin, austan Mýr- dalssands 99 (96). Kúafjöldinn í Árnessýslu var 7071 árið 1963, en 6886 árið á undan, i Rangárvallasýslu 5214 (5255), Dyrhóla- og Hvamms- hreppi 658 (696), austan Mýrdals- sands 532 (454). Alls voru kýr því 13.475 en 13.291 árið 1962. Kúafjöldinn á hvern framleiðanda í Árnessýslu var 13.39 kýr (12.90), Rangárvallasýslu 12.44 (12.45), Vestur-Skaftafellssýslu 10.79 (11. 41), austan Mýrdalssands 5.37 (4. 73), á öllu svæðinu 12.17 (11.94). Mjólkurmagn á hvern framleið- anda í Árnessýslu var 36.228 kg. (35.340), Rangárvallasýslu 32.648 (31.683) Vestur-Skaftafellssýslu 25.375 (24.522), austan Mýrdals- sands 11.080 (9.486). Meðaltalið á öllu svæðinu varð 32. 026 (31.127). Úr stjórn áttu að ganga Sigur- grímur Jónsson í Holti og séra Sveinbjörn Högnason, þeir voru báðir endurkjörnir. Endurskoð- andi var endurkjörinn Sigurður Ágústsson í Birtingaholti. Aðrir í stjórn eru Þorsteinn Sigurðsson frá Vatnsleysu, Ágúst Þorvaldsson, Brúnastöðum og Eggert Ólafs- son Þorvaldseyri. Eru í gæzluvarðhaldi KJ-Reykjavík 21. apríl. Maðurinn sem varð barni sínu að bana vestur á Hellissandi á laugardaginn, var fluttur frá Akra- nesi til Reykjavíkur í morgun, og cr nú í gæzluvarðhaldi í Hegning- arhúsinu í Reykjavík. Yfirsaka- dómarinn í Reykjavík Logi Einars son hefur frekari rannsókn þessa hörmulega máls með höndum. Mað urinn hefur verið úrskurðaður í 60 daga gæzluvarðhald og til geð- heilbrigðisrannsóknar. Skotmaðurinn sem skaut úr riffli upp á Austurbrún í gær er í gæzluvarðhaldi, og mun fara til geðrannsóknar innan skamms. Mað ur þessi getur rétt gert sig skilj- anlegan , og hefur ofurlitla heyrn. Á ÁÆTLUNARBÍL Framhald af 16. s(3u. lagðirðu svo upp í þessa ferð þína? — Það var á föstudagsmorg- uninn klukkan fimm. Eg þurfti að láta dytta að bílnum héma í bílasmiðjunni og daginn áð- ur hafði Vegagerðin hafið ruðn ing á þessari leið. Eg ákvað því að leggja í hann, náði Vega- gerðarbflnum og fylgdi honum eftir alla leiðina. Jafnframt höfðum við með okkur jeppa með talstöð, því að maður sit- ur uppi bjargarlaus, ef svona stór bíll bilar upp í óbyggðum. — Hvað varstu bvo lengi á leiðinni? — Eg var kominn til Reykja hlíðar eftir 21 klukkutíma. í bæinn kom ég svo á sunnudags kvöldið. — Varstu einn í ferðinni? — Nei, við fórum þrír sam- an, en engir farþegar auðvitað og enginn póstur. — Hvenær hefurðu svo reglu- legar áætlunarferðir? — Ekki fyrr en vegirnir eru orðnir alveg öruggir, við tefl- um ekki á neina tvísýnu. — Eru Austfirðingar svo til lokaðir frá umheiminum að vetri til, eða þangað tíl þið hefjið áætlunarferðimar? — Já, og ef framkvæmdir i vegamálum ganga eins og að undanfömu, þá verða þeir það næstu 20—30 árin. Það þarf að gera upphlaðinn veg yfir Möðru dalsfjallgarð og Jökuldalsheiði, þá mundi í veðrutn, eins og í vetur, vera bílfært á milli Hornafjarðar og Reykjavíkur