Tíminn - 21.11.1964, Page 14
14
Sadismi
veröi án
eftirlits
Fyrir Alþingi er nú laga-
frumvarp, borið fram af stjórn
arflokkunum, sem miðar að
því að herða kvikmyndaeftir-
litið í landinu. í sambandi við
þetta frumvarp, benti Ingvar
Gíslason, alþm., réttilega á það,
að ósamræmis gætti í því að
herða kvikmyndaeftirlit sam-
tímis því sem hér væri sýnt
sjónvarp án eftirlits. En spurn |
ingu Ingvars um þetta efni
svaraði Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra á mjög
athyglisverðan hátt. Hann
sagði að sér væri ekki kunnugt
um að neitt það hafi verið
sýnt í hermannasjónvarpinu,
sem kvikm'yndaeftirlit mundi
telja sig þurfa að banna.
Ut af þessum „menningar-
legu“ viðbrögðum menntamála
ráðherra sneri einn af lesend-
um Tímans sér til blaðsins, og
skýrði frá því, að kvöld eitt
í þessari viku hefði hann liorft
á sjónvarpið. Þann tíma sem
hann horfði á sýninguna gerðist
það á einum stundarfjórðungi,
að maður var barinn í andlitið
með svipu, unz annað auga
hans hafði skemmzt, niður í
annan mann var hellt eitri, svo
hann varð blindur og auk
þess voru tveir menn skotnir
til bana.
Nú sagðist þessi maður vilja
spyrja menntamálaráðherra,
sem telur sjónvarpið ekki
þurfa eftirlits við, á sama tíma !
og herða þarf kvikmyndaeftir-
lit í kvikmyndahúsum hér,
hvað limlestingar og sadismi
þurfi að ná háu stigi í sjón-
varpi til að væntanlegt hart (
kvikmyndaeftirlit teldi sig
þurfa að banna börnum að
horfa á það.
Og hvort að hans áliti lim-
lestingar og sadismi verði ekki
annað en sætlegt faðirvor
handa börnum, aðeins ef það
er sýnt í hermannasjónvarp-
inu.
ASf
Framhald af bls. 1.
yrði 95 kr.á karlmann en 75
kr. á konur. Var Einar Ögmunds-
son framsögumaður, og sagði hann
að í áætluninni væri aðeins miðað
við brýnustu þarfir sambandsins.
Óskar Hallgrímsson hafði fram-
sögu um álit minnihlutans, en nið
urstöður hans eru 1.781.118 kr.
Skatturinn á karlmann er þar
áætlaður kr. 67.62, en á konu
kr. 45.30.
Miklar umræður urðu um álitin.
Kom þar fram gremja íhalds-
manna og krata yfir að vinstri
menn vildu ekkert með þá hafa í
miðstjórn sambandsins. Voru marg
ir ræðumenn íhaldsins jafnvel
tregir til þess. að samþykkja
minnihlutaálitið! — Óskar Jóns-
son benti á, að skattaálagning rík
isins hefði' hækkað um 480%
frá 1958, og ef ASÍ ætti að hafa
I jafná aukningu, þá ætti skatturinn
að vera 180 kr. Væri álit meiri-
hlutans mjög hófletg, og kvaðst
hann hafa sömu skoðun á þessum
málum, hverjir sem færu með
stjóm ASÍ, og furðaði hann á
því, hversu minnihlutinn hugsaði
smátt í þessum efnum, þar sem
hækkunin, sem fram á væri far
TIMINN
LAUGARDAGUR 21.
nðvember 1964
ið, væri aðeins eins sígarettu-
pakka virði.
Fundurinn í dag hófst kl. 2
e. h. Fyrsta mál á dagskrá var
„Drög að samkomulagi um und-
irbúning og framkvæmd vinnu-
rannsókna", og hafði Hannibal
Valdimarsson framsögu. Rakti
hann þróun málsins og skýrði
drög þau að samkomulagi milli
ASÍ, Félags ísl. iðnrekenda og
Vinnuveitendasambands íslands,
sem fyrir fundinum lá. Nokkrar
umr. urðu um málið. Óskar lýsti
ánægju sinni með það, sem þegar
hefur verið gert í þessum málum,
og kvað vinnuhagræðinguna hafa
ómetanlega mikið að segja í
sambandi við bætur lífskjaranna
í framtíðinni. Lýsti hann stuðn-
ingi við tillögu forsetans um að
féla miðstjórninni áframhaldandi
samningagerð í málinu, og var
hún samþykkt.
