Alþýðublaðið - 08.01.1957, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 8, janúar 1957
AlgaýSu bladid
7
NK. 4, 1957.
Inní'lutningsskrifstöfan hefur ákveðið nýtt hámarks-
verð á smjörlíki sem hér segir:
Niðurgreitt: Óniðurgreitt:
Heildsöluverð ............ kr. 5,62 kr. 10,55
Smásöluverð .............. kr. 6,30 kr. 11,30
Reykjavik, .10. janúar 1957.
V erðlagsst j órinn.
Fræg indversk stórmynd, sem Indverjar hafa sjálfir
stjórnað og tekið og kostuðu til of fjár. Myndin hefur
alls staðar vakið mikla eftirtekt og hefur nú verið sýnd
óslitið á annað ár í sama kvikmyndahúsi í .New Yörk.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Danskur skýringartexti. — Síðasta sinn.
(Frh. af 5. síðu.)
róðri og hótunum þaðan, sem
eflaust geta valdið alvarlegum
árekstrum þar eystra, eins og
ailt er þar nú í pottinn búið.
TELLUS.
(CHANDRA LEKHA)
Ofbeldi í Ungverjal.
(Frh. af 3. síðu.)
hefðu gagnrýnt kommúnista-
stjórnina þunglega.
Kvað hann, leppstjórn Sovét-
ríkjanna sífellt hafa aukið kröf
ur síðar á hendur verkamönn-
um á sama tíma og kaupi þeirra
var haldið niðri.
Ungverjar urðu einnig að
láta mikinn hluta þjóðartekn-
anna renna til hernaðarþarfa.
Og stjórnin krafðist þess sam-
tímis, að bændur ykju fram-
leiðsluafköst sín.
Hin volduga leynilögregla —
A.V.H. — vakti óhug í brjóst-
um manna um allt landið,“
Jafnvel „ákæra, gripin úr lausu
lofti, nægði til þess að fólk var
tekið höndum, misþyrmt og
jafnvel tekið af lífi án dóms og
laga.“
Hazafi minnti á það, að 60000
íbúar Budapest voru fluttir
þaðan með valdi í maímánuði
árið 1951. Þessu fólki var skip-
að áð setjast að úti í sveitum
landsins, íbúðir þeirra voru
gerðar upptækar, og látnar í
hendur flokksmeðlima eða op-
inberra stjórnarstarfsmanna.
0#rfsf iftkrffendur blaðsfns. I
______ ________________.
er vinsamlegast benl á effir-
farandi.
Auglýsingaskrifstofa blaðsins er opin sem liér segir:
Alla virka daga, nema laugardaga kl. 10—5 e. k. f
Á iaugardögum kl. 10—12 f. h.
Auglýsendur eru beðnir að koma liandritum áð aug-
lýsingum eins snennna og unnt er, til blaðsins, dag-
inn áður en þær eiga að birtast.
ATHUGIÐ: — Því betri tími, sem er til að ganga frá |
auglýsingu yðar, því betri árar.gur næst.
, HORFIHN HEIMUR
r (CONTINENTE PERDUTO)
ítölsk verðlaunamynd í Cinemascope og með segultón í
'fyrsia sinni að slík mynd er sýnd hér á landi. Myndin
er í eðlilegum litum og öll atriði myndarinnar ekta.
Blaðaummæli:
„Horfinn heimur“ er mynd, sem mun hrifa alla sagði
BT og gaf henni 4 stjörnur.
Leoiiardo Bonzi hefur sannað með þessari mvnd, að
hann er siálfum Disney fremri. — Poliliken —
Ferðist til suðurhafseyja með Bonzi. Það er stór við-
burður. —'Dagens Nyhcder —■
Aldrei hefur kvikmyndatæknin skapað listinni jafn mik
ið rúm, og í þessari mynd. — Ekstrabladet —
Sýnd kl. 7 og 9.
Ein blaðsíða,
fFrh. af 4. síðuú |
hrúgáð inn í þessa vagna. Tí-
undi hver maður gat setið. ý
Hinir urðu að standa eða ^
liggja á gólfinu. j ^
Opinberlega var látið heita ^
svo, að karlmcnn hefðu farang
ur sinn fyrir, sig, þar sem f jöl-
skyldunum var sundrað. En
yfirleitt var svikizt um að
a'ð vara fólkið við, að þessi
skilnaður væri fyrir dyrum.
Margir urðu þannig allslausir,
er í vagnana var rekið, og aðr
ir misstu allan farangur sinn
í æðinu og ösinni við vagnana.
En þetta var mjög alvarlegt.
Margir dóu á leiðinni einmitt
vegna þess, að þeir höfðu ekk-
ert náð að taka með sér.
Fangarnir voru eins og lam
aðir af öllu, sem yfir þá hafði
duuið, og fæstir gerðu sér
fulla grein þess, hvað um var
að vera, fyrr en járndyrunum
var lokað jneð slám og þeir
voru til fulls hraktir út úr
þeirri veröld, sem þeir höfðu
lifað í. Margir urðu gripnir
fullkominni örvæntingu.
