Tíminn - 04.07.1964, Qupperneq 5

Tíminn - 04.07.1964, Qupperneq 5
RITSTJÓRl HALLUR SÍMONARSON 29 valdir tii æfinga fyrir Bandaríkjaför — Undirbúningur hafinn hjá Körffuknattleikssambandinu vegna keppmsferðar landsliðsins, Samið hefur verið vSS 5 aðila um leiki i f fréf+atillcynninigu frá Körfuknattleikssambandi íslands segír, að landsliðsnefnd KKÍ hafi valið fyrir skemmstu 29 pilta til æfinga fyrir væntanlega för íslenzka landsliðsins til Bandaríkjanna í byrjun næsta árs. Þá er einnig skýrt frá væntanlegum mótherjum íslenzka liðsins, sem allt verða há- skólalið. Gert er ráð fyrir, að leiknir verði 12—14 leikir I förinni, sem verður KKÍ algerlega að kostnaðarlausu, en það eru samtök, sem nefnast „People to People Sports Comm ittee" sem buðu íslenzka landsliðinu í þessa för. Mun hún standa yfir í 3 vikur. Sem fyrr segir, hefur landsliðs- nefnd nú valið 29 pilta til æfinga, en æft verður á föstudögum í fþróttahúsi Vals við Hlíðarenda. Þjálfarar verða þeir Helgi Jó- hannsson og Einar Ólafsson. — Nöfn piltanna fara hér á eftir: Agnar Friðriksson, ÍR. Anton Bjarnason, ÍR. Blrgir Öm Birgis, Ármanni. Davíð Helgason, Ármanni. Elnar BoRason, KR. Einar Mathíasson, KFR. Flnnur Finnsson, Ármanni. Friðþjófur Óskarsson, ÍKF. Guðmundur Ólafsson, Ármanni. Gunnar Gunnarsson, KR. Guttormur Ólafsson, KR. Grímur Valdemarsson, Árm. Hjörtur Hansson, KR. Hörður Bergsteinsson, Skarph. Hólmsteinn Sigurðsson, ÍR. Hörður Kristinsson, Ármanni. Jón Jónasson, ÍR. Ingvar Sigurbjörnsson, Árm. Kristinn Stefánsson, KR. Kristján Ragnarsson, KR. Kolbeinn Pálsson, KR. Ólafur Thorlacius, KFR. Sigurður Ingólfsson, Ármanni. Tómas Zoega, ÍR. Magnús Sigurðsson, Skarph. Marinó Sveinsson, KFR. Viðar Ólafsson, ÍR. Vésteinn Eiríksson, Menntask. Laugarvatni. Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR. Samningar standa nú yfir í Bandaríkjunum við ýmsa skóla, sem tefla liðum fram gegn ísl- landsli'ðinu og hefur nú þegar ver ið samið við 5 aðila um leiki, en þeir eru: St. Michaels College, Winooski, Vermont. Plymouth State College, Plym., Vermont. Lið þessa skóla sigraði í New England State College Con- ference árið 1960. PORTISCH SIGRAÐI Ungverski stórmeistarinn Portisch þurfti ekki nema þrjár skákir til að sigra bandaríska stórmeistarann Reshevsky í einvígi þeirra um réttinn til að tefla á næsta áskorendamóti. Portisch hafði þá hlotið 2% vinning og einvíginu var lokið með sigri hans, en fyrirhugað var að tefla fjórar skákir. Sem kunnugt er voru Portisch og Reshevsky jafnir með 14V2 vinning á millisvæðamótinu í Amsterdam á dögunum, og þurti því einvígi til að skera úr hvor þeirra ætti að tefla 10 skáka einvígi við Tal á áskor endamótinu. Hinar einvígis- skákirnar á mótinu verða milli Larsen og Ivkov, Botvinnik og Smyslov, Keres og Spasski, eins og kom fram hér í blaðinu í viðtali Friðriks Ólaðssonar við Bent Larsen. Þess má geta, að Ingi R. Jóhannson vair að reyná að gera þá frétt tortryggilega í skákþætti sínum í Morgunblað inu, hverjar svo sem ástæður hans fyrir því voru, en heim- ildir hans voru úreltar og vill- aindi, eins og svo margt annað, sem Morgunblaðið birti í sam. bandi við millisvæðamótið. roffitsraa St. Anselms College, Manchest- er, New Hampshire. Central Conn St. og Springfield College, Springfield, Mass. Það var í Springfield, árið 1892, sem Dr. James Naismith, kenn- ari við íþróttaskóla KFUM þar í borg, fann upp nýjan leik, sem hann nefndi körfuknattleik. Körfuknattleikslið #Springfield Colelge hefir jafnan