Alþýðublaðið - 14.01.1953, Page 3
ÚTVARP REYKJAVÍK
17.30 íslenzkukennsla; II fl.
38.00 Þýzkukennsla; I. fl.
18.30 Barnatími.
19.30 Tónleikar; Óperulög (plöt
ur).
20 .30 Upplestur: ..Romeó og
Júlia“, úr apókrýfum sögum
r eftir Karel Capek (Karl Guð
r mundsson leikari).
21.00 Symfóníuhljómsveitin;
dr. Victor Urbancic stjórnar:
1 Lítil svíta fyrir strengjasveit
' eftir Carl Nielsen.
21.20 Vettvangur kvenna. —
Erindi: Erá Ítalíuferð (frú
Sigríður J. Magnússon).
21.45 Tónleikar (plötur).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 ,,Maðurinn í brúnu föt-
unu.m“, saga effir Agöthu
' Christie; II. (frú Sigríður
Ingimarsdóttir).
22.35 Dans. og dægurlög: Ella
Fifzgerald syngur (plötur).
23.00 Dagskrórlok.
HANNES A HOBNIND
Vettvangur dagsins
Nýjar eldspýtur — Hjálpum lömtiðum — Nauð-
synlegt hjálparstarf — Eftirliíið — Einangrun
þeirra, sem selja dýrt.
Krossgáta
Nr. 317
Lárétt: 1 klukkuás, 6 stilltur,
% slór (slanguryrði), 9 eyða, 10
íiúsdýr, 12 fleirtöluending, 14
jtíndu, 15 gagnleg, 17 reiður.
Lóðrétt: 1 hegning, 2 leyni-
Bamningar, 3 ryk, 4 íugl, 5
(kvæði, 8 skinnpoka, 11 stugg-
tiðu burtd, 13 lélegur, 16 um-
|>úðir, sk.st.
(Lausn á krossgátu nr. 316.
. Lárétt: 1 saksók.n, 6 sóa, 7
$ólg, 9 rr, 10 dám, 12 fé, 14
Itóra, 15 úti, 17 sangur.
Lóðrétt: 1 sáttfús, 2 köld, 3
jös, 4 kór, 5 nartar, 8 gát, 11
Biólu, 13 éta, 16 in.
FYRIR NOKKRU var stofn-
aff ' félag hér í Reykjavík til
hjálpar og affstoffar viff lamað
fólk. Slíkur félagskapur er til
í flestum menningarlöndum, og
hefur hann látiff margt gott af
sér leiða. Starfsemi félagsskap
arins er hér enn á byrjunar-
stigi, en þaff er ekki aff efa, að
þaff mun geta hjálpaff inörgum,
encla er sannarlega ekki van-
þörf á því.
LÖMUNARVEIKIN hefur far
ið illa með marga fyrr og síðar.
Margir foreldrar hafa átt í mikl
um erfiðleikum með lömuð
börn sín, því að af hálfu hins
opinbera hefur til skamms tíma
verið lítillar aðstoðar eða hjálp
ar að vænta. Sérstakléga hefur
verið erfit.t að fá hæfar umbúð-
ir og er það ekki fögur saga.
NÚ STENDUR það til bóta
og hefur Tryggingastofnun rík-
isins haft Það mál með höndum
að nokkru undanfarið, en fleira
þarf að gera og það er hlutverk
hins nýja félags. En til alls þarf
fé. Nú hefur félagið hafið fjár
söfnun, sem allir geta tekið
þátt í án þess að þeir verði þess
varir. Félagið hefur í samráði
við tóbakseinkasöluna gefið út
eldspýtur, sem merktar eru fé-
laginu og gengur hluti af verði
hvers stokks, 10 aurar, til fé-
lagsins.
Á ANNARRI HLIÐ stokks-
ins er mynd af Hekui, en hinni
er miði, sem sýnir mann með
hækjur, en fyrir neðan stendur
..Hjálpið lömuðum.“. — Biðjið
kaupmann ykkar um þesasr eld
spýtur. Hver eyrír. sem félagið
fær, gengur til lijálpar lömuð-
um og vel getur safnast álitleg
fjárupphæð á þennan hátt.
VEL MÁ VERA, að almenn-
ingur muni ekki eftir því að
biðja um þessar sérstöku eld-
spýtur, og veltur þá mjög mik-
ið á verzlunarfólkinu að það
haldi einmitt þsssttm eldspýt-
um að fólki, spyrji að minnst.a
kosti hvort kaupandi vilji fá
þær. Það er yfirleitt sk.ylda
allra að hjálpa eins og þeir
geta. Og hér er um hjálp að
ræða. sem ekki er erfitt að láta
í té.
