Tíminn - 05.03.1965, Side 11

Tíminn - 05.03.1965, Side 11
FÖSTUDAGUR 5. mara*í965 TÍMINN UPPREISNIN 1Á BOUNTY 115 DVUIll V Charles Nordhoff og James N. Hall og mér finnst fara vel á því. AS öðru leyti hygg ég að leitun sé á æskulýð, sem er betur fær um að gæta sín sjálfur. Þau þekkja hverja einustu jurt, hvert blóm og hvert tré á eyjunni, og vita, til hvers á að nota hverja jurt. Þeir þekkja nöfnin á öllum fiskunum, vita um göngur þeirra og hvernig hægt er að veiða þá. Og þau eru orðin svo vön sjónum, að þeim finnst þau eiga heima þar. Og þau kunna ágætlega að synda. í fyrri viku syntu sum þeirra nærri því umhverfis alla eyjuna sér til gamans. Mary Christian var meðal þeirra. Þa/i eina, sem ég óttaðist var það, að skip kæmi hingað og flytti mig burtu. Ég sagði Folger skipstjóra á Topaz, að ég væri einn af uppreisnarmönnunum á Bounty. En ég skýrði honum ekki frá því, sem skeð hafði hér — því, sem ég hef skýrt yður frá — en aftur á móti sagði ég honum frá öllu viðkomandi uppreisninni. Hann taldi kjark í mig. Hann hafði heyrt sagt frá uppreisninni, en það var svo langt síðan, að hann þóttist viss um, að enginn myndi fara með mig burtu, til þess að hengja mig hér eftir. Ég hughreysti gamla manninn. Ég sagði honum, að upp- reisnin væri löngu gleymd, og að hann þyrfti ekki lengur að óttast neitt. — Ég mun ekki kvíða lengur, fyrst þér segið mér, að uppreisnin sé löngu gleymd. Ég var ekki hræddur sjálfs míns vegna. En enginn ungu mannanna er ennþá orðinn svo gamall, að hann geti tekið að sér að sjá um þessa stóru fjölskyldu. Og ég elska öll börnin, eins og ég ætti þau sjálfur. — Segið mér eitthvað um herra Christiari, sagði ég. — Var harni nokkru sinni hamingjusamur hér? — Nei, hann var aldrei hamingjusamur hér. Það er áreið- anlegt. Hann sagði ekki einu sinni herra Young frá hugs- unum sínum. En við vissum, hvemig honum leið. Það er ekki vafi á því, að hann var mjög einmana. — Deildu menn hans nokkru sinni við hann? — Það get ég varla sagt! Það var ekki efast um það, hver væri yfirmaður hér. Quintal reyndi það einu sinni. Hann sagði, að það væri í raun og veru Christian, sem væri aðalorsök allra þessara blóðsúthellinga og þessarar eymdar. Herra Christian lagði ekki hendur á hann, en það var í fyrsta og síðasta sinn, sem reynt var að sýna Christian mótþróa. — Talaði herra Christian nokkru sinni um heimili sitt? — Ekki svo ég viti. Ég heyrði hann aldrei minnast á heimili sitt eða England. En ég hygg þó, að hann hafi oft hugsað um England. Hann var geysiduglegur verkmaður. Ég held áreiðanlega, að hann hafi unnið tveggja manna verk við að brjóta land og byggja hús. Þér skiljið það, að enginn okkar hafði tíma til þess að leggjast í leti og iðjuleysi. Skömmu eftir að við komum hingað fann herra Christian stóran helli á tindi kletts eins hér norður á eyj- unni. Þangað fór hann oft, þegar hann vildi fá að vera einsamall. Stundum var hann þar dögum saman. Hann byggði ofurlítið hús í skógarþykkni bak við klettinn. Það var svalt þar uppi, en þar er snarbratt í sjó niður, um þúsund feta hengiflug ofan í sjóinn. Herra Christian vildi gjarnan vera einsamall, og mín skoðun er sú, að hann hafi ætlað að verjast þaðan, ef enhvern tíma kæmi skip í þeim tilgangi að sækja okkur. Hann hefði áreiðanlega getað varizt þaðan þúsund mönnum einsamall, svo lengi sem hann hefði nægar birgðir skotfæra. Og þegar skotfær- in væru á þrotum, þá þurfti hann ekki annað en stökkva fram af. Og þeir hefðu aldrei fundið líkið. Hann ætlaði ekki að láta ná sér, hvorki dauðum né lifandi, það er áreiðanlegt. Máninn var horfinn löngu áður en við komum aftur til bússins. Við læddumst hljóðlega inn. — Bal'hadi, sagði hann lágt, en bæði hún og börnin voru steinsofandi. — Bíð ið andartak, herra Byam, svo skal ég sýna yður, hvar þér eigið að sofa. Hann sneri aftur með logandi olíuhnot í hendinni. Bjarmann lagði um veður bitið andlit ans. — Þetta