Alþýðublaðið - 23.12.1956, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.12.1956, Blaðsíða 1
ALÞYÐU BLAÐIÐ Þorlálismessu - JJa Texti. ,,Ef þannig einhver er í sam félagi við Krist, er hann ný skepna“ (II. Kor. 5, 17.) GETUR MAÐURINN TRUAÐ Á SJÁLFAN SIG. EKKI alls fyrir löngu átti ég : tal við mann, sem hefur átt í baráttu við hættulegar freist- ingar, sem mikið átak þarf til að yfirstíga. Hann ræddi um j þetta af mikilli hreinskilni. . ,,Það er eríiðast“, sagði hann, ; ,,að fá traustið á sjálfum sér, j eftir allt, sem á undan er geng- ið“. Þetta er ofurlítil mynd af því sem er að g'erast um allan heiminn. Þeir, sem bera hag mannkynsins fyrir brjósti, veita þessari spurningu fyrir sér, með margs konar orðalagi: Getur maðurinn trúað á sjálf- an sig, — eítir allt, sem á und- an er gengið, þótt ekki sé lengra farið en til þeirra atburða, sem gerst hafa í lifandi manna minn um? TRÚIN Á MANNINN ER NAUÐSYNLEG. Vér finnum það, að án trúar á manninn, glötum vér voninni um framtíð menningarinnar, meira að ségja framtíð lífsins á jörðinni. Trúin á manninn er oss nauðsynleg, til þess að vér þorum að gera ráð fyrir því, að helgustu hugsjónir vorar fái orðið að veruleika, — þorum í raun og veru að halda áfram göngu vorri gegnum það gjörn- ingaveður angistar og ótta, sem herjar á vora eigin kynslóð. SKÖPUN MANNSINS Trúin á manninn er ekkert nýtt fyrirbæri, heldur æva- fornt. Sköpunarsagan, sem vér lærðum í bernsku, kemur ekki að öllu heim við náttúrufræð- ina, en hún heldur fram þeirri trúspeki, sem vér getum ekki án verið. Hún segir, að sköpun- arverkið sé harla gott, með öðr um orðum gott til þeirra hluta, sem guð vildi nota það. Hún segir einnig, að sjálfur skapar- inn hafi haft svo mikla trú á manninum, að hann hafi falið honum að ríkja yfir jörðinni og gera sér hana undir gefna. Og í Davíðssálmum stendur þessi stórkostlega setning: „Þú (Guð) lézt hann ríkja yfir handaverkum þínum.“ Það er ekkert smáræðis traust, sem skaparinn sýnir þessu barni sínu, manninum. Að honum sé trúað fyrir handaverkum guðs sjálfs, til að hafa þau undir sín- um yfirráðum. Svo mikla trú hafði skaparinn á manninum. MABURINN HEFUR BRUGÐIZT En — hvernig sem á því stendur, hefur maðurinn brugð izt trausti guðs. Öll raunasaga mannkynsins er sagan um syndafallið í óteljandi útgáfum og' gerðum, allt til þessa dags. í menningarsögu hinna vest- rænu þjóða, gerðist syndafallsr sagan á þann hátt, að guð skyldi blátt áfram strikaður út, og maðurinn settur í staðinn. Hin kristna kirkja hafði haldið því fram, eins og raunar önnur trú- arbrögð, sem nokkur áhrif höfðu á menningarsögu fyrri alda, að maðurinn ætti og yrði að þjóna guði. Þjóðhöfðingjarn- ir ættu að lúta honum í ríkis- stjórn sinni og einstaklingar í breytni sinni. SERA Jólaræða, íiutt í Hallgrímskirkju í Rvík á jóladag 19 MIÐALDAKIRKJAN. Hreinskilnislega skulum vér; kannast við það, að miðalda- kirkjan leiddist út á villigötur með þeim hætti, að hún gerði ekki hinn nauðsynlega greinar- mun á jarli guðs á jörðunni og honum sjálfum, og mannasetn ingar voru oft og tíðum látnar gilda sem guðs boð væri. En andstæðingar kirkjunnar gerðu heldur ekki þennan greinar- mun. Þeim nægði ekki, eins og Marteinn Lúther, að segja skil- ið við vald páfans, heldur einn- ig skilið við vald guðs. Vald mannsíns kom í staðinn. TÆKNI Því skal heldur ekki neitað, að trúin á manninn gerði krafta verk, eins og öll trú gerir. Mað urinn gekk að nýjum verkefn- um með stórhug og djörfung. Hann hafði ekki gleymt hinu forna hlutverki að gera jörðina sér undirgefna, en nú tók hann ekki lengur við því sem guð- legri náðargjöf, heldur taldi hann