Tíminn - 02.10.1964, Blaðsíða 15
Nýtt orgel í Selfosskirkju
ÓJ-Selfossi, 1. okt.
Á sunnudaginn komu hingað á
Selfoss margir þekktustu orgel-
leikarar landsins í tilefni af því
að lokið er uppsetningu á nýju
og vðnduðu pípuorgeli í Sel-
fosskirkju af Steinmeyer-gerð.
Pípuorgel þetta er mjðg vandað
og af fullkomnustu gerð. í því
eru 29 raddir, þar af 7 raddir úr
gamla Dómkirkjuorgelinu er síðast
var á ísafirði. Þessar gömlu pípur
eru úr mjög fágætum viði, og
voru þær sendar út til lagfæringar
og endurnýjunar. Á orgelinu eru
tvö tónborð ásamt fótspili, radd-
tenging öll mjög fullkomin og víð
höfð nýjasta tækni sem gerir
organleikaranum auðvelda alla
meðferð hljóðfærisins.
Þessu stóra og mikla orgeli er
komið fyrir á söngpalli kirkjunn-
ar, og setur mikinn svip á kirkj-
una. Tveir menn frá Steinmeyer
verksmiðjunum hafa unníð að upp
setningu þess síðustu sex vikumar,
Ari
heldur
fyrírlestur
LAUGARDAGINN 3. okt. mun
Ari Brynjólfsson iaagister halda
fyrirlestur á vegum Fiskifélagsins
um geislun matvæla með sérstöku
tilliti til fisktnetis. Ari Brynjólfs-
son starfar nú við kjamorkurann
sóknastöð danska líkisins í Risö
og er yfirmaður þeirrar deildar,
sem fæst við rannsóknir á sviði
geislunar m. a. matvæla, til að
auka geymsluþol þeirra.
Hér er um að ræða mál, sem
snertir mjög alla framleiðslu sjáv
arafurða til manneldis, sem er
megin hluti alls útflutnings fs-
iendinga og því afar þýðingar-
mikið að fylgjast neð því, sem
er að gerast á þessu sviði.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
1. kennslustofu Háskólans og
hefst kl. 2 e. h. Öllum er heimill
aðgangur.
Þaravinnsla og þangs
Framhald ai 1. síðú.
og þar er einnig nóg af þaranum.
— Þú heldur þá, að hægt væri
að ráðast í slíka vinnzlu hér?
— Ja, vinnzluaðferðin er ein-
föld, en þetta er ekki mál sem
hægt er að hlaupa út í, heldur
þarf að skiputeggja það mjög
gaumgæfilega. Ég tel, að áður
en farið verði út í vinnzlu, þá
þurfi að gera nokkuð umfangs-
miklar efnavinnzlurannsóknir,
það þarf að hafa góð sambönd
bæði við erlenda menn, sem hafa
nokkuð langa reynslu að baki sér
í þessum málum og einnig í sam-
bandi við markaði
— En ef út í þessa vinnzlu yrði
farið, hvað þarf þá fyrst að gera?
— Það þarf í fyrsta lagi að
reisa þurrkunarstöð, því að úti-
þurrkun er imjög vafasöm. Æski-
legast er, að stöðin sé hituð upp
með jarðhita, eins og t. d. væri
hægt á Skálanesi ,og það væri
einnig æskilegt, að hægt væri að
þurrka í stöðinni meira en þara.
Þetta er byrjunarsk'-efið, og vitað
er, að hægt er að selja þurrkaða
þörunga á erlendan markað.
— Síðan væri hægt að halda á-
fram og vinna ýmis efni úr þar-
anum hér á landi, en úr honum
er aðallega unnin hin svokallaða
tAlginsýra, sem er eins konar
tleypiefni og notað i matvælaiðn-
úð. En, eins og ég sagði áðan, áð-
«r en lagt er út í þetta fyrirtæki,
ftarf miWnn og góðan undirbún-
og eru nú í þann veginn að ljúka
verkinu.
Organleikararnir sem komu á
sunnudaginn til að reyna það, luku
á það miklu lofsorði bæði hvað
snertir tóngæði og styrkleika.
Organleikari Selfosskirkju er
Guðmundur Gilsson og hefur hann
fengið þarna í hendurnar míkið
og gott hljóðfæri, enda haft mest
an veg og vanda af orgelkaupun-
um, sem gerð eru af söfnuðinum.
Nýja orgelið i Selfosskirkju sómir sér vel á sönglofti kirkiunnar eins og
sjá má á myndinni. (Tímamynd, KJ).
