Tíminn - 21.11.1964, Qupperneq 8

Tíminn - 21.11.1964, Qupperneq 8
LAUGARDAGUR 21. móvember 1964 8 TÍMINN The Fielda of Noon. Höfundur: Sheila Burnford. Útgefandi: Hodder and Stoughton, 1964. VerS: 15 s. Sheila Bumford er fædd í Skotlandi, býr nú í Ontario í Kanada, gift og á þrjú börn. Hún var hjúkrunarkona á stríðsárunum. Hún hefur yndi af flugi, veiðum og stjörnu- fræði. Fyrsta bók henna- ,.The Incredible Journey“ var met- sölubók 1961. Þessi bók fjallar um heimili og heimilisvini höf- undar. Margvíslegar dýrateg- undir koma hér við sögu, kan aríufuglar, fiskar og kettir. Kaflinn um villiköttinrt, sem bjó í bílskúrnum einn vetur, þáði góðgerðir, en hélt sig allt af í vissri fjarlægð frá veigjörð arkonu sinni, er ágætur Hér segir frá fornleifarannsóknum og hugrenningum höfundar í sambandi við steinaldartæki og I-Ioover ryksugur. Lýsingir. á kanadíska vetrinum er með ágætum og ekki síður lýsingin á vorkomunni. Þegar vorar fer höfundur strax upp í veiðikofa, sem hún á fjarri mannabyggð- um og þar nýtur hún voikom- unnar. Þetta er að nokkru leyti sjálfsævisaga eða þáttui úr lífi Sheilu Burnford. Þetta er ljúf bók, næmleiki fyrir til- brigðum náttúrunnar og hlý- leiki í garð þeirra ferfættu og vængjuðu eru aðall bókarinn- ar. A Case of Kirives. Höfundur: H. W. Sutherland. Útgefandi: Geoffrey Bles, 1964. Verð: 16 s. Höfundurinn er skólastjóri í Newcastle. Hann hefur ritað tvær skáldsögur auk þessarar, „Fiddle Me Free“, sem gerist í hernum og „Best Out of Thee‘, dagssaga drenghnokka. Auk þess hefur hann ritað smásögur og unnið fyrir'útvarp og sjón varp. Þétta er saga manns, sem á erfitt með að aðlagast um- hverfi sínu. Aðalpersónan er John Exnaboe, fertugur skóla stjóri, kvæntur og á einn son, þriggja ára gamlan. Hingað til hefur allt gengið sæmilega, hann fær þokkalega atvúnnu sem skólastjóri og skáldsaga eftir hann er tekin til útgáfu. En hann er klaufskur að um- gangast aðra, móðir hans er honum fráhverf og kona hans einnig og smátt og smá.t ein- angrast hann frá samstarfs- mönnum sínum, sem eru þó vinsamlegir en að honum finnst full afskiptasamir. Hann veit ekki hvort einangrun hans staf- ar af rótleysi nans sjálfs eða þeim kröfum sem hann gerir til sjálfs sín og annarre og sem eru frábrugðnar þeim sem tíðkast með samferðamönn um hans. Hann verður innf.verf ari en áður og ýmis vandræði steðja að í skólanum, hjóna- bandið hangir á bláþræði og móðir hans veikist alvarlega. Hann verður að gera siálfan sig upp og aðiaga mat siti á verðmætum samfylgdarmönn- um sínum. Þetta er laglega gerð bók, höfundurinn lýsir persónum af næmleika og inn sæi, auk þess er bókin læsileg. Unternehmen Barbarossa Höf- undur Paul Carell. Útgefandi: Verlag Ullstein. 