Tíminn - 04.06.1964, Qupperneq 13
Lánsútboð
Bæjarstjórn Kópavogskaupstaðar hefur ákveðið
að bjóða út 5 milljón króna skuldabréfalán vegna
vatnsveituframkvæmda í Kópavogi. Út eru gefin
handhafa skuldabréf með þrenns konar verðgildi
að fjárhæð kr. 1000,00 — kr. 5000,00 og kr.
10.000,00. Bréfin endurgreiðast á 15 árum eftir
útdrætti. Þau eru með hæstu löglegum vöxtum
fasteignalána eins og þeir verða á gjalddaga
hverju sinni.-
Láninu verður varið til nýbyggingar og endurnýj-
unar á vatnsveitukerfinu. Bréfin eru til sölu á
þessum stöðum:
í bæjarskrifstofunni í Félagsheimilinu, Sparisjóði
Kópavogs og Búnaáarbanka íslands — aðalbank-
anum í Reykjavík. Sérstaklega er skorað á Kópa-
vogsbúa að flýta fyrir vatnsveituframkvæmdum í
bænum með því að kaupa bréfin.
Kópavogi, 1. júní 1964
Bæjarstjórinn
Byggingafélag verkamanna í Reykjavík
TIL SÖLU
3ja herb. íbúð í 6. byggingarfl. Þeir félagsmenn,
sem vilja neyta forkaupsréttar leggi inn umsóknir
sínar fyrir kl. 12 á hádegi 8. þ.m. í skrifstofu fé-
lagsins, Stórholti 16.
Stjórnin
FRYSTIHUSSVINNA
Nokkrir duglegir karlmenn óskast til vinnu í frysti
húsi okkar að Skúlagötu 20. Nánari upplýsingar í
skrifstofunni.
Sláturfélág Suðurlands.
GERÐARDÓMSLÖGIN
Framhald af 8. siðu.
annað sjónarmið en ríkir í öðrum
löndum heims, þar sem verkfræð
ingar eru eftirspurðasta vinnuafl
ið.
Nú eru yfir 70 íslenzkir verk-
Ifræðingar starfandi erlendis en
aðeins um 250 hér heima. Fjölgun
' verkfræðinga hlutfallslega hér á
landi er mun hægari en hjá ná-
grannaþjóðunum. Þessi þróun er
alvarlegt íhugunarefni fyrir þjóð
ina. Hugsandi menn vita það, að
raunvísindi og tækni er undirstaða
verkmenningar þjóða og forsenda
velmegunar þeirra. Mátturinn til
lífsbjargar er fyrst og fremst kom
in undir kunnáttu einstaklinganna
í jþessum efnum.
Það er ófrávíkjanleg krafa Verk
fræðingafélags íslands, að um-
rædd lög verði felld úr gildi svo
verkfræðingar fái aftur full mann
réttindi og íslenzk verkmenning
geti þróazt á eðlilegan hátt, landi
og þjóð til heilla.
Reykjavík, 20. maí 1964.
Stjóm Verkfræðingafélags
fslands.
ORLOF
Framhald af bls- 6-
og eru hinar ýmsu orlofsnefndir
mjög einhuga um framgang þess.
Orlofsnefndin í Reykjavík opnaði
skrifstofu að Aðalstræti 4 uppi
þann 1. júní, þar sem tekið
verður á móti umsóknum um oc-
lofsdvalir fyrir konur á. öllum
aldri.
Dvalið verður í Hlíðardalsskóla
að þessu sinni.
Skrifstofan verður opin alla
virka daga kl. 3—5 e- h. nema
laugardaga. Sírni 21721.
HEIMSSÝNINGIN
Framliald af 9. síðu.
handofin teppi í sýningarskála
Marokkó. Þar voru börn að
vefa og múgur manns að horfa
á þessa heimsfrægu vinnu, sem
börnum er fengin í Austurlönd
nm Handan við tjöldin var sýn
ingahús Grikkja, og þaðan
heyrðist söngur. Við runnum
á hljóðið og komumst að raun
um, að leikið var af plötum,
en fjmir bragðið sáum við
grískan heimilisiðnað, afar
fallegan.
Þessi þriggja manna hópur
dreifðist nú fyrir fullt og allt.
Undirritaður fór í búðir Afríku
ríkjanna, hinna svörtu og ný-
frjálsu, og kom í þann mund
sem danssýning var að heíj-
ast. Þessi danssýning er end-
urtekin með stuttu millibili all
an daginn. Þátttakendur eru
um tuttugu, karlar og konur,
fuilvaxta og ungií. Þau döns-
uðu og sungu af list heimkynna
sinna. Kynbræður þeirra meðal
áhorfenda horfðu á dansinn
dimmum, spurulum, djúpum
augum. Svo mikið bar á miíii
þeiri'a, sem dönsuöu og sam-
litra áhorfenda, að sennilegi
hefur enginn meðal þeirra síð-
ar nefndu kunnað dansana eða
skilið söngvana eða boðið í
grun um hvað þeir snerust
fremur en hvítum áhorfanda.
Eftir þessa sýningu var gott
að hvílast stundarkorn á tjam-
arbakkanum hjá Unisphere,
hnattlíkaninu, sem er tákn
heimssýningarinnar og blasir
við augum nær hvarvetna á
sýningarsvæðinu og víðs veg-
ar utan við það.'
