Alþýðublaðið - 27.11.1952, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 27.11.1952, Blaðsíða 4
t AB-Alþýðublaðið 27. nóv. 1952. Heimskuleg skrif EF MORGUNBLAÐIÐ væri edtt til frásagnar um þá kaup. og kjaradeilu, sem mörg verkalýðsfélög eiga nú í, myndi almenningur ekki vita betur en að það væru að- eins kommúnistar og einhver ginningarfífl þeirra, sem gerðu kröfur um bætt kjör verkalýðnum til handa. En þannig túlkar Morgunblaðið nú daglega þá tilraun, sem verkalýðsfélögin eru að gera til þess að rétta hlut hins vinnandi fólks eftir langvar- andi kjaraskerðingti af völd- um gengislækkunar, báta- gjaldeyrisbrasks, heildsalaok- urs og annarrar dýrtíðar. „Þegar kommúnistar efna til verkfalla um næstu mánaða- mót ...“, sagði Morgunblaðið síðast liðinn sunnudag, eins og þar yrðu engir aðrir að verki, ef til kæmi; og „þvi verður ekki trúað.“ sasði það í gær, „að hin iýðræðissirm- uðu öfl innan Alþýðusam- bands íslands láti almennt hafa ság til samvinnu við kommúnista.“ Það er óskemmtilegt, að þurfa að bregða andstæðing- um í stjórnmálum um heimsku. Én hvað annað er hægt að kalla slík skrif Morgunhlaðsins um kjarabóta kröfur verkalýðsfélaganna? Það þykist þó jafnan vilja foerjast gegn kommúnistum og birtir oft hinar skelegg- ustu greinar gegn þeim. En hverjum halda menn að það sé nú að þjóna með bví að telja verkamönnurn þannig trú um, að það séu aðeins kommúnistar, sem geri kröf- ur um kjarabætur beim til handa og berjist fyrir beim? Hverjum .geta slík skrif gagn að, — nema kommúnistum einum? Carl P. Jensen, ritari danska albý ðu ? amba nd si ns, sem hingað er kominn sem gestur á þing Albýðusam- brnds íslands, skýrði í á- varpsorðum sínum - bar frá því, að dönsk verkalýðssam- f;k hefðu fengið miklar k'arabætur við samninffá, sem gerðir voru í Danmörku síðastliðið vor, — þar á með- al nokkra grunnkaupshækk- un, auk vísitöluuppbótar á kaupið, og lengingu árlegs orlofs með fullu kaupi úr tveimur vikum upp í þrjár. Halda menn nú að nokkrum heilvita manni í Ðanmörku hafi dottið í hug, að stimpla baráttu dönsku verkalýðs. samtakanna fyrir þessum kjarabótum sem verk komm únista? Nei, svo vitlausir eru ekki einu sinní neinir íhalds- menn í Danmörku, þó að Morgunblaðið og aðstandend ur þess séu hins vegar svo skyni skroppnir, að þeir teb'i Wiðstæða baráttu verkalýðs- félaganna hér, fyrir svipuð- um eða sömu kjarabótum vera kommúnistum einum að kenna eða bakka' Morgunblaðið veit þó vel, að verkálýðsfélögin hér eru nú svo einhuga um þær kjara bótakröfur, er þau hafa gert, að þess eru fá dæmi áður. Og það veit líka, að í hópi þeirra verkalýðsfélaga, sem verkfall gera um næstu mánaðamót, ef til kemur, eru mörg, sem stiórnað er af yfirlýstum lýð ræðissinnum, — annað hvort aljbýðuflokksmöimum einum eða af þeim og sjálfstæðis- mönnum í sameiningu. Engu að síður heldur það áfram að stimbla alla þá, sem að kiara bótabaráttu verkalýjðsins standa, sem kommúnista eða ginningarfífl þeirra! Hvað ei?a Ivðræðissinnar í verka- lýðsfélögunum, sem nú beri- a°t harðri baráttu fyrir þvi að rétta hlut verkalýðsins, en eru víðofiarri allri samúð með valdabrölti og moldvörpu starfi kommúnista. að segja um slík skrif? Heldur Morg- unblaðið að þeir puni hætta þeirri baráttu sinni fyrir bað eitt. að þvf bóknast að setia á hana stimnil kommúnism- ans? Er bað ekki öllu lík- legra að árangurinn af skrif- um þess gæti orðið nokkurt vatn á mvllu kommúnista, sem bað fullvrðir svo ákafí, að séu e’nir um bað, að Vrefi- ast kiarabóta verkalýðnum til handa? f ÍÖlfkvídf} Fyrir nokkru mátti líta þennan fjölskyldu- ' * hóp, gyltu með 15 grísum í