verið í fremstu röð háskólaliða í Banda- ríkjunum. Liðið sigraði í 62% af öllum sínum leikjum, frá árinu 1906 til ársins 1962. Þó eru það engir smáskólar, sem Springfield þarf að keppa við. Má nefna t. d. Yale, Cornell, Brandeis og Coast Guard Academy íþróttasalur Springfield College, þar sem landsliðið mun keppa, tekur 3200 áhorfendur í sæti. Á meðan á þessari keppnisför stendur munu piltarnir búa á heimavistum þeirra skóla, er keppt verður við. Gefst þeim þannig einstakt tækifæri til að kynnast amerísku. háskólalífi. Á miðvikudagskvöld setti j tvítugur Norðmaður, Terje Petersen, nýtt heimsmet í 1 spjótkasti. Hann kastaði 87. 10 metra. Þetta gerðist í landskeppni Noregs og Benelux á Bislet- leikvang- inum í Ósló. | Fram til Akureyrar Á SUNNUDAGINN klukkan 16 fer fram knattspymuleikur á Ak- ureyri og mætir þá lið ÍBA liði Frani úr Reykjavík. Mikill knatt- spyrnuáhugi er nú á Akureyri, en helzt hefur vantað lið til keppni við þá norðanmenn. Allar líkur eru á, að Akureyri endurheimti sæti sitt í 1. deild og verður fróð legt að vita hvernig liðinu vegnar gegn Fram. N ORÐURL AND AMÓTIÐ í bridge, sem háð var í Oslo (ný- lega, er liið 10, í röðinni. Sví- þjóð hefur unnið sjö sinnum í opna flokknum, Noregur þrisv- ar en hinar þrjár þjóðirnar l-.afa enn ekki koinizt á blað. í kvennaflokknum, er Svíþjóð einnig með flesta vinninga,) — cða sex, en Danmörk fjóra, en Finnland, ísland og Noregur liafa ekki átt sigurvegara þar. í nýafstöðnu móti tókst Sví um að sigra í báðum flokkum, en minni munur var þó í opna flokknum en fyrirfram var búizt við. Lokaúrslit og EBL-stig voru þannig: 1. Sví- þjóð 62 stig (1532—1278). 2. Danmörk 58 stig (1436—1218). 3. Noregur 49 stig (1318— 1316) 4. Ísland 37 stig (1209— 1454) og 5. Finnland 34 stig (1355—1454). Stigatala einstakra sveita á mótinu var þannig: 1. Svíþjóð 2 39 stig. 2. Danmörk 2, 33 stig \ 3. Noregur 1, 27. 4. Danmörk 1, 25 stig. 5. Svíþjóð 1, 23 stig. 6. Noregur 2, 22 stig. 7. ísland 2, 20 stig. 8. Finnland 2, 18 stig. 9. ísland 1, 17 stig. 10. Finnland 1, 16 stig. í kvennaflokknum urðu úr- slit þessi: Svíþjóð 22 stig (593 —355). 2. Danmörk 13 stig (605—420). 3. Noregur 13 st. (531—482). 4. Finnland 8 stig Framhald a 15. sfðu. Ulijj f|| Di Stefano seldur frá Real Madrid SÁ FRÆGI knattspyrnumaður, di Stefano, hefur nú verið seldur frá Real Madrid til Espanol í Barcelona og voru honum tryggðar sem svarar rúmlcga 2 millj. ísl. króna fyrir að skrifa undir eins árs samning. Di Stefano hefur um árabil verið í hóni snjöllustu knattspyrnu- manna veraldar — og sérstaklega orðlagður fyrir marksækni sína, en hann hefur leikið í stöðu miðherja. Ásamt hinum ung- verska Puskas lagði di Stefano grundvöll að velgengni og frægð Real Madrid, sem fimm sinnum hefur orðið Evrópumeistari í knattspyrnu. Það vakti mikinn úlfaþyt, þegár það fréttist, að di Stefano væri kominn á sölulista félagsins fyrir nokkrum dögum og fæst- ir vildu leggja trúnað á þá frétt. Að sögn eru nú forráðamenn Real Madrid að yngja liðið upp — og þess vegna er „gömlu mönnunum“ kastað fyrir borð. HART ER BARIZT... Hart var barizt upp vlð mark Fram í fyrrakvöld og á myndinnl hér a8 of an sjáum v!3 ofsalega baráttu inni í markteig Fram. MarkvörSur hefur kastað sér í þvöguna og handsamar knöttinn. Sá hárprúði „bítill", Rúnar, styður sig vi8 Geir, hefur sennilega ekki sé3 hvað var að gerast. (Ljósm.: Tíminn, GE). T í M I N N, laugardaginn 4. júlí 1964

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.