Dagurinn var, kæfandi' heit-
ur, og vatnsdropa fengu fang-
arnir ekki fyrr en seint xun
kvöldið. Þá voru nokkrar föt-
ur látnar inn til þeirra. Flest-
ir voru með öllu ílátalausir,
gátu því ekkert vatn geymt
sér til næsta dags og höfðu
ekki önnur xirræði en að
svolgra beint úr fötunum eða
drekka úr lófa sínum.
Hreinlætisútbúnaðurinn var
svo bágborinn, að gólf vagn-
anna urðu brátt blaut af þvagi
og saur. I þessum óþverra
máttu smábörn liggja, því að
ekki var rúm á bekkjunum.
Einn maður í Tartu skar sig
á há3s í örvæntingu. Það varð
til þess, að öll eggjárn voru
íekin af föngunum. Börn tóku
að deyja í vögnunum löngu
áður en lagt var af stað. En
það var ekki hirt um að fjar-
lægja líkin fyrr en seint og
síðar meir.
OLLUM ÞEIM RÍORGU,
sem á einn eða annan hátt glöddu mig á 75 ára af-
mælinu og nú um hátíðirnar færi ég alúðarfyllstu
þakkir og óska þeim. gleðilegs nýs árs og guðs bless-
unar á komandi árum.
Sigurrós Kristjánsdóttir, Sólvangi.
ur í Hallgrímskirkju í Saurbæ
BORGFIRÐINGAFÉLAGIÐ
í Reykjavík hélt aðalfund sinn
j 24. október síðast liðinn.
Formaður félagsins, Evjólf-
■ ur Jóhannesson skýrði frá störf
um félagsins á árinu og þeim
verkefnum, er framundan eru.
Félagatala er nú hátt á 7. hundr
að. Borgfirðingakórinn hefur
' starfað undir stjórn dr. Páls
ísóKssonar, formaður hans er
1 Þorsteinn Sveinsson. Spila-
kvöld og kynningarfundir hafa
J verið haldnir einu sinni í mán-
' uði að vetrinum auk árshátíðar.
* Snorrahátíð var haldin að Reyk
holti um verzlunarmannahelg-
1 ina eins og verið hefur. Kvik-
j myndatöku í héraðinu hefur
iverið haldið áfram og m. a.
, verið kvikmyndað frá veiðum
á Arnarvatnsheiði, auk þess
sem fyrri kvikmyndir hafa ver-
ið undirbúnar til sýningar. Ör-
J nefnasöfnun í sýslunum báð-
um. Borgarfjarðar- og Mýra-
1 sýslum, er nú lokið og örnefna-
skráin að verða fullbúin.
| Fjárhagur félagsins er góð-
ur og skýrði gjaldkeri félags-
1 ins, Þórarinn Magnússon, reikn
inga félagsins og annarra sjóða,
er félagið hefur stofnað, —*
! byggðasafnssjóðs, húsbygginga
jsjóðs, Snorrasjóðs, sem tileink-
' aður er Reykholtsskóla og
íþróttasjóðs. —
Ákveðið hefúr verið að gefa
klukkur í Hallgrímskirkju í
Saurbæ cg gefa hliðgrind í
lystigarð Borgnesinga í Skalla-
grímsdal. Auk þess mun félag-
ið greiða úr Snorrasjóðí nokkra
fjárhæð til byggingar íþrótta-
svæðis við Reykholtsskóla og úr
íþróttasjóði til íþróttavallar
Borgfirðinga, þegar byrjað
verður á þeim framkvæmdum,.
Formaður félagsins, Eyjólf-
ur Jóhannsson, sem verið hef-
ur formaður þess frá stofnun
þess fyrir 11 árum, baðst ein-
dregið undan endurkosningu og
var Guðmundur Illugason, lög-
regluþjónn, kosinn formaður
félagsins næsta kjörtímabil.
Fráfarandi formanni, Eyjólfi
Jóhannssyni, var þakkað inni-
lega fyrir alla stjórn sína og
starf á liðnum árum og var á
fundinum kjörinn fyrsti heið-
ursfélagi félagsins.
Aðrir í stjórn félagsins voru
kosnir Guðni Þórðarson, Ragn-
heiður Magnúsdóttir, Sigurður
Halldórsson, Sína Ásbjarnar-
dóttir, Þórarinn Magnússon og
Þorgeir Sveinbjarnarson, auk
7 manna varastjórnar. Stjórn-
in hefur síðan skipt með sér
verkum, þannig að Sína Ás-
bjarnardóttir er varaformaður,
Þorgeir Sveinbjarnarson ritari
og Þóarinn Magnússon gjjald-
keri.
Félagsstjórn hefur ákveðið
að efna til happdrættis til þess
að mæta þeim útgjöldum, sera
framundan em og heitir það á
alla félaga sína og velunnara
til aðstoðar.
Það er einn höfuð tilgangur
félagsins að leggja lið, þó í
litlu sé, framíarar- og naenn-
ingarmálum í héraðinu og nú,
kalla verkéfnin að meira en>
nokkru sinni áður.