Alþýðublaðið - 04.12.1955, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.12.1955, Blaðsíða 3
Sunnudagur 4. deseniber 1955. 3 í AlþýðnblaSið Mest umtalaða bók ársins Bonjour tristesse eftir FANCOISE SAGAN, 18 ára franska stúlku, kemur í bókaverzlanir næstu daga. Þessi sérstæða franska skáldsaga hlaut Grand Prix des Critiques bókmenntaverðlaunin. Bókin hefur nú verið gefin úc í flestum Evrópulöndum og í Bandaríkjunum og selzt í meiva en milljónum eintökum. Takið eftir útgáfudegi þessarar bókar. Hún verður senn á allra vörum. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR SiiiimimuxMiiiiMii ■■■■>■ ITepa- ! fiii ■ Verð kr. 32.00 Fischersundi. ialMMMI • ■■■■■■■■■■■■■■■■■■ '*■ ■ ■ I*. ■ ■■■■■■■■■■! ÍHANNES ÁHORNINU' VETTVANGUR DAGSINS e!iiiii!;iiiiii!iiii[i;iiiiiii;miMKTniinTHiiii» Þegar blaðamennirnir samþykktu heimild til vinnu- stöðvunar — Saga til næsta bæjar — Of mikil mælgi Eiga ekki að syngja gamanvísur. HVERN SKYLDI hafa dreymt um það fyrir tuttugu árum, að allir blaðamenn stæðu saman um kaupkröfur, að þeir eftir árangurslausar viðræður við blaðaútgefendur efndu til alls- herjaratkvæðagreiðslu sam- kvæmt vinnulöggjöfinni um heimild til verkfallsboðunar, að þeir mættu nær allir til atkvæða greiðslunnar og samþykktu ein- róma að veita heimildina? — ÞAÐ ER VON að ég spyrji. Blaðamannafélagið, sem við endurreistum fyrir tuttugu ár- um, er orðið heilsteypt stéttar- félag, án alls tillits til stjórn- málaskoðana og allir eru sam- mála um að standa saman, þegar f nauðirnar rekur. MÉR FANNST ÞAÐ sannar- lega furðuleg sjón á miðviku- daginn var, að sjá blaðamenn írá öllum blöðum fjölmenna í ritstjórnarskrifstofu Alþýðu- blaðsins til þess að greiða at- kvæði í herbergi formanns síns, Sigvalda Hjálmarssonar, enda fannst þeim þetta dálítið skrítið sjálfum og höfðu gamanyrði á vörum. Þarna fylgdust þeir að S S S s s s S U V/Ð AKMAKHÓL að skrifstofuhurðinni blaðamenn irnir frá Þjóðviljanum og Morg- unblaðinu og hljóta, eftir úrslit- unum að dæma að hafa greitt atkvæði eins. EN BLAÐAÚTGEFENDUR skutu blaðamönnum ref fyrir rass, eða svo gott sem, þeir báðu þá að senda nefnd sína til við- ræðna og þegar á fund kom lá íyrir tilboð, sem blaðamennirn- ir ræddu sín á milli, sendu gagn tilboð — og svo féll allt í ljúfa 1 löð. Þetta var svo sem ekki stórt deilumál, aðallega deilt um vísitöluna — og, sem betur fer, kom ekki til verkfalls, en það hefði verið saga til næsta bæjar, ef blöðin hefðu öll hætt að koma út vegna verkfalls blaðamanna, Jón Bjarnason hefði staðið verkfallsvörð hjá Morgunblaðinu og Sigurður Bjarnason hjá Þjóðviljanum, ] Thorólf Smith hjá Alþýðublað- inu, Bjarni frá Hofteigi hjá Tím anum og Helgi Sæmundsson hjá Vísi. ÞAÐ ER ALLT OF mikið af ræðuhöldum fyrsta desember. Maður verður hundleiður á þessu kjaftæði allan daginn. Það er sjálfsagt áð minnast fyrsta desember 1918, en þessi dæma- lausa mælgi allan daginn er þreytandi og í raun og veru þurrkar hún út áhrifin af þeim minnigum, sem bundnar eru við þennan merkisdag. Ég er ekki með þessu að segja, að ræðurn- ar hafi ekki verið góðar og hver út af. fyrir sig haft eitthvað það að boða, sem til uppbyggingar mætti verða, en þær voru of margar. SVO VIL ÉG ekki að Gestur Pálsson syngi gamanvísur. Það er hörmung að heyra gaman- vísnasöng Lárusar Pálssonar, en Gestur tekur honum þó fram í hörmunginni. Þeir eru báðir af- bragðs leikarar. Það er nóg. * I Hannes á horninu. | Old Spice ■ vörur .■ ■ ; Rakspritt ; Sápa í túpum og ; krukkum : Talkúm I Svitacrem ■ ■ ■ : Einkaumboð ■ ■ .■ j Péfur Péfursson : Hafnarstræti 7 ■ : Laugavegi 38. KROSSGATA NR. 940. / 2 3 ¥ 1 sr L ? * « <? m ■m ■ ■ 10 ii u ■ ■ 1 : X ■ ■ 13 /V IS ■ 0 ■ U n \ /« 1 Lárétt: 1 sáðland, 5 heill, 8 fela, 9 drykkur, 10 skott, 13 ó- nefndur, 15 þingmaður, 16 skemmtun, 18 skrafar. Lóðrétt: 1 ófrjálst land, 2 jarðvinnsluvél, 3 höfuðborg, 4 glöð, 6 vökvi, 7 hegna, 11 skelf- ing, 12 bylgja, 14 tók, 17 tveir eins. Lausn á krossgátu nr. 939. Lárétt: 1 nikkan, 5 ylur, 8 runa, 9 mó, 10 rofa, 13 in, 15 fata, 16 lend, 18 fælin. Lóðrétt: 1 nirfill, 2 iður, 3 kvn, 4 aum, 6 lafa, 7 rólan, 11 ofn, 12 Atli, 14 nef, 17 dl. vantar i Vifilsstaðahælið strax. — tjpplýsingar gei'ur yfirhjúkrunarkcnan í sírna: 5611 milli kl. 2—3 á dágkm. vantar ungling til að bera blaðið til áskrifenda á GRETTISGÖTU. Talið við afgreiðsluna - !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ ■■■■■■■■■■ BaDBBBfiiMMRifimiiaDiiRa Hef opnað Lösmynda Filman. Ljósmyndastofan tekur að sér allar venjulegar Filman. Ljósmyndastofan tekur að sér allar venjulegar myndatökur á stofunni, auk þess auglýsingamvndir, myndatökur í heimahúsum, samkvæmum o. fl. eftir því sem tími vinnst til. PASSAMYNDIR afgreiddar daginn eftir að þær eru teknar. Allar prufur afgreiddar eftir tvo daga. Áherzla lögð á vandaða vinnu. Bergstaðastræti 12. Bergstaðastræti 12 Símar 1367 Sími 1367 Þórscafé. Þórscalé. Sömíu oq nýju í Þórscafé í kvöld Símí 6497. bi si Bi * ii n ti *i b m k *) ti «i n u «i» ii m » u ■ m u «i Imgólfscalé. iBgóífseafé. Dansleskur í Ingólfscafé í kvöld kjukkán S. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. — Sími 2826. í 3 5 II ■ B W I' Kl R II U «: U II W I: V ■! ■ ■> Alþýðuhúsið í Hafnarfírði í kvöld. Góð híjómsveif. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 8. — Simi 9499.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.