Tíminn - 26.07.1964, Side 15
Skák
48. Hb7, Dxb4 49. Hxf7t, Kh6
50. Kc2.
Riddarinn leggur síðustu hönd á
verkið. Svartur gafst upp. —
Snilldarlega vel tefld skák af
hálfu Stein.
GOLDWATER og JOHNSON
Framhaid aí 7 síðu
úðar gegn Bandaríkjunum í
öllum heimsálfum. Enginn af
bandamönnum okkar í Evrópu,
Suður-Ameríku né Asíu feng-
ist til að taka þátt í krossferð
okkar gegn kommúnismanum
hvarvetna um heim, máske með
aðstoð kjarnorkuvopna, nema
ef til vill Chiang Kai-shek á
Formósu.
Bandamenn okkar væru
fjarri því að vilja elta okkur
út í þá ævintýralegu fásinnu.
Hitt yrði aftur á móti höfuð-
viðfangsefni þeirra, hvernig
þeir ættu að fara að því að
varðveita Bandaríkin þar til
þau hefðu öðlazt andlega heil-
brigði á ný.
JÓN SIGURBJÖRNSSON
Framhald aí 8. síðu.
um grundvelli, það er óhætt að
segja það. í rauninni eru þar
nú þrjú leiksvið, gamla aðal-
leiksviðið, litla tilraunaleiksvið
ið og nýlega tóku þeir á leigu
bíó-leikhúss í borginni, þar
sem aðallega eru settar á svið
sýningar fyrir skólafólk, og
þar var „Rómeó og Júlía“ flutt
í vetur fyrst og fremst fyrir
unglinga og þó með úrvalskröft
um eins og hinum snjalla Ulf
Palme.
— Hvaða leiksýningar eru
þér minnisstæðar, sem þú
sást þar í vetur og vor?
— Þær voru margar svo
ágætar, en ég held sú stór-
fenglegasta hafi verið „Hver
er hræddur við Virginiu
Woolf?‘ eftir unga ameríska höf
undinn Edward Albee. Fyrst og
fremst var Karin Kavli alveg
stórslegin í aðalhlutverkinu,
enda fékk hún verðlaun fyrir
hlutverkið, en allir aðrir voru
líka hreinustu perlur og hefðu
öll átt skilið verðlaun. Af öðr
um fjarska góðum sýningum á
Dramaten var „Sem yður þókn
ast“ eftir Shakespeare og
„Svæk í síðari heimsstyrjöld-
inni eftir Brecht. Eða
þá „Teenagerlove", sem höfund
urinn setti á svið og Jarl Kulle
lék Billy ógleymanlega. Og þó
er sagt, að þessi leiksnillingur
hafi fallið tvisvar á prófi í
leikskólanum. En kannski það
hafi verið vegna þess að hann
var frá Skáni, því Stokkhólms
búar gefa nú ekki mikið fyrir
málfarið á þeim Skánverjum,
sem þeir segja víst um það
sama og Dani, að þeir tali
eins og þeir séu með „gröt i
halsen“. En af leiksýningum á
Dramaten skal ég nefna síðast j
en ekki sízt eina ógleymanlega.
Hún nefndist „Portrat af fem
kvinnor::, hlutverk úr \
fimm leikritum öll leikin af
einni konu, sem var engin önn
ur en Inga Tidblad, þessi
„grande dame“ sænska leikhús
lífsins. Hún tók alla leikhús
gesti um leið og hún kom inn
á sviðið. Og allir voru í
leiðslu þangað til hún gekk út
af sviðinu. Það var nú leiklist,
sem sagði sex!
Já, Dramaten er sannarlega
voldugt leikhús, eins og Har
aldur okkar mundi komast að
orði.
— Þú ætlar vonandi ekki að
leggja leiklistina á hilluna eft
ir að þú sezt að sem húsfreyja
í Svíþjóð?
— Eg er ákveðin í að týna
því ekki niður, sem ég kann og
raunar að halda áfram að læra,
býst við að ganga í einkatíma
í Stokkhólmi þegar ég fæ tíma
frá búverkunum.
| SKATTSKRÁIN
Framhald af 1. síðu.
! munu því vera margir, sem
samt telja sig ekkert ofsæla af
t launum sínum, er lenda í
flokknum fimmtíu þús. kr.
skattgjaldstekjur og verða því j
samkvæmt skattstiganum að
greiða 30% af launum sem
þar eru umfram. Af því staf-
ar að þeir, sem telja sig litlu
betur setta í launum nú en
fyrir ári, er þeir þurftu að
greiða í kringum tíu þúsund kr.
