Alþýðublaðið - 04.07.1952, Síða 3
Hannes á horninu
í DAG er föstudagurinn 4.
júlí.
Næturlæknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörzlu annast Ing.ólfs-
apótek, sími 1330.
Flugferðir
Flugfélag íslands:
Innanlandsflug: Flogið verð-
ur í dag til Akureyrar, Vest-
mannaeyja, Kirkjubæjarklaust-
urs, Fagurhólsmýrar, Horna-
fjarðar og ísafjarðar. Á mgrgun
til Akureyrar, Vestmannaeyja,
Blönduóss, Sauðárkróks, ísa-
fjarðar og Egilsstaða.
Utanlandsflug: Gullfaxi fer
kl. 8 árd. til Oslóar, kemur heim
í kvöld um tíuleytið.
Skipafréttir
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
í gærkvöldi til Boulogne og
Grimsby. Dattifoss íór frá Vest
mannaeyjum 30. f. m. til Balti
more og New York. Goðafoss
er í Kaupmannahöfn. Gullfoss
kom til Reykjavíkur í gær frá
Kaupma-nnahöfn og Leith. Lag
arfoss fer frá Hamborg í. dag
til íslands. Reykjafoss fór frá
Húsavík 30. f. m.'til Álaborgar
og Gautaborgar. Selfoss fór frá
Þórshöfn í gærmorgun til Norð
fjarðar, Eskifjarðar og útlanda.
Tröllafoss fór frá New York í
fyrradag til Reykjavíkur.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell lestar tómar tunn
ur í Svíþjóð og Noregi. Arnar-
fell er væntanlegt til Kaup-
mannahafnar í dag, á leiðinni
til Stettin. Jökulfell lestar fros
ínn fisk á Akranesi. Vænjan-
legt il Reykjavíkur í kvöld.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík kl.
20 í kvöld til Glasgow. Esja er
£ Reykjavík. Skjaldbreið fer frá
Reykjavík í kvöld til Húnaflóa.
Þyrill var á Raufarhöfn i gær-
kvöld.
Blöð og tímarit
Skýrslur tiiraunastöðva jarð-
ræktar, eftir Árna Jónsson til-
raunastjóra, gefnar út af Land-
búnaðardeild atvinnudeildar há
skóians, hafa blaðinu borizt.
Ritið hefst á grein um skipulag
tilraunastarfseminnar, en síðan
koma skýrslur hinna einstöku
tilraunastöðva, á Akureyri,
Reykhólum, Sámstöðum og á
Skriðuklaustri. Að lokum eru
birtir reikningar tilraunastöðv-
anna. — Sömu aðilar gefa og
út skýrslu um árangur af tii-
raunum til að fita sláturlömb á
ræktuðu landi eftir Halldór
Pálsson og Runólf . Sveinsson.
Birtur er árangur slíkra lil-
rauna í Gunnarsholt.i 1949 og
1951, og í Árbæ og Einho'.ti í
Austur-Skaftafellssýslu árið
1951.' ■
Afmælí
75 ára er í dag frú Guðbjörg
Jósefsdottir, Kvisthaga 29.
Or öllum áttum
Börn
á vegum' Rauða Kr.oss fs-
lands, sem eiga að fara að Laug
arási eiga að mæta kl. 9 þann
5. júlí á planinu hjá Arnarhóls
túni móti Ferðaskrifstofu rík-
isins. Athuga þarf að börnin
hafi með sér skömmtunarmiða.
Sporniff viff minnkandi
atvinnu í landinu meff því að
kaupa innlendar iðnaðarvör-
ur.
£sso
HAFNARSTRÆTI 23
er opin frá kl. 8 f. h. til 11 e. h.
Laugardag kl. 8—12 á hádegi.
UTVARP REYKJÁVIK
20.00 Fréttir.
20.30 Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga 50 ára (útvarp af
segulbandi frá íifmáelisfundi
í Tjarnarbíói kl. 14.00 s. d.):
a) Ræður flytja: Sigurður Krist
insson formaður SÍS, Herm.
Jónasson landbúnaðarráðh,
Vilhjálmur Þór forstjóri SÍS
og Sir Harry Gill forseti al-
þjóðasambands samvinnu,-
aaanna.
b) Ávörp flytja nokkrir er-
lendir fulltrúar.
22.00 Préttir og veðurfregnjfr.
22.10 Leynifundur í Bagdad,
saga eftir Agöthu Christie
(Herst. Pálsson ijlstj. les).
22.30 Tónleikar (pl.) „Grand
Canyon“ svíta eftir Ferde Grofé
(André Kostelanetz og hljóm-
sveit hans.
23.00 Dagskrárlok.
AB-krossgáta - 174
V ett
vangur
da
sins
C
Útvarjiinu bakkað. — Góður háttur. — Slgemar
fréttir. — Óbyggileg héruð. — Fánar við hún hjá
fólkinu, en ekki hjá broddunum.
Lárétt: 1 Ijóð, ö borða, 7
svifta mætti, 9 forsetnlng, 10
nokkuð, 12 hætta, 14 skatt, 15
fugl, 17 skakkir.