dýragarðinum í London. En það voru fleiri en gestir úr mannheimum, sem þótti gaman að horfa á grísahópinn. Lamadýrið efst á mynd- inni hefur einnig verið einkar athuguli áhorfandi hans. Bœkur og höfuudar: Unaðsstundir Sigurðar Einarssonar Sálarrannsóknafélag Islands heldur fund í Iðnó föstudaginn 28. nóvember kl. 8,30 e. h. Fundarefni: Frú Soffía Haraldsdóttir segir fréttir frá útlöndum. Félagsskfrteini við innganginn. Stjóminu 65 tonna vélhátur eikarbyggður með 155 ha. Atlas-Imperialvél, troll- spili og trollútbúnaði, er til sölu og afhendingar strax. Upplýsingar gefnar daglega kl. 2—4. KRISTJÁN GUÐLAUGSSON hæstaréttarlögmaður, Austurstræti 1, sími 3400. AB — AlþýðublaðiS. Otgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri Stefán Pjeturssou. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Auglýsingastjóri: Emma Möller. — Ritstjórn- ersímar: 4901 og 4902. — Auglýslngasíml: 4906. — Afgreiðslusíoi- 4900. — Alþýðu- prentaniðjan, Hverflsgötu 8—10. Askriftarverð 15 kr. á mánuðt: 1 kr. í lausasðlu [ RÖSKIR tveir tugir ára eru nú liðnir síðán ég kynntist séra Sigurði Einarssyni fyrst. Þau kýnni okkar urðu þó skamm. vinn; léiðir okkar skildi og haia ekki legið saman síðan. Hann var maður umdeildur á þeim érum; lét margt og mikið til sín taka í ræðu og riti; hafði ein- hvern veginn lag á því að velja sér jafnan vígstöðu þar sem bardaginn . var harðastur og engir aukvisar fyrir; tvíhenti þá sverðið og hjá hæði hart og fítt, en hirti minna um hitt, áð hlífa sér eða beita 'skildi. Það mun og mála sannast, að marg- ur hafi hlotið sár og sviða af sverði hans, enda voru hvassar eggjar þess og aldrei úr höggi dregið; var þá sízt að undra, þótt andstæðingarnir gerðu að honum harða hríð og vægðu honum hvergi; neyttu þess, að hann lá oft vel við höggi i á- kefð orustunnar. Um margt þótti mér séra Sig urður minna á víkitigana fornu. Einkum þó á einn þeirra; þann sem konungurinn sagði um, að gera mætti úr marga menn. Þau skömmu kynni, sem ég hafði af honum, sannfærðu. mig um það, að hinn vfgfúsi og vopnfimi maður væri ekki all- ur þar, sem hann varð heyrður og séður í orustubrakinu. Að eyru hans væru næm fyrir feg- urri hljómum en vopnagný, augu hans skyggn á æðri sýnir en þær, er við blöstu á vígveíli dagsins. En þessu virtist hann helzt vilja leyna, einhverra or. saka vegna; hann var bardaga- maður, og viðkvæmni átt; ekki við f þeim gráa leik. Samt sem áður gat hann ekki stillt sig um að leggja frá sér sverðið ein_ staka sinnum og grípa til hörp- unnar; en það voru ekki neinir mansöngvar, er hann kvað helzt við strengi hennar, heldur víghvöt og Darraðarljóð. Mörg voru kvæði þau snjöll, — á sína vísu, en alltaf hefur mér þótt, að of mjög gætti þar hrjúfra hljómasambanda stund arstríðsins, en of lítt þeirra mildari og mýkri tóngripa, sem ljóðin vöktu þó grun um, að væru skáldinu eiginlegri. En svona vildi séra Sigurður I kveða í þann tíð; kvæði hans' Sigurður Einarsson. voru „innlegg í baráttuna“, — og áfíu að vera það. Nú hefur séra Sigurður Éin_ arsson slíðrað sverðið, horfið úr orustunni og setið á friðarstóli austur í Holti undir Eyjaíjöil- um um nokkurt skeið. Þaðan hefur hann í ró og næði lifíð yfir farinn veg. Óg í kýrrð- inni hefur honum orðið harp- an nærtæk sem fyrr, enn erú strengjatök hans þróttmikil og hressileg, en þó er hljóm- urinn breýttur frá því, er hann skoðaði hörpuleikinn sem „inh- legg í baráttuna“. Nú leggur hann sál sína í leikinn; fyrir bragðið hafa hljómasamtoöndín öðlast þá dýpt og einlægrii, sem Krífur hjartað. Vöpnabrakið heyrist aðeins sem fjarlægt bergmál; þess í stað syngja silf- urtærar