1963. Verð: DM 28. Þetta er stór bók. 560 síður með 20 litmyndum, 62 svart hvítum myndum, 35 landabréf- um í texta og yfirlitslandabréfi. Unternehmen íBai barossa var leyniorðið yfir árásaráætlun Þjóðverja á Rússland Þessi árás orsakaði alla framvindu þess sem skeði síðar í styrjöld inni og einnig þess sem skeði eftir stríðið og er enn að ske. Hverjar voru hinar stjórnarfars legu forsendur að þessari árás? Og hvernig var árásin hugsuð i_ upphafi? Svarið er þess; bók. Árásin hófst kl. 3.15 bann 22. júní 1941. Herstyrkurinn var: Rúmlega 3 milljónir herinanna, 600 hundruð þúsund flutninga- tæki, 3580 skriðdrekar, 7184 fallbyssur og 3000 flugvélar. Árásin var skyndileg og vel undirbúin, rússneski herinn var upprættur, það af honum, sem ekki komst undan á flótta, og þýzki herinn komst 1500 kílómetra inn í Rússland og að hliðum Moskvu og langleiðna til Kaspíska hafsins. Sigurinn virtist vís í fyrstu lotu. En það var Stalín sem sigraði. Hvdls vegna? Paul Carell hefur lagt geysi- lega vinnu í samantekt þessa rits. Hann rekur sögu árásar- innar í einstökum atriðum,fylg ist með hernum á öllum víg- stöðvum og rekur atburði og dáðir óbreyttra hermanna og liðsforingja. Hann kann góð skil á því sem gerðist að tjalda baki, togstreytu hershöfðingj anna og Hitlers, sem þóttist fær um að segja þaureyrdum hershöfðjngjum fyrir verkum. Þótt allt væri slétt og fellt á yfirborðinu þá voru engir kær leikar með herforingjaráðinu og stormsveitunum. Herforingja ráðið átti sér langa scgu i Jósef Stalín. Prússlandi, það var stofnað 1657 og átti mestan þátt í skipulagningu og undirbúningi allra meiri háttar herferða og hernaðarframkvæmda býzka hersins í tæpar þrjár aldir. Prússnesku junkarnir réðu og mótuðu stefnu herforingjaráðs ins bæði í hernaði og pólitíska stefnu þess á friðartímum Þeir voru hollir og dyggir þjónar konungsættarinnar í Prússlandi og síðar keisarans, hollusta við furstann og ættlandið var ein- kenni þessara manna. Hlýðnin var þeirra æðsta boðorð Með- an völdin voru i höndum sið- aðra þjóðhöfðingja var þessi eiginleiki kostur, en þegai að húsamálarinn frá Vínarborg var orðinn stjórnandi Þýzkalands varð þessi dyggð að ódvggð. Þeir hlýddu og reyndu að líta á þessa göturottu sem þjóð- höfðingja, sem öskraði og æpti á þá á herstjórnarfundum Og það var þetta tyrirbrigði sem var æðsti herstjóri Þýzkalands og einvaldi. Hann þóttist hafa gott vit á herstjórnarlist eins og fleiru og hann ákvað hvað gera skyldi í ágúst 1941 en sú ákvörðun álítur höfundur að valdið hafi þáttaskilum í her- ferðinni. Bókin er mjög læsi- Ieg og höfundur styðst ein- göngu við heimildir og stað reyndir, getgátur eru honum fjarri skapi. Focus. Höfundur: Arthur Mill- er. Útgefandi: Panther Books, 1964. Verð: 3/6 Þetta er endurprentun. Bók in kom út í Englandi hjá Goll ancz 1949. Þetta er saga um ofsóknir og fordóma. Miller lýsir hér listilega andrúnslofti haturs og ótta þeirra sem of- sóttir eru. Ofstæki og ofbeldi ræður ríkjum og venjulegi fólk umhverfist og fyllist heift og hatri til þeirra, sem rétt áður voru kunningjar þess og vinir. Tortryggni og getsakir eitra andrúmsloftið, illska og heift ráða ríkjum. Þetta er áhrifamik ið verk og átakanlegt. Spennan helzt bókina út og verður lítt þolandi undir lokin. Lýsingin á grimmd og hatri, sem hinir of- sóttu verða að þola er minnis- stæð. Kynþáttahatrið er okkur hérlendis framandi, en eftir lest ur þessarar bókar skilst