Tíminn - 16.08.1964, Qupperneq 16
r
Sunnudagur 16. ágúst 1964.
184. tbl.
48. árg.
LAGAN
ARA
GEFUR VERDLAUNIN
TIL BARNAHEIMILIS
NTB-Long Beach, 15. ágúst.
Tuttugu og eins árs gömul feg-
urSardís frá Fllippseyjum, ungfrú
Cruz, var í nótt kjörin Miss
International í fegurðarsamkeppn
Héraðsmót á Sauð-
árkróki
Héraðsmót Framsóknarmannr. í
Skagafjárðarsýslu verður haldið á
Sauðárkróki, sunnudaginn 23.
ágúst og hefst það kl 20.30.
Ræður flytja alþingismennirn-
ir, Einar Ágústsson, bankastjóri og
Ólafur Jóhannesson prófessor
Smárakvartettinn á Akureyri
syngur og Jón Gunnlaugsson gam-
anleikari skemimtir. Gautar leika.
ÓLAIFUR
Mót í Borgarfirði
Framsóknar-
menn í Borgar-
fjarðarsýslu
halda héraðsmói
að Brún, Bæjar
sveit í kvöld
kl. 21. Ræðu
flytur Eysteinn
Jónsson formað
ur Fraimsóknar
Eysteinn flokksins. Hinn
vinsæli Ómar Ragnarsson skemmt-
ir. Dúmbó sextett og Steini leika
fyrir dansinum.
inni á Langasandi í Kaliforníu.
Mikia athygli vakti, að hin ný-
kjörna fegurðardís lýsti því yfir
strax eftir krýninguna, að hún
myndi gefa öll verðlaunin til
styrktar byggingu barnaheimilis
í heimaborg hennar, Manila.
Ein og kunnugt er voru 15
stúlkur valdar til undanúrslita á
miðvikudaginn og var íslenzki
þátttakaridinn, Elísabet Ottósdótt
ír í þeim hópi. Hún komsl hins
vegar ekki i raðir þeirra 5 fyrstu,
sem kjörnar voru í nótt. Númer
tvö í keppninni varð fegurðardís
frá Bandaríkjunum, Ann Taylor,
næst kom ungfrú Sikiley, Vera
Locia Dos Santos, þá Ungfrú Bret
land, Tracy Ingvamp og loks Ung-
frú Finnland, Maria String.
Hin nýkjörna Miss International
sem er há, grönn og dökk á brún
og brá talar reiprennandí ensku,
spönsku, frönsku og tagaloghom,
sem er mállýzka á Filippseyjum.
Hún er af mjög göfugum ætt-
um á Filippseyjum og er föður-
bróðir hennar t. d. sendiherra á
Spáni.
Verðlaunin, sem . hún hlýtur
nema um 420 þúsundum íslenzkra
króna.
ÞINGI I ROM
BG-Reykjavík, 15. ágúst.
Dagana 31. júlí—13. ágúst var
haldin í Rómaborg 6. alþjóðaráð-
stefna háskóíastúdenta frá Atlants
hafsbandalagslöndunum. Ráðstefn-
una sátu 43 fulltrúar frá öllum
15 aðildarríkjum bandalagsins. Af
liálfu íslands sátu ráðstefnuna
laganemamir Kristján Torfason,
Óttar Yngvason og Björn Guð-
mundsson. Ráðstefnan var hald
in á vegum Nato og ítölsku stjórn
arinnar. Fundir voru haldnir á
hinu glæsilega stúdentaheimili,
Casa Internazionale dello Stud-
ente á Foro Italico í Róm og
þar bjuggu þátttakendur einnig.
Ráðstefnan var formlega sett
þann 1. ágúst og flutti þá Aless
andro Farace, frá ítalska utan-
ríkisráðuneytinu fyrirlestur um
utanríkisstefnu ítala og aðild
landsins að Nato.
Reglulegir þingfundir hófust
3. ágúst og var þannig hagað, að
fyrir hádegi voru fluttir fyrirlestr
ar um ýmis mikilvæg mál, sem
varða Atlantshafsríkin sérstak-
lega, en að því búnu komu þátt-
takendur með fyrirspurnir til
fyrirlesara. Voru umræður mjög
fjörugar og rætt um málin af
hreinskilni. f upphafi ráðstefnunn
ar skiptust þátttakendur í tvo
hópa, svonefndar vinnunefndir
og hélt hvor nefnd umræðufundi
síðdegis, eftir hvern fyrirlestur,
þar sem nánar voru rædd ýmis
málefni, sem fyrirlesturinn gaf
tilefni til. Stóðu fundir þessir í
2—3 klukkustundir og voru um
ræður mjög miklar og gagnlegar,
þar sem þátttakendur greindu frá
sjónarmiðum sínum og skiptust á
skoðunum á frjálslegan hátt.
