Alþýðublaðið - 30.03.1952, Side 8
attolux-plastmálning frá Hörpu
um helmingi ódýrari en venjuíeg
*-------♦-------
Verksmiðjan setor einnig tvær nýjar
tegundir af ?"kkum á markaSinn.
--------4.------
LAKK- OG MÁLNINGARVERKSMIÐJAN IIARPA hefur
nú sett á marlcaðinn nýja tegund af málningu, sem, marka mun
tímamót í sögu fyrirtækisins. Nefnist málning þessi Mattolux-
plastmálning og er hún um það bil helmingi ódýrari í notkun
en venjuleg máíning. Enn fremur hefur Harpa liafið frarn.
leiðslu á nýrri tegund af laklci, er nefnist Harpoflint, en lakk
þetta hefur sérstaka eiginleika, og þolir mikinn hita, þannig
að viðurinn untlir því sviðnar áður en sjálf iakkhúðin lætur
á sjá. Loks er framleidd ný íegund af gljálakki, sem íekur fram
japanlakki og öðrum gljálökkum.
Verksmiðjan heiur um eins*-1 ‘
árs skeið haldið uppi tilraunum
Setning slysavarna-
þingsins í gær
MorQimkyrrð. Þetta y ein
™ */ mvndasvnineu
af myndunum á ljós-
myndasýningunni og heitir „Morgun-
kýyrð“. Hún er frá Vestmannaeyjum, tekin af Kristni Sigurðs-
- yni í Hafnarfirði.
prinn 1950 nam 2,3 millj.
hestsburðum og kartöfluuppsker-
an nam rúmum 86 þús. tunnum.
______—Am .....
Mjólkorfrainleiðslan óx um 9 rraiilj. Sitra
frá Í946--50, en nam á 69.661.000 lítrum.
--------4-------
ÁRIÐ 1950 var heyfengur landsmanna samtals 2 291 000
hestburðir, þar af 1 696 000 hestar af töðu og 595 000 hestar
úthey. Árið áður var heildarheyfengurinn 2 129 000 liestar, þar
af 1 505 000 hestar af töðu og 624 000 hestar af útheyi. Kart-
Bfluuppskeran nam árið 1950 86 033 tunnum, og rófnauppsker-
an 8353 tunnum. Árið áður nam kartöfluuppskeran 39 781
tunnu og rófnauppskeran 5835 tunnum. Mjólkurframleiðslan
hefur aukizt um 9 milljón lítra frá 1946 til 1950.
Er þetta samkvæmt upplýs- mjólk. og 2,7 millj. lítrum bet-
ingum úr nýútkomnum Hagtíð-
indum, en tölur þess eru byggð
ar á búnaðarskýrslum þessa árs.
Heyfengurinn 'fór jafnt og
stöðugt vaxandi fyrstu 30 ár
aldarinnar, segir enn fremur.
Útheyið var nokkurn veginn
jafn mikið, aðeins lítils háttar
árferðismunur, en töðufengur-
inn óx ár frá ári úr 500 þús.
hestum um aldamotin í 1000
þúá. hesta árið 1930. Síðan hef-
ur útheyið farið minnkandi
næstum jafn ört og taðan hefur
vaxið. Með töðunni er talið
hafragras og annað grænfóður,
en það var 17 500 hestar árið
1950 og 14 300 hestar 1949.
Mjólkurframleiðslsn 1950
nam samtals 69 661 000 lítrum
og hefur aukizt um rúmlega 9
milljón lítra frá 1946, og Kem-
ur öll sú aukning fram sem sölu
r *
Ufför forsefa Islands
og Bretakonungs
á kvikmynd
AUKAMYND í Stjörnubíó
eru frétamyndir frá Pólitiken
í Kaupmannahöfn. Þar eru,
meðal annars sýndar myndir
frá útför Sveins Björnssonar
forseta og einnig frá útför
Georgs Bretakonungs. og heim
komu Elísabetar og Philip frá
Afríku, eftir að þau fréttu lát
konungs.
ur. Árið 1946 var mjólk til
heimanotkunar 29 939 000 lítr-
ar, en seld mjólk nam þa 30-
669 000 lítrum, en 1950 fóru
27 208 000 lítrar í lieimanotkun
en seld mjólk nani 42 453 000
lítrum. Minnkun sú, er varð á
heimanotkun mjóllcur 1949, er
talin stafa af því, að á því ári
tóku tvö ný mjóikurbú til
starfa, mjólkurbúin á Blönduósi
og Húsavík.
Meðalársnyt var á öllu land-
inu talin vera 2191 lítri árið
1949, en 2234 lítrar árið 1950.
Úrslit í hnefa-
leikamótinu
HNEFALEIKAMEISTARA-
MÓT KR fór frá að Háloga-
landi í fyrrakvöld að við-
stöddu. fjölmenni. Keppt var í
8 þyngdarflokkum og urðu úr-
slit sem hér segir: í þungavigt
sigriði Friðrik Clausen Banda
ríkjamanninn Rowpolls með
rothöggi í þriðju lotu, en aðr-
ir sigu.rvegarar unnu á stigum.
