Tíminn - 05.03.1965, Síða 3
FOSTUDAGUR 5. marz 1965
TEMINN
í SPEGLITÍMANS
Alexandra prinsessa var nýlega
í þriggja daga heimsókn í Norð-
ur-frlandi, og er þessi mynd
tekin við það tækifæri. Hún
„Þetta er okkar maður,“ segir Scotland Yard, og á þá við, að
að þessi mynd sé í aðalatriðum lík „Jack the Stripper”, morð-
ingjanum, sem myrt hefur að undanförnu sex gleðikonur í Lond-
on og skilið lík þeirra eftir nakin. Scotland Yard lét teikna
þessa mynd eftir ýmsum lýsingum, sem fram hafa komið hjá
mörgum þcirra, sem lögreglan hefur yfirheyrt.
Prestar í Rússlandi hafa nú
tekið upp samkeppni við útvarp
sjónvarp og kvikmyndir, —
og baráttan snýst að sjálfsögðu
um unga fólkið. Sovézka blað-
ið „Gazette” segir, að prestar
í bænum Telesy í Úral spili
nú dægurlög á harmónikur í
kirkjunni og haldi jazzdansleiki
fyrir unga fólkið.
Sumir prestanna fara aðrar
leiðir. Þeir sýna t.d. mikinn á-
huga á ýmsum áhugamálum
unglinganna, svo sem akstri,
knattspyrnu og drykkjusam-
kvæmum! Og blaðið segir, að
einn prestanna hafi m.a. geng-
ið svo langt í að vekja á sér
athygli, að hann hafi stigið
upp í prédikunarstólinn klædd
ur náttfötum .
Sovézkir vísindamenn hafa
reiknað út, að ísinn á Norður-
heimskautinu sé 10.8 milljónir
ferkílómetra að stærð að vetr-
arlagi, en einungis 8 milljónir
ferkílómetra að sumri til.
★
Fréttastofan Nýja Kína sendi
nýlega út „ævintýri” um epli
eitt, nokkra brjóstsykursmola
og upphyggingu sósíalismans.
Sagan byrjar á því, að suður-
amerískur ferðamaður gaf
tveim ungum skólastúlkum í
Shanghai eplið og brjóstsykurs
molana. Gjöf þessi gekk síðan
frá einuum til annars, því að
allir vildu, að hún hafnaði hjá
þeim, „sem hafði gert mest
fyrir uppbyggingu sósíalism-
ans’. Gjöfin gekk á milli lögregl
umanns, einnar deildar flug-
hersins, verkamanna í Kiang-
han, flugdeildar flotans og
margra fleiri, en hafnaði að
lokum á sjúkrahúsi. Þegar svo
langt var komið, var epl'ið ó-
ætt, en brjóstsykursmolunum
var skipt niður á milli sjúkling-
anna, sem samtímis lofuðu því
að gera sitt bezta fyrir upp-
byggingu sósíalismans, þegar
þeir losnuðu af sjúkrahúsinu.
Og síðar hafa verið skrifaðir
söngvar, ljóð og leikrit um
þetta merka epli og brjóstsyk-
ursmolana, segir Nýja Kína.
★
Vefarar í sovétlýðveldinu
Turkmenistan hafa búið til
teppi, sem líklega er hið
stærsta í heiminum, og gefið
þinghöllinni í Kreml það. Tepn
ið vegur eitt tonn og er 252
fermetrar .
★
ísrael afhenti vestur-þýzkum
yfirvöldum nýlega hina
„Svörtu bók“, sem fjallar um
örlög evrópskra Gyðinga í síð
ari heimsstyrjöld. í bókinni eru
alls nefndir 25.000 staðir, þar
sem Gyðingar voru myrtir af
nazistum.
vígði m.a. nýtt skip, sem er
í eigu flota Nýja-Sjálands,
„H.M.N.Z.S. Waikato” í Bel-
fast.
☆
Ný sólgleraugu eru komin á
markaðinn, og eru þau þeim
merka eiginleika gædd, að litur
þeirra breytist eftir því, hversu
sterk sólin er. Verður glerið
dekkra um leið og sólskinið
verður sterkara og öfugt.