sig rétt borinn til ríkis yfir jörðinni sem sinni eigin eign. Hann beitti vitsmunum sínum og fann upp nýja tækni. Hann kannaði jörðina og jafn- vel himingeiminn. Þessa sögu þekkjum vér í stórum dráttum, — erum í raun og veru að lifa hana sjálf. Og víst er um það, að fullkomin ástæða er til að undrast og dáðst að afrekum marinanna. Og trúin á manninn hefur á vissum sviðum vaxið og aukizt svo við þessi furðulegu krafta- verk mannsandans, að nú orð- ið finnst oss mönnunum ekk- ert ómögulegt, þegar um er að ræða vísindi og tækni. LISTIR OG BÖKMENNTIR. Ef litið er á listir og bók- menntir, getur aftur á móti verið álitamál um framfarirn- ar. Ekki þarf annað en að skoða listasöfn stórborganna, til að komast að raun um, að ekki hefur nútíminn skákað hinum gömlu meisturum miðaldanna. Trúin á manninn vakti að vísu til umhugsunar um ný vei'k- efni, sem áður voru vanrækt, og einnig í bókmenntum heims ins beindist athyglin að nýjum viðfangsefnum. Nýir kraftar levstust úr læðingi, straumur nýs lífs fór um hugi þjóðanna. Það er víst og satt. En þrátt fyrir það hafa síðari aldir hvergi farið fram úr biblíunni og hinum forngrísku speking- um að mannviti, spekt né kafað dýpra til skilnings á eðli tilverunnar. Með þessu er ég þó ekki að vai'pa neinni rýrð á listamenn og hugsuði seinni tíma, og miklar og göfugar hug sjónir hafa fram komið, sem snerta samlíf mannanna á jörð inni. FÉLAGSLEGAR FRAMFARIR Það er steinblindur maður, sem neitar því, að framfarir hafi orðið í félagslegum efnum. En sé litið á allt þetta hlutlaust og skynsamlega, verður því heldur ekki neitað, að þær framfarir byggjast allar á því, sem eftir er af jafnréttishug- sjónum frumkristninnar eða guðsríkisvonum gyðixxgdóms- ins. Vankantarnir hafa hins vegar orðið svo miklir, mistök- in svo gífurleg, nú er maðurinn að glata trúnni á sjálfan sig í ríkara mæli en nokkru sinni 'fyrr. Svo lítur út, sem mann- ; kyninu hafi farið líkt og stælt- j um og sterkum unglingi, sem í mikilli trú á eigin krafta og þol hefur lagt á bratta fjalls- hlíð í stór-hríð, en finnur nú allt í einu, að hann er orðinn áttavilltur, og óttast það mest að hrapa fyrir björg. Einkenni- legt er það til dæmis, hversu mikið ber á því í bókmennt- 'unum, að lýst sé fólki, sem er 1 veiklað, svartsýnt, sálsjixkt eða vantrúað á gildi lifsins. Eg veit, að það má ræða þessi efni á ýmsa vegu, og sjálf- sagt eru margir, sem hafa eitt og annað við þess.a frásögn mína að athuga. En víst er um það, að fullkomin hætta er á því, að maðurinn sé' að glata trúnni á sjálfan sig, í-sambandi við þau efni, er mstú yarða. Þá kemur spurningin fram: Hvernig gétum vér aftur farið að.trjía á mawninn? NÁTTÚRUVAL. Fyrir nokkrum áratugum voru menn bjai'tsýnir á það, að rætast mundi úr mannkyn- inu við svokallað náttúruval. Menn trúðu því, að smám sam- an mundi það bezta og hæfasta vinsast úr fyrir eins konar náttúrulögmál, og þetta úrval mannkynsins mundi landið erfa. Þessi trú var mjög áber- andi í heimspekinni, og menn tóku við henni fegins hendi. En hún hefur ekki staðizt próf reynzlunnar, að því er virðist. Það hefur kornið í ljós í mann- kynssögunni, að jafnvel þeir, sem lifðu af Nóaflóðin, sem áttu að vinsa það bezta úr mönnunum, komu ekki í veg fyrir það, að þeir, sem eftir lifðu féllu í synd. Enginn Nói reyndist réttlátur til lengdar. Spíra vonzkunnar var eftir í hugum þeirra, sem björguðust. Þess vegna spyi'ja menn enn og aftur, hvað geti veitt oss trúna á manninn að nýju. KENNING JÓLANNA: NÝSKÖPUN. Svarið við þessari spurningu er fólgið í guðsspjalli jólanna. Heimurinn þurfti að endur- skapast, maðurinn að verða nýr maður, snúa við, taka