í veltervigt sigraði Jón Norð-
fjörð, í léttþungavigt Banda-
ríkjamaðurinn Djusco, í flugu
vigt Hilmar Pielsch, í batam-
vigt Grétar Geirsson, í fjaður-
vigt Guðbjartur Kristmunds-
son, í léttivigt Sverrir Sigurðs
son, í léttveltervigt Bergur
Guðnason og í millivígt Þórður
Eydal.
á þessum nýju tegundum fram
leiðslu sinnar, en nú er komin
full reynsla á þær.
Mattolux-plastmálningin hef-
ur þann kost, að hún dekkir
mun betur en venjuleg máln-
ing og bindur sig við stein án
þess að nokkra undirmálningu
þurfi, Þannig að í stað 5 um-
ferða af venjulegri málningu
duga 2—3 umferðir af þessari
málningu. Sé málað yfir aðra
málningu nægir í ílestum til-
fellum ein umferð, jafnvel þótt
Titir séu mjög gagnstæðir. Þött
málningin sé nokkru dýrari
miðað við kíló, mun hún verða
um hslmingi ódýrari en venju-
leg málning í notkun', vegna
þess að hún þekur meira og
dekkir betur.
Mattolux-plastmálningin hefur
fallega matta áferð, og gagn-
stætt öðrum möttum málning-
um þolir hún mjög vel þvott, t.
d. sjást ekki blettaskil, þótt lít
ill blettur sé þveginn upp úr
volgu sápuvatni. Þsssi málning
inniheldur ekkert vatn og á
ekkert skylt við vatnsmáln-
ingu. Eins og nafnið bendir. til,
er bindiefnið í málningunni
plast, er það í upplausn, en við
uppgufun á upplausnarefnun-
um verður plastið eftir og
myndar það slithúöina.
Þá hefur verksmiðjan hafið
framleiðslu á nýrri tegund af
gljálakki, sem þolir sérstak-
lega vel sterkar s'ápur og lút-
I lausnir. Reynslan ’ hefur sýnt,
að lakk þetta er mjög gott á
eldhús og baðherbergi, og er
því hentugt til notkunar, þar
sem daglegur þvottur er nauð
synlegur. Áferðin >ar mjög svip
! uð og á venjulegu Japanlakki,
en nýja lakkið hefnr þó þann
kost, að það harðnar talsvert
fljótar.
Enn er svo ný tegund af
lakki, sýruhert lakk, sem nefn
ist Harpoflint. Þetta lakk hef-
ur alveg sérstaka eiginleika, og
á ekkert skylt við neinar lakk-
tegundir, sem verið hafa hér á
boðstólum. Lakkið þolir það
mikinn hita, að viðurinn sviðn
ar undir því, án þess að lakkið
saki. Alla áníðslu þolir lakkið
vel, og er því mjög ákjósan-
legt fyrir alls konar íþrótta-
tæki, skólahúsgögn o. þ. u. 1.
Lakk þetta er framleitt bæði
glært og litað. ,
í undirbúningi er nú stór-
felld stækkun og aukning á
efnarannsóknastofu félagsins,
enda hefir því bætzt nýr starfs-
maður, Hannes B. Kristinsson,
sem lokið hefir námi í efna-
verkfræði við verkfræðihá-
j skóla í Bandaríkjunum. Félag-
1 ið hyggst með þessu að geta
I fylgzt betur með öllum nýjung
j um í málningariðnaðinum, sem
| eru nú mjög örar. Hefir félagið
í þessu skynj fest kaup á ýms-
um nýjum rannsóknartækjum,
sem auðvelda munu allar athug-
.anir á hráefnum. Hannes .hefur
um nokkurn tíma unnið á rann-
sóknarstofum í Bandaríkjunum
á vegum Efnahagsstofnunar
Sameinuðu þjóðanna. Verður
því rannsóknarstofan sniðin eft-
ir nýjustu fyrirmyndum í
Bandaríkjunum.
ALÞYBDBLASIS
SJÖTTA landsþing Slysa-
varnafélags íslands var sett í
gær í Tjarnarcafé af forseta fé-
lagsins, Guðbjarti Ólafssyni
hafnsögumanni. í upphafi máls
síns minntist hann sérstaklev^
hins látna forseta íslands og
fyrrverandi ráðherra Finns
Jónssonar alþingismanns og
stjórnarnefndarmanns S.V.F.Í.,
sem lézt nýlega, einnig þeirra
manna, sem undanfarið hafa
látizt af slysförum. Risu fund-
armenn úr sætum í virðingar-
skyni við þá látnu.
Þá var kosinn forseti þings-
ins Gísli Sveinsson fyrrverandi
sendiþ^rra, 1. varaforseti var
kosinn Sigurjön Á. Ólafsson
fyrrv. alþingismaður og 2. vara
forseti Júlíus Havsceen sýslu-
maður.
Þá flutti forseti félagsins
skýrslu sína um’ störf félags-
stjórnar og félagsins. Frá síð-
asta landsþingi, er var háð fyr
ir 2 árum, hefur verið bjargað
með aðstoð S.V.F.Í. 481 manns-
lífi, 21 deild stofnuð og félags-
deiidir nú 185 með samtals 26-
416 félögum. Sæbjörg hefur
dregið að landi 92 skip m>eð
samtals 568 manns mnanborðs.
