Tíminn - 05.03.1965, Page 7

Tíminn - 05.03.1965, Page 7
FÖSTUDAGUR 5. marz 1965 ÞINGFRÉTTIR TÍMINN ÞINGFRETTIR Skipulagðir verði víðtækir f lutn- ingar á bræðslusild og saltsíld Björn Jónsson hafði framsögu í sameinuðu Alþingi í fyrradag fyrir tillögu um síldarflutninga og skipulag síldarlöndunar. Kveður tillagan á um að ríkisstjómin beiti sér fyrir stofnun samtaka eigenda síldarverksmiðja og síld- arsöltunarstöðva um rekstur flutn ingaskipa til síldarflutninga og komið verði á fót miðstöð, er stjómi allri löndun síldveiðiskipa með tilliti til fyllstu nýtingar af- kastagetu vinnslustöðva. Umræðu um málið var frestað að ræðu Björns lokinni en framhaldið á kvöldfundi í fyrrakvöld og töluðu þá um þetta mál þeir Jón Kjart- ansson og Ingvar Gíslason. Jón Kjartansson sagði, að á síð- asta sumri hefði hvergi nærri ver ið unnt að salta alla þá síld, sem unnt var að selja. 360 þús. tunnur voru saltaðar, 51 þús. tunur fóru í frystingu og í bræðslu fóru 2 millj. 13 þús. mál. Aldrei fyrr í síldveiðisögunni hefur jafn mikið magn síldar borizt á land á sumar- og haustvertíð og er það að sjálf- sögðu öllum mikið fagnaðarefni, en þrátt fyrir þessa góðu veiði reyndist ekki unnt að salta upp í gerða samninga og vantaði 74 þús. tunnur á. Gjaldeyristap það, sem þjóðin hefur orðið fyrir á þennan hátt má áætla um 60 millj. og nú er það vitað, að unnt hefði verið að semja fyrirfram um sölu á mun meira síldarmagni heldur en var gert, mun meira, og skipt- ir það magn, sem hægt var að selja sennilega hundruðum þús. tunna. Það er hörmungarástand hjá þjóð eins og íslendingum, sem byggir lífsafkomu sína á sjávar- útvegi svo sem raun ber vitni, að aðeins 10% af síldarafla gjöful- asta síldveiðisumarsins skuli nýtt- ur til söltunar. Þegar þetta er rætt við útlendinga, hafa þeir sumir hverjir látið það í ljós, að þetta sé nærri því eins mikið undrunar- efni eins og tilkoma Surtseyjar. Ef síldin verður á miðum fjarri stærstu og afkastamestu síldar- vinnslustöðvunum, verður að flytja hana þangað. Ekki fyrst og fremst vegna fólksins, sem þar býr, sem er að sjálfsögðu veigamik ið atriði heldur einnig vegna út- gerðarmanna, vegna sjómanna og vegna ríkissjóðs sjálfs og þá er haft í huga bæði gjaldeyristekjur og annað. Menn framarlega í sjávarútvegs málum hvöttu á síðasta vori til skipulegra sildarflutninga, en þeir fengu enga áheyrn. Það er útilok- að, eins og ástandið er núna og uppbygging fyrir austan að ætla sér að salta kannski allt að 800 þús. tunnur á Raufarhöfn og stöðv unum fyrir austan Langanes. Ef við getum selt þetta magn og e.t.v. meira, þarf vissulega að grípa til síldarflutningaskipanna næsta sumar. Þó saltendur hafi fullan hug á að skipuleggja sjálfir flutn- ingana, er lítil von á því, að þeir geri það, eins og fjárhag þeirra er núna komið. Það hafa heyrzt raddir, sem telja ófært að flytja síld til sölt- unar frá Austfjörðum og t.d. vest- ur á Skagaströnd, Sauðárkrók eða til Siglufjarðar vegna fjarlægð- anna, vegna ótta við, að síldin skemmist. Sérfræðingar í þessum málum telja annað og vitnaði Jón í grein Hjalta Einarssonar verk- fræðings um þetta efni. Flutning- ar á síld til söltunar og bræðslu kosta peninga, en það verður að finna kleifan veg í sambandi við fjármálin. í þessu sambandi virð- ist eðlilegt, að stofnaður verði einhver sjóður, sem standi undir flutningunum og í fljótu bragði virðist sem þessi sjóður ætti að byggjast upp af vissri prósentu- tölu af síldarverðinu. Eðlilegt væri, að saltendur, sem ekki fengju síld nema til flutninga kæmi, borguðu líka og svo ríkis- sjóður þriðji aðilinn. Að sjálf- sögðu þarf hann að leggja líka fram