Vísir - 14.02.1911, Blaðsíða 2

Vísir - 14.02.1911, Blaðsíða 2
2 .T" -rS--isasaat a---rar. -a. —r.Ti • VT.vfcrf—T- vi~7, i ■/•■».•, Skilnaðarfjelag. í gærkveld var stofnað fjelag meðal ungra manna er vinna á að skilnaði íslands og Danmerkur. Stofnendur voru um 100. — Það heitir »Fjdag ungra skilnaðarmanna«. Kvennaskólinn á Blönduósi brunninn til kaldra kola á einum klukkutíma. Mannbjörg. Blönduósi 13. febr. Kvennaskólinn á Blönduósi var stórt og veglegt hús, bygt 1901 og kostaði rúmar 20 þúsundir króna. Ætíð hefur verið mikil aðsókn að honum og í vetur voru þar rúmar 30 námsmeyar, er flestar höfðu heimavist í skólanum. Forstöðu- kona skólans var ungfrú Guðríður Sigurðardóttir frá Lækjamóti. Aðfaranótt laugardags síðastl.vökn- uðu tvær námsmeyarnar, er sváfu uppi á lofti í skólahúsinu, við bruna- lykt mikla, og sáu þegar, að eldur var í húsinu. Þetta var kl. l3/4 árd. Hröðuðu þær sjer á fætur og vöktu aðra, er þar sváfu, en í skólanum sváfu flestallar námsmeyar og einn karlmaður (vinnuinaður). Forstööukona skólans og ein kenslu- konan voru fjærverandi þessa nótt. Tvennar dyr voru á skólanum en lykil vantaði að öðrum, tókst þó bráðlega að sprengja þær upp. Eldsins varð bráttvart frá Blönduósi og komu menn þaðan til hjálpar, en fremur litlu varð þó náð, því húsin fuðraði upp á vetfangi og var fallið kl. 3. Logn var á og því bjargaðist alt fólkið, en hjer munaði litlu að um 30 manns hefðu brunnið inni. Margar námsmeyarnar mistu hjer aleigu sína og herbergi forstöðu- konunar var læst og því ekki hægt að bjarga neinu þaðan. Um upp- tök eldsins vita menn ekkert með vissu, en talið er að tiann hafi komið upp í eldhúsinu, sem var í kjallaranum. Skólahúsið var eign Húnavatnssýslu og vátrygt fyrir 20 þúsund krónum en kensluhöld fyrir 5 þúsundum. Var nýlega»búið að kaupa mikil og vönduð áhöld til skólans. Talið er að hann verði ekki reyst- _V l_S l_R__ ur aftur, en rentum af ábyrgðar- upphæðinni verði varið til náms- styrks. A Hellusandi brunnu 1. þ. m. verzlunarhús P. J. Thorsteinsson & Co ásamt nokkru af vörum. Jxi úUöwdum. Svarti dauði. í hjeraðinu Kírin í Mandsjúríu erborgin Charbin með 32 þúsund íbúa. Þar kom upp fyrir skömmu svarti dauði og var talið að hann hetði fluttst inn með ósútuðum skinnum. Nú er Charbin nær eyðilögð. Eftir síð- ustu frjettum (2. þ. m.) voru þar dánir úr pest þessari 4500 manns og hver flúinn sem flúið gat, og hefur pes+in breiðst geysilega út með flóttamönnum og var nú allt nágrenni borgarinnar sýkt í allt að 50 mílna fjarska. Talið er að dag- lega degi nú í Mandsjúríu frekt 1000 manna úr pest þessari. Fregnirnar sem berast úr Mand- sjúríu eru voðalegar. Fyrir löngu er hætt að jarða líkin, þar sem eng- inn þorir að koma nærri þeim og verða þau hundum að bráð. Læknar og hjúkrunarmenn ganga um í kautsjukfötum en á þeim er aðeins op fyrir augun og nef, hjálp þeirra nær þó skamt. Sjúklingarn- ir deyja í biðstofunni, sem annar- staðar. Dynamiisprenging meiri háttar átti sjer stað í New-York 1. þ. m. Var þar verið að koma dynamithylkjum úr vagni niður í bát. Um 50 manns dóu þegar, en á annað þúsund særðust. Mörg hús skenidust og rúður sprungu þúsundum saman. Jarðskjálfta varð vart 50 rastir út frá sprengingunni. Málaferli Englakonungs. Georgi Englakonungi var nýlega brugðið um það í bl iðmu Liberator að hann hefði leynilega gengið í heilagthjónaband við dóttur Segmors flotaforingja. Málið var dæmt 1. þ. m. Reyndist áburðurinn algjör upp- spuni og var sögumaðurinn dæmd- ur í árs fangelsi. Málfærslu fyrir konungs hönd hafði, dómsmálaráð- herra Breta, Rufus Isaacs. Sfórfengleg háfíðahöld. í Portúgal voru stórfengleg hátfða- höld 31. f. m. í telefni af að þá eru 20 ár liðin síðan upphlaupið mikla varð í Óportó. Ragnar Lundborg ritsjóri frá Uppsölum, er nú fluttur til Karlskróna og orðinn þar ðalrit- stjóri blaðsins Karlskrona-Tidningen. Sviknir lOO kr. banka- seðlar eru á gangi í Kaupmanna- höfn um þessar mundir. Dáinn í Kbh. 27. f. m. Bjarni Thorstcinson læknir sonur Stein- gríms rektors. Gusfav Fröding eitt hið ágætasta skáld Svía andaðist 8. þ. m. Ofviðri í Ermarsandi. 1. þ. m. geysti aftakastormur um Ermar- sund, og fórst fjöldi skipa, en sím- ar slitnuðu. Eldsvoði í Noregi. 1. þ. ni. brann klæðaverksmiðjan Hillevaag hjá Stavangri til kaldra kola. Skað- inn er talinn 400 þúsundir króna. Uni upptök eldsins vita menn ekki. • Andaf rúarmenn (eða anda- vissu-) halda uni þessar mundir fund með sjer í Kaupmannahöfn og eru þar saman komnir öndungar frá öllum Norðurlöndum. (Óvíst er þó að nokkur sje þar fyrir íslendinga hönd). í Kaupmannahöfn eru 5 all- stórir söfnuðir öndunga og eiga þeir musteri á Filippavegi. Skaufahlaup Norð- m a n n a. Svo sem niargar aðr- ar þjóðir hafa Norðmenn hjá sjer árleg kapphlaup á skautum, og voru hin síðustu nú um mánaðamótin. Voru þau þreytt á Frogner-braut- inni við Kristjaníu. Skeiðin voru 500,. 1500 og 5000 stikur. 5000 stikur vóru farnar á 8’569/10". (8’40>/5”)- 1500 stikur á 2'324/5" (2'20V5"), og 500 stik- ur á 47Vl0”. Tvö síðari hlaupin vann piltur um tvítugt. En heimsmeistarinn á 5000 og 1500 stikna hlaupi er Oscar Mathie- sen og er hraði hans sýndur í svig- um lijer að ofan. í dag (14.) keppa menn á sama stað um bikar þann hinn niikla er ætl- aður er besta skautamanni í Noregi Svíaríki og Finnlandi. Samkomur. Sunnudaga kl. 6,30 síðd. í Sílóam. Hvildardaga kl; 11 f. h, UMBtÐARPAPPÍfisTiLLU PRENTSMIÐJA D, ÖSTLUNDS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.