Alþýðublaðið - 04.11.1956, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 04.11.1956, Blaðsíða 4
Sunnudagur 4. nóv. 1958 AlþýSublaSiS Útgefandi: AlþýCuflokkarinu. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. SlaSameim: Björgvin Guðmundseon og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Kmilia Saritúelsdóttir. Ritstjórnarsímar; 4901 og 4902. Afgieiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðj an. Htterfisgöra 8—18. s s $ s S c < s s ' s V s s s s s I ' s s s s s ,s s ,s s * s s ,s s s s 'S s i I s s s s s s s 5 s s s s 'S Sannleíkurinn og lygin MORGUNBLAÐIÐ svarar í gær þeirri fyrirspurn Al- þýðublaðsins, hvort Sjálf- stæðisflokkurinn og Sósíal- istaflokkurinn hafi verið sam mála um stefnuna í utanrík- ismálum á meðan þessir flokkar voru saman í ríkis- stjórn. Morgunblaðinu finnst þessu auðsvarað og segir: „Samvinnan rofnaði einmitt vegna ósamkomulags um ut- ,anríkismálin.“ Þetta er vitaskuld satt og rétt. Skoðanir voru mjög skiptar um þessa stjórnar- samvinnu eins og mörgum mun enn í minni, en engum datt í hug að halda því fram, að Sjálfstæðismenn og kom- múnistar væru orðnir: sam- lokur í utanríkismálum. Slíkt hefði ekki náð nokk- urri átt. Hitt er annað, að á- greiningsatriðin í utanríkis- málum voru lögð til hliðar um sinn vegna stjórnarsam- vinnunnar. En Morgunblaðið lætur sér ekki segjast við þetta. Það notar tækifærið til þess að fullyrða einu sinni enn, að núverandi ríkis- stjórn fylgi utanríkisstefnu kommúnista. Hér skal reynt að rifja upp stað- reyndirnar í því skyni að koma vitinu fyrir Bjarna Benediktsson: Ályktun alþingis frá 28. marz í vor er stefna ríkis- stjórnarinnar í utanríkis- málum. Hún var flutt af Aíþýðuflokknum og efnis- Iega samhljóða þingsálykt unartillögum, sem hann hafði flutt á alþingi tvisv- ar áður. Efni hennar er tví þætt: Annars vegar er lýst yfir samstöðu fslendinga með vestrænu lýðræðis- þjóðunum og vilja okkar til áframhaldandi þátttöku í Atlantshafsbandalaginu, en hins vegar ákveðin endur- skoðun varnarsamningsins við Bandaríkin með brótt- för hersins fyrir augum. Stefnan, sem þar er mörk- uð, hefur verið afstaða ís- iendinga í utanríkismálum síðan 1949, þegar undan er skilin andúð kommúnista á samstarfinu við vestrænu lýðræðisþjóðirnar og þá sér í lagi þátttökuna í Atlants hafsbandalaginu. — Bjarni Benediktsson er gagnkunn ugur stjórnmálasögu síð- ustu ára og ætti því að vita allt þetta. En hann er svo ofstækisfullur og ábyrgð- arlaus í stjórnarandstöð- unni að eigna kommúnist- um þingsályktunartillögu, sem Alþýðuflokkurinn hef- ur flutt á alþingi þrisvar sinnum og er í verulegum atriðum andstæða þess, sem Sósíalistaflokkurinn hefur krafizt og viljað. Sannleik- urinn er sá, að Alþýðu- bandalagið hefur gengið til móts við utanríkisstefnu Alþýðuflokksins vegna stjórnarsamstarfsins, en jafnaðarmenn á engan hátt fallizt á utanríkisstefnu kommúnista. Hitt er það, að enginn íslenzkur stjórn- málaflokkur hefur léð máls á hersetu á friðartínmm fyrr en Sjálfstæðisflokkur- inn nú. Viðhorfin í þessu efni eru hin sömu nú og á samvinnu- dögum Sósíalistaflokksins og Sjálfstæðisflokksins forðum. Alþýðuflokkurinn hefur akki fremur fallizt á sérstöðu Alþýðubandalagsins í utan- ríkismálum en Sjálfstæð- isflokkurinn sættist á sjón- armið Sósíalistaflokksins á sínum tíma. Þessar stað- reyndir liggja öllum hugs- andi mönnum í augum uppi. En Sjálfstæðisflokkurinn af neitar þeim til að reyna að gera núverandi ríkisstjórn tortryggilega. Slíkt ber vitni um spillta stjórnmálabaráttu og furðulega trú á lygina. Hins vegar vill hann auðvit- að, að rætt sé málefnalega um samstarf Brynjólfs Bjarnasonar: við Ólaf Thors. Alþýðublaðinu er það Ijúft og skylt. En það ætlast til þess, að sama regla sé við- höfð í umræðum um núver- andi ríkisstjórn. íslenzka