Löffrétt: 1 gamalt staðarheiti
í Reykjavík, 2 forði í jörðu, 3
jielgur staður, 4 óhreinka, 5
raftækjaverzlun í Reykjavík, 8
rödd, 11 ás, 13 sendiboða, 16
tveir eins.
Lausn á krossgátu nr. 173:
, Lárétt: 1 skáldar, 6 éta, 7 nr-
in, 9 au, 10 rök, 12 K. A., 14
pára, 15 ugg, 17 rgíyiar.
, Lóðrétt: 1 svarkur, 2 áfir, 3
,dé, 4 ata, 5 rausai-, 8 nöp, 11
káma, 13 aga, 16 gg.
AB - inn á j
■
. »
hvert heimili! I
HLUSTANÐI SKRIFAR. „Eg
hét því daginn, sein atkvæðin
voru talin, að skrifa þér og
biðja þig fyrir skilaboð til
þeirra, sem stjórnuðu músikk-
inni í útvarpinu þennan dag.
Það er svo oft fundið að því,
sem útvarpið flytur, aff það er
sjálfsagt að láta það heyrast
þegar maður er reglulega á-
nægður með það.
VIÐ UNDANFARANÐI at-
kvæðatalnalestur í útvarpinu
hefur jassinum verið beitt áð
okkur hlustendum sv,o freklega,
að maður hefur bókstaflega ver
ið að slitna sundur af tauga-
biluh eftir að hafa hlustað á
allt það garg til viðbó.tar við at-
kvæðatölurnar. Nú tók útvarpið
upp nýjan hátt. Það lék aðeins
þeklct lög við íslenzk ljóð ag
það var sannarlega rólegri og
meir sefandi músikk en gargíð
í jassinum.
EG VIL ÞAKKA útvarpinu
fyrir þetta, bæði var það mjög
■vel viðeigandi að leika eingöngu
slík lög, þegar verið var að lesa
úrslitin í þjóðkjörinu, og, sv.o
eru þessi lög með meiri merm-
ingarbrag enhitt umn
ingarbrag en hit-t ruslið. Eg'
þakka útvarpinu og ég véit um
marga, sem fögnuðu því, að það
skyldi breyta um til batnaðar.
SUMARIÐ ER ENN KAI.t.
Slæmar fréttir berast af Norður.
og Austurlandi. Maður. nýkom-
inn að austan, sagði mér í gær,
að ekki mundi verða hægt að
slá þar tún fyrr en síðast í ág-
úst. Hann bætti við: ,,Þegar
maður fer um svcitir Austui'-
lands, verst maður ekki þeirri
hugsun, að þar sé ekki byggi-
legt. Jörðin er nakin og kalin
og ekki fæst uggi úr sjó.
EN SAMT SEM ÁÐUR má
maður ekki missa trúna á byggð
irnár. Fyrr meir var því halöið
að fólki, að landið væri ekki
byggilegt, en þá voru aðrir tím
ar. Nú er ma-rgt cil ba-tnaðar.
Hitt er svo annað mál, að ef til
v-ill, eru sumir staðir á landinu
ekki byggilegir.“
MÉR FANNST þetta heldur
ömurlegt tal. En á uiidanförnuhi
árum hafa sveitir verið aS
tæmast á Norð-vesturlandi. Það
an hefur fólkið flúið, leitað ann
að til lífsbjargar. Nú virðist
röðin vera að koma að Norö-
austurlandi, hver sem þróunin
verður þar. En ekki er björgu-
legt að heyra sögurnar þaðan
og maður reynir að setja sig í
fótspor þeirra, sem eíga við þá
afarkosti að búa.
VÍÐA UM LAND var flaggað
í fyrradag. Og mjög víða hér i
Reykjavík og í nágrenninu voru
fánar við hún. Eg ók um bæinn,
út á Seltjarnarnes og ihn fyiir
'bæ og viða sá ég iána. Fólkið
tók þetta upp hjá sjálfu sér. Þaö
hafði tilfimiingu fyrir því, hvaö
við ætti, þó að ýmsir aðrir, senl
bar þó að hafa forustuaa,
gleymdu skyldum sínum.
Hannes á Iiominn.
Raflagnir og
IraftækíaviðgerSir!
■ Önnumst alls konar viC-
B gerðir á heimilistækjum,
B höfum varahluti í flest
jj heimilistæki. Önnumst;
1 einnig viðgerðir é olíu-1
1 fíringum.
I= RaftækjaverzIuKÍn,
Laugavegi 63.
Sími 81392.
eru nú komnar aftur.
Verð kr. 1285.
Sendum gegn postkröfu.
Véla- og raftækaverzlun.
Bankastr. 10. Sími 2852.
RIKISINS
Skaftfeilingur
til Vestmannaeyja í kvöld, -
Vörumóttaka í dag.
Síðasta erlenúa íþróttaheimsókn ársins,
í kvöld klukkan 8,30 keppa
Rínarlönd við Akranes
Fullorðnir
kr. 15,00, 20,00 og 25
Þetta er síðasti Ieikur Þjóðverja. — Tekst hinum sigursælu Akranesingum að sigra þýzku snillingana?