manni betur hvilíkt vandamál slíkt getur orðið. Og hatursefnin eru fjölbreytt, þétta er bók um við urstyggð haturs og heiftar. for- dóma og forheimskunar. Panther útgáfan er rekin af miklum dugnaði, að vísu mikill hluti útgáfunnar endurprentar, ir, en þær eru svo ódýrar að allir geta eignast þær Útgáfan hefur gefið út nöfunda eins og Henry Miller, Lewis, Jean Gen et, Habe, Howard Fast, Dylan Thomas og nóbelsverðlaunahaí ann Jean-Paul Sartre, auk margra fleiri. Vasabókaútgáfan blómstrar nú víðast hvar og er mikil samkeppni um höfunda og útgáfurétt og er hún starf- seminni til aðhalds. Master Sermons Through the Ages. William Alan Sadler sá um útgáfuna. Útgefandi: SCM Press Ltd., 1964. Verð: 25s Þetta er safn prédikana frá fjórðu öld fram á þá tuttug- ustu. Alls þrjátíu prédikanir. Sumar frumfluttar á ensku, aðr ar þýddar. Útgefandi hafði þann hátt þegar hann var prest ur við kirkju í New York, að lesa kafla úr frægum prédikun um fyrir söfnuð sinn. Þessi lest ur féll í góðan jarðveg og þar er að leita uppruna þessarar út gáfu. Þessi bók er betri kennslu J bók í ræðulist en margar bæk- ur um ræðulist, einnig er þessa jafnframt kennslubók f guð- fræði. Hér tala margir fræg- ustu og færustu klerkar kristn- innar og bera fram kenningar kirkjunnar eins og þær voru og eiga að vera samkvæmt játning arritunum. Það er mikið fjas- að um það nú. á dögum að margt í kenningum kirkjunnar sé úrelt, sé svo, þá hlýtur mað- urinn að hafa breytzt mjög síð- ustu hundruð árin, en siíkt hef ur ekki átt sér stað, samkvæmt skoðunum merkustu lífeðlis fræðinga sem nú eru uppi það hafa ekki orðið neinar breyting ar á gáfnafari mannsins síð- ustu 10 til 20 þúsund árin. Sið ferðilega hefur maðurinn ekk ert breytzt og trúarþörf hans virðist einnig óbreytt Því hljóta siðferðiskenningar kirkj unnar samkvæmt játningarrit unum að vera næst því sem rétt er og trúarkenningarnar eru byggðar á helgum ritum kristinna manna. Inntak kristn innar er friðþægingarkcnning- in, kenning um hinn algjöra kærleika. Allir beztu menn kirkjunnar frá upphafi halda fram þeirri kenningu. Það hljómar því heldur ankanna- lega þegar andatrúar og frímúr araprestar hérlendis eru að bera fram algyðislegar þoku- slæðings fabúlur sem ekki standast minnsta blæ raka og skýrrar hugsunar Þeir tal-.- um Guð eins og lipran bankastjóra, sem alltaf framlengir Þessi plebeiismi meðal ísienzkra irierka er orðinn heldur hvim leiður og er íslenzku kirkjunni sem stofnun til skammar. Þess ar fabúlur falla ef til vill i góð an jarðveg andatrúarkellinga og guðspekilalla, en þetta er ekki kristinn dómur. Þessi bók er góð lesning bæði fyrir klerka og guðspekilalla, en þetta er höfunda fylgir. YFIR ALDA HAF Ný bók effir Sigurð Ólason YFIR ALDA HAF heitir nýút- komin bók eftir Sigurð Ólason lög- fræðing, sem er lesendum Tímans að góðu kunnui vegna greina hans um þjóðleg efni, er birzt hafa hér í blaðinu. Bók Sigurðar fjallar um söguleg og þjóðleg fræði innlend, svo sem heiti hennar úr Alda- mótaljóðum ber með sér. í bók- inni er hreyft ýmsum nýjum skýr- ingum og