Vísir - 20.03.1911, Blaðsíða 3

Vísir - 20.03.1911, Blaðsíða 3
útum síðar ber að hvern bátinn á fætur öðrum, alla í sjávarháska og voru margir af þeim búnir að gefa upp alla vörn. Bátar þessir, 6 að tölu, Iögðu smátt og smátt að Fríðu og varð flestuni skipverja náð upp úr bátunum þann veg, að skipverjar á Fríðu náðu í axlir bátverja og kipíu þeim upp. Öllum varð bjargað, nema einum manni, Þorgeiri Þórðarsyni úr Grinda- vík. ' Hann varð milli bátsins og skipsins og marðist til dauða. Var innbyrtur þegar er náðist, en dó eftir fáar mínútur. Björgunin tók 1 k'ukknstund — og var Fríða þá 1 y2—2 mílur undan landi. Fór svo Fríða meö skipshafnirnar og bátana 6 aftan í sjer til lands, en á þeirri leið brotnuðu eða fóru í sjóinn annan veg 4 bátanna, en 2 varð komið til lands nokkurn veginn óskemdum. Fimm bátar voru frá Járngerðarstaðahverfinu, en einn úr Staðarhverfinu. Ef Fríðu hefði eigi borið þarna að, sem róðrarbátarnir vóru — er ekkert sýnna en að þeir myndu hafa farist allir — og þar druknað 57 manns úr sömu sveit eða því sem næst. Því voðatjóni fjekk skipshöfnin | afstýrt. Einn borgari þessa bæar, sem eigi vill láta nafns síns getið, leit svo á, að þessa dáð skipshafnar bæri að viðurkenna maklega. — Fór hann til útgerðarmanns skipsins, Ásgeirs konsúls Sigurðssonar, og afhenti honum 200 kr. gjöf handa skipshöfninni. Laglega af sjer vikið — og mættu fleiri þess konar gjafir gjarna á eftir fara. Skipstjóri á Fríðu er Ólafar Ólafs- son, Skaftfellingur að ætt — dug- mesti maður. ísaf. Hermann SioII, Svisslendingurinn, sem hjer vai á ferðinni í sumar leið hefir í vetur haldið fjölda fyrirlestra í Frakklandi og Sviss um ferð sína og jafnframt sýnt mörg hundruð myndir frá helstu stöðum hjer á Iandi. Meðal annars hjelt hann fyrirlestra í landfræðisfjelaginu í París. Áheyr- endurnir, sem vóru mörg hundruð manns, gerðu besta róm að máli hans. Hann hefir ennfremur samið bólc um ísland, sem verið er að prenta í París; verður fróðlegt að V í S I R heyra hvernig honum farast þar orð um landið og íbúa þess. Af tali hans að dæma, meðan haun dvaldi í hjer í sumar, er enginn vafi á því ! að liann muni mörgum útlending- í um frenuir kosta kapps um að út- breiða rjetta skoðun á íslandi, því hann virtist vera mjög ánægður yfir för sinni, og er það vel, er útlendur maður af sjálfs dáðum útbreiðir rjetta þekkingu á landinuí þeim lönd- um, sem það var áður að mestu leyti ókunnugt. Hann hefir nýlega getið þess í brjeíum til kunningja sinna lijer, að hann hafi í hyggju að takast nýja ferð á hendur næsta sumar og mun það vera ætlun hans að rann- saka þá sjerstaklega Vatnajökul. Hann hefir spurst fyrir um hvort ekki mundi hjer einhver, er hefði löng- un til að vera með honum í ferð þessari. væri það án efa fróðleg ferð fyrir þann mann er tíma hefði til, því maðurinn er afar duglegur ferðamaður og auk þess fróöur mjög um jarðfræðileg efni. P. ísaf. Skíðaferð nm fjöll og firnindi Skíðaskóli stóð til að yrði á Kolviðarhól dagana 10—15 þ. m, Af þvf svo fáir þátttakendur buðu sig fram var skólinn afboðaður. 2 sveitapiltar voru koinnir hing- að til bæarins til að sækja Skíða- skólan, og til þess að þeir færu eigi fýluferð, fór skíðakappinn Hr. L. Múller með piltunum í 5 daga skíðaferð. Hr. L. Múller og lærisveinar hans höfðu mikið yndi og gagn af ferð- inni. Þeir lögðu af stað 10. þ. m. Gekk ferðin stirt fyrst því hvorugur ís- lendinganna kunni á skíðum, en komust brátt á lagið. Á 2 klukku- stundum fóru þeir fjelagar frá Lækjarbotnum að Kolviðarhól. Notuðu þá skíðasegl, flýtirinn annars óskiljanlegur hjá viðvaningum. Skíðamennirnir gistu 3 nætur á Kolviðarhól, æfðu þeir sig þar í 2 dag. Segir hr. L. Mullet að lands- lagið kringum Kolviðarhól sje eink- ar vel lagað til skíðaferða og skíða- brekkur öllu skemtilegri en við Holmenkolleti í Noregi. Einn daginn fóru þeir fjelagar á skíðum upp á Hengilinn. Veðrið ■ var fagurt og bjart og er hr. L. 75 Muller mjög hrifinn af útsýninni þaðan. Hressandi skriða segir hr. Muller að sje ofan af Skarðsmýrar- fjalli heim að bænum á Kólviðarhóli. 13. Marz lögðu skíðamennirnir af stað frá Kolviðarhól og fóru á 5 tímum þaðan að Kárastöðum í Þingvallasveit. Það var svo heitt uiíi daginn þar uppá fjöllunum að þeir þoldu ekki við nema að tína af sjer spjarirnar. Áð var í hlíðum Sköfnungs og saúð hr. MöIIer þar á spritmaskínu er hann hafði meðferðis handa jer og lærisveinum sínum. 14. Marz fóru þeir lengstu dag- leiöipa um 40 kílometra. Fyrst frá Kárastöum til Þingvalla, þaðan aft- ur að Kárastöðum um Stíflisdal, um Stóra Sauðafell og Leirvogsvatn, að Miðdal. Gistu þeir þar og fóru daginn eftir til Rvk. Vegalengd sú er skíðamenn fóru mun vera alls 125 kflómetrar. Vjer öfunduin hr. MöIIer, son Björns í Gröf og Kristófer Jónsson frá Valbjarnarvöllum í Mýrasýslu af þessari ferð. Veður fengu þeir ágætt alla dagana, nema fyrstu 2 — nokkurn skafrenning. S. V. Randers. Sparsommelighed er vejen til Vel- stand og Lykke, derfor bör alle som vil have godt og billigt Stof (ogsaa Færöisk Hueklæde) og som vill have noget ud af sin Uld ellergamleuldne strikkede Klude, skrivetil Chr. Junc- hers Klædefabrik í Randers efter den righoldige Prövekollektion dertilsen- des gratis. wnac«i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.