Vísir - 04.05.1911, Síða 1
49
18
Kemnrvenjulega út kl. 11 árdegis sunnud.
þriðjud., miðvd. fimtud. og föstud.
25 blöðin frá 1. apr. kosta: Askrifst. 50 au.
Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 au.
Afgr.í Pósth.str. 14A. Opin mestan hluta
dags. Óskað að fá augl. sem tímanlcgast
Fimiud. 4. maí 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,24'
Háfióð kl. 9,42' árd. og 10,19' síðd.
Háfjara kl. 3,54' síðd.
Veðrátia í dag.
Loftvog 42' £ >< Vindhraði Veðurlag
Revkiavík 747,6 + 3,2 N 3 Heiðsk.
Isafj. 748,5 4- 1,0 0 Skýjað
Bl.ós 746,3 — 0,7 N 1 Þoka
Akureyri 745,9 0,0 V 1 Hríð
Grímsst. 710,5 r °.5 0 Alsk.
Seyðisfj. 743,1 4- 1,9 V 1 Hríð
Þorshöfn 735,5 4-5,0 VNV 3 Regn
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er taiin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Póstar.
E/s Botnia fer vestur.
Afmæli.
Pjetur Lárusson nótnasetjari 29 ára.
Jón Ouðmundsson, kpm. 29 ára.
Magnús Guðmundsson kpm. 52 ára.
daamu M\ \ öatvfia
máUwu.
Ráðherra hefur í fyrra mánuði
tekið aftur fyrir landsins hönd ;
og landsbankans mál það, sem !
var miiii hans sjálfs og þeirra |
útaf innsetningu hans í gæzlu- j
■
stjóra embættið. Var málið fyrir
hæstarjetti og búist við dómi
mjög bráðiega.
Fjárlögin eru til einnar umræðu I
í neðri deild í dag. Eru ýmsar '
breytingartillögur við þau.
•===—=
Augnablikshagnaður
Par sem jeg óska að halda viðskiftavinum mínum, sje
jeg mjer aðeins hag í að flytja góðar vörur, enda hefi
jeg haft þá reynslu að það væri affarasælast.
Komið og kaupið því þar, sem vörurnar eru beztar
og verðið sanngjarnast.
Versl. Björn Kristjánsson.
"Utarv aj
Hafísinn liggur enásömu slóð-
um. Spöng landföst við Horn og
allmikil ísbreiða fyrir Austurlandi.
Hólar og Austri enn inniteptir á
Eskifirði og Vestri kemst ekki fyrir
Hoi;n, en liggur á Aðalvík og bíður
fyrsfa tækifærisað sleppaausturfyrir.
‘Jvá úUöwAum.
Stórfeldur hrakningur
á sjó.
Við Landsendahöfða (Cabo de
Finisterre) á Spáni fórst gufuskipið
SanFernandoum miðjan fyrramánuð.
Rakst það á sker í stormi og dimm-
viðri og sökk á fáum mínútum.
Skipverjarnir, 25 að tölu, komust
með naumindum í björgunarbátana
þrjá, en fengu ekki tíma til að ná
neinum matvælum með sjer.
Þeir hröktust matarlausir um ólg-
andi hafið í, þrjá daga, en fjórðja
daginn fórst einn báturinn og menn-
irnir druknuðu.
þeir sem eftir lifðu urðu flestir
örvinglaðir af sulti og áreynslu og
köstuðu sjer útbyrðis og loks er
skip hitti þá voru aðeins fjórir
menn eftir á lífi.
Munið
Lundúna
Ur bænum.
Dánir: 30.apríl. Guðrún Magn-
úsdóttir gamalmenni í Sveinsbæ við
Brekkustíg, og 2. maí Anna Gísla-
dóttir frá Skriðnesenni í Stranda-
sýslu.
l Nýar rímur eftir Símon Dala-
skáld eru komnar út. Þær eru af
Hrafni Hnítfirðing.