Alþýðublaðið - 13.01.1953, Blaðsíða 3
ÚTVARP REYKJAVÍK
17.30 Enskukennsla; II. fl.
18.00 Dönskukennsla; I. fl.
18.30 Framburðarfcennsla í
'ensfcu, dönsku o11 esperantó.
19.20 Tónleikar: Ópereftulög
(plötur).
20.20 Erindi: Um hulendisgróð-
ur íslands; I. (Steindór Stein
dórsson menntaskólafcennari).
20.55 Undir ljúfum lögum: Carl
Billich o. fl. leika lög eftir
Grieg.
21.25 Gamlir tónsnillingar; II.: ‘
Jan Pieterszoon Sweelinck.
Páll ísólfsson talir um Swee
lincfc og leikur orgelverk eft-
ir hann.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Kammertónleikar (plöt-
ur): a) Kvarfett nr. 21 í D-
dúr (K575) eftir Mozart
(Kolisch-kvartettinn leikur).
b)Tríó nr. 1 í B-dúr op. 99
©ftir Schubert (Cortot, Thi-
baud og Casals leika).
23.00 Dagskrárlok.
Krossgáta Nr. 316
Lárétt: 1 málarekstur, 6 eyða,
"7 feiti, 9 tveir eins, 10 smekk,
12 gripir, 14 lifa, 15 utanhúss,
17 brunninn.
Lóðrétt: 1 ólangrækinn, 2
svöl, 3 mynni, 4 i kirkju, 5
!bítur í, 8 aðgæzla, 11 kurluðu,
13 borða, 16 greinir.
jLausn á krossgáfu nr. 315.
Lárétt: 1 sinnast, 6 ske, 7
autt, 9 Ok, 12'dý, 14 neru, 15
jast, 17 natnir.
Lóðrétt: 1 sjaldan, 2 nótt, 3
ás, 4 sko, 5 tekjur, 8 týn, 11
reki, 13 ýsa, 16 tt.
ÍL
\
Í
i
í
í
«- HANNES ÁHORNINU
Vettvangur dagsins
"‘"t
I
l
l
I
•-----•*
Nokkur orð um litla bók. — Milli élja. — Lausa
. . vísur Jórts Arasonar.
JÓN ARASON lieitir gamall:
vinur minn. Ég sá þess getið
í blaði í haust, er ieið, að hann
værj orðinn 75 ára, en ég trúði
því alls ekki, og liélt að um
prentvillu væri að ræða í blað
inu. En svo sögðu fleiri blöð
frá þessu, og það var jafnvel
haft eftir presti, svo að ég varð
að frúa. En svona eru sumir
menn, þeir dylja árin, halda
snöggum hreyfingum sínum og
léttleik, og lundinni heiðri og
bjartri, þangað til þeir kveðja
fyrir fullt og allt.
NOKKRU SEINNA sá ég, að
hann haíði senrt frá sér ljóða-
bók. Ég vissi það í gamla daga,
að Jóni var létf um að yrkja
og skellfi þá oft stökum á okk-
ur strákana, og þá allt af bros-
andi, enda m,an ég ekki eftir
honum öðru vísi. Ég fór strax
í bókabúð og náði mér í bók-
ina. Það var auðséð, að ekki
hafði neinn ríkisbubbi um fjall
að, því að útgáfan var ekki
skraut-leg, bókin lítil, óvenju-
lega lítil í sniði og lítið kostað
til hennar.
ÉN ÉG ER NÚ EÚINN að
lesa þessa bók nokkrum sinn-
um mér til mikillar ánægju.
Verkamenn, sem fást við vísna
gerð eiga ekki marga kosti að
koma vísum sínum fyrir almenn
ingssjónir, og þó kveða þeir
margir afburða vel. En hvers
vegna. þegja allir um slík kver?
Ástæðan er líklega, sú, að þessir
alþýðumenn éiga fáa kunningja
til að ýfa á eftir.