í opinber gjöld, verða í ár að
greiða allt að tvöfalda þá upp-
hæð, eins og hverjir aðrir há-
tekjumenn, þótt krónutalan sé
orðin þeim næsta gagnslítil er
hún á að standa undir kostn-
aðinum við daglegt viðurværi,
eins og verðlagið er orðið.
Þótt Stefán Björnsson vildi
yfirleitt sem minnst láta hafa
eftir sér í ár um útsvarsálagn-
inguna, sem unnin er undir
hans stjórn eftir kerfisbundn-
um reglum og síðan reiknuð í
vélum, sagði hann að almenn
tekjuhækkun hefði óhjákvæmi-
lega töluvert að segja. Hann
kvaðst ekkert hafa í höndunum
um það í hvaða þrepi skatt-
stigans allur þorri launafólks
lenti, enda hefði engin sam-
antekt verið gerð um slíkt.
Við þetta vill Tíminn bæta
því einu við, að eftir fréttum
að dæma af útsvarsseðlum,
munu þeir verða all margir í
ár, sem þurfa að greiða milli
tuttugu og þrjátíu þúsund kr.
í opinber gjöld, og eru því vel
inni á efsta þrepinu hvað
skattgjaldstekjur snerti. Það
virðist því allt koma fyrir ekki,
þótt eitthvað sé verið að hækka
frádráttinn. Dýrtíðarskrúfan
sér fyrir öllu slíku.
BÍLADEKK
ísoðin, notuð:
900x18“, 900x16“,
1050x13“, 825x20“,
750x20“, 700x17“,
670x15“, 650x16“,
600xl6‘.
Fæst hjá Kristjáni Júlí
ussyni, Hrísateig 13,
sími 22724.
c^Cáíet
Hringbraut
Simi 15918
ÓEIRÐIR í NEW ORK
Framhald af T. ilðu.
mannvígum, en fjöldi manns
meiddist þar á meðal lögreglu
stjórmn-. Bifreið -hans var
og -■ • : -.
Auglýsið í Tímanum
BINDINDISMÓT
gereyðilögð og einnig f]öldi
annarra bifreiða, sem var velt
eða kveikt í.
Sjúkralið, sem kallað var á
vettvang neitaði að fara inn á
bardagasvæðið, nema undir
sterku lögreglueftirliti. Á með
an þessu fór fram notfærði
fjöldi manna sér ástandið til
þessa að stela úr verzlunum og
íbúðarhúsum, og segja sjónar-
vottar, að ruplararnir hafi flutt
á brott með sér stór sjónvarps
tæki, alls konar húsgögn og
feikn af vínföngum. Gang-
stéttir og búðarveggir voru at-
aðir blóði, því að margir þjóf-
anna skárust illa, er þeir brut-
ust í gegnum búðarglugga.
Klukkan hálf fimm í morgun,
eftir staðartíma, geisuðu óeirð
irtíar enn, sem taldar eru hinar
mestu til þessa í New Yórk.
Leiðtogar blökkumanna
koma saman til fundar um helg
ina til að ræða hið alvarlega
ástand í New York, en óttazt
er, að óeirðir brjótist víðar út
er á helgina líður.
AÐEINS ÞRÍR DAGAR
Framhald af 16 síðu.
Á Mýrum, í Snæfells- og
Hnappadalssýslu, í Dölunum og í
Barðastrandasýslu var alls staðar
sama sagan, t. d. sagðist frétta-
ritari blaðsins í Dölum telja þetta
lélegri heyskapartíð en komið
hefði í mörg undanfarin ár. f
Haukadal og Suðurdölunum hefur
þó verið eitthvað skárra. Túnin
eru forblaut og úr sér sprottin.
í Borgarfirði mun heyskapurinn
hafa gengið heldur skár. Þó eru
bændur mjög misjafnt á veg komn
ir, þeir að sjálfsögðu bezt, sem
súgþurrkun hafa. Lítið hefur ver
ið hægt að vera við hey þessa
viku, en bændur töldu þó útlitið
ekki slæmt, ef fljótlega gerði
þurrk.
Framhaiá ai 16. stðu.
Héraðssamband Þingeyinga, vonast
til að fólk taki höndum saman um
að skemmta sér í Vaglaskógi um
verzlunarmannahelgina á hollan-
og heilbrigðan hátt.
í SALT OG BRÆÐSLU
Framhald aí 16. síðu.