Dagur leið að kvöldi, einn
dagur á heimssýningunni í New :
York. Menn áætla þrjár vikur
til mánuð til þess að skoða
hana alla, én á þessum degi
virtist mér ógjörningur að á-
ætla neitt um það. Eg valdi
kínversku sýninguna, gamla
kínverska list, að síðustu —
og bjór og rækjur úr Kyrra-
hafinu undir stráþ^ki Polynes-
íu á undan jámbrautarferð til
Manhattan. — BÓ.
—------------------------------
HEIMA OG HEIMAN
Framhalc ai bls 3
Menn draga í efa, að hægt verði
að aðlaga líffærin að þyngdarleys
inu. Helzt hafa menn látið sér til
hugar koma tæknifræðilega lausn
reyna að framieiða aðdráttarafl í
geimförin, láta geimförin snúast
þannig, að miðflóttaaflið, sem far
þeginn mæti við það, geti alveg
eða að nokkru leyti komið í stað-
inn fyrir þyngdaraflið, sem líf-
færin þarfnist.
S.TÁLFVIRK
Framhald af 6. síðu.
frávik í blöndunarhlutfölium innan
við 1%. Sementinu er blásið með
þrýstilofti í sérstök geýmslusíló,
og þaðan flutt x sementsvigtina.
Afköst stöðvarinnar eur 60—80
rúmmetrar á klukkustund, og
fyrst í stað verður aöeins afgreitt
í hræribila stöðvarinnar, fyrst um
sinn, en verður væntanlega síðar
afgreidd fullhrærð til viðskipta-
vina þarna á staðnum.
Steypubílarnir eru af Scania
Vabis-gerð, og hinir fullkomnustu
í alla staði.
Fratnleiðandi stöðvárinnar er
þýzká fyrirtækið George Stetter
K.G., og hafa tveir sérfræðingar
frá verksmiðjunni haft umsjón og
ábyrgð á allri uppsetningu stöðvar
innar.
Stöðvarstjóri verður Jón Ólafs-
son, en framkvæmdastjórar Verk
h.f. eru þeir Kjartan Blöndal og
Birgir Frímannsson yerkfr.
Perú, sem var skorað rétf
fyrir leikslok, en dómarinn
taldi markið ólöglegt. Nú
hefur hihs vegar komið í
ljós, að markið var í alla
staði Iöglegt — og sannar
það kvikmynd, sem tekin
var af leiknum.
BANDARÍKIN
Framhald af 7. síðu.
þess að komast á burtu frá
Suður-Vietnam, en ekki til þess
að vera þar kyrrir. Markmiðið
ætti að vera að hverfa aftur að
Genfarsamningnum frá 1954
og Frakkar kynnu jafnvel að
fást til að stuðla að því. Couve
de Murville, utanríkisráðherra
Frakka, gaf fyrir skömmu í
skyn með ummælum sínum, að
þetta væri i raun og veru það,
sem de Gaulle forseti hefði í
huga.
Ekki er víst, að vilji Banda-
ríkjamanna til að semja á
þessum grundvelli, leiði til
samkomulagsumleitana í bráð,
hvað þá friðar. Hervald er
óhjákvæmilegt ef takast á að
koma kommúnistum að samn-
ingaborSinu og fá sanngjarnt
samkomulag rætt. En aukin
hernaðarátök ein yrðu aðeins
til þess að endurtaka sömu
skyssur og áður, nema samtím-
is sé gefinn kostur á samkomu-
lagsúmleitunum.
ASalfundi Loftleiða, sem boðaður var 19. þ. m.,
verður frestað til föstudagsins 26. þ. m. Fundur-
inn verður í Tjarnarcafé uppi og hefst kl. 2 e. h.
Dagskrá óbreytt.
Stjórnin.
OfíltlDlfí
Ritarastaða
Vita- og hafnarmálaskrifstofan óskar eftir að ráða
stúlku til vélritunarstarfa. Þarf að hafa góða kunn-
áttu í vélritun. Laun samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna.
Væntanlegir umsækjendur komi til viðtals á skrif-
stofuna næstu daga frá kl. 9—12.
INNHEIMTUSTÖRF
Áreiðanlegur og reglusamur maður, helzt vanur
umfangsmiklum innheimtustörfum, óskast til
starfa sem fyrst. Bílpróf nauðsynlegt. Umsækj-
endur vinsamlegast leggi inn upplýsingar um nafn
heimilisfang, aldur og fyrri störf til afgreiðslu
blaðsins fyrir 10. þ.m. merkt: Co—13.
Verkafólk - Síldarvinna
Síldarstúlkur og karlmenn, vantar á nýja söltun-
arstöð á Raufarhöfn.
Nýtízku íbúðir og mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar 1 síma 36, Raufarhöfn eða 50165,
Hafnarfirði . ,,...
Stér miðstöðvarketill
Viljum kaupa stóran miðstöðvarketil (30—60m*)
með brennara. Upplýsingar veittar hjá Einarsson
& Pálsson, Grensásvegi, 12, sími 13890.
Samtök um hitaveitu í Arnarnesi.
Ritari
Stúlka óskast til ritarastarfa við Borgarspítalann
nú þegar. Vélritunar- og málakunnátta nauðsyn-
leg. — Upplýsingar gefur yfirlæknir.
Reykjavík, 3. júní 1964.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
T í M i N N , fimmtudaglnn 4. iúmí 1964
13