SIGTRYGGUR SKRIFAR:
,,Þú hvattir til þess að fyrir
áramótin, að alrnenningtir
reyndi að halda úppi verðlags-
eftirliti á eigin spýtur, og að
blöðn brtu við og við verð á
helztu nauðsynjavörum, svo að
almenningur gæti fylgzt með
því að rétt verð vaéri á vörun-
um. Tvö blöð nófust strax
handa með þetta, ea svo kom
ríkisstjórnin einnig til h.jálp-
ar og er ekki nema gott um það
að segja, og nú eiga blöðin fyr-
ir hennar atbeina aö birta
skýrslur við og við.
ÞETTA HERUR oröið til
þéss, að í ljós heftir komið, að
verð er mjög misjaínt í búð-
unum — og ber alfnenningi
sannarlega að gjalda varhuga
við. Það munar jaínvel meira
en heilli krónu á kííói á vöru,
sem ekki kostar mikið. Ég skil
ekki afstöðu þeirra manna, sem
þora að selja einstakar vörur
miklu hærra verði en aðrir. En
ég vil fastlega skora á húsmæð
ur í bærium að fylgj.ast vel
með. Við erum enn í baráttu
um að lækka dýrtíðina. Hver
ein og einasta húsmóðir á að
hjálpa til þess að kveða níour
okur- og dýrtíðardrauginn11.
Hannes á hornimi.
í DAG er miðvjkudagurinn
14. janúar 1952.
Næturvörður ér í Laugavegs-
japóteki, sími 1616.
Næturvarzla er í læknavarð-
gtofunni, sími 5030.
I FLUGFEEÐIR
í dag verður flogið til Akur-
leyrar, Hólmavikur, ísafjarðar,
Sands, Siglufjarðar og Vest-
Jnannaeyja. Á morgun verður
flogið til Akureyrar, Blöndu-
ráss, Fáskrúðsfjarðar, Neskaup-
staðar, RJeýðarfjarðar, Sauðár-
Ikróks, Seyðisfjarðar og Vest-
smannaeyja.
SKIPAFRÉTTIR
JEimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
10. þ. m. til Leith, Grimsby og
Boulogne. Dettifoss er í New
York, fer þaðan væntanlega 16.
jþ. m. til Reykjavíkur. Goðafoss
tör frá Ólafsfirði í gær til
Siglufjarðar og Húnaflóahafna.
Gullfoss er í Kaupmannahöfn.
Lagarfoss fór frá Kaupmanna-
fiöfn í gær til Gautaborgar,
L ith og Reykjavíkur. Reykja-
fo :s íór frá Rotterdam í gær
tii Antwerpen og ReykjavEkur.
Selfoss fór frá Patreksifrði x
gær til Grundarfjarðar og
Reýkjavíkúr. Trölláfoss fer frá
Reýkjavík í dag til Ncw York.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell fór frá Reykjavík
9. þ. m. áleiðis til Kaupmanna-
liafnar. Arnarfell fer væntan-
lega frá Stokkhólmi í dag áleið
is til Reykjavíkur. Jökulfell
fór frá Akranesi 5. þ. m. áleið-
is til New York.
Ríkisskip.
Hekla fór frá Reykjavík í
gærkveldi austur úm land í
hringferð. Esja var á ísafirði í
gærkveldi á norðurleið'. Herðu-
breið er á Húnaflóa á austur-
leið. Þyrill er í Faxaflóa. Skaft
fellingur er væn+anlegur til
Reykjavíkur í dag.
F U N D I R
Bókbindarafélag íslands held
ur fund í Edduhúsinu kl. 5,15 í
dag.
Esperantstar.
Munið fundinn í Edduhúsinu
í kvöld kl. 9.
Kvenfélagiff Edda. Prentara-
konur haida fund í kvöld í
prentarafélagshúsinu, Hverfis-
götu 21, kl. 8V2 stundvíslega.
— * —
Þakkir.
AlþýðuflokksféIagið í Kópa-
vogshreppi þakkar öllum þeim,
er veittu aðstoð sína við
skemmtun eldra fólks í félags-
heimilinu síðastliðinn sunnu-
dag og lögðu fram kraft.a sína
til þess að skemmtunin yrði
gestunum sem ánægjulegust.
Stjórn félagsheimilisisn.
Laugarnessólcn:
Fermingarbörn í Laugarnes-
prestakalli, sem fermast eiga á
árinu 1953, eru beðin að koma
til viðtals í Laugarneskirkju
(austurdyr) á morgun k'l. 5 e. h.