972,70). Alls hafa því ríkis
verksmiðjurnar tekið á
móti 525.390,95 málum mið
að við 171.166,18 í fyrra. i
Söltunarstöðvarnar í land j
inu höfðu 23.júlí saltað alls ]
90.032 og %tunnu. Þar af ,
var saltað á Siglufirði 2318 I
tn., á Ólafsfirði 1264, í Hrís
ey 883, á Húsavík 1463, á
Raufarhöfn 26.908 og %, á
Þórshöfn 661, á Bakkafirði
417, á Vopnafirði 4490, í
Borgarfirði eystra 805, á
Seyyðisfirði 24.010, á Nes-
kaupstað 8733, á Eskifirði
7283, á Reyðarfirði 4879,
á Fáskrúðsf. 3470, á Stöðv-
arf. 897, á Beirðadalsvík
1039 og á Djúpavogi 517 t. .
Hæsta söltunarstöðin á j
landinu er Ströndin á Seyð- í
isfirði, en hún hafði saltað |
6353 tunnur 23. júlí. Hæstu
stöðvarnar á þeim stöðum,
þar sem fleiri en ein sölt
unarstöð er, eru þessar: Á
Siglufirði Nöf 802, íslenzk
ur fiskur 725, á Ólafsfirði
Stígandi 902, Jökuli 362, á
Húsavík Hjaltvík 982, Barð
inn 300, á Raufarhöfn Óð-
inn 6111, Hafsilfur 5394,,
Borgin 3987, á Seyðisfirði "
Ströndin 6353, Hafaldan
6133, á Neskaupstað Ás
2238, Drífa 2226, á Eski-
firði Auðbjörg 4522, á
Reyðarfirði Gunnar 1753 og
á Fáskrúðsfirði Hraðfrysti-
hús Fáskrúðsfjarðar 1978 _
HÓLMVERJINN
Fratnhaie at 16 síðu.
Bjargmundssonar. Á forsíðu er
mynd af Hólminum, og fremst í
blaðinu er grein um ferðamanna-
bæinn Stykkishólm. Þá er sagt frá
gömlum byggihgum í Hólminum,
greint frá vertíðarlokum og afla
báta, grein um æskuna, nokkur
Ijóð, dægradvöl og spurningar-
keppni. Allmargar myndir eru í
blaðinu og fréttir frá Stykishólmi.
Blaðið Hólmverjinn er til sölu hjá
Eymundsen, í Söluturninum við
Hreyfil og hjá Blöndal á Skóla-
vörðustíg. — Fróðlegt blað og
fallega úr garði gert.
ÖXLAR
með fólks- og vörubíla-
hjólum fyrir heyvagna
og kerrur. Til sölu hiá
Kristjáni Júlíussyni,
Hrísateig 13. sími
22724.
FERÐAMENN
Framhaid af 1. sítSu.
er tjald við tjald, og öll gistihús-
eru setin. Guðrún Ásgeirsdóttir,
hótelstýra á Eiðum, sagði, að mik-
ið hefði verið að gera í júlímánuði,
fólkið sækti mikið í sólina og sum
arið á Héraði, og a.m.k. hjá sér
væru íslendingar í miklum meiri
hluta. Á Eiðum er pláss fyrir 100
gesti, þar af 30 svefnpokapláss,
sem eru mjög vinsæl, ef eitthvað
er að veðri, en undanfarna daga
hafa þau lítið sem ekkert verið
notuð.
KJARAKAUP
Til sölu hús í Kópavogi á
mjög góðu verði ef samið
er strax.
Tilboð sendist Tímanum
merkt tækifæri.
LOKAD
Lokað vegna sumarleifa til 18. ágúst.
^ristinn Jónsson
VAGNA-BILASMIÐJA
Verkstæði - Iðnaðarmenn
Hentugar litlar margföldun
arvélar fyrir efnis- og launa
útreikning ávallt fyrirliggj
andi. Sendum í póstkröfu
niTVÉLAR & BÖND S.F.
Sími 35989. P. O. Box 1329
Útför elglnmanns míns og föður,
Jóhannesar Backmanns Jónssonar
Vesturgötu 63, Akranesl,
er lézt 22. iúlí s.l. fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 29.
júlí kl. 2. Blóm afbeðin. Þeim, sem vildu minnast hans er bent á
sjúkrahús Akraness.
Stelnun Ólafsdóttlr,
Ólafur J. Bachmann.
Faðir okkar,
Sigurður Péturson
sem andaðist 21. þ. m. verður jarðsunginn fimmtudaginn 30. þ. m.
kl. 10,30, frá Fosvogskirkju. Athöfninni verður úfvarpað.
Hörður Slgurásson,
Kristján Sigurðsson.
T I M I N N, sunnudaginn' 26. júlí 1964
15