Tíminn - 21.07.1964, Blaðsíða 2
Mámidagur 20. júlí.
NTB-Helsingfors. — Uro Kekk
onen, forseti Finnlands, sagði
f sjónvarpsviðtali í Austurríki,
sem opinberlega var skýrt frá
í Finnlandi í dag, að hann væri
mjög ánægður með, að stjórnir
Noregs og Danmerkur hefðu
rækilcga skýrt Krústjoff, for-
sæfisráðherra Sovétríkjanna,
fr' ' Mrri afstöðu sinni, að ekki
yr i levft að staðsetja kjarn-
orkuvopn í löndunum og að
Sovétríkin hefðu lýst yfir
trausti sínu á þessum yfirlýs-
ingum. Viðtal þetta var í sam-
bandi við hina svonefndu Kekk
oncn-áætlun, sem miðar að því
að gera Norðurlönd að kjarn-
orkuvopnalausi’ svæði.
NTB-Lui-'iúnum. — Papandre-
ou, forsætisráðherra Grikk-
lands átti í dag viðræður við
Richard Butler, utanríkisráð-
herra Breta um Kýpurvanda-
rnálið og á morgun ræðir hann
við brezka forsætisráðherrann
og leiðtoga Verkamannaflokks
ins. Á miðvikudag er von á
U Tnant, framkvæmdastjóra S.
þ. til Lundúna og mun þá hald
ið ftfram viðræðum um Kýpur.
NTB-Brussel. — Dirk Stikker,
yfirmaður Atlantshafsbanda-
lagslns, sem tekur sér frí frá
störfum um stundarsakir, sagði
í dag, að ummæli Barry Gold-
waters um nauðsyn öfgastefnu
undir sérstökum kringumstæð-
um og algerlega hernaðarlega
stjórn varðandi kjarnorbu-
sprengjur, gætu haft hinar al-
varlegustu afleiðingar fyrir
Atlantshafsbandalagið, ef hann
yrði kiörinn forseti, Sagði
Stikker, að ummælin um, að
kjarnorkusprengjur ættu al-
gerlega að lúta eftirliti her-
yfirvalda, hrytu í bága við
grundvallarsjónarmið Nato.
NTB-Walops Island. — Banda-
rískir vísindamenn sendu á
loft í dag svonefndar Ionavélar,
en þær geta breytt kvikasilfri í
rafagnir, eða svonefnd Ion, sem
skotið geta vélunum á gífurleg
an hraða. Tilraunin tókst í
alla staði vel og telja vísinda-
menn, að með þessari aðferð
verði hægt að koma geimfari á
braut upp í 320.000 km. hraða
á klukkustund.
NTB-Peking. — Forsætisráð-
herra Kínverska alþýðulýðveld
Islns, Chou En-Lai, hét því cnn
f dag, að Kína myndi styrkja
kommúnista í Norður-Vietnam
gegn ásókn bandarískra heims
valdasinna.
Óveðrið / Japan
grandaði alls 115
f
NTB-Tókíó, 20. júlí.
Lögregluyfirvöld í Tókíó skýrðu
frá því í dag, að alls hefðu 115
manns farizt í hinu ægilega óveðri,
sem gekk yfir miðhluta Japan
’um helgina. 21 manns er saknað,
224 hafa meiðzt og um 44.000
manns hafa misst heimili sín. Mik-
il flóð fylgdu í kjölfar óveðursins
og eru heil landsvæði en undir
vatni.
Sérstökum björgunarstöðvum
SÍLDAR-
AFLINN
Sunnudaginn 19. júlí: Fremur
óhagstætt veður var á síldarmið-
unum s. 1. sólarliring. Skipin voru
einkuni að veiðum í Reyðarfjarð-
ardýpi og á Gerpisflaki. Sfldarleit
inni var kunnugt um afla 32 skipa
samtals 12.850 mál.
Hoffell SU 200. Rifsnes RE 900.
Páll Pálsson IS 200. Margrét SI
500. Smári ÞH 150. Guðrún GK
300. Sveinbj. Jakobsson SH 100.
Jón á Stapa SH 500. Björgúlfur
EA 250. Víðir SU 250. Hilmir II
KE 250. Skírnir AK 300. Mímlr
IS 500. Eiriar Hálfdáns IS 200.
Stígandi OF 200. Jón Finnsspn
GK 650. Skagaröst KE 300. Akur-
ey SF 200. Kristján Valgeir GK
400. Ingiber Ólafsson KE 400. Sel
ey SU 500. Pétur Jónsson ÞH 350.
Hafþór NK 750. Sigurpáll GK 300.
Þórkatla GK 250. Blíðfari SH 600.