Hvern fund voru viðstaddir full
trúar frá Nato eða ítölsku stjórn
inni, en þátttakendur sjálfir
stjórnuðu umræðum. Fyrirlestr-
ar voru haldnir á frönsku eða
ensku og þessi tungumál einnig
notuð á nefndarfundum, og allar
ræður túlkaðar jafnóðum, eftir-
því sem við átti.
Fulltrúar ítölsku stjórnarinnar
eða öllu heldur ítalska utanríkis
ráðuneytisins sáu um framkvæmd
ráðstefnunnar, sem var vel skipu-
Framh. á 15 síðu
íslenzku þátttakendurnir á ráSstefnunni, frá vinstri: Óttar Yngvason, Kristján Torfason og Björn Guðmundss.
Skortur á drykkjar-
vatni í þéttbýlinu
EJ-Reykjavík, 15. ágúst.
I dag lauk ráðstefnu norrænna
vatnafræðinga, sem staðið hefur
yfir í Ilagaskólanum síðan 10.
ágúst. Blaðamenn ræddu lítillega
við formenn scndincfndanna fimm,
og kom þar fram, að ört vaxandi
þéttbýli og fólksfjölgun skapar
víða mikil vandamál í sambandi
við neyzluvatn, og þarf oft að
flytja það langar leiðir. Af
Norðurlöndunum á þetta einkurn
við um Danmörk og Svíþjóð.
Mót þetta er hið fjórða í röð-
inni, en þau hafa verið haldin að
undanförnu á Norðurlöndum tíl
skiptis á 3ja ára fresti. A þessum
ráðstefnum eru rædd þau mál-
efni innan vatnafræðinnar, sem
efst eru á baugi og jafnan gefið
yfirlit yfir vatnafræði þess lands,
sem mótið er haldið í. 84 fulltrú
ar sitja ráðstefnuna, þar af 44
erlendír, en alls eru erlendu gest
irnir 65 talsins. Alls voru flutt 18
erindi á ráðstefnunni, þar af sjö
um ísland. Sigurjón Rist, vatna-
mælingamaður, lagði fram erindi
um vatnsrennsli í ám, Adda Bára
Sigfúsdóttir talaðí um úrkomu
og hita, Guðmundur Kjartansson
um jarðfræðilegar skýringar á
mismun lindaáa og dragáa, Jón
Eyþórsson um jökla og mælingar
á þeim og Sigurður Þórarinsson
um jökulhlaup og mælingar
þeirra. Jón Jónsson flutti erindí
um grunnvatn og sprungumynd
anir í nágrenni Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar, Guðmundur Pálma
son um heita vatnið ojj Páll
Theodórsson, Bragi Árnífon og
Sigurjón Rist lögðu fram erindi
um notkun geislavirkra efna við
mælíngar á rennsli í ám. Erindi
erlendu fulltrúanna fjölluðu eink
um um ísburð og krapamyndanir
í ám, nýjar aðferðir við úr-
STILSKOLAR NYJUNG
í SKÁ TASTARFISVÍA
FB-Reykjavík, 15. ágúst.
Hingað til lands er kominn
sænskur skátaforingi, Margareta
Broon, og mun hún stjórna nám-
skciði fyrir ljósálfaforingja, sem
verður við Úlfljótsvatn fyrstu
vikuna í september. Margareta
sagði blaðamönnum í dag frá
ýmsum nýjungum í skátastarfinu
í Svíþjóð, meðal annars frá hin
um svokölluðu stílskólum, sem
skátar annast nú kennslu í í Sví-
þjóð.
Margareta Broon hefur verið
starfsmaður sænska skátabanda-
lagsins um árabil. Þar hefur hún
aðallega annazt foringjaþjálfun
og þá fyrir öll aldursskeiðin, sem
skátastarfið nær fyrir, allt frá 9
ára ljósálfum tíl 2S ára svanna.
Hingað kemur hún í boði Banda-
lags íslenzkra skáta, og mun dvelj
ast hér í 3—4 vikur. Auk foringja
námskeiðsins á Úlfljótsvatni mun
hún halda hér fræðslunámskeið
um mál skáta og skátaforingja.
Um stílskólana sagði Margareta:
— Við höfum tekið að okkur að
kenna ungu fólki allt, sem við
Framhaid á síðu 15.
vinnslu vatnamælinga, notkun raf
eindareiknivéla, tölfræðilegar að-
ferðir við gagnaúrvinnslu, burðar-
þol ísa, leysingar og leysingavatn
ásamt snjómælíngum.
Blaðamenn ræddu stuttlega við
formenn sendinefnda hinna ýmsu
landa, þá Allan Sirén frá Finn-
landi, Gunnar Nybrant frá Sví-
þjóð, Jakob Otnes, Noregi, Jörgen
Lundager Jensen, Danmörku, og
Sigurjón Rist, íslandi. Sögðu þeir,
að ört vaxandi þéttbýli ásamt fólks
aukningunni hefði skapað erfið-
Framh. á 15. síðu
Sigurjón Rist