þjóðin mun áreiðanlega álíta þau tilmæli sanngirniskröfu. Hitt er tvísýnt, að forustu- menn Sjálfstæðisflokksins beri gæfu til þvílíkrar dreng lundar eins og þeim líður í sálinni eftir vistaskipti Ólafs Thors, Bjarna Benediktsson- ar‘ og Ingólfs Jónssonar. Og þá verður að komast af án hennar — einu sinni enn. Bandaríkin halda áfram vefnis- sprengjutilraunum, segir Ike Þórscafé Þórscafé Gömfu og ný]u dansamir í Þórscafé í kvöld Sími 6497. WASHINGTON — Eisenhow er Bandaríkjaforseti sagði fyrir nokkru, að Bandaríkin myndu ekki fresta rannsóknum né til raunum með vetnissprengjur, fyrr en komizt verður að alþjóð legu samkomulagi, sem tryggi öryggi allra þjóða gegn árásum. Eorsetinn gaf þessa yfirlýs- ingu í skýrslu, sem Hvíta húsið gaf út um kjarnorkuvopn og af vopnunarmálin. Yfirlýsingin var byggð á upplýsingum frá utanríkismálaráðuneytinu, varnarmálaráðuneytinu og kjarnorkumálanefnd Bandaríkj anna. í yfirlýsingu forsetans segir m.a. á þessa leið: Bandaríkin munu halda á- fram að vinna að því, að samn ingar um afvopnun takist við aðrar þjóðir í þeim tilgangi að auka traust og skilning meðal þjóðanna. En jafnframt þurfa Bandaríkin að tryggja það, að „gæði og magn hergagna okkar njóti slíks álits, að þau varni því, að nokkur önnur þjóð freist ist til þess að gera árás“. „Það er aðeins ein ástæða fyrir því, að engir öruggir samningar hafa náðst í þessu máli hingað til, og hún er neit un Ráðstjórnarríkjanna að sam þykkja nokkurt viðunandi kerfi um gagnkvæmar öryggisráð- stafanir. Undanfarin tvö ár hafa Ráðst j órnarríkin synjað hvorki meira né minna en 14 tillögum Bandaríkjamanna um afvopnun og eftirlit með kjarn orkuvopnum“. Bandaríkin hafa yfir, að ráða birgðum af kjarnorkuvopnum, og þau hafa haldið áfram smíði og tilraunum á fullkomnustu kjarnorkuvopnum, vegna þess að „svo gæti farið, að við glöt- uðum því áhrifavaldi, sem þessi vopn hafa í þeim tilgangi að hindra árás, ef við gerðum ekki okkar ýtrasta til þess að halda yfirburðum okkar á þessu sviði“. Ef Bandaríkin frestuðu öll- um rannsóknum og tilraunum á kj arnorkuvopnum og sneru sérekki aftur að'þeim, fyrr en staðfesting fengist á því, að önn ur þjóð hefði gert vetnisprengju tilraun, þá myndu Bandaríkin komast að raun um það, að „þeir yfirburðir, sem við nú höldum á sviði kjarnorku vopna, væru úr sögunni eða við hefðum jafnvel dregizt aftur úr.“ „Velferð mannkynsins stend- ur engin hætta af því, þótt til- raunum með vetnissprengjur verði haldið áfram með svipuð um hætti og verið hefur — þær eru ekki gerðar nema í samráði við hina grandvörustu og á- byrgðarfyllstu vísindamenn á þessu sviði“. Þau geislavirku efni, sem vart hefur orðið af völdum slíkra tilrauna, eru að dómi færustu vísindamanna „aðeins lítið brot þeirra geisla- virku áhrifa, sem fólkið verður fyrir um ævina í náttúrunni og við röngtgenmyndatökur“. „Vegna öryggis þjóðar okkar, vegna allra frjálsa þjóða heimsð vegna málstaðar friðar- ins sjálfs, verðum við að halda áfram tilraunum okkar og við- halda hernaðarstyrk okkar og varnarviðbúnaði — þa til við- unandi öryggissamningar, hafa náðst“. lara s ur á hvert man SAMKVÆMT því sem blaðið Charlotte Observer í borginni Charlotte í Norður-Karólínu í Mecklenborgar umdæmi í Bandaríkjunum er árleg bein á- fengiseyðsla talin nema 22 milljónum dollara, en óbein eyðsla alls um 50 milljónum. í- búatalan er 175 þúsundir. Þetta er skattur, sem nemur um 400 dollurum á hvert mannsbarn í umdæminu. Hins- vegar taka þessar upplýsingar segir, Observer, ekki til þess gíf urlega kostnaðar og vandræða sem hlýst af eyðilögðum heim ilum, heilsutjóni, andlegu og líkamlegu, og öðru böli, sem í þessu sambandi þjáir, menn og konur. Ekki mundu öll blöð fús til að birta skýrslur. af þessU tagi eins og Charlotte gerði, en við trúum því að meiri