allan ársins hring. Annars hef ur þessi leið, sem ég fór, verið farin á jeppum af og til í all- an vetur? — Hvemig . var umhorfs þarna á öræfunum, Sigfús? — Það var lítill snjór, en dálítill klaki, en aftur á mðti var snjómugga á fjöllum. — Á hvemig bíl ertu, Sig- fús? — Þetta er 34 manna Hench ell-áætlunarbíll, einsdrifs. — Hvenær ætlarðu að halda heim aftur, Sigfús? — Það fer eftir þvf, hvað þeir verða lengi með bílinh hérna í Bílasmiðjunni. Þeir eru eini aðilinn hér á landi, sem smíðar yfirbyggingar á bíla og verðum við Áustfirðingar því að sækja þá þjónustu utn 8— 900 km leið- Þú mátt líka geta þess, að framleiðsla þeirra væri fullboðleg á heimsmarkað inum, og á næsta ári vonast ég til þess, að fá nýjan bíl hjá þeim. AlúSarþakkir fyrlr sýnda vlnittu vlS andlát og útför Haralds Bjarnasonar fri Álftanesl. Fyrlr hönd okkar og annarra vandamanna. Hulda Harafðsdóttir og Jónas BöSvarsson. Innllegar þakklr tll allra, nær og fjær fyrlr auSsýnda samúS vI3 fráfall móSur okkar, Málfríðar Jóhannsdóttur Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. MóSlr okkar, Sígurbjörg Eiríksdóttlr andaSlst a3 Elll- og h|úkrunarhelmlllnu Grund laugardagtnn 18. aprll s. I. Eyrún Runólfsdóttlr, Runólfur Slgurbergur Runólfsson. Hiartans þakkir færum vlS öllum þelm, er auSsýndu samúS og vJnarhug vIS andlát og |ar3arför móSur okkar, tengdamóSur, ömmu og langömmu, Sigurbjargar Einarsdóttur Vfk I Mýrdal. Sérstakar þakklr færum vlS Kvenfélagi Hvammshrepps er heiSr- aSi mlnnlngu hennar á eftirminnilegan hátt. Svala Magnúsdóttlr, Svanhvlt Magnúsdóttlr, Hulda Magnúsdóttlr, Inglbjörg Magnúsdóttir, tengdasynlr, barnabörn og barnabarnabörn. Hiartkær elginmaSur mtnn og faSlr okkar, Jón Árnason frá Hóll á Langanesl, lézt i Landspítalanum aSfaranótt 16. þ. m. JarSsett verSur frá Fossvogskapellu, laugardaglnn 25. apríl kl. 10,30 f.h. Athöfninnl I klrkiunni verður útvarpaS. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaS, en þelm, sem vilja minnast hlns látna er bent á Krabbamelnsfélag fslands. Ingibjörg Gísladóttir, dætur, fósturböm og tengdasyinlr. Útför eiglnmanns mlns, Sigvalda Thordarson arkitekts, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. þ. m. kl. 3 e. h. Kamma N. Thordarson. Fundur hófst aftur að afloknu fundarhléi kl. sex, og var þá eft- ir skýrsla frá Stefáni Björnssyni forstjóra Mójlkursamsölunnar í Reykjavík og Grétar Símonarson forstjóra mjólkurbúsins átti að flytja skýrslu um flokkun og fitu •mjólkurinnar. Systir okkar Guðfinna Ólafsdóttir andaðist a3 Sólvangi 16. apríl. Jarðarförln fer fram frá HafnarfjarS- arklrkju laugardaglnn 25. apríl kl. 2. Blóm afbeðln, en ef einhver vlldl mlnnast hennar, er bent á kristniboðið í Konsó. Guðrún Ólafsdóttir og Arnlaugur Ólafsson. T í M I N N , miðvikudaginn 22. aprll J964 — 15

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.