minnir yður áreiðanlega á gömlu næturnar á Tahiti, sagði hann. — Þér munið eftir þessum ljóskerum þár í gamla daga, er ekki svo? BsasSf;; ;r • isdéSKm Bpngp^c ■ Ég gekk á eftir honum upp stigann, upp á efri hæð- ina. Herbergið var bjart og hreint og með breiðum' glugg- um, sem stóðu opnir., svo að næturkulið gæti komizt inn. Þar var mér búið rúm, sem stóð á fótum, eins og rúm á Englandi. Þar voru dýnur fylltar þurrkuðui^i burkna og ofan á þær var lagt snjóhvítt kiæði. — Góða nótt, skipstjóri, sofið rótt. FYRRI KONAN HANS DENISE ROBBINS aðarháskóla, hann langar til að verða bóndi. Lafði Warr fitjaði fínlega upp á nefið. — Ég skil ekki að nokkur skuli kæra sig um slíka vinnu . . . hugs- ið yður óþefinn af svínunim . . . og mykjufýlan. . . . Ég brosti. Mér fannst athuga- semdir sem slíkar í senn heimsku legar og barnalegar, en mér var þegar orðið Ijóst, að Monica Warr var langt frá því að vera heimsk. — Hvað er bróðir yðar gamall? hélt hún áfram. — Ári yngri en ég. — Afsakið að ég spyr hreint út, en ég geri ráð fyrir, að þér séuð ekki sérlega efnaðar? — Nei, það erum við ekki, lafði Warr. Robin og ég höfum orðið að sjá fyrir okkur sjálf eft- ir að faðir okkar dó. Hann var lafði Warr í því efni. Og yfirheyrslan hélt áfram. Þér eruð óneitanlega nokkuð snotur . . . hefur yður aldrei dott- ið í hug að leggja annað fyrir yður en kennslu? — Nei. Mér þykir mjög vænt um börn og mig hefur alltaf lang- að að starfa með þeim. Orð henn- ar um útlit mitt gerðu mig vand- ræðalega. Bróðir minn — sem mér þykir ákaflega vænt um — er vanur að stríða mér á minni- máttarkennd minni. — Þú ert nú ósköp hugguleg, þegar þú brosir, sagði hann alltaf. Kannski brosi ég ekki nógu oft, ef kímnigáfa mín nær þá. ekki yfirhöndinni. Ég verð að játa, að ég er fremur alvörugefin og hlé- dræg. Sem barn hafði ég alltaf nokkurn beyg •>f ókunnUgum og leið bezt, þegar ég fékk að sitja niðursokkin í bók. Ég leit í kringum mig í íburð- héraðslæknir og lét aðeins eftir j armiklu svefnherbergi lcfði Warr. sig dálitla líftryggingu, sem er^-púfugrátt teppi, grá og rauð dam- að ganga til þurrðar. j ásjc'gjuggatjöld. Alls staðar blasti — Þér eruð heppnar að háia'| áuðlégð og velsæld við mér. Svo fengið tækifæri til að koma tiljkom ég auga á sjálfa mig í stóra Arc-en Ciel og fá stöðu í fjöl-1 speglinum á snyrtiborðinu og skyldu á borð við okkar. mér gazt ekki að því, sem ég sá. Eg var fullkomlega sammála I Ósköo venjuleg ung stúlka. Samt vissi ég, að ég hafði fallega húð, björt grá augu og hárið er þykkt og lifandi og alltaf mjúkt og glans andi. Ég vissi líka, að ég var sæmi- lega vaxin — ekki há, en grönn. j En það fallegasta við mig hafa jvinir mínir sagt að væru perlu- hvítu tennurnar. Og ég býst við, að ég ætti að brosa oftar, þó ekki væri nema til að sýna þær. Eg hef dágóðar þendur, enda gæti ég þess vel að hirða þær af kostgæfni. Það var einu sinni piltur ást- fanginn af mér. Ég var ekki sér- lega skotin í honum, en ég man að hann sagði dálítið fallegt við mig: — Þú hefur svo fallegar og góðar hendur, Shelly, þú ert öll svo falleg og góð litil kona. Og feimnin gerir big enn meira að- laðandi. En ég vildi óska, að ég gæti yfirunnið hlédrægnina. Ég er aldrei feimin við börn, þá get ég talað við þau og hlegið eðlilega. Lafði Warr hafði ekki lokið spurningum sínum enn. — Eruð þér trúlofaðar? — Nei. — Enginn..........vinur“ eins og það er víst kallað núna? — Nei. svaraði ég og brosti við. — Ef þér hafið komið hingað í þeirri von að næla yður í mann, verðið þér áreiðanlega fyrir von- brigðum, ungfrú Bray. Við hér á heimilimi erum öll miklu eldri en þér . . . og í kunningjahópi okkar eru ekki margir ungir, ógiftir menn. Mér var nóg boðið. — Ég fullvissa yður um að ég tók ekki þessa stöðu í því augna- miði að ná mér í eiginmann, lafði Warr. — Það var ágætt, sagði hún blíðmál. — Og aðeins ein spurn- ing enn. Hafið þér gaman af tónlist? — Mjög