Alþýðublaðið - 20.07.1956, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 20.07.1956, Qupperneq 4
4 Föstudagur 20. júlí J&56 AlþýðublagtS Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Emilía Samúelsdóttir. Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. Auglýsingasími: 4906. Afgreictelusími: 4900. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði. Alj ýðuprentsmiðj an, Hx erfisgötu 8—10. Stingur í samvizkuna MORGUNBLAÐIÐ segir í gær, að vinstri stjórn muni reynast ofbeldisklíka og þyk ist draga þá ályktun af um- mælum Þjóðviljans. Þau eru svo alvarlega tekin, að Morg unblaðið segir orðrétt: „Það gæti litið svo út, sem aðal- umræðuefnið hafi verið hvernig unnt væri að klekkja á Sjálfstæðismönn- um, ofsækja þá og elta.“ Þetta er það, sem Morgun- blaðinu kemur í hug, þegar því verður hugsað til um- ræðnanna um myndun vinstri stjórnar! Hvað veldur þessum ótta? Imyndar Morgunblað ið sér, að vinstri stjórn muni ofsækja og elta Sjálf stæðismenn, berja þá, brjóta og kannski drepa, þó að Þjóðviljinn hafi ein- hver stóryrði í frammi? Auðvitað ekki. íslenzk stjórnmál eru sannarlega ekki komin á þetta spill- ingarstig, þó að sitthvað megi að þeim finna. En Morgunblaðið er hrætt um annað. Það óttast, að for- réttindi valdaklíkunnar í Sjálfstæðisflokknum séu í hættu, og ætlar, að nú verði Sjálfstæðismenn sótt ir með sömu vopnum og Ieiðtogar íhaldsins hafa beitt gegn andstæðingum sínum undanfarin ár. Það man auðvitað embættaveit ingar Bjarna Benediktsson ar, sem undantekningarlít- ið hafa einkennzt að hlut- drægni og stundum verið miskunnarlausar ofsóknir, svo að vantraust var flutt á hann sem menntamála- ráðherra á alþingi. En þessu á að breyta, og vinstri stjórn mun alls ekki taka ósómann sér til fyrirmyndar, enda myndi sh'kt hafa ærnar afleiðing- ar. Illa fengin forréttindi á að afnema, en landsstjórn in að einkennast af rétt- Iæti og sanngirni. Sjálf- síæðisflokkurinn hefur vanrækt þessa skyldu. Og nú breytir hann samkvæmt reglunni, að margur held- i.r mig sig. Þess vegna skelfur Morgunblaðið á béinunum af hræðslu við íilhugsunina um myndun vinstri stjórnar. Það veit skömmina upp á íhaldið. En hún er sannarlega ekki eftirsóknarverð og á að hverfa og gleymast að öðru leyti en því, að þjóðin gjaldi varhuga við þeim flokki, sem hefur hana á samvizkunni. Vissulega er það fjarri lagi að ætla að æra Sjálfstæðis- menn með því, að þá eigi að ofsækja og elta. Sá málflutn ingur er líkastur því, að æði hefði gripið forustumenn í- haldsins. Kjósendur Sjálf- stæðisflokksins, og fjöldinn allur af opinberum stuðnings mönnum hans, bera enga á- byrgð á óhæfuverkum Bjarna Benediktssonar, og þeir geta látið sér í léttu rúmi liggja, þó að Morgun- blaðið fái sting í samvizk- una. Lýðræðissinnum dettur ekki í hug að misnota vald og aðstöðu, og slíkt fram- ferði af hálfu kommúnista myndi dæma þá ósamstarfs- hæfa. Þess vegna er tilefnis- laust, að Sjálfstæðisflokkur- inn sé hræddur eins og þýzku nazistarnir í styrjald- arlokin, þó að nokkrir ein- staklingar hafi sett Ijótan blett á heiður hans. Bjarni Benediktsson verður ekki einu sinni snoðklipptur, hvað þá að höfuð hans kom- ist í aðra og meiri hættu. Hann getur eftir sem áður starfað og barizt á vettvangi íslenzkra stjórnmála. En hon um auðnast ekki að halda uppteknum hætti, og það gremst Morgunblaðinu. — Valdaklíka íhaldsins vill líta á sig sem flokkinn í fheild og jafnvel alla þjóð- ina. En slíkt er mikill mis- skilningur. Hún er allt ann- að fyrirbæri. Eitt verkefni vinstri stjórnar á íslandi er það að afnema spillinguna, sem valdaklíka íhaldsins ber ábyrgð á. Hugsunar- hátturinn, sem leiðir til forustugreinar Morgun- blaðsins í gær, er stór- hættulegur landi og þjóð. Islendingar eru orðnir við undur veraldar, ef þeir vilja auka þann ósóma, sem Bjarni Benediktsson hefur Iátið einkenna störf sín. Alþýðuflokkurinn vís- ar slíku og þvílíku á bug og er staðráðinn í