lindir og blær hvíslar í laufi um yndi unaðsstunda. „Yndi unaðsstunda' V hin ný. útkómna ljóðabók séra Sígurð- ar Einarssonar, er fagnaðar- fengur öllum þeim, sem Ijóðlist unna. ÖUum þeim, sem unna fögrum ljóðum fyrst og fremst vegna þess, að þaú eru fögur og búa yfir heiðum töfrum hugs- unar og máls, en meta þau ekki samkvæmt einhverri stefnu eða stíl, varðandi rím og höfuð- stafi. Sigurður íjötrar ekki lióðagerð sína neinni' sérstakri stefnu, hann kveður eins og andinn býður honum, og sam- kyæipt.. þeijyi tjáiungarkenpd^ sem hvert viðfangsefni vékur •riiéð h'ónum. Þess vegná veijSur geróMkt form kvæða hans um skáldin Tómas Guðmundssoni og Hálldór Kiljan Laxness, að sínu leyti eins og þessir tveir menn eru ólíkir. Það er siú’Jct út af fyrir sig, að finna hve'rju viðfangsefni það tjáriingarform, er óbéinlínis túlkar eðli þess; og svíp. En orðávalið og geðblrer hendinganna ber hins vegar svo sterk pérsóriuleg eínkertr.i, að heildarsvipur ljóðar.na í bók inni verður samfelldur, og: hver meðalfróður maður um Skáld- skap myndi þegar þekkja þöf- undinn, hvar sem hann kyimi að rekast á einstök kvæði. Karlmannlegur, yillaus t-’Sgi og söknuður einkennir mþ. ; kvæðin í þessari .nók og f'--'st þeirra, sem bezt eru. Þar hcrfir skáldið um öxl til líðinnar æsku og æskukynna, en bað er ekki lífsþreyttur og sorgmædd- ur maður, sem knýr strengi minningan.na, heldur æðrulaust karlmenni, sem þakkar hverja þá yndisstund, sem æskan veitti honum, en tekur dóinsúr- skurði lífsins sem óumflýjarúeg um og sj'álfsögðum. Og enn veit harin marga yndisstuncl á næsta leiti og bíður þeirra :með einlægri tilhlökkun: „Þótt á mér sjái ellimörkin 1 senn, og úlfgrá verði brátí mín dökka skör, þá vittu, að ég er íil í tómi enn að táka slag úr okkar gömlu vör. Og láta gnoð við léttra hlátra bíæ og Ijósar veigar taka fleygi- skrið um heillar nætur víðan vöku- sæ, unz vitar fölna og dagur skín á mið.“ Meðal kvæðanna í þessari bók eru nokkur, sem hiklaust má skipa í flokk með fégurstu og bezt kveðnu Ijóðrærium kvæðum, sem birzt hafa á 'síð- ari árum. „Þrjú ljóð um látna konu“, „Kvæðið um Síu-sú“ og ,Se:ður jarðár", og eru . þó dæmin valin af handaihófi. Væri freistaridi að birta erindi 'ir þeim kvæðum fíl sönnunar, — en slíkt væri í rauninni -kemmdarverk; slík kvæði verður maður að lesa í heild. En garpurinn vigvanl, sem nú héfur slíðrað sverðið, horfir ekki eingöngu um öxl. Harm horfir líka fram, fránum aug- um, og skelfist hvergi, þótt vá- legar sýnir mæti þar sjónum hans: „Síðan friðui* var boðaður , toeyri ég klukku hringja tovellt og dimmt —-------— ' Ég er heimsins klukka, ( og hvað ég boða, veit énginn, , með hækkandi raust , mun ég skelfa hjörtun og mola sálnanna múrá - ■ miskunnarlaust. : — Svo býður mér höndin, ! sem heldur í strenginn.í* Það er hverjum hugsandi manni.holít, að méga njóía ynd is þessara únaðsstunda með skáldinu í Hóíti; hlýða hörpu- slætti hins lífsreynda bardaga- manns og æðrulausa karlmenn is, sam nú virðist hafa korriizt i nánari tengsl við dýpstu rök lífsins, fegurð þess og vonir, það sem bardagagnýr dagisins og valmóða .felur eyrum manns ög augúm. Og þessi Ijóð sýna, að margt fagurt ljóð og kjarn- yrt kvæði muni hann enn yrkja, ef ævin leyfir. „Yndi unaðsstunda“ er rösk- ar átta arkir að stærð, í hóf- legu bróti; ytri frágangur er smekklegur og pappír góður, en örfáar prentvillur hafa slæðst inn í bókina, og eru þær alltaf bagalegar, þegar um Ijóð er ?ð ræð'a. Helgafell gefur bókina út, en Víkingsprent hefur séð uip prentunina. Tf/i Lóftur Guðbnm&fíéii. AB4

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.