Vísir - 22.12.1910, Page 2
18
V í S 1 R
úUötvAum.
Finnskir svikarar. Nokkrir
Finnar komu sjer saman um að
ná sjer í fje með því að svíkja
nokkur lífsábyrgðarfjelög. Tveir
fjelagsmenn áttu að drukna og voru
þeir tryggðir fyrir rumurn 100
þúsund krónum. Svo var leigður
mótorbátur og siglt af stað um
kvöld í vondu veðri og þessir tveir
menn sleptu sjer í sjóinn nálægt
landi. Annar druknaði virkilega,
en það var þó ekki tilætlunin, en
hinn komst á iand. Nú sögðu
þeir fjelagar að báðir hefðu druknað
og náðu þannig í 14400,00 krónur
og þessi, sem hafði komist lífs af,
flýði með mikið af þeim. Nú l'ðu
stundir, en þá komu lífsábyrgðar-
fjelaginu, sem svikið var, njósnir af
að annar maðurinn mundi vera
Iífs, og var nú hafin leit. Nokkrir
njósnarmenn eltu hann um endilangt
Finnland frá einum gistiskálanum
til annars og svo yfir til Svíþjóðar,
en þar hvarf hann þeim með öllu.
Loks komst það upp að hann dveldi
í Danmörku og mun póststjórnin
hafa hjálpað þar til, og nú um
mánaðamótin síðustu náðist hann
á Skaganum. Hann var kallaður
fyrir rjett, en þar skaut hann sig.
Aðrir er í Jjelagsskapnum voru eru
nú í svartholinu og bíða dóms.
Hungursneyð í Kína. í
hjeraðinu Nyan-Hwei brast hrís-
uppskeran í ár og liggur nú við
að hálf fjórða miljón manna deyi
úr hungri. Kínastjórn hefir gert
ráðstafanir til að hjálpa hinum
bágstöddu.
Dæmdur fyrir befl. Dr.
Marius Dobei, sem áður var heim-
spekiskennari við háskólann í París,
hefur nýlega verið dæmdur fyrir
betl í 3 mánaða fangelsi og 5 ára
útlegð.
Mannial. Eftir síðasta mann-
tali eru í Bandaríkjunum í Vestur-
heimi 93V2 niiljón íbúar, eða 17
miljónum fleiri en árið 1900.
ola-glugginn
/
1
er eftirtektaverður um þessar mundir. Þjer, sem eigið leið fram hjá,
\ ví t\
og skoðið vöruna og kaupið þar fyrir
Eina krónu eða fleiri,
með því getið þjer orðið hluttakandi í jólagjöf verslunaririnar,
300 krónum,
er skiftast þannig:
1 fær kr. 50.00
1 — — 25.00
2 fá - 15.00
2 — 10.00
25 — - 5.00
50 — - 1.00
Verslunin hefur enn fremur ákveðið að gefa þeim, sem giskar
næst þeim 81., öll kolin, sem eru í glugganum, heim keyrð.
Hve há sú upphæð verður, sem no. 82 fær, verður framtíðin
að skera úr.