að sanna í verki þann vilja sinn að stjórna af réttlæti og festu. Hann þolir ekki illa fengin forréttindi harðdrægrar og öfgafullrar valdaklíku og segir óhæfunni stríð á hendur. En hann mun berjast málefnalega og drengilega. Skelfing Morgunblaðsins þarf ekki að leiða til neinn- ar múgæsingar. Hitt er vel farið, að það fái sting í sam- vizkuna. Sársauki þess stað festir þann grun, að ekki muni allt með felldu. Hver er maðurinn ? Þorlák MAÐUR kemur manns í stað. Torfi Bryngeirsson er hættur að keppa í stangarstökki, en þá rís upp nýr maður til afreka og frægðar í íþróttinni. Sá er Valbjörn Þorláksson og þreytir ásamt öðrum vöskum köppum landskeppnina við Dani og Hol lendinga í umboði íslands. Ár- angurinn er mun meiri en nokkrum datt í hug, þegar ís- lenzkir íþróttaunnendur hörm- uðu það, að Torfi gæti ekki haldið áfram að keppa og setja ' met fram undir fertugt! Val- j björn er þegar orðinn jafnoki fyrirrennarans og getur þá og þegar reynzt honum snjallari. Alþýðublaðið ætlar, að ýms- um lesendum kunni að leika forvitni á að vita einhver skil á Valbirni og ferli hans, og þess vegna er þetta greinar- korn. ÆTTAÐUR Afi NORÐAN Valbjörn Þorláksson er Sigl- firðingur að ætt og uppruna, fæddist þar nyrðra 9. júní árið 1934, sonur Þorláks skipstjóra Þorkelssonar og konu hans, Ástu Jónsdóttur. Hann stund- aði barnaskólanám á Siglufirði og hóf þar iðnnám, ætlaði að kera raffræði, en hætti eftir einn vetur. Sextán ára gamall fluttist hann með foreldrum sínum til Keflavíkur og dvald- ist þar, unz hann settist að í Reykjavík árið 1953. í Kefla- vík starfaði Valbjörn í frysti- húsi og vann á Keflavíkurflug- velli eitt ár, en undanfarin þrjú ár hefur hann starfað í sund- höllinni í Reykjavík. MJÓR ER MIKILS VÍSIR íþróttaferill Valbjarnar Þor- lákssonar hófst norður á Siglu- firði, enda er íþróttaáhugi þar mikill, og hefur svo verið um langt áraskeið. Þar lagði hann nokkra stund á knattspyrnu og hélt því áfram eftir að til Kefla víkur kom. Tilviljun réði því upphaflega, að Valbjörn byrj- aði á frjálsum íþróttum. Hann var valinn sem varaskeifa í bæjarkeppni milli Keflvíkinga og Selfyssinga, og tók upp úr því að æfa spretthlaup, lang- stökk og hástökk. En eftir að Valbjörn fluttist til Reykjavík- ur hefur stangarstökkið orðið sérgrein hans sem íþrótta- manns. Hann gekk í KR árið 1953 og æfði á vegum þess fræga og merka félags til árs- ins 1955, en gekk þá í ÍR. Það, sem olli þeirri ákvörðun, voru betri skilyrði til innanhússæf- inga að vetrinum í ÍR en öðrum íþróttafélögum höfuðstaðarins, en slíkt er stangarstökkvara mjög mikils virði. GLÆSILEG AFREKASKKÁ Og þá er komið að afreka- skránni, sem er harla glæsileg. Árið 1952 stökk Valbjörn 3,35 metra í bæjarkeppni Keflvík- inga og Selfyssinga, en það var, í fyrsta skipti, sem hann keppti i í stangarstökki. Árið 1953 stökk j hann hæst 3,50, en 1954 stökk hann 3,68 metra á innanfélags- j móti í KR, og var það afrek hans nýtt drengjamet. í fyrra | stökk svo Valbjörn 4,10 metra j í landskeppni íslendinga og j Hollendinga. Ferill hans í ár er { markaður glæsilegum sigrum.! Hann stökk sem gestur á' drengjameistaramótinu 4,30, sem er vallarmet í Reykjavík, þar eð Torfi Bryngeirsson setti íslandsmet sitt erlendis. Val- björn er því orðinn jafnoki fyr irrennarans eins og fyrr getur, og við getum nær, sem er, átt von á nýju íslandsmeti. Valbjern Þorláksson HRIFINN AF LUNDBERG Valbjörn segist leggja mesta áherzlu á að ná kröftugu upp- hlaupi, því að það skorti sig ennþá. Honum finnst sfangar- stökkið mjög skemmtileg í- þróttagrein, er glaður og bjart- sýnn og gerir sér góðar vonir. Verst þykir honum, ef sömu mistökin, sama vitleysan, hend ir hann of oft. Valbjörn er hrifn astur af sænska stangarstökkv aranum Ragnari Lundberg og langar vafalaust helzt að taka hann sér til fyrirmyndar. segir að hann sé glæsilegur, mjúkur og sérkennilegur, og er sú um- sögn hverju orði sannari. Þar er ekki