Alþýðublaðið - 18.07.1952, Page 8
s ' ■ ~ 9 /
rís af gruntii í Reykjafundf
-------♦--------
Ársfúndur Berklasambands Norður-
landa hefur staðið þar yfir síðustu daga
-------+--------
VERIÐ ER liú að byggja fyrsta vinnuskálann að Reykja-
lundi, en alls eiga þeir að verða fjórir. Skálinn, sem er í bygg-
ingu, er 24X24 metrar, og er áætlað að hann muni kosta um
1 milijón króna. Hinir skálarnir verða jafnstórir,- en frá þeim
verða byggð samfelld göng að aðalbyggingunni, þannig að vist-
menn þurfi ekki að fara út tU vinnu sinnar. Út af þessum gangi
verða svo skrifstofur, þvottahús og fieira tilheyrandi stofnun-
inni.
Undanfarna tvo daga hefur*-
staðið yfir að Reykjalundi árs-
Ljósadýrð á Goðn. Bærinn fíanders á Jótlandi átti
J nýlega 650 ára afmæli. I til-
efni af því voru þar mikil hátíðahöld, og áin Goðn (Gudená)
sem bærinn stendur við, fagurlega upp lýst með ljósum. Hér á
myndinni sést meðal annars konuiíkneski á hólma úti í ánni,
baðað í afmælisljósum bæjarins.
Ferðaskrifstofa Helga Zoega
fekur fil sfarfa á ný
--------+--------
Hefur umboð fyrir margar stærstu
ferðaskrifstofur í Evrópu, t, d, Cooks.
--------♦--------
HIN GAMLA ferðaskrifstofa Helgi Zpega and Sons, Zoega
Tourist Bureau, sem stofnuð var um síðustu aldamót, hefur
nýlega hafið starfsemi sína á ný. Núvcrandi forstjóri skrifstof-
unnar er Geir H. Zoega,#sonur stofnandans, og hefur hann
staðið fyrir fyrirtækinu frá árinu 1927. Hefur starfsemin þó
legið niðri að mestu frá því í stríðsbyrjun.
" * Skrifstofan hefur sem fvrr,
Eldur í húsi við
Rsuðarársiíg og
báii við Laugarnes
SLÖKKVILIÐIÐ var kallað
ínn að Klömbrum við Rauðar
árstíg snemma í gærmorgun.
Hafði kviknað lítillega í, en
slökkviliðinu tókst fljótlega
áð slökkva. Skemmdir urðu
litlar. - .
Enn fremur brauzt út eldur
í gær í báti, sem verið var að
búa til veiða inn við olíustöð-
ina í Laugarnesi. Hafði kvikn-
að í bátnum út frá logsuðu-
tækjum, sem þar var verið að
nota. Slökkvistarfið gekk þar
einnig vel, og ekki voru
skemmdir teljandi.
Rússar kalla heim
sendifuiltrúa í Lond-
on að kröfu Brefa
STJÓRN Rússlands félist í
-> gær á að kaila heim Kuznetsov,
sendifulitrúa í sendiráðinu í
London.
Hafði Bretlandsstjórn heimt-
að þetta, þar eð Kuznetsov þessi
var bendlaður við mál Marshall
loftskeytamanns, í utanríkis-
náðuneytinu, er var fyrir
ekemmstu dæmdur fyrir njósn-
ir.
umboð fyrir eina stærstu
ferðaskrifstofu heims, Thos.
Cook and Son, í London, en
sú skrifstofa hefur útbú um
allar Bretlandseyjar óg víðar.
Enn fremur umboð fyrir flest
ar stærstu ferðaskrifstofur
og skipafélög í Evrópu. Má
af skipafélögum nefna Cu.nard
Line, sem gerir út Queen
Mary og Queen Elizabeth og á
skipið Caronia, sem kom hing
að á dögunum.
Forstjóri skrifstofunnar
skýrði frá því í viðtali við
blaðamenn í gær, að Cooks,
og systurfélög þess, hefðu nú
samþykkt að selja farmiða á
íslandi hvert sem er í heim-
inum. Verða þeir að sjálfsögðu
að greiðast í pundum fyrir
ferðalög um Bretland og
sterlingssvæðið, en dollurum
fyrir ferðir um Ameríku. Mið-
arnir eru seldir hér á sama
verði og þeir eru seldir á í skrif
stofum Cooks úti. Er hér því
um að ræða mikið hagræði fyr
ir íslendinga, er ferðast þurfa
úti. Sennilega verður hægt að
selja miðana fyrir íslenzkar
krónur, ef gjaldeyrisleyfi fást,
Liggja frammi í skrifstofunni
margir bæklingar, sem gefa
náhari upplýsingar um fjölda
hópferðalaga, sem Cooks sér
um út um alla Evrópu. Virðist
verðið yfirleitt mjög hóflegt.