svo. Þér spurðuð mig áðan, hvort mér hefði aldrei dott- ið í hug annað starf, lafði Warr, og ég skal viðurkenna, að það hefur í rauninni hent mig . . . þegar ég var unglingur dreymdi mig um að verða píanóleikari. En ég skildi fljótlega, að svo mikið þarf til, sem ég hafði ekki, til að komast langt sem tónlistar- maður. Ég spila ekki oft núna, en ég elska tónlist. — Ég er hrædd um að þér fáið ekki tækifæri til að spila hér. Bróðir minn hefur flygilinn í vinnuherberginu sinu, sagði lafði _______________________________n Warr og rödd hennar var nokkuð hvöss. Ég leit hissa á hana. Hún var svo lagleg og virtist svo aðlaðandi. Það var ömurlegt að hugsa til þess, að hún skyldi vera bundin í hjóla- stól. Samt sem áður hafði ég á til- finningunni, að ég þyrfti ekki að vorkenna henni. Það var eitthvað hörkulegt að baki þessarar blíðu grímu, sem hún sýndi umheimin- um. — Ungfrú Collins sagði mér, að þótt frændi yðar hafi einkum gam an af útiveru og íþróttum, þá lík- ist hann föður sínum og væri sér- lega músíkalskur. Eftir því, sem hún sagði, skildist mér að ég ætti líka að leiðbeina honum á því sviði. — Það er rétt. Þegar hr. Torr- ington er ekki heima eigið þér að kenna Conrad á píanó. Ég átti við, að þér getið ekki spilað yður til skemmtunar. — Mér hefði aldrei komið til hugar að spila hér, sagði ég. — Ljómandi gott, sagði litla konan í hjólastólnum og brosti út að eyrum. — Eins og þér sjálf- sagt vitið, er bróðir minn frægur hljómsveitarstjóri. Þér fáið að hlusta á mikla tónlist í þessu húsi. Hann á geysilega gott og mikið plötusafn og það er ekki öðruvísi tónlist, sem við óskum að heyra hér. — Auðvitað, iafði Warr, sagði ég og fannst nóg um. — Og þér skiljið auðvitað að það tilheyrir starfi yðar að láta börnin ekki trufla föður sinn, þeg ar hann vinnur . . . eða hefur gesti. Ég býst ekki við að þér hafið neitt á móti því að borða með t>örnunum í herbergi þeirra þegar við höfum gesti? — Auðvitað ekki. — Ég var orðin sannfærð um, að lafði Warr óskaði helzt að koma því í kriijg, að ég borðaði allar máltíðir í barnaherberginu. En ég komst fljótlega að því, að Conrad og Kate voru augastein- ar föður síns. Vegna þess. að hann var mikið að heiman, krafðist hann þess, að þau sætu við borðið með fullorðna fólkinu, þegar hann var heima. Og þar af leiðandi varð ég að vera viðstödd líka. Lafði Warr talaði um kaupið mitt. Fyrst um sinn fengi ég borg að í frönskum peningum, en þeg- ar fjölskyldan flytti aftur til Lon- don breyttist það auðvitað. Es- mond Torrington átti líka hús í London, en lafði Warr sagði að þau myndu sjálfsagt búa hér áfram í Monte Carlo enn um hríð. Hún sagði mér ,síðan frá heimil- isfólkinu, Yvonne, sem hafði fyjgt mér til hennar var einkaþjón- ustustúlka hennar. Síðan nokkrar vinnukonur, meðal þeirra Terese, sem bar ábyrgð á barnaherberg- unum og mínu herbergi. Þar að auki nokkrir þjónar, kokkur, garð yrkjumaður og auðvitað Bertrand. Ég greip andann á lofti að heyra um allt þetta mikla þjónustulið. Robin og ég höfðum orðið að neita okkur um flest og spara í öllu í litlu íbúðinni, sem við höfð- um saman. Við áttum aldrei gnægðir af neinu. En í þessu húsi var bersýnilegt, að fólk veitti sér allt, sem það þurfti ,og miklu meira en það. Og ég velti fyrir mér, hvernig börnin kynnu við slíkt líf . . . ég fór að verða óþol- inmóð að sjá þau. Svo virtist sem lafði Warr hefði svalað yfirheyrslu þörf sinni í bili. Ósjálfrátt fannst mér hún ekki sem ánægðust með að ungfrú Collins hefði valið mig. en ætlaði að reyna að sætta sig við orðinn hlut. Hún hringdi á Yvonne og bað hana að senda sir Austin til hennar. Svo færði hún hina látnu frú Torrington í tal. — Við tölum aldrei um hana, svo að bömin heyri til. Dauði hennar var okkur öllum óbætan- leg sorg, bróðir minn kærir sig ekki um að nafn hennar sé néfnt hér í húsinu. — Mér brá í brún. \

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.