Þá voru tekin fyrir sérmál sjó
manna, og hafði Jón Sigurðsson
framsögu. Var nefndarálitið sam-
þykkt eftir nokkrar umræður.
Fundi var síðan frestað um
kl. 4.30 og hófst að nýju kl.
21.
Fimm bumbur
skatti, hafa ekki tekið alvarlega
fordæmingu Mbl. á skattsvikum
eða frómum óskum þess um ár-
angursríkt starf skattalögreglunn-
ar. — En hinu furða menn sig á,
hve lágt foringjar Alþýðuflokks-
ins geta lagzt við að kaupa sér
þægilega setu í valdastólunum.
Menn voru þó að vona, að það
væru fáeinir blóðdropar eftir í
kúnni.
Það var samdóma álit allra
þeirra, sem ræddu eða rituðu um
skattamálin í sumar eftir útkomu
skattskrárinnar, að aldrei hefðu
hin stórfelldu skattsvik verið eins
augljós og opinská og nú. Harð
ast allra "blaða gekk Alþýðublaðið
fram í fordæmingu skattsvikanna
og krafðist þess að ósóminn væri
upprættur — og það myndi skatta
lögreglan gera. Á þingi kaupa svo
foringjar Alþýðuflokksins sér
setu í ríkisstjórn tvöfalda bók-
haldsins með því að kippa stoð-
unum undan skattalögreglunni,
sem flokkur stórgróðamannanna
með vinnukonuútsvörin var svo
elskulegur að fallast á til að
tryggja gott samstarf og fara að
samþykktum launafólksins í Al-
þýðuflokksfélögunum, sem enn
ber tiltrú til foringja sinna.
Framhald al 2. síðu.
ina eina og sagði „senda skeyti,
bara senda skeyti í grænum
hvelli, við verðum að fá tréð“.
Svo fór Guðni með skilaboðin um
að senda skeyti til Ameríku í log
andi hvelli.
Og John Kim fómaði okkur
fimm mínútum áður en allur skar
inn hans færi hamförum á ný.
Við spurðum hann, hvort þessir
dansar væru eins og landar hans
dönsuðum þá heima fyrir og þar
fram eftir götunum, og John Kim
svaraði:
„Nei, þetta er eiginlega fram-
reitt eftir sérstakri uppskrift fyr-
ir vesturlandabúa, bæði dansam
ir og músíkin. Hvorttveggja er
svo einfaldlega ofið í'hinni þjóð
legu hefð, dansar og tónlist Aust-
urlanda, að ekki geta aðrir notið
hennar sem vért er nema þeir,
sem þaulkunnugir eru þjóðltrú
þessara landa og þeim arfsögum,
sem listin byggist á, austurlenzk
list byggist svo mikið á táknum,
sem fara fyrir ofan garð og neðan
hjá þeim áhorfendum og áheyrend
um sem ókunnugir eru hinum þjóð
legu erfðum, sem eru undirstaða
hinnar kóresku dans- og tónlist-
ar. Þess vegna höfum við valið
þann kostinn að umskrifa verkin,
svo að þau verði aðgengilegri fyr
ir vesturlenzkt fólk. Við gemm
þetta viðameira en það tíðkast
heima fyrir, stækkum sporin í
dansinum og mögnum tónana.“
Nú var John Kim ekki lengur til
setu boðið, hann hentist niður í
hljómsveitagryfjuna, og fólkið fór
að troða Kýrdansinn, þar sem
kýr og tvö naut stíga gaman-
dans með tilheyrandi ástleitni.