Enn fremur er hægt að
kaupa hér farmiða með skip-
um Cunard skipafélagsins til
Ameríku og Kanada.
Von er 11. ágúst á öðru
skemmtiferðaskipi að nafni
Framhald á 7, síðu.
þing norræna berklasambands-
ins, en það sækja 7 fulltrúar. frá
hinum Norðurlöndunum. 2 frá
hvoru landi nema Noregi, það-
an er einn fulltrúi.
I tilefni fundarins var blaða-
mönnum boðið að Reykjalundi
í gær og hittu þeir hina nor-
rænu gesti að máli svo og for-
stöðumenn SÍBS og Reykjalund
ar. Var þar m. a. skýrt frá því,
að aðalmál þings SÍBS, sem
haldið var að Kristnesi í hinni
vikunni, hefðu verið fram-
kvæmdir el Reykjalundi, og fól
þingið sambandsstjórninni að
hraða sem mest byggingu yinnu
skálanna og öðrum nauðsynleg-
um framkvæmdum að Reykja-
lundi, og gaf þingið stjórninni
heimild til þess að taka lá.i til
framkvæmdanna, eftir þörfum.
KÚABÚ FYRIRHUGUÐ
Auk vinnuskálabygginganna
er nú verið að vinna að ræktun
landsins, sem Revkjalundur
hefur til umráða, en það er sam
tals 38 hektarar, en í framtíð-
inni er ráðgert að stofna að
Reykjalundi kúabú, svo að
heimilið verði sjálfu sér nóg
um mjólk.
Vistmenn að Reykjalundi eru
um 90 og dvelja-flestir í sumar
leyfi, en á meðan er staðurinn
opinn .fyrir þá, sem eitthvert
sinn hafa dvalizt þar eða á
heilsuhælum, og eyða þeir sum
arleyfi sinu þar meðan vist-
mennirnir eru í burtu.
ÁRSFUNDUR norræna
BERKLASAMBANDSINS
Eins og kunnugt er var nor-
ræna berklasambandið stofnað
að Reykjalundi 1948. og síðan
hafa stjórnarfundir þess verið
haldnir annaðhvort úr til skipt-
is í löndunum. Fulltrúar á þess-
um fundi eru: frá ísiandi í>órð-
ur Benediktsson og Árni Einars
son; frá Danmörku 'Jrban Hau-
sen, ritari þingflokks Alþýðu-
flokksins þar, og Henning Trub
slev; frá Finnlandi Veikko Nie-
mi og Harald Nássling; frá Nor
egi Sten Vig og frá Svíþjóð Ein
ar Hiller og Alfreð Lindahl,
Á fundinum hafa verið rædd
Framhald á 7. síðu
ALÞYfiUBLABIS
Tvœr .línur‘
Tifo fer senniiega í
heimsókn fii
Áusturríkís
SENNILEGA mun Tito öráff-
lega fara fyrstu ferð sina eftir
stríð út fyrir Júgóslavíu.
Er talið, að hann muni fara til
Austurríkis til að endurgjalda
heimsókn Grubers, -utanrikis-
ráðherra Austurríkis, til Bel-
grad. Sérstakar vai-úðarráðstaf-
anir verða gerðar til þess ð
varna því, að nokkur tilraun
verði gerð til að myrða Tito í
ferðinni. Ef slíkt skeði, gseti jþað
orðið önnur Sarajevo.
Valtýr missii af
kampavíninu
DANSKA blaffiS „Social-
Demokraten“ flutti eftirfarandj
fregn 11. júlí siffastliffinn:
Konungurijn tÓK á móti
dönskum og erlendum blaða-
mönnum síðastliðinn þriðjudag,
en þrjá blaðamenn vantaði í
kampavínsdrykkjuna og smá-
kökuátið. bað voru fulltrúar
blaðanna ,,Börsen“ og „Kriste-
íigt Dagblad“, ásamt íslenzka
ritstjóranum Valtý Stefánssyni
frá Morgunblaðinu í Reykjavík.
Þeir fóru frá Kaupmannahöfn
nokkrum dögum á undan blaða
mannaliópnum og er búizt við,
að þeir séu komnir til Bluie
West One flugvallarins. Hvar
svo sem þeir eru misstu þeir af
skemmtilegri stund, þegar kóng
urinn með sitt gula sódavatn o°
sólskinskap skemmti sér með
gesturn sínum, er gerðu kampa-
víninu skil.