upphæð í þessu skyni, því að hann hefur stórkostlegra hags- muna að gæta. Ingvar Gíslason sagði, að at- vinnugrundvöllur norðlenzkra sjávarplássa væri að verulegu leyti háður síldarvinnslunni. Það eru bæði verksmiðjur og síldarplön og slík atvinnutæki yfirleitt uppi- staða atvinnu í norðlenzkum sjáv- arplássum. Undanfarin ár hefur skapazt mjög alvarlegt ástand á Norðurlandi vegna þess, að fisk- ur hefur brugðizt þar á miðum, bæði þorskfiskur og síldveiði. Og af þessu skapazt slæmt atvinnu- ástand. Það verður tmuðla bætt með öðru en því að sjá fiskverkunarsöðvunum og síld arstöðvunum fyrir hráefni og eru síldarflutningar þar efst á blaði. Hið opinbera verður að hlaupa hér undir bagga. Norðlendingum er það lífsnauðsyn, að áframhald geti orðið á því, að þeir njóti síldaraflans að sínum hluta. Við stöndum að vísu frammi fyrir því vandamáli að leggja verulegt fjár- magn til síldarflutninganna, en það er leysanlegt, ef eindreginn vilji er fyrir hendi og sameinuðu átaki beitt. Vandamál fjármagns- ins er þó hverfandi hjá vanda- máli atvinnuleysisins á Norður- landi. Langvarandi atvinnuleysi leiðir til þess, að þessir staðir tæmast af fólki. Það er ekkert við að vera og fólk yfirgefur eignir sínar, staðfestu sína og með því fara milljónir í súginn og það skap ar enn ný vandamál. Auk þess er það þjóðhagslega séð hæpið að láta stórvirk, vönduð og dýr at- vinnutæki standa auð og aðgerða- laus. f því er lítil fyrirhyggja. Verksmiðjurnar á Norðurlandi ættu að hafa sjálfar sæmileg skil- yrði til þess að bera stóran hluta af flutningskostnaðinum. Það fer m.a. eftir því, hvernig að þeim yrði búið um lánakjör vegna þess kostn. er af flutningunum leiðir. Frá tæknilegu sjónarmiði eru flutningar á bræðslusíld auðveld- ir. En það er ekki nóg að flytja bræðslusíld. Það er líka nauðsyn- legt að sjá síldarsöltunarstöðvun- um fyrir hráefni og með skipu- lagi og fjárhagsaðstoð mætti leysa það mál einnig. Læknishéruð FYLKJASKIPUN Karl Kristjánsson hafði í fyrra- kvöld framsögu fyrir tillögu um fylkjaskipan og sjálfstjórn héraða, er hann flytur ásamt Gísla Guð- mundssyni. Er tillagan um, að rík- isstjórnin skipi 10 manna nefnd til að athuga, hvort ekki sé rétt að skipta landinu í fylki með sjálfstjórn í sérmálum og komist nefndin að þeirri niðurstöðu geri hún tillögur um fylkjaskipunina, en í fylkjunum skuli vera fylkis- þing og fylkisstjórar, er taki að nokkru við störum Alþingsis og ríkisstjórnar. Karl Kristjánsson gerði ítarlega grein fyrir tillögunni og rakti hvernig málum þessum er skipað í Noregi og Svíþjóð, en í Noregi eru 20 fylki og í Svíþjóð 24 lén. Taldi Karl, að fylkjaskipan hér á landi myndi verða til eflingar landsbyggðinni og stuðla að jafn- vægi í byggð landsins. í niðurlagi ræðu sinnar komst hann m.a. svo að orði: Sundurleit byggðasvæði hafa sundurleitra sjónarmiða að gæta Þau þarfnast hvert hjá sér sterkra ábyrgra heimastjórna, sem eru öll um hnútum kunnugar. Við, sem að till. þessari stöndum, viljum, að athugað sé, hvort ekki sé skyn- samlegt að taka upp fylkjaskipun með fylkisstjóra í hverju fylki, sem sé framkvæmdastjóri eða odd viti svæðisins. Hann sé kosinn eða ráðinn af fylkisþingi sem háð sé einu sinni á ári og til þess sé kosið eftir föstum reglum í fylk- inu. Alþingi veitir fylkisþingun- um rétt til ákvörðunar hverju á sínu svæði í ýmsum málflokkum, svo sem skólamálum, hafnarmál- um, vegamálum, rafmagnsmálum, tryggingamálum, skipulagsmálum. Alþingi fái þeim x-íkisfé til ráð- stöfunar í sambandi við þessa málaflokka og einhvern álögurétt, e.t.v. líka Máske segir nú ein- hver: En góði maður, eykur þetta ekki skriffinnskuna, fjölgar