Tíminn - 15.12.1964, Qupperneq 9

Tíminn - 15.12.1964, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. desember 1964 TÍMINN Séra Þorsteinn Björnsson. ari við börn sín á öllum sviðum en áður var. Og hræddur er ég um að ýmsir taki ferminguna létt. Fermingarstarf presta hér og úti á landi er tvennt ólíkt. í sveít- unum getur presturinn haft 10— 20 krakka heima hjá sér og tekið þessu með ró. Hér hefur maður nóg að gera að halda þeim í skefjum. Og það er nær ómögulegt að ná nokkrum tökum á svo stórum hóp, sem prestar hafa hérna. Og okkur er þar að auki enginn tími ætlaður, börnin losna ekki úr skólanum fyrr en komið er fram á kvöld. Grallarasöngurinn er þægilegur. — Teljið þér að breytt messu- form mundi auka áhuga fólks á kirkjunni? —Ég hef nú aðallega orðið var við tilhnéigingar til að taka upp enn þá eldra form, segír sr. Þor- steinn. — Og ég veit ekki hvort Samstirni flutt í þætti Stockhausen MB — Reykjavík. Á næstunni verður flutt í út- I varpiriu í Bremen í Þýzkalandi tónverkið SAMSTIRNI eftir Magn ús Bl. Jóhannsson og verður það flutt þar samkvæmt ósk hins heimskunna tónskálds og braut- ryðjanda elektróniskrar tónlistai Karlheinz Stockhausen. sem mun íiytja það í þætti sínum „Kennen Sie Musik, die man ' nur am Lautspi e^hei ,ho , ! Samstirni, sem er elektrónískt | verk. vai frumflutt a nljói >' Musica Nova fyrir nokkrum árum það væri æskilegt. Graliarasöng- urinn er ósköp þægilegur, ef mað- ur kemst á lagið. En allir eiga að geta tónað eftir gamla laginu. bað þarf enga sérstaka rödd í það Enda tóna margir prýðilega, þótt þeir séu engir raddmenn. Ef þeir aðeins hafa tónvísi, halda laginu. Og það er ekki rétt, sem sumir vílja halda fram, að það sé ekkert lag í tóninum okkar — það finn- ur maður bezt. þegar farið er út af. og vakti þá talsverðan úlíaþyt hjá ísl gagnrýnendum s þ. grein Björns Franzsonar í tímariti Máls og menningar Síðan var það flutt á tónlistarhátíðinni í Kaupmanna höfn 1962, í Kölnai útvarpinu árið eftir, þa á vegum Stockhaus ens, og á Ojai tónlistarhátíðinni í Los Angeles 5 mai s 1., þá einmg samkv ábendingum frá Stock- hausen Eins og áður hefui verið sagt i fréttum var annað verk eftir Magnús. „PUNKTAR" sem er verk fyrir hljómsveit með elek- tróniskum milliþóttum flutt á setningartónleikum Norrænu Tón listarhátíðarinna' ■ Helsingfors 2. október s.l„ þa flutt af Ríkis- sinfóníuhljómsveitinni i Helsing- fors undir stjórn Jussi Jalas. og var það fyrsta -'erkið á efnis- skránni Á sömu tónleikum voru einnig flutt verkið „HEKLA.' eft ir Jón Leifs. og var það frum- flutningur Punktar voru frum fluttir á tónleikum Sinfóníuhljóm sveitar íslands í Háskólaþíói fvr ir tveim árum þá undir stjór/ Wijliams Strickland Gömul og ný sannindi eru það, að „heimskt er heímaalið barn.“ Heimilin voru þó um margar aldir skóli þjóðarinnar, sá eini sem fræddi bæði um bókleg og verkleg efni og fullnægði fyrri Itíma þörfum hennar í þessum efnum íslendingar hafa líka jafnan sótt ýmis konar þekkingu ril annarra þjóða. Frumbyggjar landsins áttu frændur og vini meðal allra nágranna bjóð anna og héldu vináttu- og menn ingartengsl við þá allan þjóð veldistímann. Um margai aldí' sóttu Íslendingar alla framhalds menntun sína til annarra þjóð; og þó mest til Danmerkur. ends lágu leiðir allar þangað og ól) tengsl okkar við Dani gerðu það eðlilegt. Menntaðir menn urðu embættismenn þjóðarinn ar, búsettir í sveítum og ílutt.u með sér áhrif, sem síuðust síð an út í þjóðlífið. Nú er öldm önnur. Embættismennirnir eru búsettir í þéttbýlinu. Æskufólk sækir samt skóla í mörg lönd og þjóðin hefur kynni af áðui lítt þekktum 'öndum og pjóð um. Við lífum á öld tækni og vísinda. Síðan síðari heimsstyj öldinni lauk. hafa orðið mjöt [ örar breytingar í þeim efnurr : svo örar að gjörbreytingai ;. sem nálgast byltingu hafa oró !ið á hugmyndum manna um framtíðarmöguleika. Runnin e> atómöld. Sú öld gerir miklai Hokkingarkröfur til allra manna í hvaða stétt sem þeir starfa. Starf bændanna er alltaf að verða fjölbreyttara og vanda- samara með hverju ári. Fólki fækkar líka sífellt í sveitunum og starfið gerir því meiri króf- ur tíl hvers einstaklings en áð- ur. Bóndinn þarf að vera fjöl- menntaður til að kunna full skil á áhrifum fóður og áburð- arefna og til að geta farið þann- ig með þau, að verðgildi þeirra skili sér aftur í auknum af- rakstri