Á EFTIR Morgunblaðinu he?-
ur Tíminn nú einnig fengið
kast út af viðtali því sem AB
átti við Karl Albert Anders
son, forseta bæjarstjórnar í
Stokkhólmi, meðan hann
dvaldi hér á miðstjórnaríur.di
alþjóðasambands samvinr.u-
manna; en í því viðtaii iór
, þinn sænski gestur nokkrum
virðingarorðum um hinn ný-
v kjörna forseta ísiands, sera
hánn þekkir persónulega, ósk
.. aði þjóðinni til hamingju me >
hann, og lét um leið í Ijós að-
dáun á því, að „kollega11 hans
hér, Gunnar ThorodcLsen borg
arstjóri, hefði þorað að fylgja
sannfæringu sinni við forseta
kjörið, og metið hana meira
en flokkssjónarmið.
ÞETTA HEFUR TÍMINN ekkí
þolað frekar en Morgunblað-
ið; því að_ í gær afneitar
hann algerlega hinum ágæta,
sænska samvinnumanm, seni
hann vildi þó vel við kannast
meðan hann var hér á alþjóða
fundi samvinnumanna, —
þykist yfirleitt ekki þekkja
hann, og segir, að „Andersson
nokkur, sem titlaður sé borg-
arstjórnarforseti í Stokk-
hólmi, sé leiddur fram á sjón
arsviðið í AB“ til þess að
„lýsa aðdáun sinni á verki
Gunnars Thoroddsen“.
JÁ, ÞAÐ ER nú meiri ósvíf nir.F
En þa#ð, sem í þessu sam-
bandi vekur þó mesta reiðí
Tímans, er að Sjáiísíæðis-
flokkurinn fkuli þannig vera
„búinn að fá um það línu frá
Stokkhólmi", eins og biaðið
orðar það, „að taka Gunnar S
sátt aftur“! Þykir Tímanum
bersýnilega sem „línu Her-
manns“ sé þar rif.eð r.okkur
hætta búin; en á henni hefur
Ólafur dansað svo lipurt und
anfarið.
ÞÆR FREGNIR berast frá
Þýzkalandi, að áætlað sé þar,
að hermenn úr hernámsliði
Vesturveldanna þar, hafi skil-
ið eftir 93.000 óskilgétin
börn. Af þeim munu um 50
000 vera feðruð amerískum
(* hermönnum.
Höguleikar á ú selja Tékkum
20 þúsund tunnur af freðsífd
-------4-------
Enn mjög lítil veiði hjá reknetjabát-
um við Suðvesturland.
-------p-------
MÖGULEIKAR eru nú á sölu 20 þúsund tunna af frystri
síld til Tékkóslóvakíu. En ekki mun þó emi iiafa veriff gengið
til fullnustu frá samningi, sakir þess að Landsbankinn telur
ekki heppilegt að meiri innstæðum sé safnað þar en þeim, sem
til verða með sölu á hraðfrystum fiski.
Líkur benda 17, ac), það verði
nær einvörðungu Faxasiid, sem
til Tékkóslóvakíu fer, ef um
þessa sölu verður samið og síld
veiðist að ráði hér við Suðvest-
urland í sumar, þar eð Norður-
landssíldin verður vafalaust
mest söltuð og brædd.
LÍTTL RJEKNETJAVEIÐI ENN
Hins vegar hefur mjög lítið
Framhald á 7. síðu.
Hlýfur styrk ti!
. náms við háskóla
í Þýzkalandi
Á S. L. VORI auglýsti fé-
lagið „Germania“ eftir vm-
sóknum um námsstyrk við há
skólann í Köln, en stjórn há-
skólans hafði óskað eftir því,
að félagið hefði milligöngu
um veitingu styrksins.
Samkvæmt ósk félagsstjórn-
arinnar tóku próf Alexande?
Jóhannesson rektor og Ingva?
Brynjólfsson menntaskólakenn.
ari að sér ásamt formanni fé-
lagsins, dr. Jóni Vestdal, aíS
velja úr þeim umsóknum, serri
kynnu að berast. Samkvæmf.
tillögu þeirra hefur félags-
stjórnin nú tilkynnt háskólant
um í 'Köln, að hún mæli með,
að Stefán Már Ingólfsson stú-
dent hljóti styrkinn. Stefára
Már brautskráðist frá Akur-
eyrarskóla vorið, 1951, stu.na-
aði þýzkunám í BA-deild há-
skólans í vetur og lauk 1. stig
inu með mjög góðu prófi.
Ætlar hann sér síðan að
stu,nda framhaldsnám í þýzku
við háskólann í Köln.