Auglýsið í Tímanum
Bílasafinn við Vitatorg
SIMi:
12500
Consul cortina 64
Consu) 315 62
Ford comet 62 og 63
OpeJ Record 55—64
Opel Caravan 55—64
Ope) Kapitan 55—62
Moskovitch 55—64
Austin Giosy 62 og 63
Land Rover 55 61, 62 63.
Volkswagen fólksbifr og stat-
ion, flestir árg. tí) 64
Morris 64
Tanus 12 m. 62, 63, 64
Taunus 17 m. 59 os 60
Skoda okt. 59—63
Skoda 1202 station 61 og 62
Willis jeep ) niklu úrvali
Volvo station 55, 56 61, 62. 63
Volvo Amason 61. 82 63
Rambler Ambassadoi 60.
Rambler Class 57. 58 62. 63
Ford Farline 500 59. 60
Höfum einnig mikið úrval al
öðram bifreiðum nýlegum og
gömlum.
SÍMl:
12500
Bílasalinn við Vltatorg
Þýðendur
Vantar að komast í
, samband við þýðsnda,
sem getur þýtt úr
norsku á íslenzku.
Karl C. Knight,
Ljósheimum 20,
8. hæð í B-íbúð.
LAUGAVE6I 90-92
Stærsta úrva) bifreiða á
einum stað Salan er örugg
bjá okkur,
EGILL
SIGUBGEIR$SON
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa
Ingólfsstræti 10 —
Sími 15958
Trúlofunarhringar
afgreiddi) samdægurs
SENDUM UM ALLT LAND
HALLDðR
Skólavörðustig 2
VÉLAHREINGERNING
Vanlr
menn.
PRIE —
Sími 21857
og 1046»
Pægileg
Eljótleg
Vönduð
vinna
SKULDABRÉFIN
Framhald af bls. 1.
tölin miðast við áramót og þeim,
sem fyrst og fremst ætla sér að
kaupa bréfin og standa að flutn-
ingi málsins bak við tjöldin, verð
ur að gefast nægur tími til að búa
sig undir skattaframtalið fyrir
þetta ár.
Þeir sem gera sér raunhæfa
grein fyrir stjórnmálaaðstöðunni í
Iandinu eru ekki hissa á því að
Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki
samþykkja þessi ákvæði. Af hans
hálfu voru refirnir einmitt skorn
ir til þess að bjarga útgerð sinni,
koma í veg fyrir að forystufley
Sjálfstæðisflokksins steytti á skeri
skattaeftirlitsins. Þeir, sem vita,
hverjir hafa raunverulega ráðin
í Sjálfstæðisflokknum og hverjir
það era sem mesta möguleika
hafa haft til að skjóta undan
Bílaeig Ventlaslípinc vinnu fáið is [endur athugiö ar, hringjaskiptingu og aðra mótor aið hjá okkur.
'ÉLAVERKSTÆÐIE
h\ ENTIL L-
iinmiinmiiittl!iii!n»Hnulji;il! miPH 51 /vil oDo 1 o
K. N, Z. sal!sfeinninn<
er nauðsynJegur búfé yðar.
Fæst t kaupfélögum um
tand alll.
Tó’
J ///>'/'. '/<!'
0 D Q 0 u D
u n 1 1111|'
Einangrunargler
Pramleitl einungií úr
úrvals gleri — 5 ára
ábyrgfl
Pantið tímanlega.
Korkiðian h. f.
Skúlagötu 57. Simi 23200
JÓLAFÖTIN
MATR0SAFÖT
MATROSAKJÖLAR
DRENGJAJAKKAFÖT
DRENGJABUXUR
allar stærðir og litir
HVITAR
NYL0MSKYRTUR
drengja, trá 5—13 ára kr.
175,— allar stærðir
BARNAÚLPim
vatteraðar frá kr 375,—
FINNSKIR
BARNAGALLAR
1—2 ára
Æðardúnssængur
VÖGGUSÆNGUR
KODDAR
LÖK
PATONS
ullargarnið fyrirliggjandi
4 gróf'l 50 litir
PÓSTSENDUM
Vesturgötu 12 Stm) 13570