Árni Árnason kaupm., gjalda
keri félagsins, las upp reikn-
inga félagsins. Kl. 18 flutti Em
il Jónsson vitamálastjóri ýtar-
legt yfirlitserindi nm þróun
vitamálanna á íslandi frá byrj-
un til þessa dags og framtíðar
áætlun í þeim málum.
Fyrsta íslandsmótið
í stökkum án at-
rennu fer fram í dag
FYRSTA meistaramót ís-
lands í stökkum án atrennu,
innan húss, fer fram í íþrótta-
húsi háskólans í dag og hefst
kl. 2,30. Keppendur verða 23
frá 8 félögum.
Keppt verður í langstökki,
hástökki og þrístökki. Meðal
keppenda eru, Svavar Helga-
son íslandsmethafi í lang-
stökki án atrennu, Gylfi Gunn
arsson drengjamethafi í lang-
Dtökki án atrennu, Skúli Guð-
mundsson, íslandsmethafi í há
ctökki án atrennu, Hörðu.r Har
aldsson, Sigurður Friðfinnsson
og Þorsteinn Löve.
í NÓTT var öllum kirkju-
klukkum í Rómaborg hringt
til messu. Verður það gert í til
efni af því, að páfinn hefur
fyrirskipað vakningarviku, sem
helguð er vakningu kristilegr-
ar samvizku meðal kaþólslíra
manna.
Nýlendukúgun
VIÐBURÐIRNIR í TÚNIS,
þar sem franska íhaldsstjórn
in lætur nú handtaka forustu
menn sjálfstæðishreyfingar-
innar hu.ndruðum saman og
hneppa í fangelsi, sviptir
meira að segja ráðherra völd
um og setur í stað þeirra þæg
verkfæri sín, vekja undrun
um hinn fr.jálsa heim. Og ó-
líkt ferst hinni frönsku í-
haldsstjórn í viðskiptum sín-
um við sjálfstæðishre^Ting-
una í Túnis brezku jafnaðar
mannastjórninni, þegar hún
var eftir stríðið að binda enda
á tveggja alda nýlendustjórn
og kúgun Breta á Indlandi og
hjálpa þeim 350 milljónum
manna, sem þar búa, til
stjórnarfarslegs sjálfstæðis.
EN ÞAÐ ERU EKKI ALLIR,
sem hafa til að bera víðsýni
og skilning jafnaðarstefnunn
ar á sjálfstæðishreyfingu ný-
lenduþjóðanna; og því he*ur
öðrum Evrópuþjóðum en
Bretum gengið miklu verr
eftir stríðið að finna nauð-
synlega og frjálslega lausm
þess vandamáls, sem nýlendu
póiitík undanfarinna manns-
aldra hefur skapað Evrópu-
þjóðunum í dag. Þess vegna
urðu Hollendingar að heyja
blóðu.ga nýlendustyrjöld í
Indónesíu áður en þeim skild
ist nauðsyn þess að viour-
kenna sjálfstæði 70 milljóna
þjóðarinnar þar. Og þess
vegna hafa Frakkar nú átt í
margra* ára styrjöld I Indó-
Kína, sem enginn sér enn
. fyrir endann á. Sú styrjöld
hefði vissulega átt að vera
búin að kenna valdamönnum
Frakka sitt af hverjui. En við
burðirnir í Túnis benda ekki
til þess, að þeir hafi lært mik
ið af henni.
KÚGUN RÚSSA við þær
mörgu þjóðir bæði í Evrópu
og Asíu, sem rússneska keis-
arastjórnin lagði á síðustu
öldu.m sínum undir Rússa-
veldi, er kapítuli út af fyrir
sig. Einu sinni ætluðu bylt-
ingarforingjar kommúnista
að gefa þær þjóðir frjálsar,
eins og brezkir jafnaðarmenn
gáfu þjóðir Indlands, Ceylon
og Bu.rma frjálsar eftir síð-
asta stríð. En það er nú
löngu gleymt áform, eins og
fleira, sem þeir ætluðu að
gera; og nú er kúgunarhönd
rússneska kommúnismans
enn þá ægilegri martröð á
þjóðum Eistlands, Lettlands,
Lithaugalands, Póllands,
Kákasus og Túrkestan, en ný-
lendupólitík keisarastjórn-
arinnar var nokkru sinni.
Móti þeirri kúgun, sem þessi
lönd verða að þola, er gerræði
frönsku íhaldsstjórnarinnar í
Túnis nú sjálfsagt ekki þung
vægt. En engu að síður er það
furðu skammsýnt.
Skömmfunarseðlar
ÚTHLUTUN skömmtunar-
seðla fyrir næstu þrjá mánuði
hefst á þriðjudaginn, 1. apríl,
og stendur yfir í þrjá daga í
Góðtemplarahúsinu kl. 10—5.
Seðlarnir verða afhentir
gegn árituðum stoínum núgild-
andi skömmtunarseðla.