búsins. Hann þarf að vera tæknimenntaður til að geta valið beztu gerðir véla til bústarfa og kunna með þær að fara. Hann þarf líka að kunna áttaskil í hagfræðilegum efnum svo hann rati þá leið í búskapn um, sem skilar beztum arði. Þessar þekkingarkröfur eru vaxandí með hverju ári sem liður. En á sama tíma er nær kyrr staða- í skólamálum sveitanna Enn er víða farkennsla eins og var fyrir 50 árum og í mörgum héruðum er enginn unglinga skóli. Því er víða ekki hægt að fullnægja nær 20 ára gömluir, lagaákvæðum um skyldunám unglinga. Og tiltölulega lítill hluti sveitr unglinga heldur áfram námi eftir að skyldunámi lýkur og þeir fáu. sem það gera. fara ift ast alfarnir úr sveitunum, ti) þess að afla sér fjár til náms ins og koma ekki bangað aftui til starfa Þetta er óviðunandi ástand og ósamboðíð nútíma menning- arþjóð. Allir þegnar verða að hafa jafnrétti til náms og þekk- ingar. En hvernig á að breyta þessu? Svar mitt er: 1. Lífskjör þjóðfélagsstétt- anna verða að vera jöfn, hvort sem búið er í sveit eða þéttbýli. 2. Byggja verður skólahús i sveitunum sva fullnægt verði skyldunámi barna og unglinga við sæmilegar aðstæður. 3. Taka ber upp námsstyrkja kerfi og veita námsstyrki öll- um unglingum, sem þurfa að dvelja fjarri foreldrahúsum við nám. Slíkir námsstyrkir eiga ekki aðeins að ná til sveitaung linga heldur og annarra ung linga, sem ekki geta daglega gengið í framhladsskóla af heiman. 4. Komið verði upp héraðs skólum og miðskólum í öllum héruðum. í sumum héruðum myndi nægja að byggja heima vistir við skólana í bæjunum 5. Byggðir verði menntaskói ar í hverjum landsfjórðungi Jafnframt bessu verði allt fræðslukerfið tekið til gagn gerðrar endurskoðunar og breytinga að hætti nágranna þjóða okkar og þvi breytt ti! samræmis við þarfir hins nýja tíma. Þá verði m.a sérfræði skólar eins og bændaskólar og húsmæðraskólar felldir inr, fræðslukerfið op námstilhöeui’ breytt í samræmi við þá breyt- ingu og kröfur tæknialdar. Einhver lesandi kann að spyrja, hvort allt þetta myndi ekki leiða til þess, að ennbá færra ungt fólk settist að í sveit um en nú er. Við getum ekki vænst þess, að íslenzkur landbúnaður né heldur íslenzkt þjóðlíf almennt blómstri í skjóli einangrunar eða vegna almenns þekkingar- leysis. Én hins er að vænta: að velmenntuð bændastétt eins og vel menntuð þjóð, lyfti at- vínnuvegi sínum tii nýs og auk ins gengis. Þekkingin eykur mönnum áræði að reyna nýj- ungar og gefur mönnum vald á fleiri möguleikum. Æskufólk elskar ekki landbúnaðinn og sveitirnar af því að það kunni ekkí skil á öðru, heldur af bví að í samskiptunum við lifandi náttúru, búfé og jörð, fæi bað rýmri athafnamöguleika en víð ast annars staðar og það eygir þar nýja og aukna þroskamögu- leika sé beitt þekkingu nýjustu vísinda og véltækni. Eitt er líka nauðsynlegt, að hín fjölmenna islenzka embætt ismannastétt framtíðarinnai verði ekki eingöngu skipuð fólki, sem alizt hefur upp 1 þétt býli Reykiavíkur Þar þart dreit býlið líka að eiga sína fulltrúo sem bekkja til lífskjara og -ið stæðna þess og skilja viðhort þeirra, sem sækja sjóinn og yrkja jörðina. Nauðsynlegt iafnvægi barf að ríkja í þessu sem öðru Þær breytingar í skóla og fræðslumálum, sem hér er rætt um, munu vafalaust kosta all- mikið fé. En mentitun, sérstak- lega sérfræðileg verkmenntun, er aldrei of dýru verði keypt. Hún skilar sér aftur í vaxandi framleiðslu og auknum þjóðar- tekjum. Allar nágrannaþjóðír okkar hafa gert eða eru að gera ráð- stafanir í fræðslumálum, sem ganga í svipaða átt og hér er rætt um. Allmikið hefur verið rætt um nauðsyn breytinga á fræðslulöggjöf okkar fslend- inga almennt. en minna og alltof lítið um það misrétti sem sveitafólkið býr vlð í þeim efnum. Fyrsta sporið til úrbóta er að leiðrétta þetta misrétti. Þar dugar ekki umtalið eitt. Alþingi og stjórnvöld verða að taka það raunhæfum t.ök- um til úrlausnar. Þegar að því kemur væntí ég þess að ekki standi á skiln- ingi og stuðningi sveitafólks íns. Framtíðarheill þjóðarinnar saga hennar og menning, er að verulegu leyti bundin því. að hlúð verði að frumrótun- um, samskiptum fólksins við landið og náttúruöflin. Fólk ið, sem það hlutverk vinnur má ekki setja á annan bekk sem annarsflokks þjóðfélags- þegna í menningarmálum. Urbætur í þessum málurr mega því ekki dragast.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.