þetta j ekki þeim. sem ríkið þarf til þjón j ustu? Ef til vill. En að mínu áliti þarf það ekki að verða að óþörfu með þessum hætti. Hitt virðist mér augljóst, að ríkisstjórnunar- báknið vex hvort sem er, og vaxi það í þvi formi, sem það er, verði það ekki plantað út frá höfuð- borginni meira en áður, þá not- ast það illa eða takmarkað til góðra þrifa. Lítill vafi er á því, að um leið og fylkin taka að sér að meira eða minna leyti fi-am- kvæmdavald, sem nú er að öllu leyti framkvæmdavald, sem nú er að öllu leyti hjá ríkisstarfs- mönnum í Reykjavik, þá ætti að j vera hægt að létta þar með til- kostnaði í Reykjavík, flytja starfs I kraftana, sem þar hafa setið, út ' í fylkin eða a.m.k. komast hjá aukningunni, sem annars vofir yf- ir ár frá ári hjá hlutaðeigandi stjórnunarstofnumim í höfuðborg- inni. Sérfræðin flyzt út í fylkin landsbyggðin hættir að þurfa að j senda sendinefndir í jafnríkum mælí á fund hennar til höfuðstað- arins. Það er líka dýrt í dag og Imikill sparnaður að létta því að miklu leyti af að senda sendi- nefndirnar á fund valdsmanna rík isins í Reykjavík og sérþekkingar- manna, sem valdastöðvarnar þar hafa í þjónustu fyrir landið. Og sérfræðin notast betur, þegar sér- fræðingamir verða heimamenn í fylkjunum. Þá öðlast þeir kunn- ugleika heimamannsins á verkefn unum og ábyrgðartilfinningu heimamanna líka. Nú er ástandið þannig, að fulltrúar koma endr- um og eins út á land frá stjórn- til að athuga verkefni þar og til skrafs og ráðagerða við sveita- j stjórnir, en venjulega eru þeir að j flýta sér miklu meira en góðu i hófi gegnir til að komast aftur ! heim.......... 1 Fólkið í landshlut- unum hefur gert tilraunir til þess að myndg samtakaheildir. Fjórð- ungasamböndin á Vestfjrðöum, j Norðurlandi og Austurlandi eru ; slíkar tilraunir Þessi fjórðunga- sambönd eru greinilegir vottar j þess, að íbúar þessara landshluta finna til landfræðilegrar og þjóð- félagslegrar samtakaþarfar inn- byrðis. Fjórðungasamböndin halda fulltrúasamkomur eða þing er ræða málefni síns landshluta og almenn málefni er snerta hann mikið, og álykta um þau. Ilins vegar vantar þessi samtök allt þjóðfélagslegt vald, en þau hafa undirbúið jarðveg fyrir fylkjaskipun. Fyrir meira en hálf- um öðrum áratug gerðu fjórðunga samböndin tillögur um að skipta Framhald á 14. síðu Framhald af 1. síðu Vestfjörðum skyldu lögð niður — einkum þó Suðureyrarlæknishér að, sem er einangrað í samgöng- um á vetrurn, en þar dvelja um 600 manns meðan vetrarvertíð stendur yfir. Fer hér á eftir frá- sögn af helztu atriðum frumvarps ins og umræðunum, sem urðu um málið á Aliþingi í dag: , Jóhann Iiafstein mælti í neðri í gær fyrir stjornarfrumvarpi til nýrra læknaskipunarlaga. Telztu nýmæli frumvarpsins eru þessi: Niður verða lögð 5 núverandi læknishéruð og sameinuð ná- grannahérðum og eru héruðin: Plateyjanhérað, Suðureyrarhérað, Djúpavíkurhérað, Raufarhafnar- hérað, Bakkagerðishérað og enn- fremur felld niður heimild til stofnunar Staðarhéraðs. Áður en þrjú þessara héraða, þ.e. Suður eyrarhérað, Raufarhafnarhérað og Bakkagerðishérað, eru lögð nið ur skal auglýsa þau þrisvar í röð með þeim hlunnindum, sem felast í frumvarpinu — en verði þau lögð niður er heimilt að ráða að- stoðarlækna til að sit.ia hluta árs- ins á Suðureyri, Raufarhöfn og Bakkagerði. Heimilt skal að ráða lækni með ótiltekinni búsetu til að veita neyðarþjónustu í læknis lausum héruðum, heimilt að sam eina læknishéruð og koma upp læknamiðstöðvum fyrir sameinuð héruð. Við veitingu héraðslæknis embætta skal sá umsækjandi, sem hefur lengstan starfsaldur sem héraðslæknir sitja fyrir öðrum. í 17 læknishéruðum