Fágæt útgáfa
Framhald aí L síðu.
sams konar og til er í Brit
ish Museiun. En hvorki
Landsbókasafn íslands né
háskólasafnið hér á eíntak
þessarar útgáfu íslendinga
bókar.
íslendingabók var fyrst
gefin út í Skálholti 1688, og
bjó Þórður biskup Þorláks
son hana uhdir prentun.
Önnur útgáfa er su, sem
hér um ræðir. Á átjándu
öld voru einnig prentaðar
aðeins tvær útgáfur íslend
ingabókar, báðar í Kaup-
mannahöfn, 1733 og 1744.
Næst er hún gefin út 1829
af Hinu konunglega fom-
fræðifélagi I Kaupmanna-
höfn, og þar er getið í for-
mála, að bókin hafi veríð
áður gefin út í „Öxfurðu"
og Christen Worms búið
undir prentun, og er þó
helzt af þeim formálsorðum
að skilja, að sú útgáfa sé
þá ekki til í bókasöfnum í
Kaupmannahöfn. Síðan fór
útgáfum íslendingabókar
mjög fjölgandi á öldinni
sem leið, og eru þær alls
orðnar æðimargar síðan.
Ofannefnd önnur útgáfa
íslendingabókar er örugg-
lega á fárra höndum, og enn
margt á huldu um hana.
Hinn fyrsti íslenzW eigandi
galt ekW mikið fyrir þetta
sjaldgæfa eintak, og kom
það eiglnlega tfl af misskiln
Z ingi beggja, seljanda og
M kaupanda. EintaWð er ekW
prentað með registri, og dró
fornbóksalinn þá álj'ktun, að
þetta væri ófullkomið ein-
tak, vantaði á það og það
hélt Islendingurinn líka, en
svo er ekki. Þetta er ein-
stæður fengur fyrir bóka-
safnara.
Menntaskólarnir
Framhald af 16 stðu.
að nemendum í eldri bekkjum
héfur fjölgað um 50. Mörgum
hefur orðið að neita Um heima
vist en engum um skólavist.
Mjög illa hefur gengið að fá
húsnæði fyrir nemendur í bæn
um, og er viðbúið að einhverj
ir hafi orðið að hverfa frá
skólavist vegna þess. í mötu
neyti skólans verða hátt á
þriðja hundrað manns.
f ræðu sinni vék skólameist
ari nokkuð að menntun, mennt
unarþörf og nauðsynlegum
breytingum almennt og ávarp
aði síðan nemendur og kenn-
ara og ræddi skólastarfið. Kenn
arar við skólann verða 21, þar
af 15 fastráðnir. Mikil aðsókn
er að skólanum, og kvað skóla
meistari þegar langan biðlísta
kominn fyrir næsta ár um
skólavist og dvöl í heimavist.
RAMMAGERDINI
nSBRU
GRETTISGÖTU S4
|S í M l-f 9 10 81
ing, svo að viðkomandi aðilar viti
nákvæmlega, út i hvað þeir eru
að fara.
— Hvaða rannsóknum var það
sem Vísindasjóður styrkti þig ný-
lega til að ljúka?
— Það eru raniisóknir á efna-
innihaldi þarans, en það breytist
eftir árstíðum. Þessar rannsóknir
taka nokkuð langan tíma og þarf
til þeirra mikið af sýnishornum.
En þó ætti ég að geta fengið
sæmilega hugmynd um efnainni-
haldið á mánuði eða svo. Ég mun
bráðlega gefa yfirboðurum mín-
um skýrslu um rannsóknir mín-
ar, og þá munu ýmis atriði í sam-
bandi við þara- og þangvinnzluna
liggja nokkuð Ijósara fyrir —
sagði Sigurður að lokum.
Námsflokkarnir
Framhald af 2 síðu.
sem stundað hefur nám í saiman-
burðarbókmenntum.
f vetur verður aftur tekin upp
kennsla í sænsku, en hún hefur
ekki verið kennd í r.okkur undan-
farin ár. Um aðrar bóklegar grein
ar er það að segja, að auk sænsk
unnar verða kennd íslenzka, ís-
lenzka fyrir útlendinga, og fer
kennslan fram á þýzku, dönsku
og ensku, ef nægileg þátttaka
verður fyrir hendi. Þá verða flokk
ar í dönsku, ensku, þýzku, frönsku
og spænsku, og fleiri en einn
flokkur í hverju þessu tungumáli,
svo fólk ætti að geta valið flokk
við sitt hæfi og sína kunnáttu.