leiðum að líkjast. Aðspurður segir Valbjörn, að mikill íþróttaáhugi ríki í Kefla- vík, enda hafa vaxið þar upp undanfarin ár margir vaskir garpar. Æska Keflavíkur legg- ur stund á frjálsar íþróttir í Ungmennafélagi Keflavíkur, en æfir knattspyrnu á vegum Knattspyrnufélags Keflavíkur, og nú er þar góðu knattspyrnu- liði á að skipa. Enn fremur bendir hann á, að árleg bæjar- keppni Keflvíkinga og Selfyss- inga sé mikils virði, örvi áhug- ann og stæli viljann og fram- takið. Valbjörn er ágætur full- trúi þeirra ungu og sókndjörfu íþróttamanna okkar, sem nú taka við af gömlu hetjunum og gera enn garðinn frægan. Von- andi berast góðar fréttir af honum og félögum hans úr landskeppninni við Dani og Hol lendinga. Happdrættislán rikissjói VINNINGASKRA 15. júlí ’56. 75 000 krónur: 140292. 40 000 krónur: 45412. 15 000 krónur: 28466. 10 000 krónur: 28992 97728 147916. 5000 krónur: 1720 16930 54009 63954 108755. 2000 krónur: 13043 23563 29449 29703 47395 57639 67569 72654 76884 84449 114539 119696 121681 128160 139109. 1000 krónur: 9465 20116 37268 39421 43111 49685 53101 57408 58858 68986 87046 91984 93596 98751 101125 10301 106101 107542 111650 120950 123197 124796 131482 134645 143656. 500 krónur: 2212 2226 3495 3625 4600 4799 5527 10802 12519 14082 14316 16701 18450 20858 21494 24381 24503 25001 25088 25845 26175 26654 26847 27035 27948 28033 29950 31605 32540 33190 39001 43312 44480 47899 48428 48560 48873 49063 49258 49204 54031 54816 56202 56382 56483 57471 57981 58416 58801 60499 60729 61822 62683 62713 63710 64269 69596 71811 72164 75041 76750 78229 79090 79106 80289 81761 82704 82809 85397 85788 88609 94789 95123 95146 96037 96604 97369 98742 100504 100572 100952 102190 102153 104670 105966 107720 110113 111802 113759 114028 114098 114675 115069 115401 115661 115692 116051 119460 119952 120927 121832 122430 124906 126422 125780 127974 128443 129505 129513 130188 131445 132790 132346 133861 135168 135717 136275 137311 137462 137678 138688 139294 139454 141810 142440 143017 144125 147353 147882 149011. 250 krónur: 1076 1367 2483 2767 2812 2954 3010 3303 3829 4219 4395 4537 4744 4765 5173 5686 6410 6676 7004 7282 7613 7987 9851 10057 20203 10427 11751 12265 13741 13886 14353 15417 16459 16874 17003 17222 17628 18416 18920 19281 20599 21029 21276 22225 22589 23068 23280 23285 23342 23475 24238 24656 25424 25478 25738 26123 26483 28147 28802 30255 31738 32734 32885 32903 33175 33767 33948 34653 35722 37038 37323 37747 38689 38855 39081 40450 40807 42045 44625 46435 46802 47114 48862 48948 49000 49255 49769 49874 51461 51497 53098 53680 54530 54795 54047 54057 56271 56834 58189 58476 59418 59504 60379 60769 61184 61437 62070 62727 63425 64282 65388 65846 69172 69429 69527 69625 69671 69833 70099 71266 71500 71510 73444 73777 74454 75171 75659 75982 76547 77097 78357 78871 79192 79352 79561 80024 80312 80847 81347 81666 82507 82607 82650 82903 82947 83164 84108 84186 84975 85182 85905 86213 85251 86253 86830 87047 88380 88575 88878 89846 90976 91155 91615 93456 93742 94015 94181 94848 94899 95535 95839 95909 97411 97425 98202 99016 99171 100104 100117 100139 100637 101185 101806 101877 101987 102049 102144 103746 103780 103803 104349 104661 105203 105537 105575 105689 105720 106180 106328 106379 106573 106781 107250 107871 107959 109891 110485 110625 110784 110808 111022 112638 114101 114402 114451 114518 116550 117352 118355 118660 119024 119422 119795 120531 121104 121574 121945 122142 122316 124412 124633 125405 125614 125844 125885 125936 126992 128924 129544 129655 130236 131017 131044 131178 132201 133139 133776 133892 134051 134765 137143 137358 137549 137622 139245 139993 140105 140408 141927 142415 142449 142984 143837 144222 144240 144729 144963 145090 145916 146326 146919 147267 147497 148280 149024 149195 149219 149343 149836 149949. (Birt án ábyrgðar.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.