Félagsvist
verður í félagsheimili Al-
þýðuflokksins, Kársnesbraut
21. ' miðvikudaginn 14. janúar
kl. 8,30 e. h.; góð skemmtun
og gott kaffi á eftir. Þeir, sem
hafa hugsað sér að teka þátt. í
brige-fceppni gefi sig fram ó
félagsvistinni, eða í sími 6990.
Séra Emil Björnsson
biður börn, sem eiga að ferm
ast hjá honum á árinu 1953, ð
koma til viðtals í Austurbæjar
skólanum kl. 8.30 í .-ivöld,
Leiffrétting.
Nokkur orð féllu niður hér í
blaðinu í gær í grein Guð-
mundar Hagalín um Hannibal
Valdimarsson fimmtugan. Átti
málsgreinin, sem brenglaðist,
að vera þannig: Hannibal ólst
upp í Arnardal til 9 ára aldurs,
en þá tók faðir hans sig upp og
hóf búskap á Bakka í Arnar-
^firði og bjó þar til ársins 1917.
Auqlýsing
um áburð
Áburðarpantanir afhendist til skrifstofu vorrar
fyrir 15. febrúar næstkomandi.
Þessar áburðartegundir eru væntanlegar og verðiff
áætlaff:
Kalkammoníaksaltpétur
Ammonsúlfatsaltpétur
Þrífosfat
Kali klórsúrt
Kali brennisteinssúrt
Blandaour áburður
Tröllamjöl
Af blandaða áburðinum verður aðeins lítið magn,
aðallega til garðræktar.
Tilskilið er, að áburðurinn sé greiddur við afhend-
ingu. Allar pantanir séu komnar fyrir 15. febr.
Reykjavík, 12. janúar 1953.
Áburðarsala ríkisins
20V2 75 kg. kr. 78.00
26 %1 75 kg. kr. 100,00
43 % 100 kg. kr. 157,00
50 % 100 kg. kr. 80,00
50 % 100 kg. kr. 114,00
10-12-15 % 50 kg. kr. 72,00
50 kg. kr. 65,00
1®
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík
heldur ÁRSHÁIÍÐ sína
og minnist jafnframt
FIMMTÁN ÁRA AFMÆLIS
síns föstudaginn 16. janúar klukkan 8,30 í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu.
TIL SKEMMTUNAR:
1. Ávarp: Formaður félagsins.
2. Leikþáttur.
3. Söngur.
4. Kvikmyndasýning.
5. Upplestur: Einar Magnússon menntaskólakennai'i
6. Dans.
AÐGÖNGUMIÐAR verða seldir hjá Sigríði Einarsdóit-
ur, Karlagötu 3, 'sími 4304, Elízabetu Arndal, Hringbi’aut
78, sími 80159 og við innganginn.
íiiiiiitiiiBllffftiiliiMMilHÍfiiiiiiimiiiiiiiraMiiiiiiiHHiiiniiiiiHHiiiiiiiiiHiii^HÍliiiiiiiiiinííÉllÍiiiiiiiHniiiiiiii^mniitffitfBnimiiiiiijimiiiimiiiimiiiiniiiiiBrý
![!l!lllli:il!li!!U!l!ll!!!l!lllllllllill!!ni!l!lll!l!inllllll!llllIlinÍ!|l|I||l»!l|!l]]!!ll
Saltkiöl
Spaðsaltað í hálftunnum og kútum,
fyrirliggjandi.
Garðar Gíslason hJ\
Sími 1500.
miffliiinii!nii!i!iiiiiiiiiiniiiii!iiiiiiiiiiii!!i!]iiiiii!iiiiíiiiiiii!iniRiii!mii!iiimiiiiuu!!!nimiii!!iiiiiim!iiiiuHiiiii]ii!iii!iiiii!!wiin!BS!uiuRi!iiEiini]iiiHmiii!riiiiiiíin;iimí
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför
KRISTJÁNS ALBERTS BJARNASONAR
frá BÍIdudal.
Marta Eiríksdóttir.
Ingimundur Hjörleifsson.
Eiginmaður minn
GÍSLI GÍSLASON
frá Skúmstöðum Eýrarbakka, verður jarðsettur frá Fossvogs-
kirkju, fimmtudaginn 15 þessa mán. klukkan 1.30 eftir hád.
Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna og barna-
barna.
Valgerffur Grímsdóttir
frá Óseyrarnesi.
Alþýðufolaðið ~ 3