Vísir - 28.05.1911, Blaðsíða 1

Vísir - 28.05.1911, Blaðsíða 1
60 4 Kemur venjulega út kl. 11 árdegis sunnud. þrjðjud., miðvd., fimtud. og föstud. 25 blöðin frá 21. maí. kosta: Á skrifst.50 au. Send út um land 60 au. — Einst. blöð 3 au. Afgr. á horninu á Hotel Island 11-3 og 5-7. Óskað að fá augl. sem tímanlegast. Sunnud. 28. maí 1911. Nýtt tungl. Sól í hádegisstað kl. 12,25' Háflóð kl. 5,11' árd. og kl. 5,35' síðd. Háfjara kl. 11,23‘árd. og kl. 11,47‘síðd. Póstar. E/s Ingólfur frá Straumfirði og Borg- arnesi. Afmæli. Asgrímur Eyþórsson, 34 ára. Eyólfur Jónsson, rakari, 26 ára. Gísli Guðmundsson, bókbindari, 37 ára. Guðjón Jónsson trjesmiður, 28 ára. Guðmundur Oddgeirsson, baukam. 35 ára. D. Ostlund talar um bænina Faöir vor í Sílóam í dag kl.ö'/j. ÉcrðlaunaYÍsan. Leikhúsbrunil Ediuborg. Leikendur brenna inni. 10. þ. m. brann leikhúsið Empire Place Theatre í Edinborg. Eldurinn kom upp kl. 7 um kvöldið er leikur stóð yfir. Áhorfendur komist út án þess að hræðslufát kæmi á þá, en eldurinn kom upp við leiksviðið, og er ætlað að lampi hafi farið um koll og kveikt í leiktjöldunum. Flest- ir leikendanna voru staddir í bún- ingsklefanum og komust ekki þaðan, þar sem eldurinn var fyrir dyrum. Björgunarmenn komust þó þarna inn og náðu nokkrum mönnum hálfköfnuðum í reyk, en margir brunnu inni. Þar á meðal 2 börn. eldurinn varð slöktur um miðnsetti og var þá bakhluti hússins brunninn og fallinn niður. Vorsins tungur syngja sinn sigurþrunginn óðinn. Bestur botn: Jeg get sungið, Maí minn, með þjer ungu Ijóðin. Ónefndur. Næstir eru: Vetrar drunga viðskilinn vaknar unga þjóðin. Jón Þórðarson úr Fljótshlíð. (Fœr verðlaunin.) Hverfur drungi, hugfanginn hlustar ungi gróðinn. I I l I í Frímerki i einkum þjónustufrímerki og BrjefspjöSd kaupir EINAR GUNNARSSON hæsta verði. Á afgr. Vísísis I I I I Konungur vor í Frakklandi. Konungur vor er um þessar mundir í Frakklandi. 14. þ. m. stóð í höfuðstaðarblöðunum dá- lítil smásaga, sem sýnir hve kon- ungurinn er nærgætinn. Konungurinn gekk út úr gisti- húsinu þann dag án þess að hafa nokkurra fylgd og tók hann þá eftir hóp af Ijósmyndurum, sem auðsjáanlega biðu hans, en þektu hann ekki, er hann kom þarna einn síns liðs. Konungur kendi í brjóst um þá og er hann sá að þeir höfð- ust ekki að, gekk hann til þeirra og sagði: »Jeg ætla að þið bíðið hjer eftir mjer«. Og áður en ljósmyndararnir voru búnir að átta sig almenni- lega,bætti hann við. »Og byrjum við þá! Hvar viljið þið að jeg standi.* Ljósmyndararnir settu hann í stellingar. Hann var vingjarnleg- jAppelsínurj 3 teg. hver annari i betri í verzlun Einars Árnasonar. OSTAR bestir í verzlun Einars Árnasonar. Þórdís Jónsdóttir IjósmóOir er flutt á Klapparstig 1 niðri. ur útlits og beið þolinnmóður þar til flokkurinn hneigði sig og þakkaði. J Ur bænum. Leikvellinum miðar vel áfram, er nú langt komið aö afgirða hann með 4 álna háum járnplötum. Hann er 190 stikur að lengd og 100 stikur að breidd. Áhorfenda svæði er út við giröinguna alt í kring, en leiksvæðið er í miðju, ílangt og hálfhringmyndað til endanna. Það er marflatt og hefur þurft að grafa það niður að norðvestan en bera ofaní að suðaustan. Það er um- girt lágum ávölum grasi vöxnum flóðgarði. Hjer á að veita vatniá, á vetrum og hafa skautasvell. Gas- leiðsla og vatnsleiðsa er umhverfis svæðið. Jón verkfræðingur Þorláks- son hefur aðalumsjón með verkinu, en Daníel verkstjóri Hjálmsson segir þar fyrir vinnu. Talið er að völlinn megi vígja um Hvítasunnu, ef veður leyfir.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.