Alþýðublaðið - 16.01.1957, Page 4

Alþýðublaðið - 16.01.1957, Page 4
A gþýHiublagtg Miðvikudagur 16, jaa. 1S57 Útgefandi: Alþýðuflokkirrinn. Ritstjóri: Helgi Sæmundsson. Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og Loftur Guðmundsson. Auglýsingastjóri; Emilía Samúelsdóttir. Rststjórnarsímar: 4901 og 4902. Afgreiðslusími: 4900. Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu E—10. MORGUNBLAÐIÐ hefur birt grein eftir Bandaríkja- manninn G. A. Rockwell, sem flytur furðuleg tíðindi af íslandi. Þetta beíur leitt til nokkurra orðaskipta milli Morgunblaðsins og Tímans og fram komið af því tilefni ýmsar athyglisverðar upp- lýsingar. American Mercury er ekki alls kostar merkileg- ur pappír, og greinarhöfund- urinn virðist í ófögrum fé- lagsskap. svo að vægilega sé til orða tékið. Morgunblaðið reynir hins vegar að verja tiltæki sitt og segír í því sam bandi orðrétt: „Morgunblað- ið telur það skyldu sína að skýra írá því, sem athyglis- vert er sagt um ísland er- lendis og nýnæmi er að, hvort sem okkur sjálfuna fell ur það vel í geð eða ekki.“ Siðar bætir það við þessu til áréttingar: „En mega íslend- ingar ekki vita, hvað um mál þeirra er sagt, einnig í ritum ,,McCarthyista“? Yar íslend- ingum þarflaust að fylgjast með því, sem Göbbels sagði um okkur forðum? Á að þegja á Íslandí um allt það, er kommúnistar leggja til okkar mála?“ I íilefni þessa verður ekki hjá því komizt að henda á, hver er hlutur Morgunbiaðsíns. Það hafði forðum daga mikla velþókn un á því nýnæmi að koma orðuin og skoðunum Göbb elsar og féiaga hans á fram færi við íslendinga og alls ekki í viðvörunarskyni eins og nú er látið í veðri vaka, heldur af ást og að- dáurt á þýzka nazisman- um. Nú telur það skyldu sína að birta fáránlegar upplýsingar um ísland upp úr McCarthyísíaritinu Am erican Mercury og hefur ekkert við þær að athuga, en lætur þess getið, að þetta sé athyglisvérður máíflutnÍHgur. Hitt er þó ekki síður einkermileg til- viljun, að þýzku Mazistam- ir forftum og amerísku Mc- Carthyistarair nú shuli hafa sörnu aðdáun á Sjálf- stæðisflokknum hér, þegar gerður er samanburður á þessum tveim fyrirbærum, öðru dauðu góðu heilli, hínu lifandi, öllum til skaða og skammar. Þýzku nazistarnir buðu foringjum Sjáifstæðísflokksins til sín og báru þá á höndum sér. N ú sér McCarthyistablað vestur í Bandarfkjunum enga aðra íslenzka stjórn- málamenn ert Óíaf Ttnirs og Bjarna Benediktsson. Sama töíublað þess flytur níð og róg um Roosevelt og Truman. Bjarni Benedíkts- son hefði átt að láta þýða allt efni þessa merkilega tölublaðs af Ameriean Mercury til að sanna ís- lenzka ihaldinu, hvað hann og Olafur séu ólíkí meiri menrt og hetri en Roosevelt og Truman að dómi Mc- Carthyistanna, - Maður fer að skilja nýjum skilningi þá afstöðu Sjálf- stæðisflokksins, að engnm íslendingi eigi að koma t'il hugar að verða forsætisráð- herra, meðan Ólafur Thors gefur kost á sér til opinberra starfa. ÞaS gefur svo sem að skilja, hvað úr snillingnum hefði orðið vestur í Banda- ríkjunum, ef McCarthyist- arnir ættu þess völ að gera sóma hans slíkan og þvílík- an, sem G. A. Roekwell tel- ur hæfilegí. Og þá myndi Bjarni Benediktsson senni- Iega skár settur sem ríkisarfi en nokkurn tíma í íslenzka Sjálfstæðisflokknum, þar sem sumum finnst hann þó umdeilanlegur, þrátt íyrir velþóknun