Vísir - 07.03.1911, Blaðsíða 3

Vísir - 07.03.1911, Blaðsíða 3
V í S I R 43 Fataefni & Fatasaum er óefað best að kaupa í klæðaverzlun og saumastofu H. Andersen & Sön, Aðalstræti 16. Alt af ný efni með hverrí ferð. T. d. með síðtrstu ferðum komu : Má €&ev\ot, yi«5\ m\sl. alJaVaeJt\\, ÖUum skilvísum kaupendum gefinn 10°/0 rabat af fataefnum og tilleggi. Talsími 32. Aðalstræti 16. Talsími 32. Hugsmnnn. (Eftir Fox Russel). ------ Frh. Vissulega — já vissulega — svar- aði Foffenstein, og laut niður að svörtu handtöskunni sinni, til þess að taka eitthvað upp úr henrti, þó hann ætti á hættu að sú hreyfing yrði gömiu axlaböndunum hansof- raun. — Vissulega — jeg er sjálf- ur önnum kafinn. — Jeg hefi nú um langan tíma beint öllum hugs- unum mínum að einu marki — nefnilega að búa til vjel, sem geti birt hugrenningar manna hvers fyr- ir öðrum. — Jeg kalla vjelina »hug- símann«. Hann getur frætt yður um því nær allt, sem þjer viljið fá að vita um vini yðar. Hann segir yður hver er heiðvirður maður og hver er svikari o. s. frv. Bulpett fór að Iíta öðrum augum á málið. — Þetta var þá nokkuð alveg nýtt og einstakt í sinni röð. Þetta lítur út fyrir að vera mjög laglegt leikfang sagði hann. — En — — — — Sögðuð þjer leikfang. — Vjelin mín er ekkert leikfang — sagði Foffenstein. — Hún er furðuverk sem —--------— — — Jú, jú, sagði auðmaðurinn. Jeg kalla hvern þann hlut leik- fang, sem ekkert verslunargildi hef- ur. Ekkert verslunargildi — át pró- fessorinn eftir, og strauk síða hárið sitt meö hendinni. Jeg endurtek það, sagði auðmað- urinn, ekkert verslunargildi. Hvern- ig ætti þessi vjel að geta orðið mannfjelaginu að verulegu gagni? Foffenstein kýmdi og fór að fara úr yfirfrakkanum og sagði: — Eg skal nú skýra þetta fyrir yður, en það tekur dálítinn tíma. — Svofór hann að hneppa nærfrakkanum frá sjer. — Nú leist Bulpett ekki á blikuna og sagði því. — Viljið þjer ekki vera svo góður prófessor minn að sýna mjer þetta alt í kvöld, og koma mjer í skilning um það. Það koma þrír eða fjórir gestir til mín, sem borða hjá mjer miðdegisverð. Sumir þeirra eru menn, sem vit hafa á að hagnýta uppfundningu yðar, ef þeim líst á hana. — Borð- ið þjer nú bara með okkur um kl. 8, þá getum við í ró og næði tal- að um »hugsímann«. — Eg bý í nr. 10. Green Park Lane —----------- Foffenstein prófessor var talsvert einkennilegur útlits þegar hann kom um kvöldið í hið glæsilega hús auðmannsins. Hann var í kjólföt- um, sem tóku svo undarlegar fell- ingar á svera skrokknum hans, að það var ekki gott að gerasjergrein fyrir, að þau föt hefðu nokkurn tíma verið honum mátuleg. Hann hafði hvíta skrýfða bringu óg lág- an flippa, og hálsbindið hafði þok- að sjer út undir hægra eyrað. Þegar Foffenstein var sestur und- ir borð, breiddi hann pentudúkinn framan á sig, stakk einu horninu á honum innundir undirhökuna og bjóst til að taka til óspistra málanna — Steikin, villibráðin, sætmetið og eftirmaturinn — alt fann náð fyrir augum hans; það er að segja — hann át geysimikið af hverjum rjetti, og hin bestu vín runnu í árstraum- um niður um hinar rúmgóðu kverk- ar eins og væru þau bjórinn góði frá föðurlandi hans. Þegar komið var fram um miðja máltíðina, var farið að tala um hina nýju uppfundningu, og pró- fessorinn hældi henni a hvert reipi með mikilli mælsku. Hún er almáttug Hún mun vekja ákafa eftirtekt um gjörvallan heiminn, hrópaði hann gagntekinn. Þjersegið að »hugsíminn« geti birt hugsanir manna, sagði hús- bóndinn drýgindalegur. Nú — en hvernig fer ef menn vilja dylja hugsanir sínar. — Hvernig fer þá? Foffensteinn glotti útundir eyru og sagði — það gerir ekkert til — Hinar sömu hugsanir birtast og skrifast upp um leið — Með hug- símanum mínum get eg sagt yður hvernig þjer sváfuð í nótt. Eg get sagt yður hvað þjer hugsið um mig bætti prófessorinn við óg lagði feitu hendina sína á brjóst sjer, og eg get enn fremur sagt yður hvað þjer höfðust að á ferðalagi yðar vikuna sem leið. — Mjög óþægileg — merkileg vjel ætlaði jeg að segja, sagði húsbónd- inn. Sumir af gestunum voru mjög hrifnir af fyrirlestri prófessorsins. Frú Algy Fastley spurði feimnislega, og roðnaði út undir eyru — Eru slíkar vjelar til í raun og veru? segið mjer það — það er skrítið Og hvað langt aftur í liðna tímann getur þessi »hugsími« skýrt frá hvað maður hafi aðhafst? — Nú ekki lengra — Það ef þeg —- — nrrr eg meina, það er ákaflega merki- legt — og alt í einu fór ht|u að rnylja niður brauðmola, og fór að hugsa um seinasta skraddarareikn- inginn sinn, og hvað það var sem tafði hana á leiðinni. Frh. Stollway hinn voldugi víxlari tók nú til máls — Það er, herra Jlró- fessor, ákaflega merkileg uppfundn- ing — Ákaflega merkileg segi jeg En — er hún nú áreiðanleg — hm! he! Ö<

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.