. ÞETTA er fyrsta vísan í bók.
inni:
Svo ei verði á svörurn hik,
sannleikskornum stráðu,
Iðunn kær, og augnablik
anda þinn mér Jjáðu.
OG SV'ONA kveöur Jón Ara-
son við vin sinn:
Talsvert hefur tilsýnd þín,
tapað litnum forna.
Nú er gamla gæran mín
grá á milli horna.
BÓKIN heitir „Milli élja“.
Það er ágætt nafn.. Verkamenn,
sem unnið hafa la'.iga. ævi, eiga
íáir stundir milli éljanna, en
margt flýgur af vörum liinna
orðhögu verkamanna — og oft
finnur maður einmitt þar skýr
asta gullið, til alþýðunnar sæk-
ir maður málið, orðsvörin og
kjarnann. Þangað hefur mér
allfaf gefizt bezt að leita.
OG HJÁ ÞEIM er arfurinn,
aflið, sem feður okkar og mæð
ur skópu, og sem við viljum
oft gleymia. Það er gömul og
ný saga, að jafnvel í éljunum
hafa bgztu lausavisurnar verið
kveðnar. í þessari lítiu Ijóða-
bók eru nær eingö.igu lausavís
ur.
Hannes á borninu.
UR OLLUM ATTUM
í DAG er þriðjudagurinn 13.
janúar 1953.
Næturvarzla -er í Laugavegs
fipóteki, sími 1616.
Næturvörður er í læknavarð-
gtofunni, sími 5030.
! FLUGFERÐIR
IFlugfélag íslands, síml 6600:
í dag verður flogið tú Akur-
eyrar, Bíldudals, Blönduóss,
Flateyrar, Sauðárkróks og Vest
rnannaeyja. Á morgun er áætl
að að fljúga til Akureyrar,
Hólmavíkur, ísafjarðar, Sands,
Siglufjarðar og Vestmannaeyja.
SKIPAFRÉTTIR
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavífc
10. þ. m. fil Leith, Grimsby og
Boulogne. Dettifoss fór frá
Reykjavík 3. þ. m. til New
York. Goðafoss fór frá Akur-
eyri í gær til Ólafsfjarðar,
Siglufjarðar og Húnfalóahafna.
Gullfoss er í Kaupmannahöfn.
Lagarfoss kom til Kauptnanna-
hafnar í fyrradag, fer þaðan í
dag lil Gautaborgar, Leith og
R ykjaivíkur- Selfoss fór frá
ísafirði í gær til Flafeyrar,
Þingeyrar, Bíldudals, Patreks-
fjarffar, Grundarfjarðar og
Reykjavíkúr. Tnöllaifoss kom
til Reykjavíkur 3. þ. m. frá
New York.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell fór frá Reykjavík ’
9. þ. m. áleiðis til Kaupmanna-
hafnar. Arnarfell er í Stokk-
hólimd. Jökulfell fór frá Akra-
nesi 5. þ. m. áleiðis til New
York.
Rikisskip.
Hekla fer frá Reykjavík í
dag austur um land í hringferð.
Eisja fór frá Reykjavík í gær-
kveldi vesfur um land í hring-
ferð. Herðubreið fór frá Rvík í
gærkveldi til Húnaflóa-, Skaga
fjarðár. og Eyjafjarðarbafna.
Þyrill er í Faxaflóa.. Skaftfell-
ingur fór frá Reykjavík í gær-
kveldi til Vestmannayeja. Bald
ur frá frá Reykjavík í gær-
kveldi til Búðardais.
BLÖÐ OG TÍMARIT
Tímaritiff Úlfljótur hefur
borizt blaðinu. Blaðið er gefið
út af Orator, félagi laganema.
