Vísir - 19.05.1911, Síða 1
56
25
Kemurvenjulegaút kl. 11 árdegis sunnud.
þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud.
25 blöðin frá 1. apr. kosta: Á skrifst. 50 au.
Send út um Iand 60 au. — Einst. blöð 3 au.
Afgr. í Pósth.str. 14A. Opin mestan hluta
dags. Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Föstud. 19. maí 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,25“
Háflóð kl. 9,11“ árd. og kl. 9,37“ síðd.
Háfjara kl. 3,23“ siðd.
Póstar.
E/s Ingólfur til og frá Oarði.
E/s Sterling til austfjarða og útlanda
kl. 4 síðd.
E/s Ask kemur frá útlöndum.
Austanpóstur kemur.
Afmæli.
Steingrímur Thorsteinsson, rektor, 80
ára.
David Östlund, prentsmiðjueigandi,
41 árs.
Veðrátta t dag.
Loftvog r < Vindhraði Veðurlag
Reykjavík 763,3 r 8,7 A 5 Alsk.
Isafj. 763,0 - - 8,5 0 Alsk.
Bl.ós 763,8 h 8,5 S 4 Heiðsk.
Akureyri 764,6 r -10,2 S 5 Skýað
Grimsst. 730,0 - 8,0 s 3 Skyað
Seyðisfj. 766,9 -+- 6,5 0 Halfsk.
Þorshöfn 73o,0 + 8,0 s 3 Skýaö
Skýrmgar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 = logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
go!a, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8 =
hvassviðri, 9 = stormur, 10 = rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Appelsínur
3 teg. hver annari
betri í verzlun
Einars Árnasonar.
O— ...... ■ ---O
OSTAR
bestir í verzlun
Einars
Árnasonar.
O- - -------=0
Ur bænum.
Skipaf rjettir.
Ask fór frá Leith 16. árd.
Sterling fer til austfjarða og
útlanda í dag kl. 4,
Hólar fóru frá Kaupmannahöfn
í fyrradag áleið til Víkur oghingað.
Douro kom í morgun.
Kong Helgi kom í gaer morg-
un.
Vesta kom í morgun austan um
land frá Horni. Hafði allmarga
farþega.
Notre dame de la Mer, spítala-
skipið frakkneska fór á þriðjudag-
inn suðurfyrir Iand og verður þar
á sveimi um tfma. Fer síðan til
Fáskrúðsfjarðar og þaðan til Aber-
deen á Skotlandi, en kemur hingað
aftur í byrjun júlí.
E/s Sterling fór á sunnudaginn
til Stykkiskólms og með því Koofod
Hansen skógræktarstjóri og Magnús
Ólafsson Ijósmyndari. Var haldinn
skógræktarfyrirlestur í Hólminum og
sýndar þar skuggamyndir af íslensk-
mu skógarsvæðum.
Steingrímur Thorseinsen rekt-
or er áttræður í dag. Er honum
haldið &amsæti í Iðnó kl. 7 í kveld
og þar um 150 manns eöa eins
margir og húsrúm leyfir. Þorsteinn
skáld Erlingsson flytur honum kvæði
en Hannes skáld Hafstein mælir
fyrir minni hans.
Nýtt fjelag er að myndast hjer
í bænum sem ætlar aðtaka á leigu
nokkra botnvörpunga.
Stjórnmálaflokkarnir hjeldu
með sjer fund hvor í sínu lagi í
Þinglokin til þess að velja sjer þing-
mannaefni í kjördæmin. Listarnir eru
þó hjá hvorugum fullgerðir enn.
Aítan latvdl.
Silfurbergsnáma
mikil er fundin í Hoffelli við
Hornafjörð, og hefur Björn banka-
stjóri Kristjánsson keypt hana að
sögn.
Símfrjetf.
Akureyri 17. maí.
Hjeðan er að frjetta hina bestu
tíð. Síldarafli er hjer talsverður og
ufsi mikill.
ís er nokkur útifýrir, nægur til
þess að hákarlaskipin geta ekki
legið við veiðar. Eitt þeirra kom
inn í morgun með 80 tunnur lifrar.
Sjera Mattías í Grímsey er hjer
staddur og segir hann engan ís fyr-
ir utan Grímsey.
Vesta varð að snúa aftur við Horn
og fara austur um land. Aftur geng-
ur mótorskip Edinborgarverslunar
stöðugt milli Akureyrar og ísafjarðar.
ívar Helgason, áður verslunar-
stjóri við Edinborgarverslun, er nú
orðinn bókari við Klæðaverksmiðj-
una á Akureyri.
Akureyrarskjöldurinn. Glímu-
fjelagið Grettir á Akureyri efndi til
kappglímu á sumardaginn fyrsta um
skjöld sinn sem heitir »Akureyrar-
skjöldurinn«. Sá hjet Eiður, Guð-
mundsson frá Þúfnavöilum, er skjöld-
inn hlaut, Næst áður hafði hann
Jón Pálmi Jónsson og glímdi hann
nú einnig.
1 íi'E
Minnisvarðaskemtun. Á Hofs-
ós var haldin kveldskemtun 1. f. m.
til ágóða fyrir minnisvarða Jóns
Sigurðssonar. Þar hjelt sjera Pálmi
Þóroddsson fyrirlestur um Jón for-
seta, Anton Proppé verslunarstjóri
sýndi leikfimi, Jón Árnason búfr.
frá Vatni söng þar og einnigsöng-
flokkur. Var skemtunin vel sótt.
Veikindi hafa verið allmikil í
Skagafirði. Taugaveiki, lungnabólga
og íllkynjað kvef.
Hákariaveiði hefir Helgi Haf-
liðason kaupmaður á $iglufirði látið
stunda síðari hluta vetrarins og haldið
úti til þess þrem vjelarbátum. Hafði
hann í byrjun þ. m. fengið nokkuð
á annað hundrað tunnur af lifur og
var þegar búinn að bræða allmikið
af henni. Oh.