og 5 til við- bótar ef þörf krefur skal greiða héraðslækni staðaruppbót á laun, er nemi hálfum launum í hlutað eigandi héraði. Héraðslæknir, sem setið hefur 5 eða 3 ár í hér- aðinu skal eiga rétt á að hljóta árs frí með fullum launum til framhaldsnáms. Embættisstarfs aldur héraðslækna skal teljast 5 ár fyrir hver 3 ár, sem hann gegn ir héraðlæknisstörfum. Heimilt skal að veita læknastúdentum ríkislán til náms gegn skuldbind ingu um læknisþjónustu í héraði að afloknu námi og stofna skal Bifreiðalánasjóð héraðslækna með 1 milljón króna framlagi úr ríkis sjóði. Frumvarpið er samið af 6 manna stjórnskipaðiú nefnd. Sigurvin Einarsson sagði þetta furðulegt frumvarp. Með því væri lagt til að 3 læknishéruð á Vest fjörðum verði lögð niður og kvaðst ekki skilja slíka ráðstöfun — sem ráðherrann telji til ávinn ings. Nær væri að setja lagaá- kvæði um að læknar í nágranna- hénxðum skuli þjóna þeirn héruð um sem læknislaus eru. Fólkið á Suðureyri fær fallega kveðju með þessu frumvarpi Nú er hafís fyr ir landi, heiðin ófær og nú á að lögbjóða, að þar verði læknislaust. Þá ræddi Sigurvin noxkur önnur atriði frumvarpsins, sem hann taldi orka tvímælis, m.a. að Flat- eyingar mættu ekki sækja lækni skemmri veg en til Stykkishólms og að ekkert bráðabirgðaákvæði væri um það, að læknishéruðin skyldu ekki lögð niður, ef lækn ar fengjust í héruðin með þeim hlunnindum og staðaruppbót, sem frumvarpið ráðgerði. Sigurvin sagðist vilja leggja sérstaka á- herzlu á það, að hann mótmælti því harðlega, að læknisembættið. á Súgandafirði yrði lagt niður. Hannibal Valdimarsson tók í sama streng og Sigurvin og upp- lýsti, að oddvitinn á Suðureyri 'hefði haft samband við sig, og skoraði á þingmenn Vestfjarða og Alþingi að Suðureyarlæknishérað yrði ekki lagt niður. Óhug hefði slegið á íbúa Suðureyrar við frétt ir af þessu fnimvarpi.. Suður- eyri væri vaxandi sjávarþorp, sem væri einangrað mjög að vetrum en þar væru um 600 manns á vetr um og gæti þetta losað um fjölda fjölskyldna er flyttust á brott, ef nú væri lögboðið að leggja nið ur læknisembætið. Hreinlegra væri að segja við fólkið, að Suður eyri væri lögð niður og flytja fólkið á brott. Hér væri um að jræða tilræði við þetta byggðar- lag. ! Jóhanni Hafstein varð heitt í hamsi er hann svai’aði þessum ræðum og kom til illyrtra orða- hnippinga milli hans og Hanni- bals Valdimarssonar og orðbragð ið ekki sérlega þinglegt, þótt forseta þætti ekki ástæða til á- minninga. Kristján Thorlacius sagði, að með staðaruppbótinni (50%) færi ríkisstjórnin inn á rétta leið til lausnar þessum vandamálum. En sama ætti við um margar aðr ar stéttir í þjónustu ríkisins, sem mikilvægu hlutverki gegndu. Launakjör þeirra þyrfti að bæta eftir svipuðum leiðum. Minnti Kristján á hinn geigvænlega skort á hjúkrunarkonum, sem nú væri ríkjandi, en tvö ný, stór sjúkra hús tækju brátt til starfa. Það mál yrði ekki leyst nema með bættum kjörum. Sama gegndi um kennara og fl. Ráðherrann talaði um hættu á ferð samfara þvi að hefja greiðslu staðáruppbóta til lækna, því að hætt sé við að fleiri geri svipaðar kröfur. Sagðist hann ekki sjá að hér væri nokkur hætta á ferð heldur þvert á móti væri leystur mikill vandi með þessari leið fyrir fólkið út á landsbyggðinni. Nágrannaþjóðirn ar hafa tekið upp greiðslu staðar uppbóta til margra stétta starfs manna ríkisins og ríkisstjórnín ætti að beita sér fyrir því að leysa vandamáln eftir þeirri leið. Einar Olgeirsson lagði áherzlu á að stjórn Læknadeiidar háskólans væri tekin undir rannsókn. Þar væri afturhaldssjónarmið ríkj- andi. Umræðunni var frestað.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.