amerísku Mc- Carthyistanna á honum. Sannarlega skiptir máli, hvar örlögin búa slíkum stórmennum stað í hinni jarðnesku tilveru. AlþýðubiaðiS vaniar unglfnga ,tíl aS bera blaðið til áskrifenda f þessutm hvetfum: RAUÐALÆK KLEPPTIIOLT MIÐBÆINN KÓPAVOGI LAUGARNESHVERFI. Talið við afgreiðsluna - Si > »■ GESTIR frá hinum frjálsu löndum heims, sem gefst kost- ur á að sjá verkamenn í Sovét- ríkjanum við vinnu sína, sjá þar undarlegt sambland af nú- tíma tækni og frumstæðum. vinnubrögðum, en þeir sjá einnig hið mikla ósamræmi milli hins raunverulega ástands þar og hinna opinberu lýsinga, sem gefin er á því. Grein eftir Pierre Lochak, birtist í The New Leader. I Ráðstjórnarríkjunum er lit- ið á verksmiðjur sem grund- völl sósíalismans. Það má því gera ráð fyrir, að það að sjá verkamenn við vinnu sína, jafngildi því að sjá sósíalism- ann í framkvæmd. I „FYRIRMÝNDAR VERKSMIÐJU1 Verksnuðjan, sem okkur var boðið að skoða var mjög tií- komumikil; Þetta var ein af stærstu verksmiðjum landsins, sannkölluð fyrirmyndarverk- smiðja, er hafði 12,000 verka- menn í þjónustu sinni. Og dag- skráin var sannalega lokkandi fyrir okkur í frönsku sendi- nefndinni: það áttu að vera fundir og samtöl við verka- menn, við áttum að fá að sjá skemmtana- og menntalíf verka manna og borða hádegísverð í matsal verkamannanna sjálfra — dagskráín virtist sannarlega vel til þess fallin að koma á sambandi milli hinna stritandi verkamanna í Frakklandi og verkamarina í Ráðstjórnarríkj- unum. Þannig hlióðaði nú áætlunin. En reyndin varð allt önnur. Fundirnir og samtölin fóru fram í skrifstofu forstjóra verk smiðjunnar, þar sem hann og starfsmenn hans voru viðstadd- ir allan tímann. Er gengið var um vinnusalina, var hver ein- asti meðlimur sendinefndar- innar umkringdur af leiðsögu- mönnum og var auðséð, að nær- vera þeirra hafði langt frá því róandi áhrif á þá verkamenn, sem við reyndum að ná tali af. Hádegisverðurinn var fram- reiddur í matsal verkamanna, en á þeim tíma, þegar allir verkamenn voru farnir þaðan. Á matseðlinum voru þeir úr- valsréttir, sem alltaf eru born- ír fyrir erlenda gesti í Ráð- stjórnarríkjunum. (Reyktur lax, hænsni og annað góðgæti). Var hann afar frábrugðinn matseðli verkamannanna sjálfra, er við sáum þar á veggnum. Hvar, sem við komum, var nokkurs konar „forstjóra-tjald“ dregið frá: Hádegisverður í stúdentaklúbb, en engir stúd- entar, heimsókn í samyrkjubú, en engir bændur o. s. frv. — Hvernig í ósköpunum er hægt að vita, hvað ríkisborgarar Sovétríkjanna hugsa og segja, þegar forstjórar og fram- kvæmdastjórar eru ekkí við- staddir? UNGUR FORSTJÓRI Til að fyrirbyggja misskiln- ing vil ég taka fram, að forstjóri verksmiðjunnar var hvorki mannæta né þrælahaldari. Hann var ungur, framtakssam- ur og gáfaður maður, sem var auðsýnilega vel heima í starfi sínu og starfsrækslu verksmiðj- unnar. Hann dró upp mynd af verksmiðjunni og lífinu þar á einfaldan og skýran hátt, not- aði engin minnisblöð og hafði svör á reiðum höndum við öll- um spurningum. Hann var vel- menntaður forstjóri, sem varð svo aftur að hlýða hinum nafn- lausa yfirmanni sínurn, ráðu- neytinu, sem öllu ræður: verð- lagi, launum, birgðum, við- skiptavinum, útbúnaði verk- smiðjunnar, o. s. frv. Frá því í ágústmánuði árið 1955, hefur forstjórinn í verk- smiðjum verið veitt örlítið