Alþýðublaðið - 02.11.1956, Side 4

Alþýðublaðið - 02.11.1956, Side 4
« AlþýSubíagiS Föstudagur 2. nóv. 1950 Útgefandi: ATþýðuflokkurinn. Ritstjóri: Helgi Sæmundsaon. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmamoo. Blaðamenn: Björgvin Guðmunduon og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastj óri: Emilía SantúelsdólUí. Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. Afgteiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðj an, Hverfisgðtu 8—10. \ S S s S i < s I s :S S s s s s s s S s s s S' s s s s s s s s s s V s s * i í s s s $ s s l I i s s s s s s s V s Ein lítil fyrirspurn ÞAU TÍÐINDI, að Bretar og Frakkar fara með hern- aði gegn Egyptum, þykja að vonum furðu sæta á Vestur löndum. Hér skiptir minnstu máli, hvort um er að ræða vopnaða íhlutun eða árás. Að alatriðið er sú staðreynd, að athafnir Breta og Frakka brjóta í bága við sáttmála Sameinuðu þjóðanna og til- gang Atlantshafsbandalags- ins. Tvær þjóðir, sem sæti eiga í öryggisráðinu og valizt hafa til forustu um friðsam lega samskipti í heiminum, grípa til ofbeldis, stofna friðnum í hættu og setja blett á heiður sinn. Sameinuðu þjóðunum hef ur vissulega ekki tekizt að koma í veg fyrir ofríki, kúg- un og yfirgang, þrátt fyrir allt sitt góða og þakkarverða starf á undanförnum árum. Einu sinni hafa þær, hrundið slíkri svívirðingu með valdi, en oft horft aðgerðalausar á óhæfuna og síðast nú, er rússneskir skriðdrekar hafa brytjað niður þúsundir manna í Ungverjalandi. Veikleika þeirra og skapleysi ber að harma. En athæfi Breta og Frakka gagnvart Egyptum er þeim ekki síður alvarlegt áfall en yfirdrottn- un og grimmd Rússa í Mið- og Austur-Evrópu. Hér ger- ist það í fyrsta sinn, að lýð- ræðisþjóðir virða sáttmála þeirra að vettugi. Sá atburð- ur markar alvarleg tímamót, sem Vesturlandabúar áttu naumast von á. Allsherjar- þingið hefur verið kvatt sam an til aukafundar og fær sennilega tvö verkefni til meðferðar: Annars vegar at- burðina í Ungverjalandi, hins vegar herhlaup Breta og Frakka. Hér skal engu spáð um úrslit þar. Hitt er augljóst, að svo mjög hefur verið brotið í bága við sátt- mála og tilgang Sameinuðu þjóðanna, að líf þeirra og framtíð liggur við. Helzta von smáríkjanna er sú, að Bandaríkin hafi forustu um afstöðu, sem fordæmi það, að ofríkinu sé unað. Augu heimsins beinast næstu daga að hinum ungu alþjóðasamtökum, sem eiga svo mjög í vök að verjast. Vonandi tekst innan vé- banda þeirra að binda enda á þá atburði, sem eru öllu mannkyni áhyggjuefni. En sætt eða málamiðlun mun naumast breyta þeirri skoð- un, að Rússar hafi svikið málstað Sameinuðu þjóð- anna og Bretar og Frakkar brugðizt honum, þegar sízt skyldi. Og þeim aðilum verð- ur erfitt að treysta fyrr en fengin er trygging fyrir því, að raúnveruleg stefnubreyt- ing hafi átt sérstað. Samstarf lýðræðisríkjanna hefur aldr- ei verið nauðsynlegra en í dag. Það verður að efla af stórhug og framtakssemi. En þátttaka þeirra aðila, sem nú hafa gerzt sekir um hneyksl- anlegt atferli, er harla vafa- söm. Umburðarlyndi við ó- sómann varð gamla þjóða- bandalaginu að falli, og Sam einuðu þjóðirnar standa eða falla með því, að hugsjónir þeirra séu í heiðri haldnar. N S S s s ******* s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Alvarleg tímamót s (*'•*•*’ ’£ MORGUNBLAÐIÐ undr- ast það, að Alþýðuflokkurinn skuli geta verið í stjórn með Alþýðubandalaginu, fyrst A1 þýðúblaðið sér ástæðu til að gagnrýna aumingjaskap þess í utanríkismálum. Að þessu tilefni skal borin fram ein lít il fyrirspurn: Var