Fyrir þremur árum var byrjað
að hafa foreldrafræðslu í náms-
flokkunum. f þessum flokkum eru
foreldrum veittar leiðbeiningar
utn uppeldi barna, umgengnisvenj
ur, afstöðuna til skólanna, og
ýmislegt fleira er foreldrum
kennt, eins og t. d. leikir, söngv-
ar og föndur við hæfi barna. Eftir
áramótin verða svo fluttir fyrir-
lestrar um uppeldisfræði og sálar
fræði barna. Flokkarnir eru tveir
f þessari grein, annar fyrir for-
eldra yngri barna og hinn fyrir
foreldra, sem eiga börn, sem kom
in eru á skólaskyldualdur.
Alménn sálarfræði er einnig
kennd, og er hún í fyrirlestrar-
formi.
í fyrra var tekin upp leikhús-
kynning, og verður henni haldið
áfram í vetur, en kennari verður
að þessu sinni Sveinn Einarsson
leikhússtjóri. Ætlunin er að fjall
að verði um leikritun, leikhús-
tækni, sviðsetningu, túlkun leik-
stjóra á leikritinu, og margt fleira
sem við kemur leikhúsum. Aðrar
bóklegar greinar cru reikningur,
algebra og bókfærsla.
Verklegu greinarnar eru fimm,
föndur, barnafatasaumur, kjóla-
saumur, sniðteiknmg og vélritun.
f sambandi við sniðteikningu má
geta þess að notað er hið svo
nefnda Pfaffkerfi, og eru aðeins
10 nemendur í hverjum flokki. —
Öll kennsla í námsílokkunum fer
fram á tímanuim frá klukkan 19,30
til 22,30 á kvöldin, eins og verið
hefur, en nú hefur námsgjaldið
verið hækkað úr 75 krónum í 200
í bóklegum flokkum og úr 150 í
300 kr. í verklegum flökkum og
er það vegna hækkaðs kaups
kennara.
Siglufjörður
Framhald af 16. siðu.
íbúum Siglufjarðar hefur fækk
að á undanförnum árum, og at-
vinnuástand þar er ekki gott, svo
fjárhagur bæjarfélagsins er ekki
góður. Sem dæmi um fólksfækk
unina má nefna, að þegar flest
var bjuggu 3100 manns á Siglu-
firði, en nú búa þar 2500 manns,
og búizt er við, að íbúum muni
enn fækka, ef ekki rætist úr með
atvinnuhorfur.
Síldarverð
Framhald af 2. síðu.
veíddri tímabilið 1. marz til 30.
september 1964, til heilfrystingar
pr. kg. kr. 1.27.
Reykjavík, 1. október 1964.
Verðlagsráð sjávarútvegsins."
Allskonar
Fólksbílar
Austin-bílar 46—63
Mercedes Benz 53—61
Chevrolet 46—63
Ford 53—64
Ford Chefir 55—63
Ford Consul 55—62
Ford Sodiac 55—60
Fiat 54—60
Willis jeep 46—64
Landrover 51—63
Rússa jeep 56—63
Austin Gipsy 62—63
Skoda 57—61
Moskowitch 55—63
Morris 47—63
NSU Prins 63
Opel Kapitan 56—60 J
Opel Caravan 54—59
Opel Record 54—62
Reno dofine 62—63
Rambbler eWnn 22 þús.,
sem nýr, 62
Simca 1000, sem nýr 63
Crysler bílar eldri gerðir í
úrvali.
Vörubílar af flestum gerðum
frá 55 til 63.
Bíla & búvélasalan
við Miklatorg, sími 2-31-36.
ÞAKKARÁVÖRP
Hugheilar þakkir til allra sem minntust mín á
sjötugs afmælinu með heimsóknum, gjöfum og
heillaskeytum.
Lifið heil.
Magnús Einarsson, Skúfslæk.
FaSir okkar, tengdafaðir og afi,
Einar Gíslason,
trésmiður,
verður jarðsunginn frá Frfkirkjunnl í Hafnarfirði iaugardaglnn 3.
október kl. 2 síðdegis. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaS.
Hn þeim, sem vildu minnast hans er benf á Dvalarhelnilli aldraðra
si6manna-
Gíslf Elnarsson, _____
Slgurjón Elnarsson,
Andrea Pétursdóttir og börnln.
Maðurinn minn,
Sveinn Gestsson, "
andaðist að heimili sínu, Óskabakka, Skeiðum, 30. október.
Auðbjörg Káradóttlr.
í M4 M H, fösfudaglnn 2, októbcr 1?6£.
. ' ♦ * + * a * j*." +■r’ **'
IS