Alþýðublaðið - 10.05.1953, Blaðsíða 3
Sunnudaginn 10. maí 1953
ALÞÝÐUBLADIÐ
S
ÍTYARP REYKJÁYÍK
3,1.00 Almennur bænadagur:
j Messa í dómkirkjunni (bisk-
up íslands, herra Sigurgeir
; Sigurðsson, prédikar. Séra
Jón Auðuns dómprófastur
[ þjóar fyrir altari. Organleik-
iari: Páll ísólfsson).
13.15 Ávarp frá S.lysavarnafé-
laginu: Kristján J. Reykdal
fulltrýi talar um eldvarnir.
20.35 Erindi: Iona, — eyjan
helga; fyrra erir.di (Jóhann
Hannesson kristniboði).
21.15 Dagskrá slysavarnadejld-
arinnar ,,Ingólfs“ í Reykja-
v.í'k: a) Ávarpsorð (séra Ósk-
ar J. Þorláksson formaður
deildarinnar). b) Erindi:
Slysavarnir (Ársæll Jónas-
son kafari).
son kafari). d) Lokaorð (séra
Óskar J. Þorláksson). Enn
fremur tónleikar af plötum.
22.05 Danslög af plötum —- og
auk þess leikur Hawaítríóið
á Akranesi.
HÆNNES Á HORNINU
Vettvangur dagsing
Hörmulegur atburður í Aðalsiræti
Ósæfu-
samir unglingar
Viðhorf verfarendanna
Gleymska þjóðfélagsins — Kvenfélag Neskirkju
Krossgáta
Nr. 402
Lárétt: 1 sjófugl, 6 hvíldu, 7
tæp. 9 forsetning, 10 stanz, 12
verkfæri, þ'f., 14 heita, 15 fund
pr. 17 kvenmannsnaifn, þf.
Lóðrétt: 1 gæfuríka, 2 hafði
yndi af, 3 hætta, 4 handiðna,
5 gæfan, 8 grjót, 11 vatnsfall,
13 eyðsla, 16 rúmmálseining,
sk.st.
Lausn á krossgátu nr. 401.
Lárétt: 1 krossar, 6 úði, 7
flug, 9 af, 10 rot, 12 lá, 14
sýra, 15 dró, 17 signir,
Lóðrétt: 1 kafalds, 2 okur, 3
sú, 4 aða, 5, riftar, 8 gos, 11
JTýri, 13 ári, 16 óg.
STEFAN SKRIFAR á þessa
ieið: „Ég varð heyrnar- og sjón
arvottur að svo liörmulegum,
atburði í Aðalstræti fyrir utan
Adlonbar á föstudaginn, að ég
álít rétt að segja þér frá hon-
um, svo að þú getir gert hann
að umtalsefni, ef það mætti
verða til þess að vekja sam-
vizku oklcar og björgunarvið-
leitni. j
TVEIR KORNUNGIR þiltar,
á að gizka 18 ára gamlir, komu
út af barnum og varð þeim
eitthvað sunduroröa, Báðir
voru þeir mikið drukknir og
það skipti engum tegurn, að
þeir réðust hvor á annan, rifu
föt hvors annars, spörkuðu og
slógust eins og óargá dýr.
NOKKRIR VEGFARENÐUil
horfðú á þetta með hryggð í
svipnum. og í djúpri alvör.u, en
mikill meirihluti viðstaddra
gláp.ti á þes'sa vesalinga, fiyss-
andi og með kersknisorð á vör
um.. Datt mér í hug, að þelta
fólk myndi. ekki horfa í það
að greiða aðgangseyri, ef í boði
væri að, sjá niðurlægingu og ó-
gæfu ungmenna.
MÉR VAR SAGT, að þessir
piltar væru frá góðum. heimil-
um, en þeir gerðu ekki neitt
drykkju flestá daga og flækt-
ust um. fyrir hundá og manna
fóturn. Eáðir voru þessir piltar
myndarlegir á velli, en ekki gat
ég betur séð en að ógæfan lýsti
af svipnum, sjálfskvöiin skæri
sína djúpu drætti í úng andlit-
in og gerði þau torkönnileg.
HVERS VEGNA eru svona
ungmenni ekki tekín og ein-
angruð? Hvers vegna gerir þjóð
félagið ekki tilraun til þess að
bjarga mannslífunum? Alfreð
Gíslason læknir og fleiri góðir
menn hafa barizt fyrir því ár-
um saman, að þjóðfélagið hefji
biörgunarstarf á þessu sviði.
Nokkuð hefur sótt í áttina, en
ekkert upptökuheimiH hefur
enn verið sett á stofn, og þess
vegna ber sú starfsemi. sem
begar er komin á fót. ekki þann
árangur, sem hún gæti borið.
ÉG RÆDDI um þessi mál við
man-n, sem hefxir unnið biörg-
una'rstarf meðal ofdrykkju-
manna árum saman. Hann sagði
mér, að björgunarstarfið væri
næstum því alveg vonlaust. Að-
eiris einn af hverium tíu sneru
við af óheillabrau+inni. en hin-
ir níu væru eins og smitberar.
Þá þyrftí að taka úr umferð,
einangra þá við hörð störf, en
góða aðhlynningu, þar til von
væri um að þeir hefðu bjarg-
ast og sleppa þeim svo til
revnslu.
ÉG.GET VEL trúað, að þetta
sé rétt. Hér er ekkert að gera
nema að auka vandræðin. Hér
rís upp hver svínastían á fæt-
ur annarri. Verzlunarhúsnæði
og jafnvel íbúðir eru gerðar
að börum. Allir græða á þeim.