Bergvík KE 1000. Stapafell SH
150. Sólfari AK 900. Súlan EA
200. Björg NK 150. Guðbjörg GK
900.
Mánudaginn 20. júlí: Fremur
óhagstætt veður var á síldarmiðun
um s. 1. sólarhring. Skipin voru
einkum að veiðum í Reyðarfjarð-
ardýpi og á Tangaflaki. Síldarleit-
inni var kunnugt um afla 11 skipa,
samtals 4.500 mál.
Þórður Jónasson RE 1200.
Bergur VE 400. Baldur EA 400.
Mummi IS 500. Helga RE 700.
Kópur KE 150. Höfrungur III. AK
250. Sigurður AK 250. Sigfús
Bergmann GK 350. Vonin KE 150.
Sif IS 150.
NTB-Uppsölum. — Jarðfræði-
stofnunin við háskólann í
Uppsölum mældi í dag tölu-
vert mikinn jarðskjálfta, sem
örugglega er talinn stafa af
neðanjarðar kjarnorkusprening
um í Síberíu.
I hefur verið komið upp í skyndi á
j fjölda stöðum og vinna nú yfir
5000 menn við björgunarstörf und
ir stjórn lögreglunnar. Mörg þorp
liggja undir vatni og önnur hafa
grafizt í skriðuföllum. 11 manns
fórust í bænum Izumo á vestur-
strönd Japans, er skriða féll á bæ-
inn.
Fjöldi þorpa og smærri byggð-
arlaga eru algerlega einangruð frá
umheiminum, vegna þess, að allar
samgöngur hafa rofnað í náttúru-
hamförunum.
FYRSTA SALT-
SÍLDIN FLUTT
TIL FINNLANDS
EJ-Reykjavík, 20. júlí.
Helgafell lestaði í dag 4000
tunnur af saltaðri síld á Raufar
höfn og átti að sigla með það
áleiðis til Finnlands í kvöld. Er
þetta fyrsta síldin, sem flutt er
út frá Raufarhöfn á þessari ver-
tíð. 1
sjötugur
Stefán Jóhann Stefánsson, sendiherra íslands í Danmörku
og fyrrv. forsætisráðherra, átti sjötugsafmæli í gær. Hann var
einn af brautryðjendum Alþýðuflokksins og helzti forustucnað-
ur hans um alllangt skeið.
Stefán Jóhann er fæddur að Dagverðareyri við Eyjafjörð 20.
júlí 1894. Hann lauk lögfræðiprófi 1922 og rak síðan mál-
flutningsskrifstofu í Reykjavík um langt skeið. Hann var fyrst
kosinn á þing 1934 og átti sæti' þar nær óslitið til 1953. Hann
var félagsmálaráðherra 1939—41 og jafnframt utanríkisráð-
herra. Hann var forsætis- og félagsmálaráðherra 1947—49. Á
þessum tíma gegndi hann jafnframt fjölda annarra trúnaðar-
starfa. Hann var um skeið framkvæmdastjóri Brunabótafélags
fslands, formaður bankaráðs Útvegsbankans, formaður Trygg-
ingaráðs o. s. frv. Síðan 1957 hefur hann verið sendiherra ís-
lands í Kaupmannahöfn.
Stefán Jóhann var formaður Alþýðuflokksins 1938—53. Hann
tók við forustu flokksins undir erfiðum kringumstæðum, þar
sem flokkurinn var þá nýklofnaður. Stefán var stefnufastur
og skeleggur baráttumaður, er kaus heldur að vera í minni-
hluta en að víkja frá því, sem hann áleit rétt.
Kona Stefáns Jóhanns er Helga Björnsdóttir og hefur þeim
orðið þriggja sona auðið. Þau hjón hafa unnið sér vinsældir í
Danmörku.
Grjótflug brýtur rúður
P 5 bíIum við Selfoss
KJ-Reykjavík 20. júlí.
Fimm bifreiðastjórar komu til
Selfosslögreglunnar um helgina,
með brotnar framrúður í bifreið-
um sínum. Enginn þeirra gat séð
númerin á bílum þeim er þessu
ollu, og er það bæði tímafrekt og
seinlegt að finna viðkomandi bíla.
Lögreglan á Selfossi sagði að
mikið bæri á því núna að fram-
rúður bifreiða brotnuðu vegna
grjótflugs frá öðrum bifreiðum.
Eru það einkum þrír vegaspottar
sem eru hættulegir í þessu sam-
bandi: Undir Ingólfsfjalli, Flóa-
vegurinn og Holtavegurinn í Rang-
árvallasýslu.: Á þessum stöðucn
er mikið um smásteina á vegin-
um, og þegar hratt er ekið vill
spýtast undan hjólum bifreiðanna.
