Alþýðublaðið - 21.10.1955, Síða 1
XXXVI. árgangur
Föstudagur 21. október 1955
222. tbl.
en ríki:
va ve
Mænuveiki varí
• 9
í Olfusi
VART hefur orðiS eins mænu j
Aæikitilfellis í Ölfusi. Stúlka uni
tvítugt veiktist og hefur lamazt
örlítið.
Skólunum í Hveragei’ði hefur
verið frestað um óákveðinn
tíma vegna þessa. Samkvæmt
viðtaii við héraðslækninn á Sel
fossi í gær hefur engrar mænu-
veiki orðið vart annars staðar í
Árnessýslu, og verða engar var
úðarráðstafanir gerðar þar að
svo stöddu.
5 NÝ í REYKJAVÍK
í gær voru tilkynnt 5 ný
mænuveikitilfelli í Reykjavík
og var væg lömun í einu þeirra.
Er tala mænuveikisj úklinga í
umdæmi Reykjavíkur orðin 82.
Neifar að verðbæta meira magn saltsíSd-
ar, enda þóit unnt væri að selja hana.
MOKAFLI hefur verið að undanförnu hjá reknetabátun-
um, einkum í Miðnessjó. Þó er buizt við, að veiðarnar stöðvizt
í dag eða á morgun, þar eð ríkisstjórnin neitar nú að verð-
bæía meiri saltsíld. Barst í morgun endanlegt afsvar ríkisstjórn
arinnar við umleitan um frekari verðbætur.
Félag síldarsaltenda við
Faxaflóa tilkynnti í fyrradag,
að lokið væri söltun í þær 75
þús. tunnur, er ríkisstjórnin
hefði ákveðið að verðbæta.
ÁRANGURSLAUSAR
VIÐRÆÐUR
Hófu síldarsaltendur þegar
viðræður við ríkisstjórnina um
frekari verðbætur, þar eð mok-
afli væyi enn á Faxaflóa og síld-
in óvenju góð, en frystihúsin
ættu erfitt með að anna síldar-
frystingu. Var síðasti fundur-
inn haldinn í gærmorgun, en
Einungis 200 af 60 þús. tékknesk-
um flóttamönnum vildu snúa affur
. Tékkneska stjórnin bauð að horfið
yrði frá ákærum gegn þeim.
EINUNGIS 200 af 60 þúsund tékkneskum flóttamönnum
liafa þegið boð tékknesku stjórnarinnar um að horfið yrði frá
ákærum gegn þeim, ef þeir snéru aftur til Tékkóslóvakíu. Hafa
tékknesku sendiráðin lagt sig fram. til þess að fá landflótta
Tékka til þess að hverfa heim, en árangurinn er sem áður segir.
Leiðtogar tveggja flótta- 22—23 ÞÚSUND í SVÍÞJÓÐ
mannahópa voru nýlega á ferð
í Osló. Anriar þeirra var leið-
togi tékkneska frelsisráðsins í
Bandaríkjunum, dr. Petr Zenkl.
Dr. Rei sagði að milli 22 og'
23 þúsund eistlenzkir flótta-
menn væru nú í Svíþjóð. Litu
þessir menn á það sem köllun
Upplýsti hann að um 60 þúsund sína að láta heiminn vita um
tékkneskir flóttamenn væru nú ástandið í Eistlandi í dag og
á Vesturlöndum. Formaður eist j-étt landsins að verða frjálst.
neska þjóðarráðsins, dr. jur. i___________________________
August Rei, lét svo um mælt, að
60 þúsundir Eistlendinga hefðu
flúið land meðan á stríðinu stóð
og eftir stýrjöldina. Dr. Rei var
áður forseti Eistlands og gegndi
einnig embætti utanríkisráð-
herra. Þá var hann í sendinefnd
inni, er fór til Moskvu árið
1940. Þegar Rússar hernámu
Eistland árið 1940 flýði hann
land og hélt til Svíþjóðar.
VARAFORSÆTIS-
RÁÐHERRA TÉKKA
Dr. Petr Zenkl var varafor-
sætisráðherra Tékkóslóvakíu á
árunum 1946 til 1948. Hann var
einnig borgarstjóri í Prag um
tíma. 'Eftir valdarán kommún-
ista í Tékkóslóvakíu var hafð-
ur um hann vörður dag og nótt,
en honum tókst þó að flýja land. |
Dr. Zenkl kvað tékknesku sendi i
ráðin gera sitt ýtrasta til þess [
að fá tékkneska flóttamenn til
að snúa aftur til Tékkóslóvakíu,
en þær tilraunir hefðu borið lít
inn árangur.
ríkisstjórnin vísaði þá málaleit
an síldarsaltenda algerlega á
bug.
UNNT AÐ SELJA
MUN MEIRA
Vitað er að unnt væri að selja
mun meira magn saltsíldar en
þegar hefur verið samið um.
Höfðu Rússar t. d. óskað eftir
því að kaupa mun meira magn.
En ríkisstjórnin virðist engu
skeyta því þó að unnt sé að
moka upp gjaldeyrisverðmæt-
um úr Faxaflóa. Hún virðist
kunna því betur að fá gjaldeyr-
istekjur af Keflavíkurflugvelli.