En gróðimn er tár og hörmung
ógæfusamra ungmenna' og and-
vökur foreldranna. Ríkisvaldið
verður að láta sig þessi mál
meira skipta en gert hefur ver
ið. í von um að svo verði, skrifa
ég þér þetta bréf“.
BRÉFIÐ talar sínu jmáli.
Athugasemdir eru óþarfar.
Framhald á 6. síðu.
í DAG er surniudagurmn 10.
snaí 1953.
SKIPAFRETTIR 1
Ríkisskip:
Hekla fór frá Reykjavík í
gær austur um land í hring-'
ferð. Esja er í Reykjavík.
Herðubreið fer frá Reykjavík
á þriðjudaginn austur um lan.d
4il Raufarhafnar. Skjaldbreið
fór frá Reykjavík í gær til
Breiðafjarðarhafna. Þyrill verð
u,r væntanlega á Alcureyri í
dag.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell kom við í Azoreyj
txm 8. þ. m. á leið til Reykja-
víkur. Arnarfell fór frá Reykja
vík 8. þ. m. áleiðis til Finn-
lands. Jökulfell fór frá Reykja
vík 6. þ. m. áleiðis til Austur-
Þýzkalands.
F U N D 1 R
StarfsstúlknafélagiÖ Sókn
heldur fund á morgun (rnánu
dag) kl. 9 e. h. Mætið vel og
fitundvíslega.
_. * —
Hvítabandið
heldur bazar mátiudaginn 11.
maí í Góðtemplarahúsinu uppi
Húsið verður opnað kl. 3 e. h.
Fjöldi ágætra muna. Konur,
gerið góð kaup og styrkið gott
málefni.
PALL JÓH. ÞORLEIFSSON stórkaupmaður
andaðist 8. þ. m. eftiri stutta legu.
Vandainenn.
Hnífsdalssöfnunin:
Kristjana K. Hjaltalín, Brok
| ey, kr.'lOO. B. H. S. kr. 100.
Jónína Pétursdóttir kr. 50 og
bækur. Smiðir í Langholtsskóla
150. Elín Þóra Guðiaugsdóttir
100. Magnús Guðlaugsson 100.
G.uðjón B. Guðlaugsson 150.
Jiensína Gunnlaugisdóttir 100.
Indriði Gunnlaugsson 100. Hlíf
Gunnlaugsdóttir 100. Ólafur
Gunnlaugsson 100. Haraldur
Sigvaldason 100. N. N. 100.
Skipverjar á bv. H\ialfelli kr.
2650,00.
Vesalingarnir í kvöld.
Leikfélag Reykjavíkur hefur
nú sýnt hið stórfenglega leik-
rit Vesalingana eftir Victor
Hugo tíu sinnum og verður ell-
efta sýning í kvöld. Aðsóknin
að þessu íeikriti heftir verið
mjög. góð, með líknra ha&tti og
að fyrstu sýnirigunum. á kín-
verska leikritinu „Pi-pa-ki“ í
fyrra, en af þv í að starfstími
leikfléagsins er útrunninn í
þessum mánuði, ættu menn
ekk'i að draga að sækja sýning
una fram á síðustu stund, því
þá getur orðið erfitt að ná í
aðgöngumiða.
Frá Kvenfélagi
Bústaðásóknar.
Félagið heldur bazar í Góð-
templarahúsinu þriðjudaginn
12. maí.
12. maí mín er spá
margur happi gæddur.
Gúttó enginn fétar frá
fyrr en vel er klæddu,r.
Borðin verða blómum skre.y tt
brosandi frúrnar standa.
Selja stykkin eitt og eitt
afgreiðsluna vanda.
Sitt af hverju safnað var
svæflum, teppum, mottum,
sagt er líka að sjáist þar
sitkagreni í pottum.
Birkihríslur bjóðast loks
bærilegt er að tarna.
Kænlega máluð kökubox,
konurnar fá þarna.
Á bazar er allt að fá
og nú til hans boða,
allan kroppinn klæða má,
komið þið fljótt að skoða.
Auglýsið
í Alþýðublaðinu
ÍBíI
\ \ X
. . . skaða Iiuðina - gera hana hrjúfa
og slokka. þessvegna skyldi maður óvalt , ,
nudda N’ivea-kremi rækilega á hú&ino \ fmk
óður en fariö er út i siæmt ve&ur. \ |Sý
Nivea-krem veitir örugga .vernd, eykur
motstöðuafl húðarinnar, og ge’rir hana
mjúka og stæita. Hr;uf og rauð hilö logast
næturlangt og verður aftur slétt og faileg.
ir;nihe!dur Eucerií, írá pví sfafa EtEn
dásantiegu áhrif.
m
Samkvæmt 10. og 11. gr. Heilbrigðiss'amþykktar
fvrir Reykjavík er lóðaeigendum skylt að halda lóðum
sínum hreinum og þrifalegum.
Lóoaeigendur (umráðendur) eru hér með áminntir
um að flytja burtu af lóðum sínum allt„ er veldur ó-
þrifnaði og óprýði og hafa lokið því fyrir 1. júni næst-
komandi. Hreinsu,nin verður að öðrurn kosti fram-
kvæmd á kostnað þeirra.
Upplýsingar
3210 og 80201.
í skrifstofu borgarlæknis, símar:
Reykjavík 9. maí 1953.
HEILBRIGÐISNEFND.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
iiii:
Fallegar, ódýrar vor- og sumarkápur í fjöíbreyttu
úrvali.
Kápuverzíunin, Laygsvegi 12.
Knatíspyrnumóf Reykjavíkur
heldu,r áfram í dag
kl. 4.30
þá keppa:
FRAM - ÞRÖTTÚR
Dómari: Haukur Óskarsson.
Mótanefmliii.
jllulilulllllllllliilllljlllllulWil