Sjálfstæðisflokkurinn samþykkur utanríkisstefnu s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s V s s s s s $ s c Sósíalistaflokksins eða Sósí- alistaflokkurinn samþykkur utanríkisstefnu Sjálfstæðis- flokksins, þegar Ólafur Thors var forsætisráðherra og Brynjólfur Bjarnason menntamálaráðherra forðurn daga og sællar minningar? Bjarna Benediktssyni ætti ekki að verða skotaskuld úr bví að svara. Sandpappír Höfum fyrirliggjandi sandpappír, smergelpappír og smergelléreft í flestum grófleikum. Sérstaklega hagstætt verð. Harpa U. Einholt 8. Jónas Jónsson frá Hriflu: legum FYRIR nokkru voru mikil fundahöld í Svíþjóð í sam- bandi við ofnautn áfengis eftir að skömmtun var aflétt í land- inu. Taldist mönnum svo til, að ríkið hefði auk venjulegs hagnaðar af áfengissölunni síð- an skömmtun hætti grætt sem svaraði 800 milljónum ís- lenzkra króna. Drykkjuskapur- inn hefur stóraukizt í Svíþjóð, einkum er ölæði unga fólksins ægilegt. Vitrir og þjóðhollir menn óska að hægt væri að nota allan. hinn illa fengna á- fengisgróða til að bæta úr þessu þjóðarböli. En það er hægara að græða á áfengisverzl un heldur en að bæta úr áhrif- um ofdrykkjunnar. Ef til vill var það tilviljun, að einmitt sömu dagana og Sví- ar stóðu þrumu lostnir á bakka áfengiseflarinnar, var sýnt í Stokkhólmi kvöld eftir kvöld í þjóðleikhúsinu ægilegasta bók- menntalýsing, sem til er af böli áfengisneyzlunnar. Það er hið mjög umtalaða leikrit O’Neill um eyðilegging heillar fjöl- skyldu af völdum vínsins. Gáf- uð, velmennt og listræn hjón, tveir synir þeirra og þjónustu- stúlkan á heimilinu koma fram á sjónarsviðið, þátt eftir þátt, merkt eitri og spillingu áfeng- is. Skáldið hafði fyrir sér á- kveðnar fyrirmyndir þannig að hlutverk hans er skrásetning- in. Hún er verk mikilsrithöfund ar, sem raðar sannsögulegu efni á þann hátt, að áhrifin verða djúptæk og ógleyman- leg. Þessi sjónleikur er svo sorglegur, að hann mundi tæp- lega seiða í leikhúsið áhorfend- ur þúsundum saman, viku eft- ir viku og mánuð eftir mánuð til langrar og nokkuð þreytandi setu, ef þjóðin væri.ekki skelk- uð af óvæntri innrás áfengis- sýki á háu stigi, þar sem fátt er um öruggar varnir móti að- steðjandi hættu. En Svíar eru ekki einir í hættu á áfengisveginum. Hér á landi er áfengisneyzlan óstjórn leg og meira áberandi heldur en í nokkru öðru nálægu landi. Hér er ekki stefnt að því að vekja umræður um vínspillingu þjóðarinnar í heild, heldur lít- inn en þó háskalegan þátt henn ar. Er þar átt við hina ótrúlegu vínnautn manna, sem vinria um Iengri eða skemmri tíma ársins, en mest á sumrin, fjarri heim- ilum sínum og búa í tjöldum eða skálum við vinnu í þágu þjóðfélagsins. Er hér um að ræða mikið fjölmenni, sem starfar við vegi eða hafnar- gerðir, síma, raflagnir, síldveið ar, við að reisa opinberar bygg- ingar, skóla, sjúkrahús, leik- velli, félagsheimili o. s. frv. Langflestir starfsmenn við þess ar framkvæmdir búa mánuðum saman fjarri heimilum sínum. Þeir vinna fyrir sig og mann- félagið. Mjög mikið af þeim framkvæmdum, sem ríkið og bæjarfélög láta vinna að til al- menningsheilla, er verk þess- ara atorkusömu viðlegumanna. Þeir fá gott kaup og vinna fyr- ir því en þeim leiðist oft mjög í frítímum sínum og þá vita margir þeirra ekki hvað þeir eiga af sér að gera í hvíldar- stundum. Mjög mikið af þessum við- legumönnum fá eftir gildandi verkamálaskipulagningu tvo sunnudag aðra hvora viku. Þá er lítið við að vera. Þá fer mörg um þeirra að leiðast lífið yfir helgina og tómlegt heima í skál anum eins og jafnvel Gretti leiddit