8 BÁTAR MEÐ 1000 TUNNUE
Frá Akranesi reru 8 bátar í
fyrrinótt. Fengu þeir allir góð-
an afla og lögðu upp um 1000
tunnur. Voru tveir bátanna með
150 tunnur hvor. Aflinn fór í
frvstingu, en með því að frysti
húsin eru alveg að fyllast er ó-
víst nema bátarnir stöðvist í
dag eða á morgun.
EKKI UNNT AÐ TAKA
VIÐ KARFA HELDUR
Akurey er nú að losa karfa á
Akranesi. En tilkynnt hefur
verið að ekki verði unnt að taka
við meiri karfa úr honum. Eru
frystihúsin á Akranesi alveg að
fyllast. Er því allt útlit fyrir að
ekki aðeins síldveiðarnár stöðv
ist, heldur einnig karfaveiðarn
ar. Því að alls staðar er sömu
sögu að segja: Frystihúsin eru
yfirfull og anna ekki frekari
karfafrvstingu.
Stein Erikson olympíumeistari í svigi kom hingað til Reykja-
i víkur í fyrrinótt með flugvél Loftleiða frá Svíþjóð. Hélt hann
áfram með flugvélinni til Bandaríkjanna. Myndin er tekin er
er hann var á vellinum. Sést Erikson til vinstri ás^mt flug-
stjóranum.
Sjómannaféiag Reykjavíkur
ára á sunnudaainn
Afmælishófið annað kvöld í Iðnó; veg-
jegt afmælisblað af Sjómannirsum.
SJÓMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR á fjörutíu ára af-
mæli á sunnudaginn kemur. Félagið minnist afmælisins með
samsæti í Iðnó annað kvöld og á raorgun kemur út veglegt af-
j mælisblað af Sjómanninum, -málgagni félagsins.
j Afmælishófið í Iðnó hófst með
jborðhaldi kl. 7.30. Garðar Jóns-
son formaður félagsins flytur
[ minni félágsins, Guðmundur
Jónsson ópei'usöngvari svngur,
Brynjólfur Jóhannesson leikari
mikla 1916, Blöndahlsslagurinn
1923, Sjórnendur sjómannafé-
lagsins í fjörutíu ár. Viðtöl við
nokkra brautryðjendur: Jón
Guðnason, Jón Bach, Hjörtur
Guðbrandsson og Jósef Hún-
les upp, Hjálmar Gíslason syng j fjörð. Viðtöl við þrjá starfandi
ur gamanvísur. Þá verða frjáls- (Frh. á 7. síðu.)
ar ræður.
AFMÆLISBLAÐIÐ
I afmælisblaðinu er þetta
efni: Upphaf sjómannasamtak-
anna, baráttuárin. Verkfallið
og fogara-
Samkomulag um að óska éftir því til kaups.
Frystihúsamál Reykjavíkur
voru allmikið til umræðu á
fundi bæjarstjórnar Reykja-
víkur í gær. Var það ekki að
tilefnislausu, eins og ástand-
ið hefur verið í þessum mál-
urn undanfarið.
RÆTT UM KAUP
Á FISKIÐJUVERINU
Borgarstjóri upplýsti á
fundinum, að undanfarið
hefðu forstjórar Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur átt allmarga
fundi mcð forstjórum ann-
arra útgerðarfyrirtækja bæj-
arins og rætt um hugsanleg
kaup á Fiskiðjuveri ríkisins.
Sagði borgarstjóri að sam-
komulag hefði orðið um að
fara þess á leit við ríkisstjórn
ina, að fá Fiskiðjuverið til
kaups.
3 MILLJÓNIR KOSTNAÐUR
VIÐ BREYTINGAR
Talið er, að unnt væri að
auka aí'köst Fiskiðjuvers ríkis
ins mjög mikið með nokkrum
breytingum. Mun ætlun tog-
araeigenda sú að gera þær
breytingar, ef húsið fæst til
kaups. Talið er, að kostnaður-
inn yrði kringum 3 milljónir.
10 MILLJ. AÐ BREYTA
FAXAVERKSMIÐJUNNI
Áður hefur verið rætt um
að breyta Faxaverksmiðjunni
í hraðfrystihús. Mun það þó
talið of kostnaðarsamt, þar eð
samkvæmt áætlunum mvndi
sá kostnaður nema um 10
millj. kr. eða nær því hinni
sömu upphæð og kosta myndi
að reisa nýtt frystihús frá
grunni.
Enn frestar íhaldið
ákvörðun um smíði
togara í stað Jóns
Baldvinssonar.
ALLIR minnihlutaflokk-
arnir í bæjarstjórn báru
fram svohljóðandi tillögu í
gær: Bæjarstjórn samþykkir
að lieimila útgerðarráði að
semja'um smíði á nýjum tog
ara í stað b.v. Jóns Baldvins-
sonar sbr. samþykkt ráðsins
um þetta 15. júní s.l. Flutn-
ingsmenn voru Oskar Hall-
grímsson, Alfreð Gíslason,
Sigríður Björnsdóttir, Guð-
mundur Vigfússon og Gils
Guðmundsson. Bæjarstjórn-
aríhaldið frestaði málinu
enn einu sinni og virðist það
staðráðið í að koma í veg fyr
ir smíði skipsins, enda þótt
útgerðarráð hafi fyrir all-
löngu samþykkt að fá smíð-
að nýtt skip.