☆
Nú eru þeir í Bandaríkjun-
um farnir að selja skinnklædda-
ísskápa. Er hségt að velia á
milli ísskápa klædda nauta-
skinni, með tilheyrandi _ horn-
um, eða mink. Nautaskinnið
kostar um 4200 krónur íslenzk
ar, en minkurinn 45 þúsund
krónur.
Myndin hér að ofan er af leikkonunni Ann-Margaret, sem þessa s tundina er bálreið út í framleiðendur sína og kvikmyndaeftirlit-
ið ,vegna þess, að sum atriði í síðustu kvikmyndum hennar hafa verið klippt burt „af siðferðislcgum ástæðum.”
Á VÍÐAVANGI
//
.Viðreisn hins fallna
Sunnlendingur sendir blað-
inu eftirfarandi pistil:
„Frá því er sagt í blaðinu
Suðurland 27. febr. sl. að fram
kvæmdanefnd í hafnarmálum
Eyrarbakka, þeir Vigfús Jóns-
son, oddviti, Sigurður Guðjóns
son og Óskar Magnússon, hafi
unnið að málum hafnarinnar á
þann hátt að hafa samráð og
samstarf við þingmenn stjórnar
flokkanna í kjördæminu, þá Ing
ólf Jónsson, Sigurð Óla Ólafs-
son, Guðlaug Gíslason og Unn-
ar Stefánsson, og er árangri
af þessu samstarfi hrósað mjög.
Tvennt vekur sérstaka athygli í
frásögn blaðsins af þessu máli.
Er það í fyrsta lagi, að Unnar
Stefánsson, sem féll við kosn-
ingar til Alþingis í Suðurlands-
kjördæmi árið 1963, er talinn
þingmaður kjördæmisins, og er
hafður sem slíkur með í ráð-
um ásamt þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins, þegar ráðgazt
er um hafnarmál Eyrarbakka,
en eins og kunnugt er, þá er
Unnar varamaður landkjörinna
þingmanna Alþýðuflokksins,
en hefur aldrei verið þingmað
ur eða varaþingmaður í Suður-
landskjördæmi. Hitt, sem einn-
ig vekur athygli, er það ein-
kennilega hátterni, að helming-
ur þingmanna Suðurlandskjör
dæmis skuli vera sniðgenginn,
þegar hafnarmál Eyrarbakka
eru rædd. Er ekki kunnugt, að
þess háttar vinnubrögð tíðkist
í öðrum kjördæmum.”
Einræði og ofríki
„Ein höfuðrökin fyrir kjör-
dæmabreytingunni 1959 voru
þau hjá Sjálfstæðisflokknum
og Alþýðuflokknum, að mál-
efnaleg aðstaða kjördæmanna
myndi styrkjast, þegar þau
hefðu eignazt marga þingmenn
sem myndu leggjast á eitt um
að koma fram innbyrðismálefn-
«m þeirra. Er svo að sjá af
vinnubrögðum þeim, er höfð
hafa verið í hafnarmálum Eyr-
arbaKkB, sem þessi rök ’hafi
ekki verið í alvöru sögð. Að
minnsta kosti virðist stjórnar-
liðið ekki fara eftir þeim í Suð
urlandskjördæmi, hvorki fram
kvæmdanefnd hafnarinnar á
Eyrarbakka né þingmenn stjórn
arliðsins þar, sem eftir upp-
lýsingum Suðurlands virðast
hafa unnið í felum að þessu
máli með hinn fallna fram-
bjóðanda Alþýðuflokksins sér
til fulltingis. Hafa þingmenn
Sjálfstæðisflokksins þannig met
ið höfuðrök sín í kjördæmamál-
inu minna heldur en fulltingi
hins margfallna frambjóðanda
* 'bv*u*lnkksins. F,ru þessi
vinnubröeð stjórnarliðsins í
S.-landskjördæmi eftirtektar-
og íhugunarverð, og glöggt
dæmi um þá einræðis og of-
ríkisstefnu, sem þessir flokkar
þykjast mega beita stjórnmála
lega andstæðinga sína, þegar
þeir einir hafa völd. Líklega
eru slík vinnubrögð um þýðing-
armikið málefni, sem allfjöl-
mennt bvggðarlae á mikið und
ir, að nái fram að ganga, til
farsælla lykta. næstum eins-
dæmi hér á landi.”