Sömu sögu er að segja ofan úr
Borgarfirði, og koma margir Öku
menn með brotnar framrúður til
Akranesslögreglunnar. Þar er
versti vegarkaflinn hvað þetta •
snertir, á Akranesveginum svokall
i aða, frá Norðurlandsvegamótunum
og niður á Akranes.
Vínlausu sveitabötön vinsæl
HF-Reykjavík, 20. júlí. (
Það hafa eflaust margir Reyk-j
víkingar lagt eyrun við, þegar
þeir í síðustu Viku lieyrðu aug-|
lýst ball uppi í Borgarfirði, og
skilyrðin fyrir inngöngu á ballið
voru : 1. þokkalegur klæðnaður,
2. prúðmannleg framkoma, 3. ekk-
ert áfengi. Þetta er árangur af
starfi Æskulýðsnefndar Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu sem í tæp!
tvö ár hefuir gert sitt tll að bæta j
úr sipillingu unglingauna, og nú j
ætla ýmis samtök í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum að gera tilraun
með sams konay dansléik í Vagla-'
skógi um verzlunarma'nnahelgina.
f fyrrasumar voru haldnir tveir
dansleikir þessarar tegundar í
Borgarnesi og i sumar er ráðgert,
að þeir verði þrír, tveir þeirra
hafa þegar verið haldnir. Aðeins
14—20 ára gamlir unglingar fá
aðgang. Unglingarnir virðast vera
mjög ánægðir með þetta, og allir
vilja, að þessu sé haldið áfram.
Dansleikirnir byrja klukkan níu
og húsinu er lokað klukkan tíu
og ekki er hleypt inn fleiri en
húsið rúmar. Löggæzlu á staðnum
annast unglingarnir sjálfir. Fyrir
utan dansinn eru skemmtiatriði á
boðstólum ,og lýkur dansleikunum
klukkan hálfeitt til eitt.
Það er ekki nóg með það, að
Æskulýðsnefnd Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu hafi haldið vínlausa
dansleiki, heldur hefur hún einnig
gengizt fyrir skemmtiferðum ungl
inga, og um miðjan ágúst næst-
komandi verður farið á Snæfells-
nes. í haust er svo ráðgert að
halda æskulýðshljómleika í Bif-
röst og verður reynt að fá þangað
deild úr Sinfóníuhljómsveitinni.
Áður hefur samkoma verið haldin
á vegum nefndarinnar í Bifröst,
Framhald 6 l&. i(8u.
NTB-Varsjá. — Forsætisráð-
herra Póllands, Jósef Cyrankie
wicz, afhjúpaði í dag við hátið
lega athöfn í Varsjá, styttu til
minningar um það, að 20 ár
eru liðin síðan kommúnista-
stjórnin var mynduð í landinu.
NTB-Havana. — Varnarmála-
ráðuneytið á Kúbu fullyrti í
dag, að bandarískur hermaður
í Guantanamo-herstöðinni hefði
skotið 19 ára gamlan kúbansk-
an hermann til bana.
Heildaraflinn 1,2 millj. mál og tunnur
Skýrsla Fiskifélags íslands um
síldveiðarnar norðan lands og
austan laugardaginn 16. júlí.
Veiðiveður var yfirleitt gott s.
1. viku. Allur síldveiðiflotinn var
að veiðum út af Austfjörðum á
svipuðum slóðum og áður. Viku-
aflinn nam 217.499 málum og
tunnum en var 72.710 mál og tn.
á sama tíma í fyrra. Heildarafla-
magnið var í vikulokin orðið
1.239.870 mál og tunnur saman-
borið við 508.704 mál og tunnur á
sama tíma í fyrra.
Aflinn hefur verið hagnýttur
sem hér segir:
1964 1963
í salt upps. tn. 73.851 170.620
í bræðslu mál 1.147.718 320.291
í fryst. uppm. tn. 18.301 17.787
Bræðslusíldaraflinn skiptist
þannig eftir löndunarstöðum:
Siglufjörður 207.622 mál. Ólafs-
fjörður 11.872 mál. Hjalteyri 39.
011 mál. Krossanes 76.188. Húsa-
vík 20.509. Raufarhöfn 198.510.
Vopnafjörður 142.287. Borgar-
fjörður 11.150. Bakkafjörður
14.835. Seyðisfjörður 100.909.
Eskifjörður 66.461. Neskaupstað-
ur 139.000. Reyðarfjörður 61.656.
Fáskrúðsfjörður 43.703, Breiðdals
vík 14.005.
2
T í M I N N, þrlðjudagur 21. júlí 1964.