Vísir - 13.04.1911, Page 1
Kemurvenjulegaút kl.ll árdegis sunnud.
þriðjud., tniðvd. fimtud. og föstud.
25 blöðin frá 1. apr. kos.ta: A skrifst. 50 au.
Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 au.
Afgr. í Pósth.str. 14A. Opin mestan hluta
dags. Óskað að fá augl. sem tímanlcgast.
Miðviku. 12. apríl 1911.
Skfrdagur. — Fult tungl.
gSól í hádegisstað kl. 12,28“
Háflóð kl. 5,10“ árd. og 5,26“ síðd.
Háfjara kl. 11,22“ árd. og 11,38“ síðd.
Afmæli.
Ögmundur Sigurðsson skraddari, 33 ára.
Jes Zimsen kaupmaður, 34 ára.
Björn Jakobsson kennari, 25 ára.
Póstar.
E/s Ingólfur til Borgarness.
E/s Sterlíng til Breiðafjarðar.
E/s Ceres til ísafjarðar.
Norðan- og vestanpóstar fara.
~~S<
m
ii
Málverkasýing
Þórarins B. Þorlákssonar
opin í dag kl. 12—4
og
••Tí síðasta sinn'W
á morgun á sama tíma.
^ I
#=
í Síioam Skírdag og 1. Páskadag
báöa dagana kl 6x/2 síðd.
D. Östlund.
Samsæri í Kongóríkinu.
Nýlega hefur komist upp mjög
víðtækt samsæri innfæddra manna
þar gegn hvítum mönnum. Voru
samsærismenn af Uella-þjóðflokki,
en sá þjóðflokkur hefur notið
mests trausts hjá hvítum mönn-
um og hafa þeir helst valið þá
sem þjóna sína. Samsærismenn
höfðn það í hyggju að myrða
alla hvíta höfðingja þar í landi,
alla samstundis, og höfðu þjón-
arnir útvegað sjer til þess nægð
af skammbyssum. En áður en
verkið væri framkvæmt, kom
einn þjónanna upp um samsæris-
mennina og varð þá ekkert úr
morðunum. Sumir flýðu og aðrir
Kartöflur
Appelsínur
Laukur
í verslun Einars Árnasonar.
voru teknir höndum. Mikiðfanst
af skotfærum og sprengiefni, sem
sprengja átti með hús smbættis-
manna í loft upp.
Svarti dauði. Vikuna 18.-25
febr. dóu á Indlandi 22000 manns
en í næstu viku þar á eftir 28 þús-
undir.
Aðventisti í þýska hern-
um. í þýska hernum er aðvent-
isti nokkur, sem neitar að starfa á
laugardögum. Þegar er fer að
skyggja á föstudagskveldin hættir
hann allri vinnu og skipanir hers-
höfðingjanna geta engu áorkað. Hann
hefur verið dreginn fyrir herdóm
og dæmdur þar og sá dómur stað-
festur af yfirherdómi ríkisins. Það
er engin smávægis hegning, sem
hann verður að þola fyrir trú sína:
Lffstíðar fangelsi.
Hundaæði.
Svo sem skýrt var frá í síðasta
blaði hafði hundur fengið æði, úti
í rússneskum fallbyssubát sem lá á
höfninni í Kaupmannahöfn.
Læknar fóru út í skipið og var
hundurinn þá dauður. Var hræið
svo flutt í land og krufið. Öll
varasemi var viðhöfð að ekki bærist
sóttkveikjan út og höfðu læknar
þeir er krufðu þykka gunimiglófa á
höndunum. í maga hundsins fund-
ust hárhnyklar og aðrir ómeltan-
legir hlutir, sem hundurinn hafði
gleypt í æðinu. Hauskúpan var
söguð sundur og heilinn tekinn út
og hann skorinn í stykki ti! smá-
sjár rannsóknar, en bakterían lifir
einkum í heilanum.
Eftir langa og ýtarlega rannsókn
fanst svo bakterían og var nú ekki
lengur efi á hver veikin var.
Hundaæði geta öll dýr af hunda-
kyninu fengið svo sem hundar, úlfar
og refir.
Þegar hundur fær veikina verður
liann mjög órór og hleypur af
heimili sínu. Augnaráð hans verð-
ur hvast og augun rauð. Froða
rennur út úr honum, hann á ilt
með að kingja og eftir fáa daga
verður hann afllaus í atfurhluta
líkanians og neðri skolti. Hann fær
loks krampaköst og deyr síðan.
Þegar sjúkt dýr bítur mann, þá
berst sóttkveikjan í manninn, en
veikin gerir ekki vart við sig fyr
en eftir 40 daga þar frá. Byrjar
veikin þá með þunglyndi og síðan
koma kvalafull krampaköst, einkum
ef hann reynir að kyngja vökva, og
er sjúlingurinn því hræddur við
vökva og er sýkin oft kölluð »vatns-
fælni« af þeim orsökum. Eftir að
veikinnar verður vart lifir maðurinn
ekki nema fáa daga og deyr kvala-
fullum dauðdaga. Á síðustu öld
var hundaæði allalgeng sýki um
Norðurálfuna.
Á rússneska skipinu hafði hinn
óði hundur bitið fimm skipverja og
hafa þeir því tekið veikina. Enn
voru tveir hundar í skipinu og er
| talið víst, að þeir hafi einnig tekið
veikina. Voru menn nú kvíðafullir
í borginni, að veikin kynni að
breiðast út, einkum þar sem skip-
stjórinn var mjög hugsunarlaus um
þetta mál. Leitaði hann engrar
lækningar skipverjum sínum og
hundarnir gengu lausir. Það var
ekki heldur hægt að banna skips-
höfninni Iandgöngu.