Er þetta fjórða og síðast hefti
s.l. árs. Ritstjóri þess er Magn-
úb Óskarsson, en ritiff sjálft,
sem er 40 síður að stærð, er
hið myndarlegasta og úfgefend-
um til sóma, Efni þessa heftis
er þefta: Frávikning embættis-
manna og réttaréhrif hennar,
eftir Jón P. Emils (með mynd); i
Erindi flutt á aðalfundi Ora-
tors 4. nóv. 1953, eftir próf. Ól-
af Lárusson (sem fær enga
mynd); Ógleymanleg sæluvika
í boði norskra laganema, eftir
Þorv. Ara Arason (hann fær
tvær myndir), og yfirlit yfir
störf Orators 1951—1952, eftir
Hafstein Baldvinsson, fyrrv.
form. Orators (sem fær enga
mynd). Sitthvað fleira er til
fróðleiks og skemmtunar. For-
maður Orators er nú Þór Vil-
hjálmsson.
Félagar í FUJ, Reykjavík,
eru beðnir að arthuga, að
skrifstofa félagsins í Alþýðu-
húsinu er opin alla þriðjudaga
milli 5.30—7 og í.immtudaga
milli 8—9. Verður ársgjöldum
þá veitt viðtaka og stjórn fé-
iagsins verður við til rabbs og
ráðagerða.
F U N D I R
Bræffraféiag Laugarnessókn-
ar. Fundur í kjallarasal kirkj-
unnar kl. 8.30 annað kvöld.
Takið með ykkur nýja félaga.
Fermingarbörn fríkirkjunnar
eru beðin að koma til viðtals
í kirkjuna ó fimmtudaginn kl.
6.30. Séra Þorsteinu Björnsson.
Auglýsið
í Alþýðublaðinu
Auglýsina
m söluskaff.
Athygli söluskattskjddra aðilja í Reykjavík skal vab-
in á því, að frestur til að sklia framtali til skattstofunn-
ar um söluskatt fyrir 4. ársfjórðung 1952 rennur úr 15.
þ.m.
Fyrir sama tíma ber gjaldendum að skila skattinurn
fyrir ársfjórðunginn til tollstjóraskrifstofunnar og af-
henda henni afrit af framtali.
Reykjavík, 12. jan. 1953.
Skattstjórinn -í Reykjavík.
Tolistjórinn í Rej'kjavík.
Stokkseyringafélagið í Reykjavík.
.. NÝBÓK:
Saga Slokksevrar
Bélstaðir og búendur
í Sfokkseyrarhreppl
eftir Guðna Jónsson magister,
er komin út.
Stórmerkilegt fræðirit, sem skapa mun þáttaskipti
í héraðssagnaritun.
Áskrifendur geta vitjað bókarinnar í Hólaprent,
Þingholtsstr. 27. Bókin fæst einnig í bókaverzlunum.
STJÓRNIN.
Tllkynnlíig um símaskrá Reykjavíkur
og HafnðrfjarÖar.
Vegna útgáfu hinnar nýju símaskrár, óskast breyt-
ingar við Reykjavíkurskrána sendar skriflega skrifstofu
Bæjarsímans í Reykjavík, í Landssímahúsinu, herbergi
205 II. hæð, fyrir 24. janúar næstkomandi.
Tilkynningareyðublöð eru í Símaskránni (bls. 9).
Símanotendur í Hafnarfirði eru beðnir að afhenda
breytingartilkynningarnar símastöðinni í Hafnarfirc5i.
Bæjarsímastjórinn í Reykjavík.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og virðingu við and-
lát og jarðarför
SIGURGEIRS GÍSLASONAR,
fyrv. verkstjóra og sparisjóðsgjaldkera í Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Marín Jónsdóttir.
Jensína Egilsdóttir,
Margrét Sigurjónsdóttir,
Svanhvít Egilsdóttir,
Guðríftur Eiríksdóttir,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Gísli Sigurgeirsson.
Halldór M. Sigurgeirsson.
Jan Morávek.
Kristján Sigurftsson,
Þorvaldur ÁVnason.
PÁLL KR. GUÐMUNDSSON
frá Arnarholti, andaðist 1. þ. m. í Landakotsspítala. — Vero-
ur jarðaður miðvikudaginn 14. janúar kl. 1,30 frá Dómkirkj-
unni. •
Aðstandendur.
Alþýðublaðið F 3