tilgátum um veigamikil atriði íslandssögunnar, tilfærð rök og heimildir, oft eftir lög- fræðilegum leiðum, og fer höf- undur sjaldnast troðnar slóðir. I bókinni eru og rakin gömul dóms- mál og sagt frá mönnum og mál- efnum, myndum og minjum, frá hinum ýmsu tímum og tilefnum, sem til þessa hafa verið umdeild og óvissu blandin. „Margt í bók- nni mun þykja nýstárlegt og ekki í samræmi við viðtekna sögu- skoðun, málsefnin víða áhrifa- mikil og atburðarásin spehnandi, enda er höfundi einkar sýnt um ið gæða efni sitt lífi og gefa frá- sögninni áhrifamikla stígandi*-, t segir á kápu bókarinnar. Úr efni bókarinnar má t.d. geta sögu hellisbúans í Hnappadals- hraunum, sem síðar varð höfðingij í framandi landi, frásagnar um, íslandsjarl og ömurleg endalok hans, mikilsverðan en áður van- metinn þátt Ara lögmanns í sjálf-! stæðisbaráttu íslendinga á siðbylt-j ingartímanum sett er fram á ný og reyndar umbyltandi söguskoð- un um Kópavogsfund 1662, og þá menn, sem þar komu við sögu, rakinn aðdragandi þess, að hand- rit Árna Magnússonar lentu hjá Hafnarháskóla og furðulegar framferðir náskólans í þvf sam-: bandi, o.s.frv. Þá eru frásagnir og skýringar um gömul sakamál og dómsmál, þ.á.m þrjú liflátsmál, um konungsdóttur í vissum tengsl- um við íslendinga, sem brenndj var á báli f Noregi, um dularfullt faðernismál og grimmileg örlög og aftöku skagfirzkrar stúlku,j sögulega eftirreið Skagfirðinga,! Sigurður Ólason. mál sýslumanns Wíums og Sunn- efu og þeirra systkina, sem talið hefur verið eitt margþættasta glæpamál hér á landi á síðari öld- um, og loks eru hér rakin hin frægu Bræðratungumál, þeirra Áma prófessors Magnússonar og Magnúsar jungherra í Bræðra- tungu og Snæfríðar tslandssólar. Þá eru í oókinni ýmsir þættir listsögulegs eðlis, reynt er að ráða myndgátur (ögmannsstólsins frá Grund, sem hugsanlega hefur að geyma mynd eða svipmót þjóð- hetjunnar Jóns Arasonar, mynd er birt af Brynjólfi biskupi, rakin furðuleg saga skírnarfontsins í Dómkirkjunni, og sýnt hvar frum- verkið, sem íslendingum var ætl- að. er niður komið, o.s.frv Loks er vikið að „ieyndarmáli úr Rauða- melshraunum" og reynt er að ráða þá sérkennilegu krossgátu. Innan um þetta efni eru í bókinni ýmsar frásagnir um fólk og atburði á ýmsum öldum. um Þórunni á Grund dóttur Jóns Arasonar, Daða í Snóksdal 'ögmanninn á Reyni- stað Guðbrand biskup. Jón Vída- lín Brynjóli biskup Ragnheiði Brynjólfsdóttui. Helgu „matrónu" í Bræðratungu, Odd lögmann hina ríklátu frú á Rauðamel, Sigriði Hákonardóttui frá Bræðratungu, Guðmund ríka i Brokey, Hólms- mæðgur og morð á Bessastöðum og myndir á grafhellu í Staðar staðarkirkjugarði. svo dæmi séu nefnd Bókin er prýdd myndum, þar á meðal sumum, sem ekki hafa ver- ið birtar áður. Bókaútg. Hildur gefur Dókina út, og er frágangur allur hinn vandaðasti. i PUSSNINGAR iSANDUR j Heimkeyrður pússntngar ! sandur og vikursandui ! ugtaðuT eða osigtaðm við , núsdvrnat eða komtnn upp j a hvaða hæð sem er eftu iskum kaupenda 'íandsalan við Elliðavog s.l Simi 41920

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.