meira sjálfsforræði, þótt það hafi ekki verið gert með glöðu geði. Á 20. flokksþingi kom- múnista var ákveðið að slaka örlítið á hinum miklu höftum skriffinnsknnnar. Forstjórum hefur nú verið veitt leyfi til þess að semia sjálfur um kaup og sölu afurða, án þess að þeir þurfi að sækja það undir við- komandi ráðunevti, en betta gildir aðeins um þær afurðir, ugum bakgörðum og á vinnu- stöðvum, sem oft voru illa úr garði gerðar og óvistlegar. Á sþjöld þessi var letrað: „Á milli flokksins og verkalýðsíns eru órjúfandi bönd“; „Samein- ing kommúnista. jafnaðar- manna og framsóknarmanna í þágu lýðræðis og friðar“, „Við skulum fara fram úr mánaðar- framleiðsluáætluninni“ o.s.frv. AUKIN AFKÖST NAUÐSYN Við sáum aðeins að fólkið lagði mikið að sér, en engan áhuga né vinnugleði á andlit- um hinna þreyttu kvenna, sem strituðu við að draga þunga flutningsvagna yfir garðinn, og Hvílíkt vanþakklœti KVAÐ ER £ i&i - - ... - > gf tfXZX Ir STÍgvIlunuAI sem eru umfram áætlunina. Með öðrum orðum, sjálfsfor- ræðí þeirra hefst aðeins, þegar framleiðslutakmarki áætlunar- innar hefur verið náð. VERKAMANNARÁÐ LÍTILS MEGANDI Þessi breyting takmarkar þó ekki á nokkurn hátt algert ein- ræðisvald forstjórans í þeirri verksmiðju, er hann stjórnar; þar eru yfirráð hans eftir sem áður óvéfengjanleg. Að vísu eru einnig starfandi verkamanna- ráð í verksmiðjunni, en þau hafa minna að segja en sams konar ráð í Frakklandi. í Frakk landi geta slík verkamannaráð í samráði við verkalýðsfélög hafið verkföll-----en ’verk- falsrétturinn er auðvitað ólög- legur í Ráðstjórnarríkjunum. Rússneskir menn, sem viljja reyna að bera í bætifláka fyrir ástandið í Sovétríkjunum, lýsa venjulega með fögrum orðum þeirri ánægjulegu og skemmti- legu samkeppni, sem ríkjandi sé í verksmiðjunurn í Sovét- ríkjunum. Við urðum nú aldrei varir við þetta skemmtilega andrúms loft í Kaganovich-verksmiðjun- um, sem við heimsóttum. Þessi eldlegi áhugi, sem svo mikið hafði verið talað um kom ekki annars staðar fram en á stór- um spjöldum, sem hengu alls- staðar á hinni fallegu og ný- tízkulegu framhlið verksmiðj- anna, í dimmum göngum, for- á andlitum verkamanna. Við sáum heldur aldrei verkamenn safnast saman og fagna þeim, sem heiðraðir voru fyrir meiri afköst en tilskiiin voru. Að afkasta meíru en tilsfeilið er, er nauðsynlegt þar sem verkafólk getur ekkí framfleytt lífinu á hinum lágu tekjivm, sem það fær, en þóknun fyrir aukin afköst nemur venjulega 30—40% af lanunum. Meðaltekjur verkafólks eru um það bil 900 rúblur á mán- uði þar með taldar aukaþókn- anir, en hæstar tekjur faglærðs verkamanns eru 1800 rúblur; frá þessu dregst svo lán til stjórnarinnar, sem nemur heil- um mánaðarlaunum árlega, og skattar, sem nema 8 til 9% af hverjum 1000 rúblum.og meira, eftir því sem upphæðin er hærri. (Tekjur forstjórans eru 7,500 rúblur, en yfirverkfræð- ingsins 3,000 rúblur.) í samtölum, sem nefnd okk- ar átti við einstaka verkamenn, komst hún að raun um, að sumir þeirra höfðu aðeins 500 og jafnyel 300 rúblur á mán- uði. „HAGNÝT“ FRÆÐSLA Mikið er gert til þess að reyna að veita fólki aukna menntun og fræðslu. Maður sér jafnvel spjöld á veitirigastöð- um, sem á er ritað, „Munið að þvo hendur yðar, áður en þér setjizt að mathorðinu“, á öðr- Framhald á 7. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.