rann- sóknir á þessu sviði mundu hafa áhrif á þjóðfélagið. (Áfengisnefnd Rvíkur). Kvennadeild Slysavarnarfélagsins í Reykjavík heldur fund mánudaginn 5. nóv. í Sjálfstæðishúsinu kl. 8,30. Til skemmtunar: Kvik- myndasýning. Dans. Fjöl- mennið. Stjórnin. ,Slíkir töfrasprotar þyrftu að snerta hjörtu fólksins sem oftasí HALFDÁN SVEINSSON, forseti bæjarstjórnar á Akra nesi, flutti eftirfarandi á- varp við komu Sinfóníu- hljómsveitar íslands til Akra ness. TyíMÆLALAU ST má telja komu Sinfóníuhljómsveitar lþ rr ro ttir: Hverjir sigra í Melbourne? í SÍÐASTU grein var rabbað um væntanleg úrslit í 100 og 200, og 400 m., svo að næst tök um við 800 m. hlaup, sem ávallt býður upp á eitthvað óvænt og skemmtilegt. Það leiðinlegasta við þessa grein er, að Norðmað urinn Boysen og e. t. v. heims- methafinn Moens verða líklega ekki með, þó að ekki sé það alveg öruggt, hvað viðvíkur Moens. Bandaríkjamaðurinn Whit- field varð sigurvegari bæði í London 1948 og aftur í Helsing- fors, hann reyndi að komast með núna, en varð fjórði á úr- tökumótinu í sumar. Það verð ur erfitt fyrir Evrópubúa að sigra Bandaríkjamennina Sourtney, Sowell og Spurrier, Bretarnir Johnson og Hewson, ásamt Evrópumeistaranum Sentgali, Ungverjalandi verða sennilega skeinuhættastir, ef Moens kemur ekki. Spá um 800 m.: 1. Sowell, Hewson, Spurrier, Dohrow, >ýzkal., Johnson, Courtney. Hver sigrar í 1500 m.? Flest- sem ég hefi spurt, svara Rozsa- völgyi, sem setti heimsmet, 3:40,6 sl. sumar og hefur verið nær ósigrandi undanfarið. En margir koma nú til greina og skulu nokkir nefndir, Þjóðverj arnir Rictenhain og Hermann, Svíarnir Wearn og Ericsson, Ástralínumennirnir Bailey og Landy og ekki má gleyma Bret anum Wood, sem er. mjög skæð ur hlaupari, fleiri má nefnda t.d Tabori, Ungverjalandi. Nú er bezt að skrifa nöfn hlaupar- anna á miða og draga svo út úr slitamennina sex: Bailey, Rozsa völgyi, Wood, Hermann, WTaern, Tabori. Þegar. 5000 m. hlaup OL er til umræðu, þá verður oftast nær eitt nafn efst í huga okk- ar, en það er, Cordon Pirie, það verða óvænt úrslit, ef hann sigr ar ekki. Einnig álíta flestir, að Rússinn Kuts verði annar í þessu hlaupi. Margir verða til að bítast um þriðja sætið, t.d. Iharos, Ungverjal., Ibbotson, Bretl., og Ástralíumaðurinn Lawrence. Sennilega verður Iharos þriðji, Lawrence fjórði, Jibbotron fimmti og Chataway Englandi, sjötti. i íslands einn hinn merkasta tónlistarviðburð, sem skeð hefur hér í bæ. Við höfum vissulega hlustað á hljóm- sveit þessa í útvarpi frá Þjóð leikhúsinu og útvarpssal. ViS höfum einnig lesið dóma um hana í dagblöðum og ýmis misvitur skrif, þar sem jafn- vel var um það deilt, hvort hún ætti að lifa eða deyja. Allt þetta leið hjá án þess að þorri fólksins hér á Ákra- nesi tæki nokkra afstöðu til þeirra mála. Flestir munu hafa litið svo á að hljómsveit in tilheyrði nánast Reykjavík einni, þrátt fyrir nafnið. Nú höfum við, nokkuð á þriðja hundrað Akurnesingar, setið hér andspænis marg- nefndri hljómsveit og hlustað á tónleika hennar:, heyrt hana og séð. Og hvað hefur skeð? — Öllum finnst okkur stund- in ógleymanleg. Okkur hefur orðið það ljóst að með stofn- un þessarar hljómsveitar hef-' ur verið lagður, grundvöllur að nýjum þætti íslenzkrar tón- menningar. Nafn hennar skoð ast aldrei framar hér, sem vörumerki. Við höfum. raun- verulega fundið Sinfóníu- hljómsveit íslands. En hvílík ur munur að sitja andspænis henni, sjá hana og heyra, eða hlusta á hana í misjöfnum út- varpstækjum, oft við slæm skilyrði. Þrátt fyrir það, að fullyrða má að meirihluti þeirra áheyr enda sem tónleikana sóttu höfðu takmarkaða tónlistar- þekkingu, má þó fullyrða að allir hlustuðu hugfangnir á tónverk hinna heimsfrægu snillinga og nutu þeirra með I Framhald á 7. síðu u

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.