sfásinnið uppi á fjöllum. Fjölmargir af þessum vinnu- mönnum þjóðfélagsins leita í iðjuleysinu um helgar eftir til- breytingu með áfengisnautn, einkum á skemmtunum í þorp- um og byggðum. Þar leita drukknir karlar og konur stundargleði við að drekka úr hófspori svokallaðrar menn- ingar. Þegar líður á mánudags- nóttina leita ölvaðir viðlegu- menn til vinnustöðvarma, oft lítt færir til vinnu þann dag. Mjög oft hafa þeir eytt viku- kaupi sínu eða meira yfir helg- ina. Síðari hluta hverrar viku leita forstöðumenn þessara skemmtistaða eftir áfengissend ingum frá næsta „ríki“. Lands- sjóður fær peningagróðann ai hvíldardagahaldi þessara vinnu manna þjóðfélagsins. Flestir munu játa að hér sé um að ræða mjög óheilbrigt helgidagahald. Auðvirðilega skemmtun, óhæfilega fjár- eyðslu heimilisfeðra, sem van- rækja skyldur við vandamenn sína og ungra námsmanna, sem ganga í þessum spillingarbæl- um fyrstu og hættulegustu sporin á drykkjubrautinni. Mannfélagið ber höfuðábyrgð á þessari mannlífseymd. Við- legumennirnir starfa fyrir þjóð félagið og það selur þeim eld- vatnið dýru verði. Meinsemdin liggur í iðjuleysi og andleysi helgidaganna. Ef menn eiga að geta bætt úr meinsemdinni, þarf að uppgötva ný og viðeig- andi verkefni fyrir heimilis- lausa verkamenn, sem leiðist um helgar og sóa þá peningum Framhald á 7. síðu „ KVENNAÞAtTUR Ritstjóri Torfhildur Steingrímsdóttir #######################J HVAÐ ER NAUÐSYNLEGT TIL AÐ MYNDA HAM- INGJUSAMA FJÖLSKYLDU? FYRST af öllu þarf til þess eiginmann og eiginkonu, sem elska hvert annað nógu mikið til að standa staðföst hvort við annars hlið í erfiðleikum, hve þungir sem þeir kunna að vera. Þau verða einnig að kirnna að meta hvort annað þegar allt gengur veL Ennfremur þarf börn, sem eru elskuð aðeins sjálfra sín vegna, en ekki til þess að varð- veita með því stolt og heiður foreldranna og fyrirætlanir með þessi sömu börn. Þess fyrir utan þarf að bæta við þetta vingjarnlegu félags- lyndi þannig að öll fjölskyldan hafi áhuga fyrir hinum sem heild, sem allir eigi sameigin- leg markmið og áhugamál. Það þarf jafnvel að ganga svo langt að meðlimir fjölskyldunnar finni ánægju í því að starfa sam an við og við að minnsta kosti. Samvinna verður sem sé að vera með. Fjölskyldubrandarar ?ru nauðsynlegir, fjölskyldu- venjur einnig, góðlátleg stríðni iafnvel, en þá aðeins sú tegund hennar er framleiðir vinsam legt bros, ekki sú er særir hjartað. Það þarf mikið af hlátri. Ekki háværum yfirborðs hlátri, heldur innilegum hlátri sem stafar frá gleði hjartans og af þörf fyrir að láta þetta gleði- merki í ljós. Tilfinningasemi er ekki ofaukið. Það þarf að minnast á réttum tíma og á rétt an hátt, afmæla og hverskonar annarra helgidaga. Það þalrf einnig að hafa gæzku og trú, sem hlýjar og þægir í erfiðleik- um. Trú sem gefur von og kær leika og trú á hið ókomna. —■ Þetta er nauðsynlegt. ... " V HÚSRABB. Þegar þið eruð að hræra kök- ur í skál og hún vill renna á börðinu, er ágætt að láta undir hana raka diskaþurrku, sem mun hindra að hún renni út úr höndum yðar. Það er góð venja og ber hirðu semi vitni, að láta aðeins sams- konar diska í hvern stafla í diskaskápnum. Ennfremur er ekki rétt að láta nema sams- konar hluti hverfa hvern að baki öðrum í skápum yfirleitt. Heitir litir beina til sín at- hyglinni og gera hlut þann er þeir eru málaðir með stærri. Kaldir litir aftur á móti minnka hvern þann hlut er þeir skreyta. Svo eru hér loks haustkjólar fyrir bæði frúna og ungfrúna samkvæmt hausttízkunni.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.