sinna- skiptum, — réttast úr kútnum, hætta að hringa sig utan um sjálfan sig og rísa upp og horfa til himinsins að nýju. Það er trú vor kristinna manna, að þessi endui'sköpun eða nýsköp- un hafi gerzt, þegar lítið barn fæddist í jötu suður í Gyðinga- landi. Líkami mannkynsins var sjúkur líkami, sem fékk nýtt blóð, nýtt líf með nýrri blóð- gjöf. Líf guðs sjálfs var með j sérstökum hætti komið inn í heiminn, inn í mannkynið. Líf j Jesú frá Nazaret, hugsun hans og andi hefur endurskpað hug- j arfar milljóna manna, allt til j þessa dags. - KRISTI LÍKIR MENN. j Ég veit, að menn líta ýmsum augum á Jesúm Krist. Einnig þeir, sem orð mín ná til í dag. Og einhverjir kunna þeir að vera, sem ekki hafa mikla trú á honum. En eitt virðist þó vera deginum ljósara. Því líkari sem einhver maður verður Jesú, því i meiri trú höfum vér á þeim jmarini: Postulinn segir: „Ef ! þannig einhver er í samfélagi við Krist, er hann ný skepna". Með öðrum orðum skapaður að nýju, orðinn nýr maður. Og á- I hrifin frá slíkurii manni hljóta J að miða til góðs, hvar sem hann • er í sveit settur. Ef til vill ei'u jólin ein af skýi'ustu sönnunum ; þessai'ar staðhæfingar, þrátt fyrir alla vankanta jólahalds- ins. Það er raunar hverju orði sannara, að mannlegur veik- leiki kemur greinilega fi'am í jólahaldinu. Víða er jólahaldið mestmegnis -fólgið í óhófi í mat , og drykk, æðisgenginni verzl- un og seigdrepandi ofþreytu ■ við ýmislegt ónauðsynlegt um- stang. Samt er það tvennt, sem gefur oss til kynna, hin sönnu ; áhrif jólanna. Annað er það, að samvizkan ásakar oss fyrir , mistökin í jólahaldinu, og í ■, lífi voru ýfirleitt, einmitt af því að hinn nýfæddi frelsari hefur sjálfur áhrif á hug vorn. Hitt er það, að þrátt fyrir allt, sem að er, verðum vér ávallt vör við löngun manna á jólunum til þess að hafa engan útundan. — reyna að gleðja aðra eftir mætti. Vér megum ekki vera svó svartsýn, að vér sjáum ekki. jólaljósið gliti'a í augura margra þeirra, sem vér ella töldum harla sljóa fyrir áhrif- um kristinnar trúar. EFTIRBREYTNIN EFTIR KRISTI. Það virðist liggja í augura uppi, að ef mannkynið tryði á Krist og breytti eftir honum, væri óhætt að hafa trú á því og framtíð þess. Vér getum meira að segja kveðið svo sterkt að oi'ði, að það sé úti um mannkynið, ef það beri ekkl gæfu til að verða kristið, a<5 innsta hjartans grunni. Og enn getum vér orðað þetta þannig, að vilji maðurinn lifa og bi'eyta sem guðs sonur og guðs barn, sé oss óhætt að hafa trú á hoii- um og framtíð hans. ER KRISTINDÓMURINN EKKI DAIIÐUR? 1 En — þýðir í raun og veria nokkuð að vera að tala um þetta hér? Ég las það nýlega í blaði, að kristindómurinn væri dauður og mundi aldrei rísa upp aftur. Og þá kemur hér í hug maður, sem ég las um ný- lega. Hann ætlaði að fá bók lánaða af bókasafni. Hann hélt það vséri alveg' ný-útkomin bók. Titillinn var þessi: „Orsök þess, að kristinni guðrækni hefur hnignað, eða Hlutlaust yfirlit yfir rústir hinna kristnu trúar- bragða.“ — Svo leit maðurinn nánar á bókina. Hún var gefiii út árið 1694.— Svo að segja hver einasta kynslóð virðist uppgötva þaftr að krisíindómurinn sé dauður, en samt er hann lifandi kráft- ur enn t dag, — máttur, sem jafnan gefur nýja trú á fram- tíðina, þegar mannsandinn er að gefast upp. GÖMUL HELGISÖGN. 1 Satt er það, að kristin kirkjá hefur ekki ávallt verið sigur- strangleg, né kristnir menn I líklegir til að vera sterkur þátt ur í endui-sköpun mannlífsins. Til er gamalt ævintýri eða helgi sögn, sem er á þessa leið: I Þegar frelsarinn hafði lokið , þjónustu sinni á jörðinni og var (Ffh. á 9. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.